Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995
41
dv________________________Meiming
Grímur Marinó Steindórsson sýnir í Gerðarsafni:
Fuglar og vopn
Það er eiginleiki sterkra malma að í þá má túlka jöfnum höndum mik-
il þyngsli og tæran léttleika. Styrkur stálsins gerir það að verkum að úr
því má smíða hluti sem gætu alls ekki staðið óstuddir ef þeir væru gerð-
ir úr öðru efni og virðast því yflrvinna þyngdaraflið á einhvern óskiljan-
legan hátt. Grannir stönglar geta teygt sig hátt upp en samt borið þungan
ávöxt á endanum. Þunnar útskornar plötur geta haldið uppi stórum verk-
um sem samt eru að mestu bara loft, fangað í rými útlínunnar. Á hinn
bóginn er stálið auðvitaö ímynd hörkunnar, þungt, þétt í sér og hættu-
legt. Af því eru smíðuð vopn. Þessa tvo þversagnakenndu eiginleika
málmsins hefur Grímur Marinó nýtt sér vel í mörgum verkanna sem
hann sýnir nú í Gerðarsafni og á túninu bak við safnið. Margar áhrifa-
mestu myndirnar byggja á léttleika málmsins og þær sýna fugla sem virð-
Myndlist
Jón Proppé
ast um það bil að hefja sig til flugs og slíta þannig grannan málmþráðinn
sem enn tengir þá við jörðina. Grímur Marinó sýnir í þessum verkum
að hann hefur næman skilning á hreyfingu og orku, og hann nýtir sér
eiginleika efnisins til að fanga bæði léttleikann og styrkinn í flugi fugl-
anna. Harka málmsins er hins vegar viðfangsefni hans í sumum hinna
verkanna og þau bera mörg nöfn frægra drápstóla, til dæmis Rimmigíg
[svo] og Konungsnautur, eða heiti sem vísa til grimmrar forneskju: Goð-
orðsstafur, Fórnarhnífur. Þetta eru ógurleg vopn, stór og þung þótt sum
séu reyndar nokkuð stílfærð. Líkt og hin verkin sýna loftið og flug fugl-
anna vekja þessi myndir jarðarinnar og minni blóðhefnda og fóma. Á
sýningunni era líka veggmyndir, eins konar lágmyndir gerðar úr tilskom-
um málmplötum sem hamraðar eru til og meðhöndlaðar með loga. Mynd-
ir af þessu tagi hefur Grímur Marinó sýnt áður og líkt og áður eru flest-
ar veggmyndirnar á þessari sýningu frekar óklárar; þær skortir alveg
tærleikann og knappan stíl þrívíddarmyndanna. Það hefði kannski verið
best að velja aðeins úr tvær eða þrjár þeirra bestu, enda eru þegar svo
mörg verk á sýningunni að nóg hefði verið án hinna. Grímur Marinó
hefur haldið allmargar sýningar og eftir hann standa líka nokkur útiverk
á opinberum stöðum víðs vegar um landið.
Leikhús
&W)j,
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið
Söngleikurinn
WEST SIDE STORY
eftir Jerome Robbins og Arthur
Laurents við tónlist Leonards Bern-
steins
kl. 20.00.
Föd. 2/6, mád. 5/6, löd. 9/6, Id. 10/6, sud. 18/6,
löd. 23/6.
Sýningum lýkur í júni.
íslenski dansflokkurinn:
HEITIR DANSAR
Fid.1/6, síöastasýning.
„Athyglisverðasta áhugaleiksýning
leikársins"
Freyvangsleikhúsið sýnir:
KVENNASKÓLAÆVINTÝRIÐ
eftir Böðvar Guðmundsson
Sunnud. 11/6 ki. 20.00, uppselt.
Smíðaverkstæðið
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
kl. 20.00.
Mvd. 31 /5, lid. 1 /6, löd. 2/6, fid. 8/6, löd. 9/6,
Id. 10/6, fid. 15/5, föd. 16/5, föd. 23/6, Id. 24/6,
sud. 25/6, fld. 29/6, föd. 30/6.
Gjafakort í leikhús - sígild og
skemmtileg gjöf.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13 til 18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Græna línan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00.
Sími 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið kl. 20.
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Aukasýning töstud. 2/6.
Siðustu sýningar á leikárinu.
Munið gjafakortin okkar.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13-20, auk þess er
tekið á móti pöntunum i síma frá kl.
10-12 alla virka daga.
Sími miðasölu 680680.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
STifcYJÍTÍí ji
Leikfélag Akureyrar
DJÖFLAEYJAN
Fösd. 2/6 kl. 20.30, Id. 3/6 kl. 20.30.
Síðustu sýningar.
★★★★ J.V.J. Dagsljós
Miðasalan í Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Simsvari tekur við
miðapöntunum utan opnunartíma.
Greiðslukortaþjónusta.
Hringiðan
Hópreið Fákskvenna
Konur í Hestamannafélaginu Fáki fjölmenntu á fákum sínum upp aö Reynis-
vatni á fóstudag. Hátt á annað hundraö konur tóku þátt í reiðinni sem gekk
vel og skemmtu þær sér konunglega. DV-mynd TJ
Stúdíó hár og húð í nýtt húsnæði
Hárgreiðslu- og snyrtistofan
Stúdíó hár hefur opnað í nýju hús-
næði að Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði,
við hlið Miðbæjar. Stofan var áður
til húsa að Reykjavíkurvegi 16. Hár-
greiðslumeistarar eru Þuríður Ella
Halldórsdóttir og Guðrún Karla Sig-
urðardóttir en auk þeirra mun
snyrtifræöingur starfa á stofunni.
Boðið er upp á alhliða hár- og
snyrtiþjónustu fyrir dömur og herra
og sérstök áhersla er lögð á hárlitun
og brúðargreiðslur. Stofan er að jafn-
aði opin alla virka daga frá kl. 10-18
og 10-16 á laugardögum, enn fremur
á öðram tímum sé þess óskað.
Fjölskyldudagur
Á laugardaginn var íjölskyldudagur um land allt. Þær Hulda Hólmgeirsdótt-
ir og Ásdis Gylfadóttir voru áhugasamar um dýrin í Húsdýragarðinum en
gáfu sér þó aðeins tíma til að brosa fyrir ljósmyndara DV. DV-mynd TJ
Friðþjófur Þorkelsson dæmdi gæðinga Hafnfirðinga um helgina. Honum til
aðstoðar var Þuríður Sigurðardóttir söngkona. DV-mynd E. J.
Sigvaldi Sigurjónsson og Óskar Grímsson litu á gæðingana hjá Gusti í
Kópavogi. DV-myndE.J.
AIIIH
9 9-17-00
Verö aöeins 39,90 mín.
m
U
4j
„5j
Fótbolti
Handbolti
Körfubolti
Enski boltinn
ítalski boltinn
Þýski boltinn
Önnur úrslit
NBA-deildin
11 Vikutilboö
stórmarkaöanna
2! Uppskriftir
1 j Læknavaktin
2JApótek
_3J Gengi
4 m)jejm7ÆE
1\ Dagskrá Sjónv.
2j Dagskrá St. 2
3 Dagskrá rásar 1
4 [ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5j Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
8 Nýjustu myndböndin
lj Krár
2 Dansstaðir
3j Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
5J Bíó
6 j Kvikmgagnrýni
GmlhmismMSM
1[ Lottó
_2j Víkingalottó
: 3] Getraunir
ZJSSBSBSB
1 [ Dagskrá
líkamsræktar-
stöðvanna
nímmn
9 9-1 7-00
Verð aðeins 39,90 mín.