Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 5
MÁNUDAGUR 29. MAÍ.1995 5 Fréttir > I * Fuglafriðunarlögum beitt á grásleppukarla: Mjög ósáttir við framgang landeigenda - segir Jóhannes Haraldsson á Reykhólum „Viö erum mjög ósáttir við fram- gang landeigenda sem telja sig geta nýtt sér fuglafriðunarlögin á þann hátt að þeir einir geti veitt grásleppu í sjónum innan fuglafriðunarmarka. Á Breiðafirði útilokar þetta veiðar annarra en viðkomandi landeigenda á stórum svæöum enda krökkt af eyjum og skerjum á firðinum. Menn beita þessum lögum einnig á sker sem eru á kafi meiripart sólarhrings- ins og á eyjar þar sem vart sér til sólar fyrir veiðibjöllu," segir Jó- hannes Haraldsson, grásleppukarl á Reykhólum. Verulegrar óánægju gætir meðal grásleppuveiðimanna við Breiða- fjörð og víðar á landinu vegna þeirr- ar túlkunar landeigenda að þeir geti sölsað undir sig stór veiðisvæði út frá landareignum sínum með skírskot- un til fuglafriðunarlaga. Samkvæmt þeim eiga bændur rétt til veiða og nytja á fuglum 110 metra út frá land- areign sinni. Um er að ræða land- helgi sem nær hringinn í kringum landið. Tvo mánuði á ári, á vorin, eru mörkin 250 metrar út frá friölýstum æðarvörpum. Að sögn Jóhannesar er óeðlilegt að fuglafriðunarlög séu látin stjórna fiskveiðum. Dæmi séu jafnvel um að landeigendur leigi aðgang að auð- lindinni. Þá veki það furðu að Land- helgisgæslan skuli standa vörð um hagsmuni landeigenda og láta þannig stjórnast af hagsmunum æðarrækt- enda einna. Mörg dæmi séu um það enda hafi skip og þyrla Gæslunnar hringsólað um fjörðinn fyrir skömmu í þessum tilgangi. „Það þarf að breyta lögunum á þann hátt að menn geti ekki átt meira hafsvæði en þeir geta vaðið í klofstíg- vélum. Fiskurinn getur ekki verið eign einstakra bænda því samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er hann sameign þjóðarinnar. Menn gleyma því að þjóðin lifir á ílskveiðum en ekkiæðarrækt.“ -kaa Breiðaflörður: Grásleppunet á friðlýstum svæðum Amheiöur Ólafedóttir, DV, Stykkfehólmi: Landhelgisgæslan fór í eftirlitsferð um Breiðafjörð helgina 20.-21. maí. Tilgangurinn var sá að athuga hvort lögum nr. 64/1994 um vernd, friðum og veiðar á villtum fuglum og spen- dýrum væri framfylgt. Æðarbændur í Breiðafjarðareyjum höfðu sent sýslumönnum Dalasýslu, Barðastrandarsýslu og Snæfells- og Hnappadalssýslu bréf þar sem farið er fram á aðgerðir af þeirra hálfu vegna þess að grásleppunet eru lögð of nærri æðarvarpi og seUátrum og væru brögð að því að æðarfugl og selur lentu í netin. Það var því að undirlagi þessara þriggja sýslumannsembætta og dómsmálaráðuneytisins að varð- skipið Ægir og þyrlan Sif fóru í þessa eftirlitsferð um helgina. Viö nokkrar eyjar á Breiðafirði, sem tilheyra Dalasýslu, fundust net nær landi en leyfilegt er. Málið er því í rannsókn í því um- dæmi. Lögin um vemdun, friðun og veiðar á viUtum fuglum og spendýr- um eru nýleg og hefur ekki reynt á þau áður með tilliti tU æðarvarps á Breiðafiröi. Viðurlögin við brotum varða sekt- um, varðhaldi eða fangelsi, sviptingu skotvopna og veiðUeyfis og upptöku á veiðarfærum. Að sögn Ólafs K. Ólafssonar sýslu- manns í Stykkishólmi var í upphafi þessara aðgerða ákveðið að málum þessum yrði flýtt. Því ætti niðurstaða að liggja fyrir fljótlega. Nokkurrar reiði gætir meöal íbúa i Breiðholti eftir að borgarstarfsmenn (jar- lægðu nýlega körfuboltaspjaid sem var uppi á vegg nærri Bónusversluninni i Efra-Breiðholti. Spjaldið var fjarlægt vegna endurtekinna kvartana íbúa í nágrenninu sem töldu að ónæði fylgdi körfuboltaleiknum á staðnum. Aðrir íbúar í nágrenninu telja hins vegar að borgarstarfsmenn hafi ekki þurft að fjarlægja spjaldið því aö þá geta börn og unglingar í hverfinu ekki lengur stundað þá vinsælu íþrótt sem körfuboltinn óneitanlega er. DV-mynd GVA Cl « s m SUÐURLANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVIK SÍMI 568 9050, FAX 581 2929 24 klukkutímar Lánareglur okkar eru einfaldar og óþarfa bið vegna umsókna þekkist ekki. Ef öll gögn liggja fyrir af þinni hálfu, er umsóknin því afgreidd innan sólarhrings. Fáöu ítarlegan upplýsingabækling í næsta útibúi Landsbanka Islands, Búnaðarbanka Islands eða hringdu beint í okkur. Kynntu þér þá margvíslegu möguleika sem fjármögnunarleiga hefur umfram aðra kosti á lánamarkaðinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.