Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Page 4
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 3 {jpjptist TÓNLISIAR TLC - Crazysexycool ★★il Niðursoðið rapp á hugljúfum nótum Rappið á nokkuð undir högg að sækja á heimaslóðum vestur í Bandaríkjunum vegna þess að siðapostular hafa risið upp á afturlappirnar og lýst stríði á hendur orðljótum klámkjöftum og karlrembum á borð við Snoop Doggy Dogg, Dr. Dre, 2Pac og fleiri stór stjörnum. Við þessu bregst bandaríski markaðurinn að sjálfsögðu og kemur fram með snyrtilega stúlkn arappsveit sem flytur huggulegt rapp á ljúfum nótum; klæmist ekki en daðrar undir rós. Pottþétt uppskrift, eins og best má sjá af því að TLC hefur nú selt vel á fimmtu milljón eintaka af þessari fyrstu plötu sinni og er ekkert lát á sölunni, enda fer hvert lag plötunnar á fætur öðru á topp bandaríska vinsældalistans. I raun þarf varla að segja meira um þessa plötu, innihald hennar styggir engan, heldur rennur ljúflega í gegn án nokkurrar fyrirstöðu og engin þörf á að stimpla plötuna viðvörunum vegna orðbragðs. Lögin eru bómullarpakkað soulrapp, huggulegustu lög, dægilega melódísk og kjörin til vinsælda. Það hlálega við þetta allt er að hjónin sem stóðu að þessu í upp hafi eru nú skilin og bítast af slíkri heift um gullgæsina að stúlkurnar í hljómsveitinni hafa neyðst til að lýsa sig gjaldþrota! Þetta eru snillingar. - Sigurður Þór Salvarsson Graham Goble Stop iri Máttfarið sveitarokk Graham Goble er Ástrali sem á árum áður gerði garðinn frægan með The Little River Band sem var áströlsk kántrírokksveit. Nú er Goble farinn að gefa út plötur uppá eigin spýtur og hann heldur bara áfram þar sem frá var horfið með Little River Band. Tónlistin er semsagt sama gamla áferðarfallega kántrírokkið; öllu vandlega pakkað inní bómull svo öruggt sé að enginn stingi sig á neinu. Melódíurnar eru fínslípaðar og fallegar; útsetningarnar ákaflega vandaðar og nostursamlega gerðar. Söngurinn er af sama toga, ákaflega vandaður og íburðamikill á köflum, en einhvern veginn verður þetta samt allt saman frekar lítið spennandi. Lögin eru vissulega mörg hver afskaplega hugljúf og falleg, en það vantar í þau sálina; þetta eru fyrst og fremst fallegar umbúðir en þegar betur er að gáð er innihaldið frekar lítilfiörlegt. - Sigurður Þór Salvarsson Safnplatan Pottþétt 1 er fyrsta samstarfsverkefni Skrfunnar og Spors og ráögert er að gefa út sjö Pottþétt plötur á hverju ári í framtíðinni. Pottþétt 1 - samstarfsverkefni útgáfufyrirtækja „Þetta er búið að standa til í mörg ár“ segir Jónatan Garðarsson hjá út- gáfufyrirtækinu Spor ehf „ en hingað til hefur bara ekki fundist samstarfs- grundvöllur." Nú er hann hinsvegar fundinn, því eftir helgi kemur út fyrsta tvöfalda safnplatan í tilvonandi „Pottþétt" ser- íu. Platan er samstarfsverkefhi Skíf- unnar ehf og Spors ehf. Eins og gefur að skOja er þetta mikiU fengur fyrir plötukaupendur á íslandi, því þama verður að finna það besta frá hvoru útgáfufyrirtæki fyrir sig hverju sinni, hvort sem það er innlent eða erlent. Sjö plötur á ári 1 framtíðinni verða gefnar út sjö Pottþétt plötur á hverju ári, ein á tveggja mánaða fresti auk þess sem gefin verður út ein „best of‘ plata á ári. Uppskriftin er í námunda við „Now that’s what I call music“ út- gáfuseríuna sem kemur út erlendis. Fyrri platan verður í poppkantinum en sú seinni mun innihalda meira af danstónlist. Lítum á hvað fyrsta plat- an i útgáfuröðinni hefur að geyma. Live - Throwing Copper: ★★★ Live heldur uppi góðri plötu, fullri af góðum melódíum og kraftmiklu rokki og á erindi á sístækkandi evr- ópskan markað. -GBG The Fabulous Thunderbirds - Roll of the Dice: ★★★★ Hljómsveitin The Fabulous Thunderbirds spOar fyrirtaks R&B tónlist, blússkotið rokk með hlýleg- um suðurríkjakeim. -ÁT Warren Zevon - Mutineer. ★★★ Zevon sér um aOan söng sjálfur og þótt hann sé kannski ekki besti söngvari í heimi setur söngurinn sterkan persónulegan blæ á plötuna og gerir hana jafn góða og raun ber vitni. -SÞS Gary Moore - Blues for Greeny: ★★★ Blues for Greeny er bæði Moore og Green tO mikOs sóma og á Moore heiður skOinn fyrir að kynna tónlist Peters Greens fyrir yngri blúsaðdá- endum. -SÞS Flugfélagið Loftur - Rocky Horror: ★★★★ AOir aðstandendur standa sig af- bragðsvel en sérstaklega ber að hrósa þeim Bimi Jörundi, Helga og Valgerði. -SÞS Blind Melon - Soup: ★★★★ Blind Melon á hrós skOið fyrir fjöl- breytta plötu sem á erindi inn á heimili allra sannra tónlistaraðdá- enda. -GBG Popphliðin, eða plata númer eitt er rúmar sextíu og átta mínútur á lengd og inniheldur sautján lög. Nýtt lag frá íslensku rokksveitinni Jet Black Joe (1 know) ýtir plötunni úr vör. „Vina- sveitimar" Blur og Oasis eiga næstu tvö lög, Country House og RoO With ft sem fóru í fyrsta og annað sæti breska vinsældarlistans fyrir stuttu síðan. Rokksveitin Supergrass flytur lagið Alright og reyklausa sveitin Cig- arette með Heiðrúnu Önnu Björns- dóttur í fararbroddi á þama nýtt lag sem heitir Bleeding like a star. Þess má geta að Cigarette gerði nýlega tveggja plötu samning við Skífuna ehf og má eiga von á frumburðinum fyr- ir jól. Þar á eftir koma þekktari lög með The Connels (‘74 - ‘75), Oliviu Newton John (No matter what you do), Everyt- hing but the girl (Missing - sérstök end- urhljóðblöndun sem á uppruna sinn á Ítalíu), Take That (Never forget) og Seal (Kiss from a rose) sem öO hafa átt velgengni að fagna fyrr á árinu. Loks kemur lagið Mér var svo kalt með SS- SÓL út, en það hefur verið spOað tölu- vert í útvarpinu í sumar, einnig ættu útvarpshlustendur að kannast við lag- ið með Edwin CoOins, A girl like you. Gamla Beatles lagið I’m only sleep- ing er komið í nýjan búning Suggs (einn af fyrrum söngvurum Madness). Morrisey á nýtt lag sem heitir Dagen- ham Dave og íslenska sveitin fn Bloom á þarna lagið Decived, en þeir frum- sýndu myndaband við lagið fyrr í sum- ar á Tveim Vinum. Síðustu lög fyrri plötunnar eru síðan flutt af söngkon- unni Tina Arena (Chains) og trú- badomum Orra Harðar frá Akranesi (FaOegur dagur). Danshliðin, eða hlið númer tvö er rúmar sextíu og sjö mínútur á lengd og inniheldur átján lög. Diana King flytur fyrsta lagið (Shy Guy), en það má finna í kvikmyndinni Bad Boys. Fyrirsætusöngvarinn Haddaway flyt- ur okkur nýtt lag sem titlast Catch a fire og strax á eftir honum kemur önn- ur fyrirsæta, nefnilega sú danska Whigfield með lag sem heitir Big Time. Berri flytur okkur The Suns- hine after the rain, Corona syngur lag- ið Try me out, Outhere Brothers rappa La La La Hey Hey og Real MacCoy flytja Come and get your love. Krakkarnir í 20 fingers hafa nú breytt um nafn, heita nú Max-A-MiOi- on og flytja okkur lagið Fat Boy. Scoot- er Keldur sínu striki og nefhir sitt nýja lag Friends og hinn sænski Dr.Alban er mættur aftur tO leiks með lagið This time Tm free, en á plötunni má einnig finna útgáfu Moziac af laginu Sing ft (The HaOelujah song) eftir doktorinn. Hafa notið velgengni A plötunni má einnig finna gamla Kathrine and the Waves lagið Walking on sunshine í flutningi Redbone feat. Rhonda. Ný smáskifa með M-People lítur dagsins ljós (Search for the hero) og Eurogroove flytja Dive to paradise. Líkið af laginu Zombie með Cran- berries er varla kólnað þegar út er komin dansútgáfa með A.D.A.M. feat. AMY. Söngkonan Dana Dawson kynn- ir nýtt lag sem heitir 3 is famOy, en það hefur átt mikilli velgengni að fagna erlendis. Síðustu lög seinni plöt- unnar flytja Shannon (ft’s got to be love) og La Bouche (FaOin’ in love). Ef marka má velgengni safhplatna á íslenskum markaði undanfarin misseri má búast við því að þetta sam- starfsverkefni Skífunnar ehf og Spors ehf eigi eftir að slá í gegn. Pottþétt 1 kemur út eftir helgi, en svo má búast við Pottþétt 2 rétt fyrir jól, „Best of Pottþétt ‘95“ stuttu eftir jól o.s.frv. GBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.