Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 9
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995 Útlönd ÖfLugur jarðskjálfti reið yfir Sakhalineyju: Óttast að þúsundir hafi látið lífið - gríðarlegt umhverfisslys yfirvofandi Björgunarmenn óttast aö allt að þrjú þúsund manns kunni að hafa látið lífið eða verið grafin lifandi í jarðskjálftanum sem reið yfir rúss- nesku eyjuna Sakhalin, norður af Japan, aðfaranótt sunnudags. Skjálftinn mældist 7,5 á Richters- kvarða. Jafnframt er óttast að gífurlegt umhverfisslys hafi orðið. í ljós hefur komið að 90 kílómetra löng olíu- leiðsla hefur rifnað á að minnsta kosti 15 stöðum. Einnig var tahn hætta á að olía rynni úr geymslu- tönkum. Samkvæmt rússneskum fréttastofum höfðu olíu- og gasleiðsl- ur til meginlandsins ekki skaddast. Mikil olía er í jörðu á Sakhalineyju og taka mörg vestræn olíufélög þátt í olíuvinnslu á eyjunni. í bænum Neftegorsk, sem er olíu- vinnslubær á norðurhluta eyjunnar, jöfnuðust öll íbúðarhús, um 20 tals- ins, við jörðu. Um var að ræða margra hæða fjölbýlishús og voru íbúamir í fastasvefni er skjálftinn reið yfir. Rússneskar fréttastofur sögðu í gær að flestir íbúa bæjarins, sem eru 3200, væru í rústunum. Interfax- fréttastofan hafði það eftir björgun- armönnum að stunur heyrðust úr rústum flestra húsanna. í gær voru allir vegir til bæjarins ófærir. Skemmdir af völdum jarðskjálft- ans urðu í mörgum öðrum bæjum Sakhalineyju. í gær höfðu ekki borist neinar fregnir af mannskaða á suð- urhluta eyjunnar en bærinn Nefte- gorsk er á norðurhlutanum þar sem skjálftinn átti upptök sín. Neftegorsk er í nokkur hundruð kílómetra fiar- lægð frá skjálftamiðju. Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði og var skjálftinn nú um helg- ina sá þriðji á einu ári. í janúar spáðu rússneskir jarðskjálftafræðingar stórum skjálfta á svæðinu á þessu ári. í hafnarborginni Kobe í Japan létu um 5 þúsund manns lífið í öflug- um jarðskjálfta. í október síðastliðn- um létust að minnsta kosti 11 manns í jarðskjálfta á Kúrileyjum. Jeltsín Rússlandsforseti fyrirskip- aði í gær viðamiklar björgunarað- gerðir og í Moskvu var sett á laggim- ar miðstöð björgunarstarfsins. Hóp- ur rússneskra ráðherra fór frá Moskvu í gær tl að fylgjast með björgunarstarfinu. Björgunarstarfið gekk í fyrstu illa í gær vegna slæms flugveðurs. Þegar veðrinu slotaði var flogið með tjöld, teppi, mat og lyf frá rússneska meginlandinu. Rússnesk- um landamæravörðum og hermönn- um var skipað að taka þátt í hjálpar- starfinu. Japönsk yfirvöld hafa boðið aðstoð sína í þakklætisskyni fyrir aðstoð Rússa í kjölfar jarðskjálftans í Kobe í janúar síðastliðnum. Varaforsætisráðherra Rússlands, Oleg Soskovets, kvaðst í gær óttast að skjálftinn á Sakhalineyju væri sá versti er komið hefði í Rússlandi. Reuter.TT Afgreiðslutími aðeins 2-4 vikur ef bíllinn er ekki til á lager. Grand Cherokee Pickup Nýi Blazerinn Getum lánað allt að 80% af kaupverði. Suzuki-jeppar EV BILAUMBOÐ Egill Vilhjálmsson hf. Smiðjuvegi 4 - Kópavogi - simi 55-77-200. Fæm motmæla hvalveiðum en áður Grænfriðungar áttu í erfiðleik- 100 manns sem gengur um göturn- umígærmeðaðfáBretatiiaðfiöl- ar til að mótmæla hvalveiðum mennaímótmælagöngugegnhval- Norðmanna og safna peningum veiöum. Ársfundur Alþjóða hval- handa samtökum grænfriöunga. veiöiráðsins hefst í Dublin í dag og AIls höfðu mótmælagöngur verið af þvi tilefiii efhdu græníriðungar skipulagðar á 233 stöðum um allt í Bretlandi til mótmæla. Það voru landið. Fulltrúi frá hverjum þess- þóekkinemaumlOþúsundrnanns ara staða ætlar tíl Dublin í dag. í öllu Bretlandi sem þátt tóku í Græníriðungar krefiast þess að mótmælunum en fyrir tveimur norsk yfirvöld viðurkenni reikn- árum voru mótmælendurnir tvö- ingsskekkju í stærðarmælingum á falt fleiri. hrefnustofninum og að þau stöðvi í London voru það ekki nema um hvalveiðamar strax. NTB Verðandi Noregsdrottning hneykslar Óslóarbúa: Gekk hálf nakin um Karl Johan - krónprinsinn fylgdi á eftir með kossum og kjassi Gísli Kristjánsson, DV, Ósló: Með peysuna bundna um mittíð og í svo stuttum buxum að vart er hægt að tala um buxm- gekk verðandi Noregsdrottning um götur Óslóar í blíðunni mn helgina. Hún var ekki ein á ferð því Hákon krónprins fylgdi fast á eftir og kysstí sína heittelskuðu við annað hvert fótmál. Hann var og nær klæöalaus. Eftir sýninguna efast fáir Norð- menn um að hin íðilfagra fyrirsæta, Cathrine Knudsen, verði næsta drottning landsins. Undanfama mánuði hafa gengið sögur um sam- drátt hennar og krónprinsins og nú þykir það dagljóst að kátt hefur verið í höllinni í allan vetur. Sómakærum Norðmönnum þykir það jaðra við hneyksli hvemig nýja drottningarefnið er kynnt fyrir þeim. TU þessa hefur þaö ekki verið hefð að ný Noregsdrottning sýni sig fyrst opinberlega nær klæðalaus með kossrnn og kjassi á Karl Johan að þúsundum manna ásjáandi. Það hefur heldur ekki verið hefð fyrir að norskir fiölmiðlar fialli opin- Cathrine Knudsen. skátt um konungsfiölskylduna og ástarmál hennar. Hinn nýi bersöglis- stíll leiddi í vor til þess að Sonja drottning boðaði ritsfjóra Óslóar- blaðanna á sinn fund og bað bömum sínum, Hákoni og Mörtu Lovísu, griða. Ritsfiórar lofuðu öllu fogru en hafa nú sýiúlega gleymt öllu aftur. "i' ■ Láttu það ekki vaxa þér í augunra að eignast draumabflinn! Sjóvá-Almennar geta lánað þér allt aö 75% af kaupverðinu. Bílaldn Sjóvd-Almennra er einfalt, fljótlegt og þægilegt °g til afgreiðslu strax hjd öllum bílaumboðunum. STOFN-félagar hjd Sjóvd-Almennum greiða lœgri Idntökukostnað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.