Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1995, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995
9
r>v Stuttarfréttir
GagnrýniáKína
Búist er viö aö Bandaríkjaþing
samþykki í dag fmmvarp þar sem
kínversk stjórnvöld eru harðlega
gagnrýnd og Clinton forseti
hvattur til að fá þau til að bæta
ráð sitt.
Japanirmótmæla
Japönsk stjórnvöld kvöddu
franska sendiherrann á siitn fund
til að raótmæla fyrirhuguðum til-
raunum Frakka raeð kjarnavopn
í Suður-Kyrrahafi.
Viktorskammar
Viktor
Tsjernomýrdin,
forsætísráð-
herra Rúss-
lands, veittist
harkalega að
andstæðingum
fríðarviðræðna
við aðskilnað-
arsinna í Tsjetsjeníu, daginn áður
en nýr fundur átti að hefjast.
Kanar með áhyggjur
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur
af því að Rússar og Kínverjar
halda áfram að framleiða líf-
fræöileg vopn í trássi við bann.
Galdraofsóknir
Breski seðlabankastjórinn kall-
aði rannsóknina á hruni Baiings
tíárfestingabankans „galdraof-
sóknir“.
Meiraofbeldi
Að minnsta kosti tuttugu og
tveir týndu lifi i ofbeldisverkum
í hafnarborginm Karachi í Pak-
istan.
Presturóhress
Trúarleiðtogi i Úkrainu hefur
sakað yfirvöld um að reyna að
brjóta rétttrúnaðarkirkjuna á
bak aftur.
FjórirdrepniriLA
Óánægöur borgarstarfsmaður í
Los Angeles hóf skothríð í einni
skrifstofubyggingu borgarinnar
og drap fjóra.
Ágrænuljósi
Alan Green-
span, banka-
sfjóri banda-
ríska seðla-
bankans, segir
að bjartir tímar
séu framundan
í bandarísku
efnahagslífi,
samdráttarskeiðið sé að baki og
utlit fyrir kröftugan hagvöxt.
Framferðinu mótmælt
Mótmælum rignir yfir Frakka
vegna framferðis þeirra þegar
þeir sendu 43 ólöglega innflytj-
endur frá Saír úr landi og til síns
heima.
írakareyðileggja
írakar hafa fallist á að eyði-
leggja tækjabúnað til framleiðslu
á hreyfium í flugskeyti.
Reuter
Kafari grætir viðstadda í réttarhaldi yíir morðmömmunni:
Sá í litla hönd
innan á bflrúðu
„Ég sá hvar lítilli hönd var þrýst að
bílrúðunni," sagði kafari lögreglunn-
ar í réttarhöldum yfir Susan Smith,
bandarísku móðurinni sem ákærð
er fyrir að hafa myrt tvo barnunga
syni sína með þvi að óla þá niður í
bílnum sínum og ýta honum út í
stöðuvatn.
Það sló óhug á réttarsalinn þegar
hlýtt var á vitnisburð kafarans í Suð-
ur-Karólínu í gær. Þar lýsti hann því
hvernig hann fann lík drengjanna,
þriggja ára og 14 mánaða. Móðirin,
fjölskylda hennar og áheyrendur í
réttarsalnum tárfelldu og fyrrum
eiginmaður Susan Smiths, sem hing-
að til haföi hlýtt á vitnin án þess að
sýna svipbrigði, brotnaði saman.
Síðar lýsti rannsóknarmaður lög-
reglunnar þvi þegar hann tók ber-
fætta drengina úr bílnum í bama-
stólunum og kom þeim í rannsókn
réttarlæknis. í bílnum var annars
mikið af leikfóngum, bleium, bama-
fótum, myndbandstæki og ýmsir
pappírar. Rannsóknarmaðurinn
sagöi að bfllinn hefði verið í hlutlaus-
um gír og ekki með handbremsuna á.
Smith hefur viðurkennt að hafa
ólað drengina niður í bílnum og ýtt
honum út í John D. Long stöðuvatn-
ið 25. október í fyrra. í níu daga eftir
morðin taldi hún lögreglunni trú um
að þeldökkir bflþjófar hefðu rænt
drengjunum.
í réttarsalnum í gær vitnaði einnig
fyrrum unnusti Smiths sem' sagðist
hafa rifist tvisvar við hana sama dag
og hún myrti drengina og hann hefði
óttast að hún mundi fyrirfara sér.
Auðugur eigandi vefnaðarfyrirtæk-
•is, sem átti í ástarsambandi við
Smith, sagðist hafa slitið samband-
inu þar sem hann kærði sig ekki um
börn. Þessir vitnisburðir þykja
Susan Smith, 23 ára, ólaði tvo barnunga syni sína niður i bíl sínum og
myrti þá með því að ýta bilnum út í stöðuvatn. Simamynd Reuter
styðja þá tilgáfu verjandans að Smith valdsins að morðin hafi verið framin
hafi myrt drengina eftir að hún gugn- til að ryðja úr vegi hindrunum í ást-
aðiásjálfsmorðiogþátilgátuákæru- arlífinu. Reuter
Utlönd
Ekkertútilokað
aðBushfáiað
faratilKína
Háttsettur að-
stoðarmaður
Clintons
Bandaríkjafor-
seta segir ckki
útilokað að Ge-
orge Bush, fyrr-
um Hvíta húss-
bóndi, verði
dubbaður upp og skipaður sér-
stakur sendimaður Bandaríkja-
stjómar i Kína.
Forsetarnir tveir ræddu sam-
skipti Kina og Bandaríkjanna,
sem ekki eru upp á það besta nú
um stundir, á mánudag. „Forset-
inn átti gott samtal vlð Bush. Það
sem þeim fór í milli er einkamál
en ef hann þarf að tilkynna eitt-
hvað mun hann gera það,“ sagöi
George Stephanopoulos, ráðgjafi
Clintons,
Útlitfyrirsam-
komulagáút-
hafsráðstefnu
Útlit er fyrir að nýjar reglur um
stjórnun fiskveiða á úthafinu
verði tilbúnar áður en lokafundi
úthafsveiðiráðstefnu SÞ lýkur í
New York i ágústbyrjun.
Olav Schram Stokke, vísinda-
maöur viö stofnun Friðþjófs
Nansens, segir að samkomulag á
ráðstefnunni muni leggja aukinn
þrýsting á lönd heimsins að leysa
fiskveiðideilur sínar. Hann nefn-
ir þar deilur íslendinga og Norö-
manna um veiðar í bæði Smug-
unni í Barentshafi og í Síldar-
smugunni.
„Ég tel ekki aö vandamálin með
Síldarsmuguna og Smuguna
muni verða leyst í New York. Þar
fyrir utan mun líða langur timi
áöur en nægflega mörg lönd stað-
festa samkomulagið og gera það
bindandi,“ segir Stokke.
Reutcr, NTB
Nýtt
Hitabylgjan í Chicago sú mannskæðasta til þessa:
Hátt í 500 látin
Hitabylgjan, sem varði í fimm
daga í Chicago í Bandaríkjunum,
kostaði að minnsta kosti 436 manns
lífið og er óttast að tala látinna
vegna hitans eigi eftir að nálgast
500 þegar upp er staðið.
Líkhús borgarinnar hafa nú loks
náð að hýsa öll líkin en um tíma
var fjöldi líka geymdur í kælibflum.
Starfsmenn líkhússins vinna nú að
skráningu líkanna með heimsókn-
um á ellihimfli og heilsugæslu-
stöðvar.
Hitabylgjan er ein af mannskæð-
ustu hamfórum sem gengið hafa
yfir borgina fyrr og síðar. Þannig
dóu fleiri í hitabylgjunni en eldun-
um miklu sem eyöilögðu megin-
hluta miöborgarinnar, urðu
250-300 manns að bana og gerðu
um 100 þúsund manns heimilis-
laus. Einungis ferjuslys 1915, þegar
844 fórust, og leikhúsbruni 1903,
þegar um 600 fórust, eru mann-
skæðari en hitabylgjan.
Rchard Daley, borgarstjóri
Chicago, sagðist axla hluta ábyrgð-
arinnar vegna mannskaðans en
sagði að enginn á vegum borgar-
innar mundi missa starfið. Hann
sagði að betra viðvörunarkerfi og
upplýsingaflæði hefði getað bjarg-
að mannslífum en einangrun
margra einstaklinga hefði haft
mikið að segja.
Hitinn krafðist fórnarlamba á
aldrinum 3 til 103 ára en meirihluti
hinna látnu var 60 ára og eldri.
Hitinn varö mestur 41 stig á selsíus
á fimmtudag og var vel yfir 32 gráð-
ur hina dagana.
Reuter
kvoldverðartilboð
21/7-27/7
Sjávarsúpa
V estfirðingsins
Heilsteikt
nautafillet
með bernaisesósu
Kaffi
Kr. 1.995
Opið
i hádeginu mánud-föstud.
Öll kvöld vikunnar
Opið:
í hádeginu mánud.-föstud.
Opið öll kvöld vikunnar
u> (juífnifícmmrÐ
Laugavegi 178,
^ s. 588 9967 Æ
HVAP GRÆOI EG A ÞVI
AO SELJA VENNA VIN í
SMAAUGLÝSINGUM DV?