Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995
Neytendur
Tívollið komið í flórða sinn:
Þrjú hundruð krónur fyr-
ir manninn í f lest tækin
- dýrt, segja krakkamir, sama verð og fyrir Qórum árum, segja forsvarsmenn tívolísins
DV-mynd JAK
Fjórða árið í röð gleður hin breska
Taylor-fjölskylda íslensk ungmenni
með tívolítækjum sínum og tólum.
Tívolíið, sem staðsett er nú eins og
undanfarin ár á hafnarbakkanum,
hefur notið mikilla vinsælda þann
tíma sem það hefur verið hér undan-
farin sumur og á því virðist ekki
ætla að verða nein breyting í ár.
Margir hafa þó haft á orði að
skemmtunin væri dýr, sérstaklega
fyrir stórar fjölskyldur.
Hvað kostar skemmtunin?
Einn miði í tívolíinu kostar eitt
hundrað krónur en fyrir einn miða
er aðeins hægt að fara í eitt ákveðið
tæki sem 10 ára viömælendum DV
þótti ekki mikið til koma.
í þau fimm tæki sem þykja mest
spennandi kostar þrjá miða eða 300
krónur. í skotbakka, tombólur og
lottó ýmiss konar kostar einn til fjóra
miða eftir því hversu veglegir vinn-
ingamir eru.
Það er því auðvelt að sjá að ef fjöl-
skylda með þijá krakka fer í tívolíið
er kostnaðurinn fljótur að safnast
saman. Það kostar níu hundruð
krónur að senda þrjá krakka í eitt
tæki og ef farið er í þijú tæki er
kostnaður kominn upp í tvö þúsund
og sjö hundruð krónur og það á um
það bil tíu mínútum.
Háttverð?
„Þetta verð sem við bjóðum er það
Krakkarnir skemmta sér vel í Tívolíinu.
sama og fyrir fjórum árum þegar við
komum hingað fyrst. Við erum með
sama verð á meðan aUt annað hefur
hækkað, til dæmis allt sem við þurf-
um að kaupa okkur hér,“ sagði David
Taylor, einn af forsvarsmönnum tí-
volísins, þegar DV ræddi við hann í
gær.
Hann sagði að fólk hefði alltaf tekið
þeim mjög vel og á því væri engin
undantekning núna. Hann sagði líka
að hann hefði ekki orðiö var við að
fólki fyndist verðið of hátt. í það
minnsta hefði fólk tekið þeim vel og
fjölmennt í tívolíið um helgina.
David sagði aö hann og hans fólk
myndi dvelja hér til loka þessa mán-
aðar og á þeim tíma yrði opið til kl.
23.00 á virkum dögum og til miðnætt-
is um helgar. Aðspurður sagði David
að það væri ekkert aldurstakmark í
tækin en krakkamir yrðu að hafa
náð vissri hæð áður en þau kæmust
í sum þeirra.
Lítið mál að gera við gasgrill
- flestir geta lagað bilanimar sjálfír
Neytendasíðan hefur fengið fyrir-
spumir um það hvar hægt sé að láta
gera við biluð gasgrill. Þegar neyt-
endasíðan fór á stúfana til þess að
kanna málið kom í ljós aö fjölmargir
hafa lent í vandræðum með biluðu
grfilin sín.
Sömu hlutirnir sem bila
Samkvæmt því sem neytendasíðan
kemst næst em það kveikjurnar sem
helst bila í þessum grillum, en þær
eru notaðar til þess að kveikja í gas-
inu, brennaramir, sem gasið logar
í, og kranarnir til þess að hækka og
lækka hitastigið.
„Þessir hlutir, brennarinn, kveikj-
an og kranamir eiga að fást á flestum
sölustöðunum en gera það því miður
ekki. Við erum nokkrir aöilar sem
erum að sinna fólki sem hefur keypt
grillin sín af einhveijum sem hafa
sprottið upp og selt en horfið síðan
Hvað kost a varahlutir í g asgrill?
Brennari 1495-4700 kr. Ódýrast í Hagkaupi Auðvelt aö setja I sjálfur
Kveikja 900-1500 kr. Ódýrast í Olís Auðvelt að setja í sjálfur
Grindur 1000-3500 kr. Ódýrast í Olís
Kranar 2000-2900 kr. Ódýrast hjá Þarfaþingi Innflytjendur aðstoða
Gler 1000-2000 kr. Svipað verð á sömu stærðum
strax aftur af markaönum," sagði
Gylfi Gylfason hjá Húsasmiðjunni en
þar eru einmitt seldir flestir vara-
hlutir í gasgrill.
H@lf£a.hlutv@rk yítmmím
m.
Taugakerfið Níasín
Helsta hlutverk:
Nauðsynlegt fyrir
orkuefnaskipti og
starfsemi taugakerfis
Uppspretta:
Fiskur, kjöt, mjólk
og kornvörur
DV
Auk Húsamiðjunnar eru helstu
söluaöfiar varahluta í gasgrill Skelj-
ungsbúðin, Essó-búðin, Olísbúðin,
Byko og Hagkaup.
Misjafnar stærðir -
misjafnt verð
Varahlutunum má skipta í tvennt.
Annars vegar eru það varahlutir sem
passa eingöngu í ákveðnar tegundir
grUla og hins vegar varahlutir sem
passa í öU grUl, burtséð frá því hverr-
ar tegundar það er, svokaUaðir „uni-
versal“ hlutir.
Verðið er misjafnt eins og sjá má á
töflunni hér tU hUðar. Verðmunur-
inn liggur í því að um mismunandi
stærðir er að ræða og eins getur ver-
ið gæðamunur á grindum, gluggum
og fleiru. Það verð sem hér ér uppgef-
ið ætti þó að gefa fólki nokkra hug-
mynd um það hvað þessir hlutir
kosta.
Nokkrir þeirra sem neytendasíðan
talaði við vegna málsins töldu þó að
það tæki því varla að láta gera við
gasgrUl vegna þess hve ódýr þau
væru orðin. Þetta er þó ekki aUs kost-
ar rétt, sé Utið til þess að nýtt gasgr-
U1 í meðalverðflokki kostar tuttugu
og fimm þúsund krónur en hægt e
að taka gasgrUl í gegn, þannig ai
nánast aUt sé nýtt nema belgurimi
fyrir átta þúsund krónur. Og sjaldn
ast þarf að skipta um alla hlutina
einu.
Auðvelt að laga sjálfur
Flestir sölustaðirnir sem hér hafa
verið nefndir eru annaðhvort með
viðgerðarþjónustu sjálfir eða vísa
fólki á ákveöna aðila sem gera við
grilUn.
í flestum tilfellum er þó auðvelt
fyrir fólk að skipta um þessa algeng-
ustu hluti sjálft, svo sem brennara,
kveikju, grindur og gler. Helst eru
það kranamir sem erfitt gæti veriö
að skipta um, en þá ætti ekki að vera
mjög dýrt aö fá þá þjónustu hjá sölu-
aðilunum.
Sú vísa er svo auðvitað aldrei of
oft kveðin að meðferð griUanna
skiptir öUu máU varðandi það hversu
lengi þau endast.' Flest eru þau gerö
fyrir betra veður en íslenski veturinn
býður upp á, þannig að ef menn hafa
tök á að geyma grilUn innandyra yfir
veturinn endast þau mun lengur.
Egils Bergvatn
í hálfs lítra
flösku
Hf. Ölgerðin
Egill Skalla-
grímsson hefur
sett á markað
Egils Bergn’atn
í hálfs lítra
plastflöskum.
Fyrir um ári
kom á markaö-
inn frá fyiir-
tækinu Egils
Kristall
sem er léttkolsýrt vatn með sít-
rónubragði. Egils Bergvatn er
hins vegar algerlega óbragðbætt
vatn en eins og Kristallinn, létt-
kolsýrt.
Egils Bergvatn hefur hingað til
aðeins fengist í 33 cl glerflöskum
og aðallega á veitingahúsum. Hjá
; Agli Skallagi-ímssyni fengust þær
upplýsingar að í fjósi vinsælda
Egils Kristals og vegna flölda
áskorana liafi fyrirtækið ákveðið
að bjóða EgUs Bergvatn í þessum
umbúðum.
Það vekur athygli að texti mið-
ans á flöskunni er á ensku á ann-
arri hUðmni en á íslensku á
hinni. Hjá fyrirtækinu fengust
þær upplýsingar að það væri
vegna þess hve útlendingar hafa
mikið leitað eftir vöru sem þess-
ÓdýrQMI-
meðferð
SífeUt fleiri bílaeigendur láta
nú setja einhvers konar tefionhuð
á bilana sína tíl þess að verja þá
veörun, steinkasti eða hverju því
sem skemmt getur lakk á bílum.
Framan af var þessi þjónusta
mjögdýr en hefurnúlækkað tals-
vert og nú hefur Bón- og bíla-
þvottastöðin Bildshöfða hafið að
bjóða svokallaða QMI-meöferð á
allt niður í 1700 kr.
Að sögn eiganda bónstöðvar-
innar, hefur QMI alls staðar feng-
ið lofsamlega dóma og mikiö ver-
ið fjallaö um efnið i erlendum
bílablöðum. Það er þó ekki fyrr
en núna sem boðiðer upp á þetta
efni hérlendis á viöráðanlegu
verði.
Jóhannes Gunnarsson, lormað-
ur Neytandasamtakanna, af-
hendir Guðmundi Bjarnasyni
eintak af „Grænu bókinni"
„Græna bókin“
komin út
Út er komin bókin„Grænabók-
in um neytendur og umhverfi".
Höfundur ritsins er Garðar Guð-
jónsson en útgefendur eru Neyt-
endasamtökin, Norræna féiagið
og grænu fjölskyldurnar í Kópa-
vogi. Guömundur Bjarnason um-
hyerfisráðherra ritar fonnála.
I bókinni er fjallað um spilli-
efni, sorp sem hráefni, safn-
hauga, um að „vera grænn“ í
vinnunni, garðinum og í ferðalög-
um, um samgöngur, hreinlætís-
vörur og mat. Þá eru helstu um-
hverfismerki kynnt og flallað um
gróðurhúsaáhrifin og eyðingu
ósonlagsins.
Útgefendur vona aö bókin veröi
leiðbeininga- og hvatningarrit
fyrir neytendur sem vilja miða
neysluvenjur sínar við hagsmuni
umhverfisins. Fjallað er um um-
hverfisspjöll sem verða vegna
daglegrar neyslu almennings og
hvcrnig draga má úr þeim.
Græna bókin um noytcndur og
umhverfi er 87 síður að stærð og
prýdd ijölda teikninga.