Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 Útlönd Atta fórust þegar flugvél í útsýnlsflugi yfir Miklagljúfri fórst: Reyndi nauðlendingu en hrapaði of an í gil - flugmaðurinn tilkynnti um vélarbilun skömmu eftir flugtak Átta manns fórust þegar lítið flug- vél í útsýnisflugi hrapaði til jarðar nærri Miklagljúfri í Bandaríkjunum í gær, að sögn yfirvalda. Tveir kom- ust lífs af. Flugmaður vélarinnar sem var af gerðinni PA-31 Navajo varð var við vélarbiiun skömmu eftir flugtak frá Miklagljúfursflugvellinum í Tusay- an í Arizona. Að sögn Freds O’Donn- ells, talsmaður bandarísku flugmála- stjórnarinnar, hrapaði flugvéhn nið- ir í gil þegar hún var að snúa við og reyna að nauðlenda. Talsmaður sýslumannsins í Cocon- ino sýslu í Flagstaff í Arizona sagði að átta manns hefðu látist og tveir hlotiö alvarleg meiðsl. Ekki var vitað hvort þeir sem komust af voru far- þegar eða úr áhöfn vélarinnar. Alla jafna eru bæði flugmaður og aðstoð- arflugmaður í véUnni. FlugvéUn sem var í útsýnisflugi tók sig á loft skömmu eftir klukkan hálf- þijú síðdegis í gær aö staðartíma og hrapaði aðeins sex mínútum síðar, í þriggja kílómetra fjarlægð frá flug- veUinum sem er rétt sunnan gil- barmsins, að sögn O’Donnells. „Flugmaöurinn tilkynnti um vélar- bilun, lýsti yfir neyðarástandi og við teljum að hann hafi verið að reyna að snúa aftur til flugvaUarins,” sagði O’Donnell. FlugvéUn var í eigu fyrirtækis sem sérhæfir sig í aö fara með fjárhættu- spflara og ferðamenn frá Las Vegas, þaðan sem hún lagði upp í ferðina, í útsýnisflug yfir þjóðgarðinn í Mikla- gljúfri. Á undanfomum árum hafa nokkr- ar flugvélar og þyrlur hrapað í sams konar útsýnisflugi og hefur það vald- ið yfirvöldum áhyggjum. Reuter Færeyska bankadeilan gætileitttil sjálfstæðiskröfu Bankadeilan milU Færeyja og Dan- merkur gæti leitt til víðtæks stuðn- ings í Færeyjum við kröfur um sjálf- stæði eyjanna, segir Lise Lyck, lektor við Kaupmannahafnarháskóla og sérfræðingur í málefnum Færeyja. Hún segir í viðtali við blaðið Det Fri Aktuelt í dag að deilan geti einn- ig leitt til þess að dönsk fyrirtæki fái ekki að vera með þegar spáð verði í oUuvinnslu undan ströndum Fær- eyja. Lise Lyck spáir því að þeir flokkar í Færeyjum sem styðja sjálfstæði landsins muni gjörsigra þá sem vilja áframhaldandi tengsl við Danmörku í næstu kosningum. Það sem skiptir sköpum, segir hún, er að færeyska Lögþingið stendur sameinað í kröfu sinni um aö krefjast dómsrannsókn- ar á bankamáUnu. Forráðamenn Den Danske Bank eru sakaðir um að hafa blekkt færeysku landstjómina þegar þeir losuðu sig við hlutbréf sín í Færeyjabanka. Danska stjórnin hefur ávaUt hafn- að þeirri kröfu Færeyinga en þess í stað viljað koma á fót nefnd sérfræð- inga til að rannsaka máUð. Poul Nyr- up Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekaði þá afstöðu sína í bréfi sem var gert opinbert í gær. Færeyska Lögþingið ræöir svar Nyr- ups í dag. Ritzau ■ ■ Franski sundmaðurinn Guy Delage, sem synti einn síns liðs yfir Atlantshafið og lagði að baki 3748 kílómetra á 55 dögum, er nú aftur kominn heim til Frakklands. Hér ræðir hann við Clément, fimm ára gamlan son sinn, áður en hann spjallaði við fréttamenn í Paris í gær. símamynd Reuter Friðrik, krónprins Danmerkur, orðinn stjornmálafræðingur: Fékk sætar kvenærbuxur í útskriftargjöf - hvað er hægt að gefa manni sem á allt? spurðu skólafélagamir Friörik, krónprins Danmerkur, útskrifaðist sem stjórnmálafræðing- ur frá Háskólanum í Árósum um síð- ustu helgj eftir fimm ára nám. Þar með er hann fyrsti „akademíkerinn” í kongungsíj ölskyldunni og mamma Magga er víst ógurlega stolt af synin- um. Strákurinn ku hafa fengið fínar einkunnir og það sem meira er: hann kláraði námið á réttum tíma sem er fáheyrt meðal stúdentai flanmörku nú um stundir. Drottningin móðir hans stundaði líka nám í stjórnmála- fræði við Árósaháskóla á sínum tíma en lauk aldrei námi. Það sem hefur vakið mesta athygli samstúdenta og kennara er hversu alþýðlegur krónprinsinn er. í skólan- um var Frikki bara nákvæmlega jafn hallærislegur í klæðaburði og „en almindelig dansker” og féll því full- komlega inn í íjöldann. Segir af Sauð- krækingi einum sem hóf nám í Hvað er hægt að gefa manni sem á allt? Vlnir Friðriks krónprins gáfu honum því silkikvenærbuxur í ut- skriftargjöf þegar hann útskrifaðist frá Árósaháskóla. stjórnmálafræði við háskólann í Árósum og sat sama námskeið og krónprinsinn. Maður þessi hefur að að jafnaði þótt ágætlega“glöggur á dægurhetjur og fyrirmenni en hann uppgötvaði þó ekki fyrr en nokkrar vikur voru liðnar af náminu að það var krónprins Danmerkur sem sat í sömu sætaröð og hann. Friðrik sat iðulega á kaffístofunum með skólafélögunum og drakk kafli og spjallaöi. Eini munurinn á honum og hinum stúdentunum var sá að flestir hinna voru yfirleitt lífvarða- lausir. Lífverðir Friðriks reyndu þó að láta lítið á sér bera og biðu oftast fyrir utan skólabygginguna í bifreið sinni. Þegar Frikki steig síðan upp í sportkerru sína eftir skóla og brun- aði af stað áttu þeir venjulega í mestu vandræðum með að fylgja honum eftir á litla Fordinum sínum. Hann stakk þá líka reglulega af. Krón- prinsinn er mikill áhugamaður um bíla og hefur oft lent í vandræðum með þá, meðal annars keyrt út af og verið grunaöur um að aka undir áhrifum áfengis. Við útskriftina um helgina fékk Friðrik ýmsar gjafir. Ein vakti þó langmesta athygli en það voru kven ærbuxur úr silki, svokallaðar pils- brækur, sem hann fékk frá bestu vin- um sínum úr skólanum. Þegar þeir voru spurðir hvers vegna í ósköpun- um þeim hefði dottið í hug að gefa honum kvenærbuxur spurðu þeir: Hvað í ósköpunum er hægt að gefa manni sem á allt? Glöggir menn telja þó að annarlegar hvatir hafi legið að baki gjöf þessari. Friðrik hefur nefni- lega verið aö slá sér upp með stúlku síðustu árin sem er þekkt undirfata- módel í Danmörku. Stuttarfréttir Norðmennlesamest Norðmenn eru enn heims meistarar í blaöalestri. Flest stærstu norsku blööin bættu viö lesendum á síðasta árí. Verdens Gang þó mesL Niðurskurði mótmæit Starfsmenn sjónvarps- og út- varpsstöðva á Norðurlöndum mótmæla kröfuglega í samein- ingu fyrirhuguðum niðurskurði hjá sænska ríkisútvarpinu. Eistlenska þingið hefur lýst yfir stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Tsjetsjena. Nokkrir flokksmenn Framfara- flokksinsíDan- mörku reyna nú að koma stofnandanum Mogcns GIis- trup aftur inn í flokkinn en hann var rekinn úr honum árið 1990. Forystan vill ekki verða við þessum óskum. Hótar að drepa kennara 18 ára menntaskólanemanda í Karlskrona í Svíþjóð hefur verið vísað úr skóla vegna þess að hami hefur ítrekað hótað að drepa tvo kennara. Einokunbráttlokíð Einokun „ríkisins" í Noregi á áfengisinnflutningi og sölu heyr- ir brátt sögunrd til. Norðmenn ætla að verða við tihnælum eftir- litsstofnunar EFTA um aö af- nema einokunina. Sprenging í skðlastofu Fimm nemendur og kennari slösuðust þegar sprenging varð i keimslustofu i efna- og eðhsfræði í Malmö í Sviþjóð. Erkibiskup leiður Erkibiskup- inn af Canter- bury segist mjög leiöur yfir hjónabandserf- iðleikum Díönu og Karls en seg- ist þó standa með þeim í blíðu og stríðu. Israelar eru á varðbergi vegna hugsanlegra sjálfsmorðsspreng- inga Palestínumanna en nú er ár frá blóðbaðinu í Hebron en þar drap gyðingur fiölda múslíma sem voru við bænahald. Einhliða vopnahlé Perú Rikisstjórn Perú hefur lýst yfir einhliða vopnahléi í Ifinu átján daga gamla stríði við Ekvador. AtkvæðiumEvrðpu Frjálslyndir demókratar í breska þínginu hafa fengið fram atkvæðagreiðslu í þinginu um Evrópumálin en afstaöa þeirra sjálfra er óljós. Vinsældir Bills Clintons auk- ast. 53% aöspm’ðra styðja hann enn en 42% eru á móti honum. Skorið niður í geimnum Skoriðverður verulega niður geimferðaá- ætlun Banda- ■ rikjatnanna en ; áfram verður haldið áfram áætlunum um að byggja stóra og dýra gehnstöð. ; Reutér/TT/NTB/Ritzau/ETA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.