Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
Merming
31
Stíllinn í list Ás-
mundar Sveinssonar
Um helgina var opnuö í Ásmundarsafni sýning sem
ber yfirskriftina „Stíllinn í list Ásmundar Sveinsson-
ar“. Gunnar Kvaran fylgir sýningunni úr hlaöi með
því að fjaila um það í veglegri skrá hvernig form-
skrift Ásmundar hneigðist í síauknum mæli að því að
einfalda alla drætti mótífsins, draga fram eðli þess og
innsta kjarna. Að mati Gunnars var Ásmundur undir
meiri áhrifum frá súrrealistum en hinir ýmsu fræðing-
ar hafa til þessa viljað viðurkenna. Til marks um það
sé hið dæmigerða einkenni á verkum súrrealista eins-
og Maillols og Arps þar sem er ummyndun mannslíka-
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
mans. Gunnar minnist þó hvergi á sjálfan Picasso sem
tengdist súrrealistahreyílngunni nokkuð í upphafi og
má sjá merkilegan skyldleika með verkum þeirra Ás-
mundar á svipuðum tíma, samanber Guernicu Picass-
os frá 1937 og Stríð og flótta Ásmundar frá 1943 þar
sem báðir leitast við að magna upp spennu með því
að reyna á þanþol mannslíkamans, þó hinn fyrmefndi
hafi að visu látið sér tvívíðan flöt nægja.
Formið einfaldað í frumþætti sína
Sýningunni er þannig fyrir komið að í anddyri er
natúralískur negrastrákur látinn heilsa upp á gestina.
Á aðalhæð kúpulhússins hefur verið komið fyrir ljós-
myndum og llkönum af byggingu vinnustofunnar í
upphafi fimmta áratugarins. í nýja tengisalnum þar
fyrir neðan gefur að líta skúlptúra Ásmundar frá fjórða
áratugnum þar sem höggmyndirnar „vega salt á milli
raunsæis og tilhneigingar til að einfalda formið í frum-
þætti sína“. Hér eru áberandi höggmyndir á borð við
Þvottakonumar og Móður jörð, báðar frá 1936. Báðar
höggmyndimar, sem og flestar aðrar í þessum sal era
hér í hinni smærri framgerð svo eðlisþættir hinna
kraftmiklu stóru höggmynda skila sér ekki sem skyldi
innan um svo margar myndir.
Súrrealísk ummyndun
Höggmyndir frá fimmta áratugnum í innsta salnum,
gömlu vinnustofunni sem nú hefur verið marmara-
lögð, njóta sín til muna betur. Bæði er að þar eru
stærri verk innan um eins og stór bronsafsteypa af
Móðir mín í kví kví. Eins gefur þar aö líta meiri fjöl-
breytileika í efnisvali hkt og sér stað í viðarverkunum
Eitt verka Ásmundar.
Höfuðlausn og í tröllahöndum. Hér birtist mun meiri
tilhneiging til einföldunar en um leið til ummyndunar
í súrrealískum anda. Líkt og kemur fram í skránni
eru náttúrutilvísanir alltaf viðvarandi í verkum Ás-
mundar. Hann hélt alltaf sambandi við móður jörð,
þrátt fyrir að á sjötta og sjöunda áratugnum hafi hann
farið út í geómetrísk jámverk líkt og má sjá nokkur
dæmi um undir kúplinum. Náttúran og frumöfl henn-
ar héldu ætíð í hönd listamannsins líkt og sér greini-
lega stað í verkum á borð við Þú gafst mér að drekka
og Fuglinn Fönix.
Saga breyttrar myndhugsunar
Af sýningu þessari má ljóst vera að Ásmundur
Sveinsson var óragur við að gera formtilraunir og
reyna á þanþol myndefnis síns. Greina má þróun
módernismans hér landi í gegnum verk haps og hvern-
ig almenn afstaða til óhlutbundins myndmáls hefur
smám saman breyst á þessari öld. Það er ekki hvað
síst í slíku ljósi sem merkilegt er að skoða þessa sýn-
ingu pg hefði mátt benda á það í sýningarskrá hve
verk Ásmundar eru í raun góðar vörður á leið þjóðar-
innar til þroskaðrar myndhugsunar á þessari öld
myndhlæðis. Gamlar og nýjar Ijósmyndir þeirra Krist-
ins Helgasonar og Kristjáns Péturs Guðnasonar falla
vel saman í órofa heild í sýningarskrá sem er ágæt-
lega hönnuð af Hildigunni Gunnarsdóttur.
Sýning Sofííu Sæmundsdóttur 1 Stöðlakoti:
ÁHahallir og engla-
byggð á sýningu
Það svífur andi ævintýra yfir vötnunum á sýningu
Soffíu Sæmundsdóttur í Stöðlakoti að Bókhlöðustíg
6. Á sýningu Soffíu eru fimmtán verk, níu grafíkverk
og sex lágmyndir, skomar út í tré. Grafíkverkin eru
öll einþrykk unnin með tréristum og við fyrstu sýn
virðast þau flest hver óhlutbundin, en við nánari skoð-
un koma í ljós í gegnum þokukennda áferðina ævin-
týralegar persónur; prinsessa, engill og ferðalangur
nokkur.
Á ferðalagi um englabyggð
í sýningarskrá er að finna vísi að ævintýri eftir lista-
konuna sem væntanlega á að vera jafnframt vegvísir
um sýninguna: „í hröðum heimi reynir hún að stöðva
tímann. Hún leggst út í vorið við Alfahöllina. Finnur
vorangan... I Flauelsmjúkt vorið ber hana á höndum
sér á vit ævintýra og sagna ... / í draumi fylgir hún
litlum ferðalangi um englabyggð ... hann leitar visku
og skilnings." Hér er því sýnilega um að ræða leit að
þeim sannleika og þeirri einlægni sem felst í hinu
bamslega og draumkennda, þar sem fordómar og
streita kæfa ekki sköpunarkraftinn og hina eðlilegu
framrás ímyndunaraflsins.
Draumveruleikakennd
Einþrykkin hafa sum hver yfirbragð gamalla hand-
rita sem þó hafa fengið vel útilátið af lit. Verk nr. 8,
.. .niður, er að mínu mati sérstaklega vel heppnað að
þessu leyti með því að þar helst draumveruleikakennd-
in í hendur við ævintýraheim myndarinnar jafnframt
því sem bernskt yfirbragð er á frágangi rammans og
verksins í heild. Verk nr. 7 og 8 hafa einnig dágóðan
skammt af næfri kennd í litasamspili sem einkennist
af djúpum og skærum tónum. Önnur verk skortir hins
vegar talsvert á þá tæru og einlægu myndsýn er þama
birtist.
Útskornar ævintýraverur
Á lofti Stöðlakots gefur að líta útskorin smáverk.
Þar er um að ræða sömu fígúrur og birtast í einþrykkj-
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
unum. Þær njóta sín þó mun síður einar sér en á litauð-
ugum grunni grafíkmyndanna. Það er eins og hvítmál-
uð umgjörðin hefti þær frekar en hitt og smæðin ger-
ir það ennfremur aö verkum að uppsetningin á loftinu
missir nokkuð marks. Það sem þessi smáverk hafa
hins vegar til að bera er viss frumstæður kraftur sem
á einmitt samleið með fyrmefndum bemskum tón og
þyrfti að öðlast markvissari farveg hjá listakonunni.
Einlægni bemskunnar stendur alltaf fyrir sínu sem
útgangspunktur því þar eru hlutimir jú í nýju ljósi
sem er ólíkt drunga hins vanabundna lífs hinna eldri
og „þroskaðri". Sýning Soffíu Sæmundsdóttur í Stöðla-
koti stendur til 19. júní.
Utboð
F.h. Skólaskrifstofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboð-
um í aðalræstingu og bónun gólfa í grunnskólum
Reykjavíkur.
Verkið nefnist:
„Aðalræsting og bónun gólfa i grunnskólum Reykja-
víkur“.
Gert er ráð fyrir að samningurinn gildi í 3 ár. Útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 13.
júní 1995 kl. 11.00.
skr. 66/5
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 2 58 00
Landsins mesta úrval
af keramikvörum
>
Islensk
framleiðsla
. . í
L
Gjafavara í úrvali
Listasmiðian
Dalshraun 1 - Hafnarfirði - Simi 652105 - Fax 53170
Utskriftarmen
14 k gullhálsmen með perlu
Fallegur skartgripur í útskriftina
Verð kr. 4.900 án festar.
Laugavegi 49, sími 561 7740
Allt til rafsuðu
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMl 91-624260
▼'▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼I
Forysta ESAB
er trygging
fyrir gæðum
og góðri
þjónustu.