Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 11 Sviðsljós » 9 Draumar rætast í draumasmiðjunni: Tarantino fær að > > > gera auglýsingar Gamlir draumar þeirra vestur í Hollywood eru aö rætast einn af öör- um um þessar mundir, enda borgin löngum verið draumasmiöja. Ekki er langt síðan bemskudraum- ur Toms Hanks um að klæðast geim- farabúningi varð að veruleika í myndinni um tunglfarið Apollo 13. Nú hefur nýjasta undrabarnið í borg undrabarnanna fengið draum sinn uppfylltan. Maðurinn heitir Quentin Tarantino og hann er búinn að stofna auglýsingafyrirtæki. Tarantino er ekki einn á ferð því að framleiðandinn Lawrence Bend- er, sá sem var með honum við gerð Reservoir Dogs og Pulp Fiction, er með í- spihnu, svo og þriðji maður- inn, Harvey Weinstein. Tarantino fær meira að segja að stjórna nokkr- um auglýsingum sjálfur. Fyrirtæki félaganna heitir A Band Apart Commercials, eftir sígildri kvikmynd þess franska nýbylgju- manns Jeans-Lucs Godards. En eins og máltækið segir þá er sjaldan ein báran stök. Tarantino og Bender hafa nefnilega stofnað kvik- myndafyrirtæki í samvinnu við risann Miramax. Nýja fyrirtækið ber nafnið Rolling Thunder og er mein- ingin að það sendi frá sér fjórar myndir á ári, myndir sem annars hefðu átt htla möguleika á að komast í dreiíingu, svo sem erlendar myndir eða myndir eftir unga og óþekkta leikstjóra. „Hugmyndin með öhu þessu er að gefa þeim myndum séns sem allir aðrir hta fram hjá. Ég er ekki að keppa við önnur dreifmgarfyrir- tæki,“ segir Tarantino. Quentin Tarantino er glúrinn gæi. Johnny Depp þykir kyn- þokkafyllsti leikarinn Kvikmyndatímaritið Empire hefur valið 100 kynþokkafyllstu kvik- myndaleikarana, lifandi og dauða, og kynnti niöurstöðuna í ágústheft- inu sem nýkomið er út. í tíu efstu sætunum eru þrjár látnar kvik- myndastjörnur. Johnny Depp er, að mati Empire, kynþokkafyhsti leikari kvikmynd- anna en hann er 32 ára. Johnny Depp þykir ómótstæðilegur í hlutverki sínu sem ofurelskhuginn Don Juan De Marco í samnefndri kvikmynd. Hann hefur betur en sjálf Marhyn heitin Monroe sem kemur í öðru Marilyn Monroe, sú kynþokkafyllsta. sæti. Marilyn hefði orðið 69 ára á þessu ári og ætti að verma fyrsta sætið að matri margra, að minnsta kosti karlmannanna. í þriðja sæti er Michelle Pfeiffer, 38 ára, Robert Redford, 59 ára, er í fjórða og Grace heitin Kelly, móðir furstadætranna af Mónakó, í fimmta. Hún heföi orðið 67 ára í dag. í fimmta sæti er gamla kynbomban Laureen BacaU, 71 árs, og Sean Connery sem orðinn er 64 ára og hefur sjaldan gert það betra. Audrey heitin Hepburn er í áttunda sæti og selavinurinn Brigitte Bardot, 61 árs, í því níunda. í tiunda sæti kemur hin brjóstgóða Ann Margret, 54 ára, rétt á undan Daniel Day Lewis og Paul Newman. Aftar í röðinni má sjá öU hin þekktu Hollywood-nöfnin og tekur varla að nefna einn frekar en annan. þau eru þar nánast öU. Til gamans má geta að James Dean er í 42. sæti, Hugh Grant í 43., Liz Hurley í 83. og Harvey Keitel í 95. Janet Leigh, sú sem lék konunna í sturtunni í Hitch- cock-myndinni Psyco, kemur síðust í 99. sæti. Johnny Depp, sá kynþokkafyllsti. • r naflann minn Cher á göngu I New York, með Leik- og söngkonumii Cher virðist ekki sérlega vel við að eld- ast, í þaö minnsta vhl hún ekki að neinn sjái öldrunarmerki á lík- ama sínum. í baráttu sinni við elli kerlingu hefur Cher látiðgera hverja fegrunaraðgerðina á fætur annarri á sér svo ekki fmnst vott- ur af hrukkum, appelsinuhúö, spikfeUingum, æðahnútum eða öðru sem vUl fylgja því að eldast. En Cher verður víst að lúta í lægra haldi þegar stóra stundin rennur upp og spyrja gárungarn- ir sig að vonum hvernig flokka eigi líkamsleifamar. En hvað sem eUi kerUngu liöur þá var Cher að glápa í verlsunarglugga í New York á dögunum. Gátu vegfar- endur þá séð hvar hún hafði kom- ið gimsteiní fyrir í naflanum á sér. Cher er annars að leika í nýrri gamanmynd sem nefnist Faithful og frumsýnd verður í \SLA^D 11 gimstein I natlanum. haust. Vinningshai'ar clagsins: \gnes lilalsteinsiliittir • l.aujjarásvcgi 14 • 104 Itvili Katrín Magnnsilnttir • Miinartarnesi •111 Borgarnes Reynisdrangar (V-Skaft). Háir kletta- drangar, allt að 66 m y.s., sem nsa einstakir úr sjó fram undan Reynisfjalli í Mýrdal. Blasa þeir við frá Vfk. Drangamir heita Landdrangur (næst landi), Langsamur eða Langhamar fjær og Skessudrangur eða Háidrangur, mjór og litlu vestar. Þjóðsaga segir að drangamir haft orðið til með þeim hætti að tvö tröll haft xtlað að draga þar þrfsiglt skip að landi en dagað uppi er sól rann og orðið að steini. Skammt suður af dröngunum er sker sem heitir Réttir. ÖRN OG (jj) ÖRLYGUR Dvergshöfða 27, Reykjavík • Sími 568 4866 H F Vinninga skal vitjað hjá Erni og Örlygi hf FERÐIR /////////////////////////////// Aukablað FERÐIR - INNANLANDS Miðvikudaginn 26. júlí nk. mun aukablað um ferðir innanlands fylgja DV. í þessu blaði verður fjallað um útihátíðir um verslunarmannahelgina. Efni blaðsins verður að öðru leyti tengt flestu því sem er á boóstólum vegna ferðalaga innanlands. Fjallað verður um afþreyingu, viðlegu- og annan ferðaútbúnaö og ýmsa athyglisverða staði og ferðamöguleika. Viðtöl verða tekin við athyglisvert fólk sem veitir lesendum skemmtun og holl ráð varðandi ferðir innanlands. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Björk Brynjólfsdóttur í síma 563 2723 á auglýsingadeild DV. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 20. júlí. ATH.! Bréfasími okkar er 563 2727.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.