Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
9
dv Stuttar fréttir
Til Nordur-Kóreu
Háttsettur bandarískur erin-
dreki fór til Norður-Kóreu í
morgun til að fá þyrluílugmann
leystan úr haldi.
Fjarlægðir
ísraelskir hermenn fjarlægðu
mótmælendur frá landnámsjörð
gyðinga á Vesturbakkanum.
Cliníon dáðastur
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti er dáðastur
aRra karl-
mannaþarábæ
en eiginkona
hans, I-Iillary,
og móðir Ter-
esa voru jafnar
að stigum meðal kvenna, segir í
nýrri skoðanakönnun.
SpennaiBihac
Spenna er í Bihac í Bosníu og
gæti hún tafið samninga um
endalok stríðsins.
Sefja skilyrði
Stjórn Bosm'u segist ekki ræða
um fjögurra mánaða voprtahlé
fyrr en Serbar láti af hemaöi i
Bihac.
Gjaldmiðill hrapar
Pesóinn, gjaldmiðill Mexíkós,
hrapaði í veröi um tíu prósent af
ótta við óróa í Chiapas-fylki.
Lifaskemur
Konur sem smitaðar eru af
HlV-veirunni lifa skemur en
karlar og er sérlega hætt við að
fá lungnabólgu.
Bushreiður
George Bush,
fyrrum Banda-
ríkjaforsetí,
veittist harka-
lega að þeim
sem nota mál
njósnarans
Aldrích Ames
til að rakka nið-
ur leyniþjónustuna CIA en Bush
stjórnaði henni á áttunda ára-
tugnum.
Dómarar mótmæla
Dómarar i spillingarmálum i
Mílanó hafa-áfrýjað ákvörðun
um að skerða völd þeirra.
Hættirvið
Leiðtogi stærsta andstöðu-
flokksins í Perú er hættur við að
bjóða sig fram í forsetakosning-
um.
Eldmaður ákærður
Maðurinn, sem sprengdi eld-
sprengju í neðanjarðarlest í New
York, hefur verið ákærður fyrir
m.a. morðtilraun.
Undir eftirlití
Bandarískar hersveitir höfðu
eftirlit með aðalstöðvum hersins
á Haítí í gær eftir óeirðir.
Banda ekki lagður inn
Kamuzu
Banda, fyrrum
einvaldur í Afr-
íkurikinu
Malaví, liggur
ekki á sjúkra-
húsi i Suður-
Afriku, að sögn
einkalæknis
hans, en útvarpið í SuöurrAfríku
hafði haldið því fram.
Þyrla fórst
Tveir létu lifið þegar þyrla í
æfmgaflugi hrapaði á þriggja
hæða íbúðarhús í Zúrich i Sviss
í gær.
Blaðamenn deyja
Aldrei fleiri blaðamenn hafa
látið lífið við störf sín en á þessu
ári, alls 115 menn, og voru flestir
drepniriRúandaogAlsír. Reuter
Alsírsku flugræningjamir ætluöu aö sprengja vélina á flugi:
Viklu flugeMa-
sýningu í París
Morðin á fjórum rómversk-
kaþólskum prestum í Alsír kynda nú
undir ótta manna í Frakklandi um
að landið eigi eftir að dragast inn í
borgarastríðið í Alsír eftir að vík-
ingasveit frönsku lögreglunnar drap
íjóra flugræningja á flugvellinum í
Marseille á mánudag og frelsaði
áhöfn og farþega. Flugræningjarnir
höfðu rænt vélinni í Algeirsborg á
aðfangadag.
Prestamir, þrír Frakkar og einn
Belgi, voru myrtir í gær í bænum
Tizi-Ouzou í norðurhluta Alsír, dag-
inn eftir áhlaupið á flugvélina. Als-
írsk stjórnvöld kenndu heittrúuðum
múslímum um ódæöisverkið.
Fréttirnar um dauða prestanna
bundu enda á fagnaðarlæti Frakka
yfir lausn gíslatökunnar á flugvellin-
um í Marseille. Ekki varö það svo til
að styrkja taugar franskra þegna
þegar Charles Pasqua, innanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði að flug-
ræningjarnir hefðu viljaö fljúga til
Parísar og sprengja vélina í loft upp
yfir borginni.
„Markmið hryðjuverkamannanna
var sjálfsmorðsárás á París,“ sagði
Pasqua á fundi með fréttamönnum í
gær. Flugræningjarnir höfðu komið
fyrir um tuttugu dínamíttúpum und-
ir sætum vélarinnar.
„Þeir vildu halda flugeldasýningu
yfir París,“ sagði alsírski söngvarinn
César Ferhat sem var meðal farþega
í vélinni.
Pasqua sagði einnig aö prestarnir
hefðu hugsanlega verið myrtir í
hefndarskyni fyrir aðgerðir frönsku
lögreglunnar.
Alsír fékk sjálfstæði frá Frökkum
árið 1962 eftir sjö ára styrjöld. Heit-
trúaðir múslímar í Alsír saka frönsk
stjórnvöld um að vera í vitorði með
herforingjastjórninni. Mikil skálm-
öld hefur veriö þar síðan herforingj-
arnir aflýstu kosningum árið 1992
þar sem útlit var fyrir sigur heittrú-
aðra múslíma.
„Nýja stríðiö í Alsír er komið yfir
Miðjaröarhafið," sagði franska dag-
blaðið Le Monde í gær, áður en frétt-
ist af morði prestanna. Reuter
Ættingjar og vinir fagna farþegunum sem voru i (rönsku flugvélinni sem heittrúaðir múslímar rændu í Alsir á
aðfangadag. Farþegarnir komu til Parísar í gær eftir miklar þrekraunir. símamynd Reuter
Engin lausn í sjónmáli á stjómarkreppunni á Ítalíu:
Óeining í flokki Berlusconis
um forystuhlutverk hans
- rætt um aðra menn í stól forsætisráðherra
Þingmenn Norðurbandalagsins,
fyrrum samstarfsílokks Silvios Ber-
lusconis í síðustu ríkisstjórn Ítalíu,
hafa alfariö hafnað því að gengið
verði strax til kosninga eftir að Ber-
lusconi sagði af sér í síðustu viku.
Norðurbandalagið lagði einmitt fram
vantrauststillögu á ríkisstjórnina.
Samstaða hefur nú náðst um þessa
skoðun í Bandalaginu en Berlusconi
hafði vonast til þess að um 40 upp-
reisnarmenn í flokknum myndu
styðja tillögu hans um að ganga til
kosninga strax. Leiðtogar Norður-
bandalagsins vilja mynda ríkisstjóm
sem þeir kalla „ríkisstjórn forset-
ans“, stjórn sem allir flokkar gætu
átt aðild að.
Á sama tíma og þessi samstaða
næst í Norðurbandalaginu virðist
vera komin upp óeining í flokki Ber-
lusconis sjálfs, Áfram Ítalía. Þar a
bæ eru ekki allir sammála því að
Berlusconi sé eini maðurinn sem
flokkurinn geti stutt til þess að leiða
Silvio Berlusconi haföi vonast til
þess að fá uppreisnarmenn í Norð-
urbandalaginu til að styðja tillögu
um kosningar. Það gekk ekki eftir.
í flokki ‘Berlusconis er ekki eining
um hann sem næsta forsætisráð-
herra. Simamynd Reuter
næstu stjórn Ítalíu. Vittorio Dotti,
leiðtogi flokksins i neðri deild þings-
ins, segir að það eigi að vera megin-
markmið flokksins að leiða næstu
ríkisstjórn en það sé ekki endilega
krafa að það geti einungis verið Ber-
lusconi sem leiði ríkisstjórnina.
Oscar Luigi Scalfaro, forseti italíu,
sem talinn er hafa framtíö ítalskra
stjórnmála í hendi sér, hefur afdrátt-
arlaust lýst því yfir að hann vilji
ekki boða til kosninga strax. Hann
ræddi við forseta beggja þingdeilda í
gær og hyggst ræða við forystumenn
stjórnmálaflokkanna í dag.
Carlo Scognamiglio, þingforseti
efri deildar, sem fjölmiðlar telja lík-
legan sem næsta forsætisráðherra,
lét hafa eftir sér í gær að hann sæi
ekki að stjórnarkreppan leystist á
næstunni. Berlusconi hefúr farið
fram á það við Scalfaro forseta að
hann skipi sig sem forsætisráðherra
þar til kosningar verði haldnar.
Reuter
Útlönd
Amessegirfieiri
KGB-moldvörp-
urinnanCIA
Aldrich
Ames, háttsett-
ur liðsmaður
bandarísku
leyniþjón-
ustunnar, CIA.
sem var dæmd-
ur fyrir njósnir
í þágu Moskvu-
stjómarinnar í vor, segir að hugs-
anlega séu fleiri moldvörpur að
störfum fyrir þá rússnesku KGB
innan bandaríska njósnakerfis-
ins.
Ames lét orð í þá vera falla í
viðtali við sjónvarpsstöðina CNN
sem sýnt var í gærkvöldi. Ames
afplánar nú lífstíðarfangelsisdóm
fyrir njósnir sínar.
Fulltrúi CIA var viöstaddur
þegar viðtaiið var tekið til að
koma í veg fyrir að Ames kæmi
upp um einhver leyndarmál.
Konur í meiri
hættuaf völdum
lungnakrabba
Þeim sem reykja meira en fjór-
tán sígarettur á dag er 26 sinnum
hættara við að deyja úr lungna-
krabba en þeim sem ekki reykja.
Þá eru konur í meiri hættu en
karlmenn.
Þetta kemur. fram í rannsókn
sem sænska tölfræðistofnunin
gerði og birti í fréttabréfi sínu um
velferðarmál.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós
að hlutfallslega miklu færri hafa
bytjað að reykja á undanförnum
áratug en áður. Það á þó einkum
við um karlpeninginn.
Hagstofan kannaði samband
milli reykinga ög lungnakrabba
hjá einstaklingum með því að
tengja saman upplýsingar úr
rannsókn á lifnaðarháttum og
upplýsingar um dánarorsakir.
Samkeyrsian leiddi 1 ljós að
dauðsföllum af völdum lungna-
krabba híá konum fór fjölgandi á
9. áratugnum. Reuter, TT
Viðskii )taJ )laðið
Alltaf á
miðvikudögum
i
Nr. Lelkur: ____________________Rdðln
Nr. Lelkur: ______________Hóðln
1. Leeds - Newcastle -X -
2. Chelsea - Man. Utd. --2
3. Leicester - Liverpool --2
4. Arsenal - Aston V. -X -
5. Coventry - Notth For. -X -
6. Norwich - Tottenham --2
7. C. Palace - QPR -X -
8. Southamptn-Wimbledon--2
9. Everton - Sheff. Wed - -2
10. West Ham - Ipswich -X -
11. Sheff. Utd - Middlesbro -X -
12. Oldham - Wolves 1 - -
13. Tranmere - Derby 1 --
Heildarvinningsupphæð:
104 mllljónlr
13 réttirf
12 réttir |
11 réttir >
10 réttirl
2.771.660
116.340
9.470
2.250
kr.
kr.
kr.
kr.