Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1995, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1995, Page 7
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1995 I>V Asprillaáförum Faustino Asprilla sagði í viðtali við ítalska íþróttablaðiö Gazzetta dello Sport að hann myndi ekki leika framar með Parma. Hann vildi sem sagt fara frá liðinu sem allra fyrst. Aspriila er á öndverð- um meiði við þjáifara liðsins, Nevio Scala. Þýska liðið Borussia Dortmund hefur boðið Parma tæpar 11 milljónir dollara en Parma vill 12 milljónir. Birmingham selur Enska 1. deildarliðið Birming- ham hefur selt Jose Dominguez til portúgalska liðsins Sporting Lissabon. Dominguez lék með Birmingham eitt tímabil en hann þykir einn efnilegasti leikmaður Portúgala í dag. Kaupverðið var ekki geflð upp. HughestilChelsea Mark Hughes skrifaði midir samning við Chelsea á fostudag- inn var og greiddi Lundimaliðið Manchester United um 150 milij- ónir króna fyrir leikmanninn. Salan á Hughes kom nokkuð á óvart en í vetur endurnýjaði Hug- hes samning viö United til tvegga ára. Chelsea, undir stjórn Glenn Hoddle, ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili en í síðustu viku var Ruud Gullit keyptur til Cheslea. Unitedstórhuga Áhangendur Manchester Un- ited kröfðust þess um helgina að sterkir leikmenn yrðu keyptir fyrst að Paul Ince og Mark Hug- hes væru farnir. Áhangendur liðsins fengu þau skilaboð að þeir þyrftu ekkert að óttast. Breskir fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að United væri á höttunum á eft- ir Roberto Baggio og enn fremur Búlgaranum Hristo Stoichkocv hjá Barcelona. Bergkamp kominn Mxkil ánægja ríkir meðal áitangenda og forráðamanna Arsenal með kaupin á hoilenska Iandsliðsmanninum Dennis Bergkamp. Aðgöngumiðasala fyrir næstu leiktíð hefur farið vel af stað og eru rnenn nokkuð viss- ir um að uppselt verði fljótlega á heimaleiki liðsins. Einnig hefur minjagripasala rokið upp úr öllu valdi. Mannabreytingar Fyrirsjánlegar eru meiri breyt- ingar á leikmannahópi Arsenal. Danski landsliðsmaðurinn Jan Jensen vill fara frá félaginu og allar líkur eru á því að Alan Smith fari einnig. Smith vill búa áfram í London og hefur West Ham sýnt þessum marksækna Ieíkmanni áhuga. Alltfóráfiot Úrshtaleiknum 1 spænsku bik- arkeppninni á milli Deportívo og Valencia varð að hætta vegna gifulegrar rigningar og hvass- viðris. Dómarinn sá sig knúinn til að hætta leiknum þegar tíu mínútur voru til leiksloka og þá var völlurinn í Madrid á floti. Stðan var jöfn,' 1-1, þegar hætt var og verður nýr leikur ltáður annað kvöld. ValrétturíNBA B.J. Armstrong, Clúcago Bulls, og Greg Anthony, New York Knicks, voru þeír leikmenn sem nýliðaranir í NBA settu í efstu sætin í valrétti sínum á leik- mönnum. Toronto Raptors og Vancouver Grizzlies heija keppni í NBA í vetur og eru þau byrjuð að leita aö leikmönnum til að styrkja lið sín. Toronto setur Amstrong í fyrsta sæti og Vancouver leggur ofurkapp á Anthony. Bæði liðin hafa sett saman óskahsta leikmanna og munu á næstu dögum ræða við ýmsa leikmenn um kaup og kjör. 27 íþróttír Evrópubikarinn í frjálsum: Unford Christie frábær - Þýskaland og Rússland meistarar Bresku frjálsíþróttamennimir Linford Christie og Jonathan Ed- wards stálu senunni í úrslitakeppni Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsum íþróttum sem lauk í Frakk- landi um helgina. Christie hélt liði Breta á floti með frábærri frammistöðu í 100 og 200 metra hlaupum og einnig í 4x100 metra boðhlaupi. Edwards náði frá- bærum stökkum í þrístökki og stökk um hálfum metra lengra en gildandi heimsmet en árangurinn fékkst ekki staðfestur sem heimsmet vegna þess að meðvindur var aðeins yfir leyfi- legum mörkum. „Ég er géysilega hissa á þessum sigrum hjá mér og einnig er ég hissa á þeim tímum sem ég náði,“ sagði Linford Christie eftir keppnina en hann hefur nú unnið 13 Evrópubik- artitla og hefur engum öðrum íþróttamanni tekist slíkt afrek. Linford Christie hljóp 100 metrana á 10,05 sek. og 200 metrana á 20,11 sek. sem er við hans besta árangur. Frammistaða Christies kom nokkuð á óvart þar sem hann hefur átt við veikindi aö stríða undanfarna daga. Þá lést móðir hans á dögunum og hann kom seint til Frakklands vegna jarðarfarar móður sinnar. Ekki virt- ist þetta há honum í keppninni og enn einu sinni sló þessi frábæri íþróttamaður í gegn á stórmóti. Edwards virtist goður með sig eftir keppnina í þrístökkinu og sagði: „Það eru varla til orð yfir þessa frammi- stöðu hjá mér. Ég er á því að ég hefði sett heimsmet þótt ekki hefði verið vindur.“ Edwards stökk lengst 18,43 metra en heimsmet Willie Banks frá Bandaríkjunum er 17,97 metrar og sett árið 1985. Edwards átti annað stökk langt yfir 18 metra. Vindur mældist 2,4 metrar á sekúndu en mörkin liggja við 2,0 metra. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar i karlaílokki en lið Rússlands sigraöi í kvennaflokki. Stigin skiptust þann- ig á milli þjóðanna. • Keppni karla: 1. Þýskaland...............117,0 2. Bretland................107,0 3. Rússland................105,0 4. ítalia...................96,5 5. Úkraína..................82,0 6. Svíþjóð..................78,5 7. Spánn....................67,0 8. Pólland....................35 • Úrslit í keppni kvenna: 1. Rússland................117,0 2. Þýskaland...............100,0 3. Bretland.................85,0 4. Frakkland................75,0 5. Úkraína..................75,0 6. Hvíta-Rússland...........71,0 7. Ítalía...................52,0 8. Pólland..................37,0 • Linford Christie sló rækilega í gegn um helgina. Hann vann 13. Evrópu- bikartitil sinn á ferlinum og það hefur enginn leikið eftir. Christie lagði grunn- inn að góðum árangri Breta i keppninni og sigraði í þremur greinum. Hann mætti þó of seint til Frakklands vegna jarðarfarar móður sinnar. Símamynd Reuter ... / : ’ WwM. Jöran Bergwall sigraði í einliðaleik karla á opnu stórmóti Víkings í gær. DV-mynd Teitur Opiö stórmót Víkings 1 tennis: Bergwall og Stef- anía sigruðu í einliðaleik Jöran Bergwall, Víkingi, bar sig- ur úr býtum i einliðaleik karla á opnu stórmóti Víkings í tennis um helgina. Bergwall sigraði Atla Þor- björnsson í úrslitaleik. í kvenna- flokki lagði Stefanía Stefánsdóttir, Þrótti, Hrafnhildi Hannesdóttur, Fjölni. í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Jöran Bergwall og Jónas Björns- son, báðir úr Víkingi, þá Stefán Pálsson og Fjölni Pálsson úr Vík- ingi. Af öðrum úrshtum má nefna að Davíð Halldórsson, TFK, sigraði í einliðaleik sveina. Jón Axel Jóns- son, UMFB, og Freyr Pálsson unnu í tvíliðaleik sveina. í einliöaleik meyja sigraði Rakel Pétursdóttir, Fjölni. í tvíliðaleik meyja unnu sig- ur þær Kolbrún Stefánsdóttir og Svandís Sigurðardóttir úr Þrótti. í einliðaleik drengja vann Arnar Sig- urðsson, TFK, sigur. í tvíliðaleik drengjaunnu Fjölnis- mennirnir Guðmundur Marteins- son og Davíð Hansson sigur. í tví- liðaleik karla í öðlingaflokki unnu Sigurður Ásgeirsson og M. Anbari úr Víkingi. í öðlingaflokki kvenna unnu Vík- ingarnir Steinunn Björnsdóttir og Steingerður Einarsdóttir. í tvennd- arleik öðlinga sigruðu þau Guðný Eiríksdóttir og Atli Arason úr Þrótti. í einliðaleik kvenna, 30 ára og eldri, sigraði Guðný Éiríksdóttir, Þrótti, og í einliðaleik karla, 45 ára og eldri vann Einar Thoroddsen, Víkingi. í tvíliðaleik öldunga, 45 ára og eldri, unnu þeir Viðar Sím- onarson, Þrótti, og Björn Jónasson úr Víkingi. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.