Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Page 8
8
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
Mk$(
/BANFI
HEILBRIGT HÁR MEÐ NÁTTÚRULEGUM HÆTTI
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTIG
SÍMI 12725
Stofnuð 1918
O CONWAY
CONWAY CRUISER 4-6 manna á öflugum
undirvagni og 13" hjólbörðum.
Fullbúið eldhús og rúmgóður borðkrókur.
VOÍÍIKIÍ. S75.700 s„»
TITANhf
_____________/
LÁGMÚLA 7
SlMI 581-4077
kr. 6.500
Eitt kort gildir allt sumarið!
Þjálfunarkerfi
sérhannab fyrir konur.
Brennsla - púl - teygjur - þrek
allt í skemmtilegri blöndu í
einum og sama tímanum.
Frjáls mæting - Barnapössun.
Sumarkort aðeins seld frá
23. maí til 6. júní.
LÍKAMSRÆKTI
Lágmúla 9, sími 581 3730.
Utlönd
Ættingjar og vinir hafa lagt blóm á staðinn þar sem 67 ungmenni létu lífið Tuzla í siðustu viku er Bosníu-Serbar
gerðu sprengjuárás á kaffihús. Símamynd Reuter
Serbar tóku tugi breskra friðargæsluliða:
Major ef ndi til
neyðarfundar
- sendir fleiri Breta til Bosníu
John Major, forsætisráðherra
íretlands, hélt í gær neyðarfund með
tokkrum ráðherrum sínum og yfir-
aönnum varnarmála eftir að fréttist
f töku 33 breskra friðargæsluliða
yrir utan Gorazde í Bosníu í gær.
vkveðið var að senda fleiri breska
riðargæsluliða til Bosníu eins fljótt
ig mögulegt er.
Alls hafa nú um 300 friðargæslulið-
ir verið teknir eða umkringdir af
ierbum. Nokkrir þeirra voru hlekkj-
iðir við möguleg skotmörk Atlants-
íafsbandalagsins.
Frönsk yfirvöld sögðu í gær að
oftárásir Atlantshafsbandalagsins á
stöðvar Bosníu-Serba hefðu verið
Þjóðarflokkurinn vann yfirburða-
sigur í bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum sem fram fóru á Spáni í
gær, að því er fyrstu kosningatölur
sýndu.
Samkvæmt þessari niðurstöðu
virðist óhjákvæmilegt að hægri
sveifla verði ríkjandi í spænskum
stjómmálum og að valdahlutfollin
breytist. Talið er víst að Felipe
Gonzales, forsætisráðherra og leið-
gerðar að óathuguöu máfi því þær
hefðu stefnt fífi friðargæsfuliða í
hættu. Frakkar kröfðust þess jafn-
framt að allir friðargæsluliðar yrðu
látnir lausir og sendu fleiri herskip
til Adríahafs. Heimildarmenn innan
franska hersins telja að nær hundrað
franskir friðargæsluliðar hafi verið
teknir í gíslingu.
Bosníu-Serbar eru fulfvissir um að
þeir hafi náð markmiðum sínum og
að Vesturlönd láti ekki til skarar
skríða gegn þeim.
Serbar í Króatíu viðurkenndu í gær
að hafa skotið niður þyrlu utanríkis-
ráðherra Bosníu, Irfan Ljubijankic,
í gær með þeim afleiðingum að hann
togi sósíalistaffokksins, muni sæta
vaxandi þrýstingi um að flýta þing-
kosningum en kjörtímabilið rennur
út 1997. Miðflokkamir og hægri
flokkamir hafa einungis lofað stjórn-
inni stuðningi til loka ársins.
Sósíalistar komust til valda í þing-
kosningum 1982. Þeir hafa mátt
glíma við erfið spillingarmál og
slæma efnahagsþróun að undan-
fómu. Reuter
lét lífið. Serbar skutu einnig í gær
að flugvél Atlantshafsbandalagsins
sem var á sveimi yfir aðalstöðvum
þeirra í Pale.
Sarajevo er ekki bara í sviðsljósinu
vegna þess að Serbar hafa enn einu
sinni lokað fyrir rafmagn og vatn til
borgarinnar heldur einnig vegna
þess að einn af sonum borgarinnar,
leikstjórinn Emir Kusturica, hlaut
Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni
í Cannes í gær. í mynd hans, sem ber
nafnið Neðanjarðar, er fjallað um 50
ár í gömlu Júgóslaviu frá því aö nas-
istar gerðu loftárásir á Belgrad.
Reuter
Stuttarfréttir
S>úsundiráflótta
Rússnesk yfirvöld sögðu her-
menn sína hafa ráðist á bæki-
stöðvar uppreisnarsinna í
Tsjetsjeníu í gær. Að sögn sjónar-
votta eru þúsundir Tsjetsjena á
flótta frá heimilum sínum.
Sjö drukknuðu í Svfþjóð
Sjö drukknuðu og eins er sakn-
aö eftir að tveimur gúmbátum
hvolfdi í fossi í Ráneánni norð-
vestur af Boden í Svíþjóð í gær.
Sex manns var bjargað úr ánni.
Græddu fætur á dreng
Skurðlæknum í Durban í Suð-
ur-Afríku tókst að græða fætur á
þriggja ára dreng sem lenti í
dráttarvélarslysi. Læknamir eru
ánægðir meö aðgerðina en segja
enn ekki víst hverjar batahorf-
urnar em.
Dularfulftbflslys
Tveir mexikóskir sijórnarand-
stöðuþingmenn létu lífið í bílslysi
í gær. Ekki er talið útilokaö að
ekið hafi verið á bíl þeirra áður
en hann fór út af þjóðvegi austan
viö Mexíkóborg.
HótelbruniiPrag
Sex evrópskir feröamenn létust
er eldur kom upp í Olympik hót-
elinu 1 Prag á föstudagskvöld. Á
hótelinu vom um 500 gestir, ílest-
ir frá Vesturlöndum.
Reutcr, TT
Leiðtogi Þjóðarflokksins, José Maria Aznar, á kjörstað í Madrid í gær.
Símamynd Reuter
Kosningamar á Spáni:
Þjóðarflokkurinn
sigurvegari