Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Side 28
40
MÁNUDAGUR 29. MAÍ1995
Hringiðan
HúYzí-.
Verðlaun fyrir auglýsingar
Á laugardaginn voru afhent verö-
laun í auglýsinga- og teiknisam-
keppni krakka sem Ingvar Helgason
hf. stóö fyrir. Alls bárust á þriðja
hundrað tillögur í keppnina en verö-
laun voru veitt fyrir tíi bestu mynd-
irnar. Hér er Elínborg Hilmarsdóttir
með verðlaunin sín.
Hekla Hlöðversdóttir var að skoða
selina í Húsdýragarðinum þegar ijós-
myndara DV bar að. Hún var afar
kát með dýrin sem hún sá og þótti
gaman í garðinum.
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Faxafeni 12, sími 882455
Vélastillingar
HJólastillingar
Ljósastillingar
Skiptum um tímareimar
Hreinsum blöndunga
og innspýtingu
Fullkomin tæki
Vélastilling s/f
Auðbrekku 16, Kópavogi,
s. 554 3140, fax 564 4460
ELBEX SJónvarps-,
eftirlits- og örygglstæki.
Kerfln eru
stækkanleg.
annast
öryggismálin
Me&al viðskiptamanna okkar eru:
Þjóöarbókhlaöan, sjúkrahús,
heilsugæslustöövar, bllageymslur,
frystihús, skip og bátar, kirkjur,
verslanir o. fl.
Einar
Farestve'rt & Co. hf.
Borgartúnl 28 - Slml 622901 og 622900
Astró opnar
Á fóstudaginn var nýr veitingastaður, Astró í Austurstræti, opnaður með pomp og prakt. Þar var margt um mann-
inn en þeir brostu hvað breiðast eigendur staðarins, Helgi Bjömsson og Hallur Helgason enda hæstánægðir með
nýjastaðinn. DV-myndTJ
Sýning á undirfatnaði
Mikið var að gerast á L. A Café á laug-
ardagskvöld. Andlit sumarsins hjá
No Name snyrtivörum voru kynnt
og tískusýningar voru haldnar. Hér
er ein sýningarstúlknanna að kynna
undirfatnað frá Ég og þú.
Spilað og sungið
Unglingahljómsveitin Kósí gerði lukku meðal gesta er þeir spiluðu og sungu
á veitingastaðnum Astró á fostudagskvöld.
Kompudagar í Kolaportinu
Hún Edona Hoda nýtti tækifærið á laugardaginn og skellti sér á kompudaga
Kolaportsins. Þar var margt að sjá og greinilegt að kompumar hafa margt
merkilegt að geyma en Edona hatði mestan áhuga á skartinu.
Afmælistónleikar
Kór Öldutúnsskóla hélt upp á þrítugsafmæli sitt með tónleikum í Víöistaða-
kirkju á laugardaginn. Það voru heilmiklir tónleikar þar sem hátt á annað
hundrað kórfélagar, bæði núverandi og fyrrverandi, sungu fyrir smekkfullri
Víðistaðakirkju.
Nýjar No Name stúlkur kynntar
Á laugardagskvöld voru þær söngstöllur Emiliana Torrini og Svala Björg-
vinsdóttir kynntar á L.A. Café sem andlit sumarsins hjá No Name snyrtivör-
um við mikið húllumhæ og fjör.
Sögudagar á Grund
Á laugardaginn var opnuð ljósmyndasýning á elliheimilinu Grund sem ber
yflrskriftina Líf og starf á Grund í 72 ár og er liður í sögu- og menningarhá-
tíð vesturbæjar sem staðið hefur yfir síðastliðna viku. Þær Málfríður Jos-
ephsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir voru mættar til að virða fyrir sér
ljósmyndimar á sýningimni.
Góðir tómatar
Þær Halldóra Kristín Magnúsdóttir og Iðunn Maria Sigurðardóttir buðu
fólk velkomið í Húsdýragarðinn á fjölskyldudaginn með tómötmn. Það vora
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn og íslenskur landbúnaður sem tóku þátt í
sameiginlegu átaki um heilsueflingu landsmanna og buðu gestum garðsins
að gæða sér á heiisusamlegu góðgæti. Þeim Halldóru og Iðunni þótti tómat-
arnir hreint lostæti.