Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Side 33
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995 45 DV Grímur Marinó Steindórsson. Skúlptúr- arog vegg- myndir Síðastliðinn laugardag opnaöi myndlistarmaðurinn Grímur Marinó Steindórsson sýningu á verkum sínum í hinu nýja og glæsilega Gerðarsafh í Kópavogi. A sýngu hans eru skúlptúrar og veggmyndir. Grímur Marinó hefur haldiö fjöidann allan af einkasýningum og veríð þátttakandi í mörgum samsýningum hér heima og í ut- Sýningar löndum. Skúlptúrar hans hafa margir hverjir verið stækkaðir og má nefna minnisvarða um landpóstana á Stað í Hrútaflrði, innsiglingarvita á Hörgsey í Vest- mannaeyjum, minnisvarða um sjómenn í Stykkishólmi og verkið Uupphaf, sem er við Iþróttahús Brelðabliks í Kópavogi. Flauta og píanó Flautuleikaramir Martial Nardeau og Guðrún Birgisdóttir ásamt Peter Máté munu halda tónleika í kvöld í Fella- og Hóla- kirkju kl. 21. Fræöslufundur Síðasti fræðslufúndur HÍN á þessu vori verður í stofú 101 i Odda í kvöld kl. 20.30. Trausti Jónsson og Tómas Jóhannesson flytja erindl sem þeir nefna: Hlýnun af völdum vaxandi gróö- urhúsáhrifa? Erindl um CE-merkíö Heilbrigðistæknifélag íslands heldur almennan félagsfund í Skálanum, Hótel Sögu kl. 17 í dag. Flutt veröa tvö erindi um CE-merkið, samræmingarmerki evrópska efnahagssvæðisins. Samkomur Áfallasálfræöl Siðasti fyrirlesturinn í röð fyrir- lestra um áfallasálfræöi verður f dag í stofú 101 í Lögbergi kl. 17. Margrét ArnUótsdóttir og Mar- grét Ólafsdóttir flytja fyrirlestur- inn Áfallastreita og meðferð hennar. Tónabær: Tónlist úr söngleikjiim í kvöld verður síðari flutningur á tónlistardagskrá sem norskir og ís- lenskir kennaranemar hafa skipu- lagt og undirbúiö sameiginlega í vet- ur þó aö þeir hafi ekki hist fyrr en í síðustu viku. Samstarfsverkefni þetta er styrkt af Nordplus áætlun- Tórúist inni sem ætlað er að efla samskipti og samvinnu háskólanema á Norður- löndum. Norsku kennaranemar koma frá Elverum en þeir íslensku frá Kenn- araháskóla íslands. í vetur hafa hóp- arnir ásamt kennurum sínum æft og undirbúið sameiginlega dagskrá með tónlist úr söngleikjum, tengt lögin með söguþræði, unnið að gerð leik- myndar, lýsingar og hljóðsetningar fyrir sýninguna. Tuttugu norskir og sautján íslenskir nemar taka þátt í dagskránni. íslenskir og norskir kennaranemar flytja söngleikjadagskró í Tónabæ. listaklúbbur Leikhúskjallarans: Dagskrá helguð Hauki Morthens Síöasta dagskrá LLstaklúbbs íæikhús- kjallaransí veturverðurí kvöldogerhún helguð Hauki Morthens, einum ástsælasta dægurlagasöngvara sem við höfum átt Sagt verður frá ferli Hauks og mörg af Skemmtanir vinsælustu lögum hans sungin, má þar má nefna Bjössi á nyólkurbílnum, Simbi sjómaður og Til eru fræ. Flytjendur eru leikaramir og tónlistarmennirnir Hinrik Ólafsson, Valgeir Skagfjörð, Vigdís Gunn- arsdóttir, Kormákur Geirharðsson og Ein- ar Sigurðsson. Starf Iistaklúbbsins hefur verið mjög blómlegt 1 vetur, dagskrámar fjölbreyttar og skiptir fjöldi listamanna, sem kotnið hafa firam á vegum klúbbsins, hundruð- um. Listaklúbburinn hefúr starfsemi sína í haust á Bókmenntahátiðinni í Reykjavík. Hinrik Ólafsson, Vigdís Gunnarsdóttir og Valgeir Skagljörð eru meðal tlstamanna sem koma fram í Leikhúskjailaranum í kvöld. Þægileg ganga á Högnastaðaása Sem dæmi um þægilega göngu frá Flúðum er ganga á Högnastaðaása. Fyrst er rétt að ganga um þéttbýlið á Flúðum og kynnast nánasta um- hverfmu. Jarðhiti og Litla-Laxá selja Uníhverfi svip sinn á staðinn. Að þvi loknu er rétt að ganga upp á Högnastaðaásana fyrir norðan og um tveggja kílómetra leið norður á hæsta punkt sem er aðeins 163 metra yfir sjó. Þessi ganga frá Flúðum er hvorki erfið né löng og þarf ekki að taka meira en 1 til 2 klukkutíma, en mikil- vægi gönguferða þarf hvorki að mæla í tíma né vegalengd. Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir Elnar Þ. Guðjohnsen il Gullfoss 1000 metrar Högnaslraðaái Grafarbakki Rauöös Liam Neeson leikur skosku þjóð- hetjuna Rob Roy. Rob Roy Rob Roy, sem Háskólabíó sýnir, er epísk stórmynd sem byggð er á ævi skosku þjóðsagnahetjunnar Robert Roy MacGregor (1671- 1734). Rob Roy var foringi Mac- Gregor ættarinnar. Þegar hann biður um lán hjá greifanum af Montrose til að hann og fjöl- skylda hans geti lifað af harðan vetur í hálöndum Skotlands verö- ur hann óvart peð samvisku- Kvikmyndir lausra manna en peningarnir hverfa og er honum kennt um að hafa tapað þeim. Rob Roy neyðist til að gerast útlagi þegar greifinn brennir heimili hans til grunna. Rob Roy var handtekinn þrisvar en slapp ávallt. Hann sýndi mikið hugrekki sem gerði hann að hetju og átrúnaðargoði. Þegar hann var handtekinn í fjórða skiptiö árið 1725 var hann loks náðaöur. Það er Liam Neeson sem leikur Rob Roy en Jessica Lange leikur eiginkonu hans. Aðrir leikarar eru John Hurt, Tim Roth, Eric Stoltz, Brian Cox og Andrew Keir. Nýjar myndir Háskðlabió: Rob Roy Laugarásbió: Snillingurinn Saga-bió: Englarnir Bíóhöllin: Fylgsnið Bióborgln: Tvöfalt lif Regnboginn: Kúlnahrið á Broadway Stjörnubíó: Litlar konur Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 131. 26. mai 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 62,860 63,120 63,180 Pund 101,180 101,580 102,070 Kan. dollar 45,810 46,040 46,380 Dönsk kr. 11,6000 11,6580 11.6280 Norsk kr. 10.1790 10,2300 10,1760 Sænskkr. 8.7580 8.8020 8,6960 Fi. mark 14,8040 14,8780 14,8560 Fra. franki 12,8620 12,9270 12,8950 Belg. franki 2.2086 2,2196 2,2274 Sviss. franki 54,9000 55,1700 55.5100 Holl. gyllini 40,5200 40,7300 40,9200 Þýskt mark 45.3700 45,5500 45,8000 ít. líra 0,03833 0,03856 0.03751 Aust. sch. 6,4500 6,4890 6,5150 Port. escudo 0.4310 0,4336 0,4328 Spá. peseti 0,5221 0,5253 0,5146 Jap. yen 0,75160 0.75540 0.7532C irskt pund 103,360 103.990 103,400 SDR 98,84000 99,43000 99.5000C ECU 83.5900 84,0100 84,1800 Simsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgátan 7 T~ r~ 7- y y j TT /4 T3 JiT i I? mam I W 2f & Lárétt: 1 bölva, 7 mótbárur, 9 hár, 10 tafði, 12 kul, 14 mynt, 15 heiöur, 16 vætut- íö, 18 meiði, 20 smáfiskur, 23 hindrun. Lóðrétt: 1 kák, 2 megnar, 3 fita, 4 spjó, 5 stafs, 6 rykkom, 8 ræður, 11 grunaöi, 13 fjúk, 15 óróleg, 17 kúga, 19 óður, 21 reim. Lausn á síðustu á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 brátt, 6 há, 8 lúðrar, 9 óma, 10 efja, 11 máni, 13 lóg, 14 skens, 16 tó, 18 lög, 19 deig, 21 æf, 22 galin. Lóðrétt: 1 blóms, 2 rúm, 3 áöan, 4 treinda, 5 tafls, 6 hijóti, 7 álag, 12 áköf, 15 egg, 17 ógn, 18 læ, 20 el.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.