Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1995, Side 3
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995
3
Fréttir
Hannes Jónsson, fyrrverandi sendiherra:
Sovétmenn sögðu engin
kjarnavopn hafa verið hér
„Eg er ekki í nokkrum vafa um það
að hefði Kosygin, þáverandi forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna, tahð aö
hér væru kjarnavopn hefði hann sagt
það alveg hiklaust. Tæknin sem Sov-
étmenn beittu með njósnahnöttum
sínum var á svo háu stigi aö þeir
þurftu ekki að fara í neinar grafgötur
um þá skoðun," sagði Hannes Jóns-
son, fyrrverandi sendiherra, við DV
„Á þessu tímabili þegar umræðan
um kjarnavopn hér á landi stóð sem
hæst komu ýmsir forystumenn ís-
lands í opinberar heimsóknir. Ég var
sendiherra í Moskvu á árunum
1974-80 og kynntist mönnum og mál-
efnum mjög vel.
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra kom í opinbera heimsókn til
Moskvu í boði Kosygin forsætisráð-
herra í september 1977.
í þeirri heimsókn var rætt við
æðstu ráðamenn um tvíhliða sam-
skipti Sovétríkjanna og íslands og
einnig um alþjóða- og öryggismál. í
ræðu Kosygins við heimsóknina kom
greinilega fram að Sovétmenn vissu
aö það væru engin kjarnorkuvopn á
íslandi.
Því til stuðnings vitna ég í máls-
grein úr síðara bindi bókar minnar,
„Sendiherra á sagnabekk", sem
væntanleg er á næsta ári; „Á við-
ræðufundinum um morguninn hafði
Kosygin meðal annars sagt okkur frá
því að sovéskir njósnaspútnikkar
sveimuðu umhverfis jörðina og
næðu nákvæmum myndum af
hverju sem linsum þeirra væri beint
að. Hann sagöi að með sérstökum
útbúnaði gætu þeir skoðað það sem
væri undir jarövegi á jörðu niðri, til
dæmis hvort sýking væri í rótum
trjánna í Síberíuskógi.
Með þetta í huga varð kafli í ræðu
hans um kvöldið sérstaklega athygl-
isverður. Hann sagði: „Raunhæílr
möguleikar eru til dæmis fyrir hendi
til aö treysta frið í Norður-Evrópu.
Hér hafa sín áhrif ákveðin jákvæð
atriöi sem stuðla að stöðugri slökun
spennu í þessum heimshluta. Meðal
þeirra er sú stefna íslands sem miðar
að því að leyfa ekki að kjarnorku-
vopnum sé komið fyrir á Islandi.“
I ljósi upplýsinganna um getu
njósnaspútnikanna á morgunfund-
Paílbíll sem brann:
Bílstjórinn
grunaður
um ölvun
„Bíllinn brann gersamlega til
kaldra kola og það er útilokað að
sjá fyrir víst hvar orsakanna er
að leita. Okkur sýnist eldurinn
hafa komið upp undir mæla-
borði, í víradrashnu þar, en ekk-
ert bendir tO þess að eitthvað
óeðlilegt hafl verið þarna á ferð-
inni,“ sagöi lögreglumaður á Sel-
fossi í samtali við DV í gær, en
pallbíll brann á Kjalvegi fyrir
skömmu og sýndist mönnum sem
lítið hefði verið reynt að bjarga
bílnum.
„Þeir sem komu að brunanum
höfðu orð á því að bílstjórinn
hefði veriö nokkuð rólegur yfir
þessu en hann er grunaður um
ölvun við akstur og kannski skýr-
inganna sé að leita í því. Málið er
í rannsókn en ekkert bendir til
þess að kveikt hafi verið í eða að
um einhvers konar svik sé að
ræða.“
-sv
inum mátti skilja þennan kafla ræð-
unnar sem staðfestingu á því að Sov-
étmenn vissu að engin kjarnavopn
væru staðsett á íslandi þrátt fyrir
bollaleggingar blaðamanna á Norð-
urlöndum um hið gagnstæða og mik-
ið fjaðrafok út af því,“ sagði Hannes.
-ÍS
innveg!
Svar við kröfum hönnuða um fallegt útlit, auðvelda uppsetningu,
eldvörn, hljóðeinangrun, endingu og notagildi.
.plötur í milliveggi og loft
kerfisloft i skrifstofur, skóla og ípróttahús
loftaplötur í mörgum gerðum
stáluppistöður og leiðarar
HÚSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5, Reykjavík
Skútuvogi 16, Reykjavík
Helluhrauni 16, Hafnarfirði
Hjá Húsasmiðjunni fœrðu Danogifs ásamt öllu sem til þarf við
uppsetningu ogfestingar. Vandaðir bœklingar á íslensku um
uppsetningu, spörtlun og vöruúrval.