Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Page 6
6
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
Fréttir______________________________________________________________
Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva:
Þúsundir missa
vinnu í vikunni
-fiskvinnslan að verða hráefhislaus vegna sjómannaverkfallsins
„Það er ljóst að þegar líða fer á
vikuna verða flest fiskvinnslufyrir-
tækin í landinu hráfnislaus. Á Vest-
fjörðum er auðvitað ekki verkfall,
sums staðar verður einhver útgerð
smábáta og einhverjir eiga eitthvað
af frystum Rússafiski. Einhvers stað-
ar verður til eitthvert hráefni en við
sjáum fram á að fjögur til fimm þús-
unds manns í fiskvinnslunni missi
vinnuna þegar hða fer á vikuna og
fari því á atvinnleysisbætur," sagði
Arnar Sigurmundssson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, í samtali
við DV í gær.
Hann sagði ástandið hjá mörgum
fiskvinnslustöðvum vera mjög alvar-
legt og margar hverjar mættu alls
ekki við stoppi núna.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir fisk-
vinnsluna og mér er til efs að sumar
stöðvarnar muni þola stopp. Reynsl-
an hefur sýnt okkur að stöðvist þær
sem verst standa gæti orðið mjög
erfitt aö koma þeim af stað aftur,
ekki síst ef stoppið verður langt.
Menn mega engan veginn við þessu
nú þegar besti tími sumarsins er að
fara í hönd,“ sagði Arnar.
Tapið 160 milljónir á dag
„Mér reiknast svo til að þjóðarbúið
muni tapa 160 milljónum á dag vegna
verkfalls sjómanna. Þar miða ég við
tekjutap vegna þess sem við missum
af síld í Síldarsmugunni, úthafskarfa
á Reykjaneshrygg og rækju í
Flæmska hattinum. Þetta eru ekki
kvótatengdar veiðar heldur veiðar
sem aðeins er hægt að stunda á viss-
um tíma á árinu. Síldin gaf sig mjög
stutt í fyrra og úthafskarfann veidd-
um við um þetta leyti og eitthvað
fram í júni. Sjómannaverkfallið gæti
þvi þýtt að við yrðum af þessum
búbótarverkefnum sem gáfu mönn-
um von um smá uppsveiflu," sagði
Sveinn Hjörtur Hjartarson, rekstrar-
hagfræðingur hjá LÍÚ, aðspurður um
áhrif sjómannaverkfallsins á þjóðar-
búið. Hann sagði að flotinn væri að
stöðvast eins og hann legði sig og
allt í allt gæti verið um að ræða 5-600
skip.
Engar viðræður fóru fram á milli
sjómanna og viðsemjenda þeirra um
helgina. Sjávarútvegsráðherra mun
ræða við fulltrúa deiluaðila í dag.
-SV
BílveltaáSæbraut:
Drukkinn
ogdóp-
aður í
hraðakstri
Sautján ára drengur, sem hafði
haft ökupróf í tvo mánuði, velti
bíl sem hann ók á Sæbraut klukk-
an rúmlega tvö aðfaranótt
sunnudagsins. Ökumaðurinn er
sterklega grunaður um ölvun og
að hafa verið undir áhrifum
fikniefna. Þá er hraðakstur talinn
orsök þess að bíllinn valt. Fimm
ungmenni voru í bílnum en eitt
þeirra, ung stúlka, slasaöist
nokkuð, en þó ekki alvarlega.
Talin er mikil mildi aö ekki fór
verr og aö biireiðin lenti ekki á
öðrum bílum. Bíllinn fór nánast
veltuna á götunni en leigubíl-
stjóri, sem kom aðvífandi, sá bara
undir botninn, eins og lögreglan
orðaði það. Bifreiðin, sem ungi
maðurinn ók, var flutt burt meö
krana og verður vart ekið i bráð.
Ný sundlaug var tekin í notkun á Þingeyri um heigina en fram til þessa hafa íbúar þar þurft að fara til Flateyrar til að
fá sér sundsprett. Fjölmenni var opnunina en þar léku nemendur tónlistarskólans fyrir gesti.
DV-mynd Hlynur Aðalsteinsson
VORTILBOÐ
NY SENDING
FAGOR
3
ÞU GETUR
TREYST FAGOR
i
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 5ó8 5868
FAGOR S-23N
Kællr: 212 I - Frystir: 16 I
HxBxD: 122x55x57 cm
Danfoss kælikerfi
38.800
FAGOR D-27R
Kæiir: 212 I - Frystir: 78 I
HxBxD: 147x60x57 cm
Danfoss kælikerfi
Stgr.kr. 49.800
FAGOR C31R - 2 pressur
Kælir: 270 I - Frystir: 110 I
HxBxD: 175x60x57 cm
Danfoss kælikerfi
Stgr.kr. 67.800
Pétur Pétursson með 10 punda
hrygnu frá Rauðanesi í Borgar-
flrði - einhverja þá fyrstu sem
fékkst í netin á þessu sumri.
DV*mynd G.Bender
Borgarí]öröur:
laxinn
„Fyrstu laxamir eru komnir úr
netalögnirmi frá Rauðanesi í
Borgarfiröi og þetta var 10 punda
og tveir 8 punda. Maður átti
kannski von á stærri fiskum í
byrjun, en þetta er allt í lagi,“
sagði Pétur Pétursson í Kjötbúri
Péturs um helgina.
Þeim fækkar óðum netalögnun-
um víða við strendur landsins
enda keppast menn við að kaupa
þær upp.
Laxinn er farinn að sjást í
nokkrum veiöiám. Veiðitíminn
byriar líka á fimmtudaglnn í
Norðurá og eftir hádegi í Laxá á
Ásum.
50áraafmæliÚA:
TóK hundruð
manna mat-
Gylfi Kristjánaaon, DV, Akureyri:
Útgeröarfélag Akureyringa er
50 ára um þessar mundir og verö-
ur afmælisins minnst á ýmsan
hátt á afmælisárinu.
Aðalhátíöahöldin verða föstu-
daginn 9. júní í íþróttahöllinni á
Akureyri en þar er reiknað með
aö um 1200 manns, starfsmenn
og fleiri, verði gestir félagsins í
matarveislu. Þetta verður fjöl-
mennasta matarveisla sem hald-
in hefúr veriö á Akureyri og án
efa með fjölmennustu veislum
sem efnt hefur verið til hérlendis.
Að loknu boröhaldi verða stutt
ræðuhöld og létt skemmtidag-
skrá en síðan verður stiginn dans
fram eftir nóttu.
Flofkvíin til
Akureyrar
um helgina
Gjrtfi Krístjánsson, DV, AkurOyrí:
Áætlaö er að flotkvíin, sem
Akureyrarbær hefur keypt frá
Litháen, komi til bæjarins nk.
sunnudag, gangi ferð dráttarbáts,
sem dregur kvína yfir hafið, sam-
kvæmt áætlun.
Dráttarbáturinn, sem er frá
Þýskaiandi og mjög öflupr, lagði
af stað með kvína frá Litháen sl.
þriðjudag og skipstjórinn áætlaöi
að ferðin myndi taka 12 daga.
Viðkoma verður höfð 1 Dan-
mörku, Noregi, Hjaltlandseyjum
og Færeyjum.
Framkvæmdir við kvíarstæðið
á athafnasvæði Slippstöðvarinn-
ar Odda hafa gengiömjög vel, þar
hefur dýpkunarskipið Perla verið
að störfum undanfarna daga og
er reiknað með að dýpkun kviar-
stæðisins ljúki nú upp úr helg-
inni.