Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 Fréttir Delta selur hjartalyf til Þýskalands: Arsvelta fer úr 400 í 1000 milljónir - góð búbót, segir framkvæmdastjórinn Lyfjafyrirtækið Delta hf. í Hafnar- flrði hefur gert samninga við á annan tug þýskra lyfjafyrirtækja um sölu á hjartalyfi í Þýskalandi fyrir hundruð milljóna króna. Fyrstu sendingar eru þegar farnar til Þýskalands enda fór einkaleyfi af lyfinu um síðustu helgi. Þetta eru einhverjir stærstu sö- lusamningar sem íslenskt lyfjafyrir- tæki hefur gert við erlenda aðila. Með þeim er áætlað að Delta ríflega tvöfaldi ársveltuna og hún verði ná- lægt einum milljarði króna. „Þetta er góð búbót. Markaðurinn í Þýskalandi er stór fyrir þetta eina lyf. Smásöluveltan þar er í kringum 13 miHjarðar. Samningarnir eru til lengri tíma, allt að 5 árum. Fyrsta árið verður sala til Þýskalands á bil- inu 500 til 600 milljónir. Við höfum verið að vinna að þessu verkefni í 3-4 ár en framleiðsla upp í gerða samninga hefur staðið yfir síðan í október. Vegna þessa höfum við fjár- fest í nýjum tækjakosti fyrir um 70 milljónir og bætt við 15 nýjum störf- um. Alls starfa 65 manns hjá okk- ur,“ sagði Ottó B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Delta, við DV. Hjartalyfið, sem nefnist Katopril, hefur verið á markaði hérlendis síð- ustu fjögur ár. Það er notaö við há- þrýstingi og hjartabilun og hefur mikla útbreiðslu í heiminum. Delta framleiðir lyfið annars vegar eftir eigin forskrift og hins vegar eftir for- skrift sem hluti af viðskiptavinum fyrirtækisins óskar eftir. „Aðrir markaðir í Evrópu opnast ekki fyrr en árið 1997. Einkaleyfi af Ottó B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Delta í Hafnarfirði, með hjartalyfið sem er verið að selja í tonnatali til Þýskalands fyrir hundruð milljóna króna. DV-mynd BG lyfjum falla úr gildi á mismunandi tímum. Almennt er hægt að sækja um einkaleyfi á ákveðnum lyfiaefn- um í flestum löndum. Þá fá menn 20 ár, frá því sótt er um einkaleyfi þar til það fer af. Hér á íslandi hafa er- lendir aðilar lítið sótt um einkaleyfi þannig að við höfum haft tiltölulega frjálsar hendur. Þetta breytist 1997 vegna GATT-samkomulagsins. Eftir það fæst einkaleyfi á efnum en í dag fást einkaleyfi á aðferð við að fram- leiða efnin. Við horfum björtum aug- um til framtíðarinnar hvað erlenda markaðinn varðar. Hér innanlands er samkeppnin hörö þar sem lyfia- verð hefur lækkað og sviptingar eru miklar," sagði Ottó. Bridgehátíðin: SveitZia sigraði Sveit Pakistanans Zia Mahmood náði að hampa sigri í sveitakeppni Bridgehátíöar Flugleiða sem lauk í gærkvöldi á Hótel Loftleiðum. ís- lenskar sveitir höfnuöu í næstu tveimur sætum, en alls tóku 92 sveit- ir þátt í þessari keppni. Sveit Zia Mahmood var í barátt- unni um efsta sætið mestallan tím- ann og hafði fyrir lokaumferðina 10 stiga forystu á næstu sveit. Sveit Zia spilaði við sveit Samvinnuferða- Landsýnar í síðustu umferðinni og tapaði þeim leik naumt, 14-16, en hefði mátt tapa þeim leik 11-19 og samt hafnað í fyrsta sætinu. Sveit Samvinnuferöa tryggði sér annað sætið í mótinu með sigrinum á sveit Zia. Með Zia í sveit voru Bret- inn Tony Forrester og Kanadamenn- imir George Mittelman og Fred Git- elman. í sveit Samvinnuferða voru Helgi Jóhannsson, Guðmundur S. Hermannsson, Bjöm Eysteinson, Aðalsteinn Jörgensen og Rúnar Magnússon. Lokastaða efstu sveita varö þannig í mótinu: 1. Zia Mahmood 196 2. Samvinnuferðir-Landsýn 188 3. Tryggingamiðstöðin 184 4. Norge ísland 184 5. Rita Shugart 183 6. VÍB 182 7. Bretland, yngri spilarar, 181 8. Landsbréf 180 Guðrún Helgadóttir: Stofnaásérstakt ríkisdagblað Guörún Helgadóttir alþingismaður sagði í utandagskrárumræðum um sammna fiölmiðla og fiölmiðlavald á Alþingi í gær að hún treysti Ríkisút- varpinu best allra fiölmiðla hér á landi. Hún sagöi að nú væri að henn- ar dómi komið að því að þjóöin eign- aðist dagblað. Alþingi ætti að kjósa yfirstjóm þess sem svo aftur réði rit- stjóra. Þama ætti að vera um að ræða ríkisdagblað á sama hátt og nú er rekið ríkisútvarp og sjónvarp. Þessi hugmynd Guðrúnar fékk ekki mikinn hfiómgrunn á Alþingi. Vel á þriðja þúsund framhaldsskólanemar söfnðuðst saman á Ingólfstorgi í Reykjavík i gærdag til að mótmæla boðuðu verkfalli kennara. Nemendurnir gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir skilningsleysi á gildi menntunar. Á fundinum tóku þau Friörik Sophusson fjármálaráðherra, Eiríkur Jónsson, formaöur KÍ, og Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, á móti undirskriftalistum með nöfnum hátt i tuttugu þúsund nemenda þar sem skorað er á stjórnvöld og kennara- félögin að semja strax. DV-mynd GVA Vemlegur munur er á launum karla á kvenna, hvort heldur hrein- um dagvinnulaunum, dagvinnu- launum og aukagreiðslum eða jafn- aðarkaupi. Konur em aðeins með 78 prósent af hreinum dagvinnulaun- um karla. Þegar tekið er tillit til aukagreiðslna era þær með enn minna eða 70 prósent af launum I karla. Miðað við jafnaðarkaup em ■ konur með 68 prósent af launum ; karla. Þetta kemur fram í niðurstöð- um könnunar á launamun í flómm opinberum stofnunum og fiórum einkafyrirtækjum sem unnin var af , Félagsvísindastofnun. i Enginn munur er á launum karla |og kvenna sem hafa ekki stundað ! nám eftir gmnnskóla en töluverður j munur er á launum karla og kvenna ! sem hafa lokið framhaldsskóla- eða háskólaprófi. Konur með framhalds- skólamenntun em með 78 prósent af dagvinnulaunum og aukagreiðsl- um karla með sambærilega menntun og konur með háskólamenntun em verst settar með aöeins 64 prósent af launum háskólamenntaðra karla. Félagsmálaráðhera kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi í gær. Ráð- gjafarhópur verður skipaður til að vinna gegn launamun kynjanna. DV-mynd Brynjar Gauti í niöurstöðum könnunarinnar seg- ir að starfsstétt, menntun, starfsald- ur, aldur, fiöldi yfirvinnutíma og það hvort starfað sé hjá einkafyrirtæki eða hinu opinbera skýri stóran hluta af launamunirtum. Þessir þættir hafi mun meiri áhrif á laun karla til hækkunar en kvenna. Rannveig Guðmundsdóttir félags- málaráöherra, sem kynnti niður- stööurnar á blaðamannafundi ný- lega, segir að fyrirhugað sé að skipa ráðgjafarhóp með aðilum vinnu- markaðarins til aö vinna gegn launa- mun, til dæmis með fræðslustarfi. Þá veröi hugsanlega teknar upp sam- ræmdar reglur um starfsmat. Launamunur kynjanna: Teknar upp samræmdar reglur um starfsmat Ákveðið í dag hvort Hitt húsiðferí Geysishúsið Borgarráð tekur í dag ákvörðun um það hvort starfsemi Hins hússins verður flutt úr Þórscafé í Geysishúsið á horni Aðalstrætis og Vesturgötu og verður greinar- gerð íþrótta- og tómstundaráðs, ITR, um fyrirhugaða starfsemi á nýjum stað lögö fram á fundin- um. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segist vonast til að hægt verði að flytja starfsemina strax í vor nái tillagan um það fram að ganga. í greinargerð ÍTR koma fram ákveðnar skoðanir á því að Geys- ishúsið henti vel fyrir Hitt húsið og að hægt sé að koma því þar fyrir í áfóngum. Borgin hefur leigt húsnæði undir Hitt húsið í Þórscafé og þyrfti borgin að kaupa húsnæðið fyrir að minnsta kosti 120 milljónir og fara í kostn- aðarsamar endurbætur á húsinu ef Hitt húsið yrði þar áfram. í fiárhagsáætlun er gert ráð fyrir að 20 milljónir fari í endurbætur á Geysishúsinu á þessu ári. „Ég vil leggja áherslu á að horfa ekki á alla starfsemi sem tengist ungu fólki með neikvæðu hugarf- ari. Það er meðal annars gert ráð fyrir að leikhópar hafi aðstöðu í Geysishúsinu og að þar verði að- staða fyrir framhaldsskólanema, menningar- og listasamtök ungs fólks, fundahöld, og tómstunda- starf ásamt lesaðstöðu. Ég vona að tillagan verði samþykkt í dag til þess aö hægt sé að fara af stað meö þessa vinnu,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Hundur glefsar íböm Tilkynnt vartil lögreglu í Hafn- arfirði í gærkvöld að hundur hefði glefsað í þrjú börn. Bömin sakaði ekki og viðurkenndu þau að hafa espað hundinn upp þann- ig að hann glefsaði í þau. Að sögn lögreglu verða engir eftirmálar þar sem foreldrarV bamanna krefiast þess ekki að aðhafst verði í málinu. Stuttar fréttir Hópur manna, sem nýveriö gékk út af landsfundi Þjóðvaka, íhugar sérframboð á Reykjanesi. Mbl. greindi frá þessu. Hreinir iskubbar ískubbar úr Vatnajökli eru að verða eftirsótt vara. Að sögn Stöðvar tvö er fyrirtækið Eðalís að hefia útflutning á þessari óvenjulegu vöru. ísinn er sagðm- þúsund sinnum hreinni en venju- legt kranavatn. Breskt raforkufyrirtæki hefur áhuga á að fiármagna lagnmgu tveggja sæstrengja milli Islands og Bretlands. Talið er að kostnað- urinn sé um 100 milljarðar, Stöö tvö greindi frá þessu. Sútafiskroð Nýtt fyrirtæki um rekstur fisk- roössútunarverksmiðju hefur veriö stofnaðáSauðárkróki. RÚV greindi frá þessu. Maðursáttaferaustur Ætlunin er aö Geir Gunnarsson vararikissáttasemjari fari til Eg- ilsstaða til að liðka fyrir kjara- samningum á Fáskrúösfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.