Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1995, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 t Auöunn Helgason og Hrafnkell Kristjánsson reyna hér að stöðva fyrrum félaga sinn í FH, Atla Einarsson, á Laugardalsvelli í gærkvöldi. DV-mynd ÞÖK Sjöttatap FHíröð - Fram vann sanngjaman sigur á Hafnarfl arðarliðinu í Laugardalnum Jón Kristján Sigurðsson skrifar FH-ingar töpuðu sínum sjötta leik í röð í 1. deild þegar þeir mættu Fram á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Með sigri Fram höfðu félögin sætaskipti í deildinni, Fram fór úr fallsæti en eins Fram-FH (0-0) 3-4) 1- 0 Þorbjöm Atli Sveinsson (57). Skor- aði af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf Gauta Laxdal. 2- 0 Valur Fannar Gíslason (80.) var einn og óvaldaöur og skallaði í netið eft- ir laglega sendinu Þorbjöms Atla. 3- 0 Steinar Guðgeirsson (90.) úr víta- spymu eftir að Auðun Helgason hafði fellt Þorbjöm Atla. Lið Fram: Birkir Kristinsson- Ágúst ÓlafsSon ( Gauti Laxdal 46.®), Pétur Marteinsson, Kristján Jónsson, Steinar Guðgeirsson- Atli Einarsson, Josip Dulic ( Valur Fannar Gíslason 79.), Nökkvi Sveinsson ( Þórhallur Víkings- son 46;.;.), Hólmsteinn Jónasson;.y Atli Einarss’on, Þorbjöm Atli Sveinssón;.;., Lið FH: Stefán Amarson- Auðun Helgason, Ólafur Kristjánsson, Peter Mrazek, Jón Sveinsson- Hráfnkell Kristjánsson, Ólafur Stephensen ( Þor- steinn Halldórsson 68.), Hallsteinn Am- arson, Stefan Toth- Kristján Brooks ( Hörður Magnússon 54.), Jón Erling Ragnarsson;.;.. Fram: 12 markskot, 8 hom. FH: 12 markskot, 4 hom. Gul spjöld: Toth (FH). Rauit spjald: Enginn. Dómari: Sæmundur Víglundsson, ágætur. Áhorfendur: Um 700. Skilyrði: Logn og völlurinn góður. Hiti um 10 stig. Maður leiksins: Þorbjöm Atli Sveins- son, Fram. Átti þátt í öllum þremur mörkum Fram. og staðan er nú verma FH og Valur botnsætin. Leikur liðanna var svo sem ekkert tii að hrópa húrra fyrir í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik var allt ann- að uppi á teningnum og þá sérstaklega af hálfu Framara. Allar aðstæður voru hinar ákjósanlegustu og áttu þær svo sannarlega ekki að koma í veg fyrir að liðin léku góða knattspymu. Fyrri hálfleikur var tíöindalaus að mestu og áttu bæði liðin erfitt með að byggja upp samleik. Sjaldnast rötuðu sendingar á réttan samherja og fyrir vikið var leikurinn ekki mikið fyrir augað. Jón Sveinsson, FH-ingur, komst næst því að skora fyrir FH-liðið þegar hann komst einn inn fyrir vöm Fram en skot hans fór framhjá. Það hefði verið saga til næsta bæjar ef Jóni hefði tekist að skora sitt fyrsta deildarmark og það gegn sínum gömlu félögum í Fram. Magnús Jónsson, þjálfari Fram, gerði tvær breytingar á liði sínu í háifleik, inn á komu þeir Þórhallur Víkingsson og Gauti Laxdal og við það færðist aukinn kraftur í leik Safamýrarliðsins. Þeir félagar komu báðir við sögu í tveimur mörkum og voru einnig mjög lifandi í spili liösins. Þessi skipting gekk sem sagt fullkomlega upp. Eftir fyrsta mark Framara settu FH- ingar aukinn þunga í sóknina á kostnað varnarinnar. Tvívegis varði Birkir Kristinsson meistaralega frá þeim Ste- fani Toth og Jóni Sveinssyni áður en Framarar gerðu síðan endanlega út um leikinn með tveimur mörkum. Ljóst má vera að FH-ingar þurfa rækilega að taka til hendinni ef ekki á illa að fara. Deyfð er yfir leik liðsins og ná leik- menn, sem hafa borið liðið uppi undanf- arin ár, sér ekki á strik. Merkja má hins vegar bata á leik Framliðsins og náði liðið að sýna skín- andi leik á köflum í síðari hálfleik. Þor- bjöm Atli Sveinsson átti mjög góðan leik í gærkvöldi og var að vonum í skýj- unum með sigurinn.„Ég get ekki annað en verið ánægður með leikinn, þetta var frábært. Við töluðum vel saman í leik- hléi og vorum ákveðnir í að rífa okkur upp úr þessu mgli sem við vorum 1. Við vomm þá okkur til skammar. I síð- ari hálfleik sýndum við hvað við getum í raun. Við fórum hreinlega að leika fótbolta, lékum meira upp miðjuna og þá opnaðist fyrir hornin með góðum árangri. Ef við vinnum næsta leik og ennfremur leik sem við eigum inni er- um við kohinir í efri hluta deildarinn- ar. Nú verður þetta bara upp á við eða ég ætla bara rétt að vona þaö,“ sagði Þorbjöm Atli við DV eftir leikinn. Þorbjöm Atli var bestur Framara en eins og áður sagði komust þeir Þórhall- ur og Gauti vel frá sínu. Hólmsteinn Jónasson átti sömuleiðis góðan leik. Birkir Kristinsson er alltaf traustur í markinu. Valur Fannar Gíslason gerði sitt fyrsta mark í 1. deild í leiknum. FH-liðið dæmir sig sjálft. Liðið náði sér ekki á strik og það var einna helst Jón Erling Ragnarsson sem barðist vel. Argentínski knattspymumaðurinn Diego Maradona sagði í viðtali við ít- alska dagblaðið La Stampa í gær að niðurstaða lyflaprófsins, sem gerð var á honum á HM i Bandaríkjunum í fyrra, væri á misskilningi byggð eða hefði verið bragð Alþjóöa knatt- spyrnusambandins svo að heitaska ósk þeirra rættist um að Brasilíumenn yrðu heimsmeistarar. Eins og kunnugt er féll Maradona á lyfjaprófi eftir aö heill kokteili af ör- vandi lyíjum fannst í þvagi hans og var hann rekinn frá HM og dæmdur í 15 mánaða keppnisbann. „Ég sver það fyrir ykkur eins og ég sver þaö fyrir dóttur minni að ég var ekki undir áhrifum lyfja á HM. Þetta hljóta aö verið mistok en ef ekki mis- tök þá gildra,“ sagði Maradona við ít- alska blaðið. Losnar úrkeppnis- banninu í september Maradona losnar úr keppnisbanninu í september. Hann hefur ekki sagt skilið við knattspymuna því hann hefúr í hyggju aö leika meö Boca Juniors í heimalandi sínu. íþróttir Staðan Staðan í 1. deild kvenna í knatt- spymu var ekki rétt í blaðinu í gær en hún er þannig: Breiöablik.... 8 7 i 0 51-4 22 Valur..... 6 5 10 21-5 16 Stjarnan....7 4 1 2 24-7 13 KR......... 7 4 0 3 24-13 12 Akranes... 7 3 13 18-16 10 Haukar..... 7 115 3^4 4 ÍBV........ 6 1 0 5 7-25 3 ÍBA........ 8 0 1 7 6-40 1 Markahæctir Þá var listinn yfir markahæstu leikmenn 2. deildar karla ekki réttur en hann er þannig: Guðmundur Steinsson, $tjörnu..,.7 HjörturHjartarson.Skallagr........7 Sindri Grétarsson, HK.........6 Heiðar Sigurjónsson, Þrótti..5 GuðjónÞorvaröarson, ÍR.......5 Arnar, ekki Daði Daði Dervic úr KR fékk ekki gult spjald i leiknum við Breiða- blik í 1. deildinni í knattspymu í fyrrakvöid. Spjaldið, sem talið var að verið væri að sýna Daða, tilheyrði Amari Grétarssyni úr Breiðabliki, Af mælismót hjá GN Opna sparisjóðsmót Golfklúbbs Norðfjarðar fór fram um helgina. Leiknar voru 36 holur meö og án forgjafar. Mótiö var jafnframt 30 ára afmælismót GN. I kvenna- flokki með forgjöf sigraði Laufeý Oddsdóttir, GE, á 122 höggum. í keppni án forgjafar sigraði Lauf- ey einnig á 166 höggum. I karla- flokki meö forgjöf sigraði Pétur Pétursson, GN, á 125 höggum. Án forgjafar sigraði Gestur Már Sig- urðsson, GO, á 153 höggum. JónogGuðmundur Opna Boss mót Sævars Karis fór fram hjá GR í Grfarholti um helgina. Leiknar voru 18 holur meö og ánforgjafar. í keppni meö forgjöf sigraöi Jón Sigurðsson, GKJ, á 62 höggum, annar varð Brynjar Vaidimarsson, GR, á 68 og þriðji Ottar Rolfsson, GR, á 68 höggum. I keppni án forgjafar sigraði Guðmundur Gylfason, GR, á 74 höggum, annar varð Halldór Birgisson, GHH, á saraa höggafjölda og í þriðja sæti varð Tryggvi Tryggvason, GK, á 77 höggum. Þróttur í Laugardal Þróttarar munu leika á Val- bjarnarvelli í Laugardal gegn Víkingum í 2. deildinni á mið- vjkudagskvöld. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Þrótt- ; arvelii en hefur sera sagt verið færður. Þórhildtff-sigraði Meistaramót púttklúbbsins Ness fór fram á dögunum. í kvennaflokki sigraði Þórhildur Magnúsdóttir, Hulda Valdimars- dóttir varð í öðru sæti og Kristin Halldórsdóttir i þriðja sæti. Þær léku allar á 72 höggum og þurfti bráðabana til að fá úrslit. I yngri flokki karla sigraði Karl Sölvason á 69 höggum. Kristján Hákonar- son varð annar á 70 höggum og Theodór Jónsson þriöji á 71 höggi. I eldri flokki sigraði Karl Helgason á 68 höggum. Alfons Oddsson varð annar á 74 höggum og Sigurður Sigurösson þriðji á 75 höggum. 2. deíid karla 20.00 ÍR-KA Mizunodeild kvenna 20.00 ÍA-Valur 20.00 KR-Haukar 20.00 ÍBV -Sfjarnan 2. deild kvenna 20.00 Tindastóll Iæiftur 20.00 KS-Dalvík ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 17 Iþróttir Farið að hitna undir Teiti Þórðarsyni, þjálfara Lilleström? Burt með Teit“ - segir í fyrirsögn Verdens Gang, stærsta dagblaðs Noregs Gisli Kristjánssan, DV, Noregi: Teitur Þórðarson, þjálfari Lille- ström í norsku 1. deildinni, er á síðasta snúningi hjá liðinu sam- kvæmt fréttum dagblaða í Noregi. Árangur hins sterka liðs Lilleström hefur verið frekar slakur á keppn- istímabilinu og undanfarið hefur allt gengið á afturfótunum hjá lið- inu. Niklar vonir voru bundnar við hðið og markmiðið fyrir tímabilið var að gera Lilleström aö sterkasta knattspymuliði Noregs. Liðið var í sérstakri þjálfun í miðstöð afreks- íþróttafólks Noregs í allan vetur. En árangurinn lætur heldur betur bíða eftir sér. Lilleström er í fjórða sæti deildar- innar með 25 stig, 8 stigum á eftir topphðinu, Rosenborg. Nú um helgina tapaði Lilleström illa, 1-3, fyrir Vaalenga frá Ósló og eftir leik- inn bauluðu stuðningsmenn Lil- leström á þjálfarann Teit og liðið. Stærsta dagblað Noregs, Verdens Gang, fjallaði ítarlega um mál Teits í gær undir fyrirsögninni „Út með Teit“. Þar var látið að því liggja að framtíð Teits hjá félaginu væri þeg- ar ráðin en framkvæmdastjórinn sagði í samtali við DV í gærkvöldi aö þaö væri rangt haft eftir forráða- mönnum félagsins. Ekki ánægðir með árangurinn „Við erum ekki ánægðir með ár- angurinn til þessa. Við lögðum mikið undir en ég vil ekki orða það svo að við séum beint ósáttir við störf Teits. Staða okkar nú er bara ekki sú sem við vonuðumst eftir. Við erum að skoða málið. Það verð- ur stjómarfundur eftir mánaðamót og þá veröur ákveöið hvort við endumýjum ráðningarsamning við Teit fyrir næsta ár,“ sagði Sven Skoglund, framkvæmdastjóri Lil- leström, í samtali við DV. Tek æsifréttum meö stakri ró „Ég tek öllum æsifréttum um stöðu mína með stakri ró. Ég átti alltaf von á látum ef við yrðum ekki í toppbaráttunni í sumar. Ég er vissulega ekki ánægður með ár- angurinn en það er engin ástæða til að örvænta enn. Það er í sjálfu sér alltof snemmt að gera ráð fyrir toppárangri strax á fyrsta ári. Menn verða að sýna þolinmæði. Það reiknaði enginn með krafta- verkum þegar í byrjun,“ sagði Teit- ur við DV. Þýski knattspymumaðurinn Lothar Mattháus gekkst í gær und- ir aðra aðgerð á hásin og eftir hana er ljóst að framtíð hans á knatt- spyrnuvellinum liangir á bláþræði. Matthaus, sem er 34 ára gamall, hefur ekkert leikið með Bayern Miinchen síðan í janúar vegna meiðsia. Eftir aðgerðina i Munehen í gær er ljóst að hann verður frá æfíngum og keppni í að minnsta kosti sex mánuði til viöbótar. Dr. Werner Keyl, sem fram- kvæmdi aðgerðina, sagði við frétta- menn að Matthaus væri ekkert unglamb lengur og því þyrfti hann meira tíma til að jafna sig en yngri maður. Dr. Wemer sagði að tíminn einn gæti svarað því hvort Matthá- us myndi leika knattspymu fram- ar. Hann taldí það þó alls ekki úti- lokað. Matthaus á að haki 122 landsleiki eða íleirí en nokkur ann- ar þýskur leikmaður. Áfall fyrir lið Bæjara Þessi niðurstaða er áfall fyrir Bay- em-liðið en það ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili. Liðinu vegn- aði aíleitlega á sl. sparktíð og hafn- aði í fímmta sæti og það má ekki endurtaka sig að sögn forráða- manna liðsins. Liöið hefur styrkst mikið eftir leikmannakaup í sumar og eínnig binda stjómendur liðsins miklar vonir við störf nýja þjálfar- ans, Otto Rehhagel, sem gerði Werder Bremen að stórveldi í þýsku knattspymunni. AmarogBjarki: Græntljós frá Feyenoord Daníel Ólafsson, DV, Akraneá: Nær öruggt er talið að bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir leiki með Skagamönnum í sumar. Arnar Gunnlaugsson sagði í sam- tali við DV í gær að Feyenoord væri búið að gefa samþykki fyrir því að þeir bræður spiluðu með ÍA í sumar en aðeins væri eftir að ganga frá tryggingamálum þeirra. Gunnar Sigurðsson, formaður knattspymufélags ÍA, bjóst við því að búið yrði að ganga frá öllum lausum endum í dag, þar á meðal tryggingamálum þeirra bræðra, og síðan færi það eftir því hvað fljótt félagaskiptin yröu hvenær Bjarki og Arnar gætu spilað með Skaga- mönnum. Feyenoord tilkynnir félagaskipt- in yfir til hollenska knattspymu- sambandsins, síðan tilkynnir það KSÍ um félagaskiptin og eftir það gefur KSÍ keppnisleyfið. Ljóst er að Arnar getur ekki byrjað að leika strax með ÍA þar sem hann er að ná sér eftir uppskurð en Bjarki er klár í slaginn um leið og KSÍ gefur keppnisleyfið. Sigmar Þröstur Óskarsson, einn besti handknattleiksmarkvörður landsins, hefur ákveðið að yfirgefa herhúðir bikarmeistara KA og ganga til hðs við sína gömu félaga í ÍBV. Sigmar í IBV Sigmar hefur tvö undanfarin ár leik- ið með KA og hefur átt einna stærst- an þátt í velgengni Uðsins. „Það er bara gaman að vera kom- inn heim aftur. Mér líst ágætlega á mannskapinn og auðvitað er markm- iðið að gera góða hluti í 1. deUdinni í vetur og halda sætinu í deUdinni og vel það,“ sagði Sigmar Þröstur viö DV í gær. Eyjamenn sigruðu í 2. deUdinni á síöasta vetri og mæta til leiks í 1. deUd með Þorberg Aðalsteinsson, fyrrum landsUðsþjáifara, sem nýjan þjálfara. Bandarikjamenn tryggðu sér sæti í undanúrsUtum Ameríku- keppnhmar í knattspymu í nótt þegar þeir lögðu Mexíkómenn, 4-1, í 8-liða úrsUtunum. Banda- ríkjamenn gerðu ut um leikinn i vítaspyrnukeppni en staöan eftir 90 mínútur var markalaus. Caiiostillnter knattspymuliöið Inter Milan mun i vikunni ganga frá kaupum á brasUíska landsliðs- manninum Robert Cai'los sem þessa dagana stendur í ströngu með landsUði Brasilíumanna í Amerikukeppninni i knatt- spyrnu. Inter menn ætla sér stóra hluti á næstu leiktíð og fyrir skemmstu festu þeir kaup á Paul Ince, miðvallarleikmanni frá Manchester United. Aftureldingefst Afturelding stefnir hraðbyri í úrslitakeppni 2. deildar kvenna í knattspyrnu eftir 0-2 sigur á FH í toppuppgjöri A-riðUsins i gær. Harpa Sigurbjörnsdóttir skoraði bæði: mörkin. Aftimelding hefur unnið aUa sina leiki og er með 15 stig en FH kemur næst með 9 stig. KariþjátfarSnæfell KörfuknattleiksdeUd Snæfells í Stykkishólmi hefur ráðið Karl Jónsson sem þjáifara fyrir meist- araflokk karla á næsta keppnis- tímabili. Karl mun einnig þjálfa þrjá af yngri flokkum félagsins, 8. flokk drengja, 10. flokk di'engja og stúlknaflokk. SnæfeU féll úr úrvalsdeUdinni og liafa Hólmarar sett það markmið að fara með félagið að nýju í úrvalsdeildina. Karl hefur ekki þjálfað meistaraflokk áðm' en hann hefur þjálfað yngri flokka auk þess sem hann hefur leikiö með Tindastóli á Sauðár- króki, Hetti, Egilsstöðum, og SnæfelU. Skíðasamband íslands ætlar nk. miðvdkudag að vekja athygli á framgangi íslenskra skíða- manna með vægast sagt nýstár- legum hætti. Skíðamennirnir ætla að synda frá Ólafsfjarðar- höfn og út í Grímsey, eða norður fyrír heimskautsbaug. Með þessu átaki verður sett á fót allsherjar söfnun um allt land þar sem skíðafélöghi ganga í hús og safna styrkjum frá þjóðinni. Skíðafé- lögin munu fá hehning af öllu því fé sem þau safna og SKÍ hinn : helmingiim. Þá verður dreift 100 bolum, sem eru sérhánnaðir í þetta verkefhí, en þeim veröur ; dreiftafhandahófl til þeirra ein- stakUnga sem styrkja máleöúð. Akranes ...8 8 0 0 16-2 24 KR ...8 5 0 3 10-8 15 Leiftur ...7 4 0 3 13-10 12 Keflavík ...6 3 2 1 6-3 11 ÍBV ...8 3 1 4 18-11 10 Grindavík.... ...8 3 1 4 12-12 10 Breiðablik... ...8 3 1 4 12-13 10 Fram ...7 2 2 3 7-12 8 FH ...8 2 0 6 11-21 6 Valur ...8 1 1 6 6-19 4 Markahæstir: Rastislav Lazorik, Breiðablik.6 Ólafur Þórðarson, ÍA..........6 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV......5 SumarUði Ámason, ÍBV.........4 Mihajlo Bibercic, KR..........4 Næstu leikir: Næstu leikir í 1. deUd verða á fimmtudagskvöldið kemur og leika þá Keflavík-KR, ÍBV-ÍA, FH-Leiftur, Breiðablik-Grinda- vík, Valur-Fram. Besti handboltamaður Færeyja: Vill spila á íslandi „Eg hef mjög mikinn áhuga á að koma til íslands og leika með þar- lendu Uði. Ég hef lengi fylgst með íslenskum handbolta og hann er á háu gæöaplani. Það væri mjög spennandi að fá tækifæri tU að leika í íslensku 1. deUdinni,“ sagði Færey- ingurinn Ingi Olsen sem undanfarin ár hefur verið besti leikmaðurinn í færeyskum handknattleik. lngi Ols- en hefur verið lang markahæsti leik- maðurinn í 1. deUdinni í Færeyjum fjórum sinnum á undanfórnum 5 árum. Hann er 26 ára gamall og er hægri handar skytta og að sögn kunnugra mjög öflugur leikmaður. FH inni í myndinni „Ég hef þegar heyrt í FH-ingum og þeir virtust áhugasamir að fá mig. Mig mundi vanta vinnu, helst í banka þar sem ég hef reynslu á því sviði. Ég kannast vel við Héðin GUs- son og veit að hann mun leika með FH þannig að ég er mjög spenntur að fá að leika við hUðina á honum því hann er geysUega góður leikmað- ur,“ sagði Ingi Olsen í viðtali við DV í gær. Það er engin spuming að það yrði gífurlegt skref upp á við að koma tU Islands. Handboltinn í Færeyjum er á frekar lágu plani. Hér er ekkert landsUð og það eru aðeins tvö þokka- leg lið, Vestmanna, sem ég leik með, og síðan KyndU. Þessi tvö lið beijast um aUa titia. Æfingamar em ekki nógu miklar og metnaðurinn er ekki fyrir hendi hér í Færeyjum. Það em þó nokkrir frambærilegir leikmenn sem gætu leikið með betri Uðum. Ég veit að minn tími er kominn tU að reyna fyrir mér erlendis. Mig langar mest til íslands en Danmörk er einnig inni í myndinni ef annað bregst. Eg vU helst fá að sanna mig hjá sterkara Uði, með betri leik- mönnum og í hetri deUd,“ sagði Ingi. Leggur Guöni fleiri mörk inn á markareikninginn? Island - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.