Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Page 28
Veðriðámorgun:
Frost
0-5stig
Á morgun veröur noröankaldi
austanlands en hæg austlæg átt
í öðrum landshlutum. Dálítil él
verða á víð og dreif, síst þó í inn-
sveitum norðvestanlands. Milt
við suður- og suövesturströndina
en annars frost á bilinu 0-5 stig
að deginum.
Veðrið í dag er á bls. 36
I.ANDSSAMBAND
ÍSI.. KAKVKRKTAKA
Vestmannaeyj ar:
Kristsmynd
slapp við
eldinn
-ásíðustustundu
„Allt í einu sló allt út í verksmiðj-
unni og ég fór að kanna máhð þvi
mér fannst þetta dálítið dularfullt.
Þegar ég skoðaði færibandið þá var
þarna mynd af Jesú Kristi sem sneri
upp. Hún.var heii í ramma með gleri
og vó salt á barmi færibandsins og
átti bara eftir að detta ofan í
brennsluofninn. Ég tók myndina al
bandinu og kom henni til varðveislu
hjá Betel-söfnuðinum,“ segir Guö-
mundur Richardsson hjá Sorpeyð-
ingarstöð Vestmannaeyja.
Atburðurinn átti sér stað fyrir
skömmu og segir Guðmundur að
annaðhvort hafi þetta verið röð aí
tilviljunum eða eitthvað annað.
Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir
Betel-safnaðarins í Vestmannaeyjum
er hins vegar ekki í vafa um hvað
þama var á ferðinni.
„Þegar svona lagað gerist er það
einungis til að sýna mönnum fram á
að Jesús Kristur er eitthvað meira
en það sem oftast nær er sagt. Þetta
er fyrst og fremst vitjun Jesú Krists
til þeirra stráka sem vom að störfum
í sorpbrennslustöðinni," segir
Snorri. -pp
Verkfall kennara:
Prestarnýta
tímann fyrir
fermingarbörn
„Við höfum óljósar fregnir af því
að hlaupið hafi óvæntur vöxtur í
fermingarundirbúning hjá einhverj-
um prestum. Ég veit ekki hvort við
förum að skipta okkur mikið af því
en við ætlum að kanna málið,“ segir
Gunnlaugur Ástgeirsson, formaður
verkfallsstjómar kennara.
Verkfallsstjórn sendir í dag íþrótta-
félögum bréf með ósk um samvinnu
við íþróttafélögin í verkfallinu.
Ekkert gekk í samningaviðræðum
kennara og ríkisins í gær og hefur
nýr fundur verið boðaður í dag.
Lokad vegna lodnu
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
hefur fyrirskipað að hætt verði að
aka loðnu um Strandgötu sem er
aðalgatan í bænum. Að sögn Georgs
Lámssonar sýslumanns var gripið
til þessa vegna þeirra óþrifa sem
TT-fylgja flutningunum. Hann segir fjöl-
margar kvartanir hafa borist emb-
ættinuvegnaþessa. -rt
LOKI
Það sleppa nú ekki allir svona
auðveldlega við vítislogana!
Krakkarnir í fjölbýlishúsinu að Krummahólum 10 í Reykjavík hafa ekki verið aðgerðarlausir á meðan verkfall
kennara hefur staðið yfir. Stórum snjóskafli á lóðinni var umbreytt i 10 metra langa höll sem að mati barnanna
hýsir meö góðu móti allt að 60 manns. DV-mynd GVA
Kosninga-
ræðurá
eldhúsdegi
Það var auðheyrt á ræðumönnum
í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í
gærkvöld að stutt er til kosninga.
Stjórnarsinnar hældu sinni ríkis-
stjórn og töldu henni flest til tekna
en stjómarandstæðingar gagnrýndu
ríkisstjórnina og kynntu sínar kosn-
ingastefnuskrár.
Kristín Ástgeirsdóttir ræddi um
jafnréttisbaráttu kvenna í 100 ár.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að nú væri allt á uppleið eftir
mikla efnahagslægð undanfarinna
ára og væri það verkum ríkisstjórn-
arinnar að þakka. Halldór Ásgríms-
son sagði að Framsóknarflokkurinn
hafnaði alfarið umsókn að ESB. Jón
Baldvin Hannibalsson sagði aftur á
móti að íslendingar myndu sækja um
aðild að ESB á næsta kjörtímabili,
jafnvel á næsta ári. Ólafur Ragnar
Grímsson sagði að ríkisstjórnin hefði
fært skattbyrðina af fyrirtækjunum
yfir á almenning og sagði Alþýðu-
bandalagið valkost til vinstri. Jó-
hanna Sigurðardóttir sagði ekki
hægt að treysta flórflokkunum og
sagði Þjóðvaka nýja von htla manns-
ins. Aðrir ræðumenn vom líka í
kosningaham.
Stal tæplega 200
eyrnalokkum
24 ára kona hefur verið dæmd í
eins árs fangelsi fyrir stórfellt inn-
brot í einbýlishús við Laugarásveg
síðastliðið vor auk annarra auðg-
unarbrota sem hún framdi á árinu.
í málinu krafðist kona, sem er eig-
andi mikils magns af skartgripum,
5,5 milljóna króna i skaöabætur.
Þegar unga konan braust inn í
einbýlishúsið lét hún greipar sópa
um skartgripahirslu konunnar
sem þar bjó. Dóraurinn sakfelldi
hana fyrir að hafa stolið 183 eyrna-
lokkum, 31 armbandi, 13 hálsfest-
um, 11 armbandsúrum, 12 hring-
um, 11 nælum, myndbandstæki,
geislaspilara, tösku, skartgripas-
kríni og koniaksflösku.
Mánuði fyrir innbrotið stal kon-
an silfurhring i skartgripaverslun
við Skólavörðustíg. Um sumariö
stal hún sfðan töskum, veskjum og
buddum úr verslun í Hafnarfirði
en í þeim voru andvirði tæprar
hálfrar milljónar króna i greiðslu-
kortanótum, 78 þúsund krónur í
peningtun og fleira. Konan stal og
falsaði síðan fjölda tékka sem hún
var einnig dæmd fyrir í þessu máh.
Undir meðferð málsins lagði eig-
andi skartgripanna á Laugarásveg-
inum fram skaðabótakröfu upp á
5.533.996 krónur. í dóminum kemur
hins vegar fram að öllu þýfmu, að
undanskilinni koníaksflöskunni,
skartgripaskríni og tösku, heföi
verið skilað. Dómurinn segir að i
bótakröfunni sé krafist bóta fyrir
hvarf á miklu fleiri munum en
ákært var fyrir. Auk þess komi
heldur ekki fram í gögnum málsins
ástand skartgripanna sem skilað
var né nákvæmt verömæti þeirra.
Því var bótakröfunni vísað frá
dómi.
Konan sem nú var dæmd hlaut
annan eins árs fangelsisdóm þann
21. júlí 1994 og þá fyrir fjársvik og
skjalafals. Hún var úrskuröuð í
gæsluvarðhald i haust og hefur set-
ið í afplánun upp frá því. Þrátt fyr-
ir þessa tvo eins árs fangelsisdóma
má gera ráð fyrir að konan sleppi
út um eða upp úr næstu áramótum.
-Ótt
FRETTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í sima
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - ÐREIFING: 563 2700
BUÐAAFGREIÐSU OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN
AFGREIÐSLU: 563 2777
KLS-fi LAUGARDAGS- OG MANUDA6SM0RG NA
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 23. FEBRUAR 1995.