Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
Fréttir
Fara átök um stj ómarformennskuna 1 Landsvirkjun til Hæstaréttar?
Framsókn vill að Jó-
hannes Nordal hætti
Guömundur G. Þórarinsson og Valdimar K. Jónsson hugsanlegir arftakar
Jóhannes Nordal hefur verið for-
maður stjórnar Landsvirkjunar frá
stofnun hennar fyrir 30 árum, eða
árið 1965. Það hefur verið alveg sama
hvaða ríkisstjórnir hafa verið við
völd, alltaf hefur Jóhannes haldið
embættinu og jafnvel þótt nýir iðnað-
arráðherrar hafi verið með yfirlýs-
ingar um annað. Nú er Jóhannes aft-
ur á móti orðinn sjötugur og hættur
sem seðlabankastjóri en mun vilja
halda áfram formennsku í Lands-
virkjun.
Framsóknarmenn fara nú með iðn-
aðarráðuneytið og eiga því að til-
nefna formann stjórnar. Samkvæmt
heimildum DV vilja þeir að Jóhannes
láti af formennskunni og yngri menn
taki við.
Tveir menn eru nefndir sem kandí-
datar í formennskuna. Það eru þeir
Valdimar K. Jónsson prófessor og
Guðmundur G. Þórarinsson, verk-
fræðingur og fyrrum aiþingismaður.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra
sagði í samtali við DV að hann væri
ekki búinn að taka ákvörðun um
hvem hann tilnefnir sem formann
stjómar Landsvirkjunar. Hann sagði
aö enda þótt verið væri að skipa nýja
stjóm fyrirtækisins þyrfti hann ekki
að tilnefna formanninn jafnhliða.
Þannig háttar til að þrír aðilar til-
nefna menn í stjóm Landsvirkjunar.
Það em Reykjavíkurborg, Akur-
eyrarbær og Alþingi. Þar fyrir utan
tilnefnir svo iðnaðarráðherra for-
manninn.
Samkvæmt lögum verður að vera
eining innan stjómar Landsvirkjun-
ar um formanninn. Ef hún næst ekki
kemur það í hlut Hæstaréttar að
skipa formanninn.
í dag, mánudag, mun Alþingi velja
sína fulltrúa í stjóm Landsvirkjunar.
Reykjavikurborg hefur tilnefnt sem
stjómarmenn þau Pétur Jónsson,
Kristínu Einarsdóttir og Vilhjálm Þ.
Vilþjálmsson. Fulltrúar Akureyrar
hafa ekki verið tilkynntir.
Sýknaðuraf
áksru fyrir rán
og ránstilraun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað þrítugan karlmann sem
ákærður var fyrir rán og ránstil-
raun.
Manninum var gefið að sök að hafa
að kvöldi sunnudagsins 4. desember
farið inn fyrir afgreiðsluborðið í
versluninni Pétursbúð í Austur-
stræti og ráðist á afgreiðslustúlku
sem stóð við peningakassa verslun-
arinnar. Þá var honum einnig gefið
að sök aö hafa nokkm síðar sama
kvöld ráðist grímuklæddur inn í
söluturninn Bússu á homi Garða-
strætis og Vesturgötu, hótað af-
greiðslustúlku limlestingum og stol-
ið þaðan 15 þúsund krónum.
Ekki þótti sannað að maðurinn
hefði ætlaö ræna verslunina Péturs-
búð, en hann neitaði því eindregið.
Einnig neitaöi maðurinn staðfastlega
að hafa rænt sölutuminn Bússu. í
ljósi þess og að aðeins eitt vitni bar
að maðurinn heíði verið þar að verki
varhannsýknaður. -pp
Væntumþykja við Reynisvatn
Þessi unga snót sýndi hestinum sinum mikla væntumþykju að lokinni hópreið Fákskvenna upp að Reynisvatni
um helgina, enda hesturinn búinn að standa sig meö prýði. DV-mynd TJ
DV
Eyjaflörður:
Ungurmaður
slasaðist
Gylfi KristjánsBon, DV, JUcureyri;
Ungur maður slasaðist mjög
alvarlega í umferðarslysi í Eyja-
firði að morgni laugardags,
Meiösli hans vom það alvarleg
að flytja átti hann suður til
Reykjavíkur til aögeröar.
Ökumaðurinn sem var einn i
bifreið sinni er grunaður um ölv-
unarakstur. Hann mun hafa
misst stjóm á bifreið sinni með
þeim afleiöingum að hún fór út
af veginum og valt. Maðurirm er
með meiösli á hrygg og hálsi. Bif-
reiðin er ónýt.
MlklSölvun
á Akureyri
Gylfi Kriatjánsson, DV, Akiueyii;
Mikil ölvun var á Akureyri um
helgina og fylgdi henni mikið
annríki fyrir lögreglu, að sögn
varðsljóra.
Ekki urðu þó nein stóróhöpp
en aö sögn lögreglu var um „al-
mennt fyllirí'1 að ræöa. Skólafólk
var ekki mjög áberandi eins og
menn höfðu óttast fyrir helgina.
Mannlaus bifreið rann af stað
frá hílastæðinu við höfuðstöðvar
KEA aðíaranótt sunnudags. Fór
bifreiðin yfir Kaupvangsstræti og
inn á bílastæði við Hótel KEA þar
sem hún hafiiaði á annarri bif-
reið.
Ólafsflörður:
Harðurárekstur
ígöngunum
Gylfi Kristjánaaon, DV, Akureryri:
Mjög harður árekstur varð í
jarðgöngunum í Ólafsfjaröar-
múla á laugardag.
Að sögn lögreglunnar var bif-
reið ekiö inn í göngin Eyjaíjarð-
armegin á röngum vegarhelm-
ingi. Ökumaður hennar beygði
snarlega en lenti þá á ganga-
veggnum og síðan á bifreið sem
kom á móti.
Lítið bam I fiamsæti annarrar
bifreiðarinnar skali á mælaborði
hennar og braut í sér tennur. Bif-
reiðamar voru taisvert skemmdar.
í dag inælir Dagfari
Keppt í fegurð
íslendingar eru ekki eftirbátar
annarra í keppni hvers konar. Þeir
keppa í íþróttum og þeir keppa um
hylli kjósenda. Á ungmennafélags-
mótum er keppt í pönnuköku-
bakstri og nú síðast hefur veriö
keppt í handflökun. Því miður fór
það svo að sigurvegarinn í handfl-
ökuninni kom frá útlöndum, gott
ef konan sem sigraði var ekki frá
Taílandi, enda fæst enginn sem er
maður með mönnum til að vinna í
fiski lengur. Fiskveiðiþjóðin nenn-
ir ekki að vinna í fiskvinnslu og
lætur útlendingum það eftir. Þess
vegna sigra Islendingar ekki í
handflökun.
Hvað um það, áfram höldum við
að keppa og nú er nýlokið keppni
í fegurð. Hún fer þannig fram að
tíu eða tuttugu stúlkubömum er
stillt upp á senu og svo er keppt í
því hver sé fegurst. Samkvaemt frá-
sögn fegurðardrottningar íslands,
nýKjörinnar, er það enginn dans á
rósum að vera faliegur. Hvað þá
aö vera fallegri en allir hinir.
Fegurðardrottningin segir að feg-
urðin krefjist mikillar vinnu. Þetta
er stanslaus vinna í sex mánuði,
segir hún og lái henni hver sem
vill. Menn verða ekki fallegjr án
fyrirhafnar. Hvað þá konur sem
em að keppa um það að vera feg-
urri en aörar konur.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir heit-
ir hún, sem var Kjörin fegurst ís-
lenskra kvenna í síðustu viku og
Hrafnhildur er yndislega falleg ung
stúlka sem lagði það á sig að taka
þáft í þessari keppni. Hún þurfti
að búa sig undir fegurð sína í
marga mánuði. Hún sótti fræðslu
námskeið um alnæmi og þarf
seinna að flytja fyrirlestra um sjúk-
dóminn. Auk þess þarf hún aö
leggja mikið á sig, bæði andlega og
líkamlega og komast í gott form til
sálar og líkama. Það verður enginn
fallegur nema standast þetta álag
en það er bæði þroskandi og gef-
andi, segir Hrafnhildur, og hvetur
allar ungar stúlkur að spreyta sig
á því verkefni aö vera fegursta
kona íslands. Það eina sem þær
þurfa að gera er að skipuleggja sinn
tíma og standast álagið sem fylgir
því spennufaili að vera kjörin.
Af öllu þessu sést að keppandinn
í fegurðinni þarf að vera alhliða.
Það getur enginn oröið sigurvegari
nema leggja mikiö á sig til að sigra
1 því að vera fegurstur. Hér skiptir
útlitið ekki öllu máli heldur hið
andlega form til að standast það
gífurlega álag sem fylgir því að
vera fagur og vera fegurri en hinir.
Það er sem sé ekki nóg að vera fag-
ur ef maður er ekki fegurri en hin-
ir keppendumir.
Með því að vera alhliöa líkist
þetta meira stóðhestakeppni þar
sem kláramir em metnir eftir fóta-
burði, reisn, fjölbreyttum gangi og
afkvæmum. Það síðastnefnda er þó
ekki talið með í keppni fegurðar-
drottninga, því það ku vera bannað
að vera móðir áður en maður kepp-
ir í því að vera fegurstur. Hins veg-
ar em jafnan birtar myndir af for-
eldrum sigurvegaranna aö lokinni
fegurðarsamkeppninni, þannig að
allir geta séð hvaðan fegurðin kem-
ur og hvemig afkvæmin munu líta
út þegar fram í sækir. Fegurð for-
eldranna skiptir miklu þegar feg-
urðardrottningin er valin því sjald-
an fellur eplið langt frá eikinni og
dómendur geta með þeim hætti
reiknað út líkurnar á því hvernig
böm fegurðardrottninga munu hta
út.
Ekki dregur það úr ágæti sigur-
vegarans að Hrafnhildur er enn á
lausu og teljast það ótvírætt með-
mæli með fegurðardrottningunni
þegar hún er valin. Enda er þess
rækilega getið í fréttum af þessum
atburði að stúlkan sé á lausu!
Dagfari héfur alitaf fylgst spennt-
ur með svona keppni, einkum
vegna þess að fegurð getur verið
fólsk og hún getur verið einstakl-
ingsbundin eftir smekk og fegurð
er eitthvað sem maður kemur ekki
auga á nema allt sé mælt og vegið
samkvæmt ströngustu kröfum feg-
urðarinnar. Það er gott að hafa
lærða dómara til að segja manni,
smekklausum manninum, hver sé
fegurri en aðrar og í hverju sú feg-
urð er fólgin. Hún er ekki endilega
mæld í útliti heldur er hitt jafn
áríöandi og andlitið að fegurðar-
drottningin standist hið andlega
álag sem felst í því að vera fegurri
en aðrar. Það er nefnilega svo mik-
ið spennufall fólgiö í því aö vera
kosinn fegurri en aörir.
Dagfari