Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
Fréttir
Stórbruni á Akureyri í gær:
Gífurlegt tjón
í Glerárkirkju
- setja átti upp viðvörunarkerfi í kirkjumii á næstu dögum
Gylfi Kristjánason, DV, Akuieyii:
„Það er engin leið á þessari stundu
að segja fyrir um það með neinni
vissu hversu mikið tjón þama hefur
orðið. Það er þó ljóst aö tjónið hleyp-
ur á milljónum króna og e.t.v. tugum
milljóna," segir Jónas Karlesson,
sóknarnefndarmaður í Lögmanns-
hhðarsókn á Akureyri, en geysilegt
tjón varð í Glerárkirkju í eldsvoða
um miðjan dag í gær.
Eldurinn kom upp í kjaUara kirkj-
unnar þar sem rekinn er leikskólinn
Krógaból. Grunur leikur á að eldur-
inn hafi komið upp í þurrkskápum
nærri anddyri þar, og virðist sem
eldurinn hafi farið um loft kjallar-
ans, klæðningar hrunið niður á gólf-
in og að eldurinn hafi lengi kraumað
áður en hans varð vart. Það brann
því flest sem brunnið gat í kjallara
kirkjunnar.
„Þaö var ekki komiö upp eldvam-
arkerfi í kjallaranum en það hafði
verið samþykkt og ákveðiö að fara í
þaö á næstu dögum að koma því kerfi
upp og beintengja það við slökkvi-
stöðina," sagði Jónas Karlesson.
Sem fyrr sagði er tjóniö langmest
í kjallara þar sem leikskóhnn var.
Svo virðist sem allar innréttingar séu
ónýtar og menn sem DV ræddi við í
gærkvöldi höfðu miklar áhyggjur af
tækjum í fullkomnu mötuneytiseld-
húsi sem þar er. Þá hafði reykur og
sót borist upp í kirkjuskipið á efri
hæð og Ijóst að þar þarf aö rífa niöur
klæðningar, mála alla veggi og
hreinsa öll húsgögn. Sömu sögu er
aö segja af skrúðhúsi og skrifstofu
sóknarprestsins.
Lögmannshlíðarsókn leigöi Akur-
eyrarbæ kjallara kirkjunnar og þar
vom 84 böm í leikskóla, ýmist hálfan
daginn eða frá morgni til kvölds.
„Við munum reyna að koma upp
einhvers konar neyðarþjónustu fyrir
þá sem verða að koma bömum sín-
um í leikskólapláss en ég get ekki
sagt um það á þessu stigi hvemig
þessu verður háttað," sagði Ingibjörg
Eyfells, leikskólafulltrúi Akureyrar-
hæjar, í gærkvöldi.
Fyrirhuguð smkverksmiðja á Grundartanga:
Enn engir samningar
um hráef niskaupin
Forráðamenn fyrirtækisins Zink
Corporation of America, sem áform-
ar að reisa sinkverksmiðju á Gmnd-
artanga, hafa ekki enn náð samning-
um um hráefniskaup sem eru for-
senda þess aö hér fari einhver fram-
leiðsla af stað. Viðræður við nokkra
hráefnissala hafa staðið yfir í tæpa
fjóra mánuði, eða síðan í byijun feb-
rúar sl. en án árangurs. í upphafi
stóðu vonir til að þessari vinnu yrði
lokiö í sumarbyrjun.
Tekist hefur að útvega hráefni í
Bandaríkjunum sem dugar fyrir 25%
framleiðslunnar en að sögn Bene-
dikts Jóhannessonar hjá Talnakönn-
un, sem veitt hefur ráðgjöf vegna
undirbúnings verksmiðjunnar og
fylgst með hráefnisleit Zink Corpor-
ation, þarf að útvega hráefni fyrir
a.m.k. 75% framleiðslunnar áður en
ákveðiö verður að hefjast handa.
Áætlanir gera ráð fyrir að verk-
smiðja á Gmndartanga geti framleitt
100 þúsund tonn af sinki á ári. Hrá-
efni er þvi -komiö fyrir 25 þúsund
tonnum.
Zink Corporation er að leita að
tvenns konar hráefni, annars vegar
endurunnu sinki sem fellur t.d. til
af skipamálningu og rafhlöðum og
hins vegar úr sinknámum með
brennisteinsfrítt eða svokallað
„hreint“ vinnsluferh. Fáar slíkar
námur em starfandi í heiminum og
sagði Benedikt það hamla viðræöum.
Aðrir kostir með hráefni verða ekki
skoðaðir.
„Sem fyrr snúast þessar viöræður
auðvitað um verð og að hluta til um
magn. Þetta lullar í hægagangi í rétta
átt, hægar en maður átti von á en
kannski var maður of bjartsýnn í
upphafi. Hins vegar hefur betur
gengið með umhverfismatiö. Zink
Corporation mun fljótlega skila um-
beðinni skýrslu til íslenskra stjóm-
valda um umhverfismat vegna verk-
smiðjunnar," Benedikt.
-bjb
Stuttarfréttir
Svifflugfélag íslands hefur tekiö I notkun nýja og fullkomna, tveggja sæta, þýska svifflugvél, Schleicher ASK-21.
Leifur Magnússon, fimmfaldur íslandsmeistari I svifflugi, er hér búinn að koma sér fyrir í vélinni en Friðjón Bjarna-
son, formaöur Svifflugfélags íslands, fylgist meö. DV-myndJAK
100 króna mynt
Ný 100 króna mynt verður sett
f umferð í haust. Samkvæmt RÚV
er stefnt að því að 2 þúsund króna
seðill verði kotninn í notkun um
næstu áramót.
Nýttíþróttahús
Nýttog glæsilegt íþróttahús var
vígt á Stokkseyri í gær að við-
stöddu íjölmenni.
Aðalvik eykur kvóta
íslenskir aðalverktakar hf„ eig-
endur togarans Aöalvíkur KE,
áforma kaup á tveimur skipum í
eigu Kirkjusands. Samkvæmt
Ríkissjónvarpinu verður kvóti
þeirra, alls 800 tonna þorskígildl,
færður yfir á Aðalvikina sem þá
yrði meö 1.200 tonna þorskíglid-
iskvóta.
Þjóðvaki með frumvarp
Þjóðvaki er að undirbúa frum-
varp um störf stjónunálaflokka
þar sem m.a. verður gert skylt
aö gera grein fyrir öllum fjár-
framlögum til flokka yfir 300 þús-
und krónum.
Sawyfinadir lifevrissjódír
wliMPVWHiw* MlwWI IwwJWVP
Sjö verkalýðsfélög ófaglærðs
verkafólks stefha að einum lif-
eyrissjóði um næstu áramót.
Samkvæmt Ríkissjónvarpinu er
um að ræöa félögin Dagsbrún,
Sókn, Framsókn, Iðju, Framtíð-
ina, Hlíf og Félag starfsfólks í
veitingahúsum.
Munaóaríausbömstyrkt
Um 2 þúsund íslendingar hafa
tekið aö sér að styrkja munaðar-
laus böm á vegum alþjóðlegu
samtakanna SOS-Bamaþorp,
samkvæmt Ríkissjónvarpinu.
Skriðjöklar minnka
Vegna gróðurhúsaáhrifa má
reikna með að fslenskir skriö-
jöklar minnki ura allt að 40% að
rúmmáJi á næstu öld, samkvæmt
Mbl.
f-«__«____m ri iM.i
isianosmet i Kimi
Þrír islenskir fjallgöngumenn
steftia að því aö ldifa 6. hæsta fiall
heims, Cho Oyu, og slá þar með
íslandsmet í klifri, samkv. Mbl.
-bjb
menní
Ókumaður, sem grunaöur er
um aö hafa verið undir áhrifum
áfengis, ók á staur við Nóatún
aðfaranótt sunnudagsins. Öku-
maöurinn var einn í bílnum og
slapp með skrekkinn, en þurfti
að mæta á lögreglustöðina og
gera grein fyrir málum sínum
áður en hann fór í blóðrannsókn.
Þá var ölvaður ökumaöur vald-
ur að bílveltu um hálfsexleytiö á
sunnudagsmorgun við Langa-
tanga í MosfeUsbæ. Maöurinn
var settur í blóðrannsókn og síð-
an 1 fangageymslu þar sem hann
beíð yfirheyrslu. Hann mun hafa
verið ósamvinnuþýður við lög-
reglu ogþess vegna var hann sett-
ur inn. Maðurinn mun hafa neit-
að öllum sakargiftum en vitni
voru að veltunni.
Aðfaranótt sunnudagsins urðu
þijú slys þar sem ölvunarakstur
var orsökin og þykir lögreglu það
allmikið. Þá voru fiórir aörir öku-
menn stöðvaðir og kærðir fyrir
ölvunarakstur.
Grindavík:
Bílþjófur staðinn
aðverki
yigregian í Grindavík hand-
samaði ungan pilt þar sem hann
var aö stela bíl í bænum um sjö-
leytið í gærmorgun. Pilturinn
mun hafa verið utanbæjarmaður
og var hann tekinn í yfirheyrslu
hjá lögreglunni. Máliö er talið
upplýst.
Gífúrlegt annríki var ftjá lög-
reglunni í Grindavík vegna hrað-
aksturs um helgina. Á laugardag
voru ökumenn níu bíla teknir
fyrir að aka á ólöglegum hraða.
Fróðárheiöi:
Hjólbarði sprakk
Kona slasaðist er hún hvoldi bíi
sinum á Fróðárheiði um hádegis-
bilið í gær. Aö sögn lögreglu er
talið aö sprungiö hafi á hjólbarða
og við það hafi hún misst sfióm
á bílnum. Bifreiðin lenti utan
vegar og hafnaði á hvolfi og er
algjörlega ónýt.
Úthlíð:
Alvarlegtslysí
Ungur læknanemi liggur nfiög
alvarlega slasaður á gjörgæslu-
deild Borgarspítaians eftir að
hafa stungið sér til sunds í sund-
laug við Úthlið í Biskupstungum.
Ekki er nákvæmlega vitað
hvemig slysið átti sér stað en tal-
iö að maðurinn hafi lent á höfð-
inu í of grunnri lauginni Hann
var meðvitundarlaus er félagar
hans, sem einnig voru í lauginni,
komu að honum. Þeir brugðust
skjótt við og komu honum undh
læknishendur.
Brotist var inn í allnokkrar bif-
reiðar í Hafnarfirði og Garðabæ
aöfaranótt sunnudagsins.
Þjófamir fóm víða um bæina,
brutu rúður og stálu úr bílunum.
Að sögn lögreglu er eins og gengi
fari um og bijótist inn. Fólk þarf
að vara sig á að geyma engin
verðmæti í bílum sínum.
Þá hefúr lögreglan i Haínarfiröi
fundiö fyrir aukningu á ölvunar-
akstri undanfamar helgar. Allt
að átta ölvaðir ökumenn hafa
veriö teknir á einni nóttu.