Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 10
10
. MÁNUDAGUR 29. MAÍ1995
Fréttir
Nánast sömu aöilar rannsaka og úrskurða í forsjár- og umgengnismálum:
Vil ekki fullyrða hvort
þetta er skynsamlegt
- segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra - ástæða til að skoða þetta eins og annað
„Ég veit að víða á félagsmálastofn-
unum er unnið gott starf og ástæðu-
laust að rengja hæfni þess fólks. Ég
treysti mér hins vegar ekki að svo
komnu máli til að fullyrða um hvort
þetta er skynsamlegt fyrirkomulag,"
sagöi Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra í samtali við DV, aðspurður
um álit hans á umræöum og deilum
í forsjár- og umgengnismálum hér á
landi í kjölfar nýlegra voðaatburða í
Hafnarfirði.
Eins og fram hefur komið í DV á
síðustu misserum hafa skjólstæðing-
ar félagsmálastofnunar ítrekað
kvartað yfir því að sami aðili, það
er félagsmálastofnanir, annist rann-
sóknir í viðkvæmum fjölskyldumál-
um og hafi einnig úrskurðarvald.
Álita er aflað sem gjaman eru borin
undir barnaverndarnefndir.
- Er viðeigandi að sami aðili rann-
saki og úrskurði?
„Ég vil ekki endilega fullyrða að
það sé óeðlilegt. Varðandi sýslu-
mannsembættin hér áður fyrr vom
þau bæði rannsakandi og dæmandi.
Því var síðan breytt. Ég veit ekki
hvort það var verulega nauðsynlegt
að gera það. Það kom krafa um það
að utan. Ég held að menn hafi
kannski ofmetið hættuna af því.“
- Er ástæða til að kanna hvort þessi
vinnubrögð í stjómsýslunni séu al-
mennt eðlileg, m.a. í ljósi síðustu at-
burða og reynslu mikils fjölda fólks
á síðustu árum?
„Það getur vel verið að það sé
ástæða til að skoða þetta eins og ann-
að en ég er ekki tilbúinn að kveða
upp úr meö það hvort þetta sé óeðh-
legt eins og það er,“ sagði Páll Péturs-
son.
-Ótt
Nýtt pósthús rís á Flúðum
Sigmundur Sigurgeirsson, DV, núðum:
Á Flúðum í Hrunamannahreppi er
mú að rísa nýtt pósthús og er gert
ráð fyrir að það verði tekið í notkun
í byijun ágúst. Pósthúsið á að þjóna
Flúðum og næsta nágrenni en ekki
er enn búið að ákveða hvert póst-
númerið verður.
Fyrirkomulag póstdreifingarinnar
hefur ekki veriö ákveðið en hug-
myndir eru uppi um að íbúarnir
sæki póstinn sinn í pósthólf. Öll póst-
þjónusta hefur verið í Versluninni
Grund og póstur borinn út þaðan.
barbecook
99-1750
Við leitum til þín eftir slagoröi fýrir Barbecook
Grill-strompinn! Taktu þátt í þessari
skemmtilegu leit meö því aö hringja í síma
99-1750 og leggja inn þína tillögu. Þú getur
lagt inn eins margar tillögur og þú vilt.
Barbecook Grill-strompurinn er þylting á
íslandi fyrir grilláhugamenn sem vilja fá hiö
ómissandi kolagrillbragö af matnum. Grilliö
sameinar þaö besta úr kola- og gasgrillum
því grilliö nýtir kolin betur, gerir fólki kleift
að grilla I hvaða veðri sem er og gefur hiö
ekta grillbragð. Barbecook Grill-strompurinn
er náttúruvænn því þaö þarf engin kemísk
efni, eins og t.d. grillolíu, til þess aö kveikja
upp í grillinu og grilliö er tilbúiö á innan viö
15 mínútum.
Verðlaun:
Glæsileg verölaun eru í boði fyrir heppna þátttakendur.
Meðal annars hlýtur eigandi besta slagorðsins 10
manna grillveislu sem Klúbbur matreiöslumeistara sér
um. Matreitt verður á Barbecook Grill-strompinum sem
síðan veröur skilinn eftir hjá vinningshafa.
Þú getur lagt inn slagorð til 16. júní.
Eigendur Hilmis ST 1, Unnar Ragnarsson skipstjóri, t.v., og Jón Vilhjálmur
Sigurðsson, um borð. DV-mynd Guðfinnur
Hólmavlk:
Hilmir hættur veiðum
Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavflc
„Hann kom til Hólmavíkur 1946 og
er sjötta elsta skipið í íslenska flotan-
um með gilt haffærisskírteini, aðeins
tvö skipanna eru stærri en hann.
Næsta sjómannadag hefur hann
verið á höfninni hér í 49 skipti, “ seg-
ir Unnar Ragnarsson, skipstjóri og
einn eigenda Hilmis ST 1 á Hólma-
vík. Skipið hefur nú að öllum líkind-
um komið úr sinni síðustu veiðiferð.
Hilmir er 27,63 rúmlestir að stærð,
smíðaður í Keflavík 1942.
„Þetta er eikarbátur, alveg ófúinn
og mjög gott sjóskip. Ánægjulegt
væri ef hægt yrði aö varðveita hann
til einhverra nota svo hann grotnaði
ekki niður. Það yrði sárt að horfa
upp á það því manni þykir orðið
vænt um þennan bát,“ segir Unnar
Ragnarsson skipstjóri.
Grindavlk:
Átaksverkefni svip-
að og undanf arin ár
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Átaksverkefni á vegum bæjarins
verður svipað og hefur verið undan-
farin tvö ár. í sumar verður farið í
að hlaða gijótgarða og gera bæinn
enn fegurri en hann er, þótt hann sé
mjög fagur og góður," sagði Jón
Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í
Grindavík.
Grindvíkingar hafa fengið leyfi frá
Atvinnuleysistrygingasjóði til aö
ráða menn í átaksverkefni á vegum
bæjarins. Að sögn Jóns verður ráðið
í verkefnið á næstu dögum. Hann
sagði að þeir hefðu fengið það sem
þeir báðu um hjá sjóðnum.