Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
23
Messur
Árbæjarkirkja: Bamaguðsþjón-
usta sunnud. kl. 11.00, við upphaf
barnastarfs í söfnuðinum að loknu
sumarhléi. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Ath. breyttan messutíma. Væntanleg
fermingarbörn og foreldrar þeirra boð-
in velkomin í guðsþjónustuna við
upphaf fermingarfræðslunnar.
Áskirkja: Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11.00. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Guðsþjónusta á sama
tíma. Samkoma kl. 20.00 í umsjá
Ungs fólks með hlutverk.
Bústaðakirkja: Upphaf vetrar-
starfs. Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Foreldrar hvattir til þátttöku með
börnunum. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Digraneskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa á sama tíma. Altar-
isganga.
Dómkirkjan: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11.00 við upphaf barnastarfs.
Sr. María Ágústsdóttir prédikar. Sr.
JakobÁ. Fljálmarsson þjónar fyrir alt-
ari. Skírn.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Stefán Lárusson messar.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Barnaguðsþjónusta á sama tíma
I umsjón Ragnars Schram.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja-
vik: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Grafarvogskirkja: Barnamessa kl.
11.00. Barnamessa I Rimaskóla kl.
12.30. Börn í Engja- og Rimahverfi
eru hvött til að mæta. Umsjón Hjört-
ur, Rúna og prestarnir. Messa kl.
14.00.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11.00. Barnakór Grensáskirkju syng-
ur. Stjórnandi Margrét Pálmadóttir.
Messa kl. 14.00. Altarisganga.
Hallgrímskirkja: Barnasamkoma
og messa kl. 11.00. Kvöldmessa kl.
20.00 á vegum Reykjavíkurprófasts-
dæmis vestra. Prestar, sóknarnefndir,
starfsfólk, söngfólk og sjálfboðaliðar
safnaðanna taka þátt I messunni. Kór
Langholtskirkju syngur.
Háteigskirkja: Kl. 11. Barnaguðs-
þjónusta. Börnin fá afhenta fallega
möppu, poka o.fl. sem tengist starfi
vetrarins. Axel og Ösp koma í heim-
sókn. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Sveins-
son.
Hjallakirkja: Guðsþjónusta og
kynningarfundur um fermingarstarfið
kl. 10.30. Vænst er þátttöku ferming-
arbarna úr Hjallaskóla og foreldra
þeirra. Barnaguðsþjónusta kl. 13.00.
Foreldrar eru hvattir til að fylgja börn-
um sínum til þátttöku í barnastarfinu.
Guðsþjónusta og kynningarfundur
um fermingarstarfið kl. 14.30. Vænst
er þátttöku fermingarbarna Hjalla-
sóknar úr öðrum skólum en Hjalla-
skóla og foreldra þeirra.
Keflavíkurkirkja: Guðsþjónusta kl.
II árd. Prestur: Ólafur Oddur Jóns-
son. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Kópavogskirkja: Barnastarf i safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 11. Aðalfundur
Kársnessóknar verður I Borg að lok-
inni guðsþjónustu.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups: Útvarpsmessa kl. 11.00. Ell-
efu ára vígsluafmæli kirkjunnar. Léttar
veitingar á vægu verði eftir messu.
Laugarneskirkja: Barnastarfið
hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl.
11.00. Messa kl. 14.00. Félagar úr
Kór Laugarneskirkju syngja. Kaffi eftir
messu. Ölafur Jóhannsson.
Neskirkja: Upphaf barnastarfs kl.
11.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Innri-Njarðvfkurkirkja: Guðs-
þjónusta sunnud. 17. sept. kl. 11.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Barnastarfið hefst á sama tíma í um-
sjá Elínborgar Sturludóttur.
Stokkseyrarkirkja: Messa kl.
14.00.
Erla Friðriksdóttir og Magnús Pálsson, starfsmenn Kringlunnar, vinna að uppsetningu sýningarinnar World Press
Photo. DV-mynd ÞÖK
Ljósmyndasýningar í Kringlunni:
World Press Photo
Áhugafólk um góðar ljósmyndir
hefur ríka ástæðu til aö leggja leið
sína í Kringluna um þessa helgi. Á
morgun opnar þar sýningin World
Press Photo sem er þekktasta sam-
keppni í heiminum á sviði fréttaljós-
myndunar. Sýningin World Press
Photo er orðinn árlegur viðburður
hér á landi og sjálfsagt eru margir
sem bíöa spenntir eftir aö hún veröi
opnuð. World Press Photo verður í
Kringlunni til 1. október en sýndar
erji 230 ljósmyndir. Það eru DV og
Kringlan sem standa að sýningunni
í samstarfi við Listasafn ASÍ og Jóna
hf., flutningaþjónustu.
Afmæli DB
Þá hefur þegar verið opnuð sýning
á sama stað á myndum tengdum sögu
DB en þessar sömu myndir voru
sýndar á afmælishátíð blaösins í
Perlunni um síöustu helgi. Þúsundir
manna skoðuðu myndimar í afmæl-
isveislunni um daginn og nú gefst
annað tækifæri til að berja þær aug-
Sumarmyndasamkeppnin
Síðast en alls ekki síst er það svo
Sumarmyndasamkeppni DV og Kod-
ak. Úrslit keppninnar hggja nú fyrir
og verða sigurvegurum veitt verð-
laun í Kringlunni á sunnudaginn kl.
14. Verðlaunamyndimar em að sjálf-
sögðu til sýnis en þær hafa verið
stækkaðar upp. Sumarmyndasam-
keppni DV og Kodak hefur verið
haldin um margra ára skeið og þátt-
takan ávallt verið góð.
Haustdagar á Selfossi
í dag og á morgun em svokallaðir
Haustdagar á Selfossi. Af þessu til-
efni hefur verið sett saman vegleg
dagskrá þar sem allir ættu að geta
funöið eitthvað við sitt hæfi.
M.a. er fornbílasýning á planinu
við Fjölbrautaskólann, sýning á
gömlum búvélum á Sýslumannstún-
inu við Austurveg, sýning á vélum
framleiddum í smiðju KÁ á sama
stað og þá verða torfærubílar sýndir
við Bókasafnið. Ýmis tilboð og kynn-
ingar verða í gangi og í nýjum versl-
unarkjarna verða ýmsar uppákom-
ur, tískusýningar o.fl. Viö KÁ verður
loftkastah fyrir bömin og keppt
verður í götubolta við veitingahúsið
Brúarsporðinn.
Götuleikhúsið verður á ferð um
bæinn og fagkeppni kjötiðnaðar-
nema verður í Kjötvinnslu Hafnar-
Þríhyrnings og fá gestir að fylgjast
með gangi mála en keppnin er sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Á Haustdögum á Selfossi verður boðið á fjölbreytta dagskrá.
Kynningardagar hjá Sorpu í Gufunesi:
Endurvinnsla og umhverfisvemd
Þaö verður mikið um að vera á
athafnasvæði Sorpu um helgina því
þá mun verða efnt til kynningardaga
um starfsemi fyrirtækisins og um 30
annarra fyrirtækja er starfa á sviði
sorphirðuogendurvinnslu. Sýningin
verður opin frá kl. 13-18 bæöi laugar-
dag og sunnudag og gefst almenningi
kostur á að kynna sér verklag í Sorpu
og starfsemi þeirra fyrirtækja sem
tengjast endurvinnslu með einum
eða öðram hætti.
Sýningin verður á athafnasvæði
fyrirtækisins í Gufunesi en sýnt
veröur á 10.000 fermetra fleti, innan
og utandyra. Innandyra verða gestir
leiddir í allan sannleika um starf-
semi Sorpu, fyrirtæki verða með af-
markaða bása og sérstakur bama-
krókur verður útbúinn þar sem hægt
er að vinna gripi úr úrgangsefnum
og búinn til enduranninn pappír, svo
dæmi séu nefnd. Utandyra verða
sýnd ýmis tól og tæki, svo sem gáma-
flutningabílar, gámar, lyftarar, sorp-
pressur o.fl. Þá verður komið upp
heljarmiklu „sorpfjalli" við inngang-
inn í stöðina til að minna á nauðsyn
þess að draga úr umbúðanotkun og
stuöla þar með að aukinni umhverf-
isvernd.
ymi
Réttardagur
í Grindavík
Á morgun verður réttað i Grindavik.
Rekið verður upp í rétt um kl. 13 og
klukkutíma siðar verður byrjað að
draga. Ýmislegt verður til skemmt-
unar við réttina og um kvöldið leikur
svo hljómsveitin Hafrót fyrir dansi á
réttardansleik í Festi. Myndin er úr
myndasafni DV. DV-mynd EJ
Knattspyrna:
ísland og
Rússland
Fyrsti leikur íslands í Evrópu-
keppni kvennalandslíða í knatt-
spymu 1995-1996 fer fram á
Laugardatsveliinum á sunnu-
dagskvöldið og hefst klukkan 20.
Mótherjarnir eru lið Rússlands,
sem komst í 8-liða úrslitin í síð-
ustu keppni, eins og íslenska lið-
ið.
og fallbarátta
Næstsíðasta umferð 1. deildar
karla í knattspyrnu fer fram á
sunnudaginn og hefjast allirleik-
irnir klukkan 14. Þar geta ráðist
úrslitín í baráttu ÍBV og Leifturs
um sæti I Evrópukeppni, og eins
geta Framarar endanlega fallið I
2. deild.
Leikirnir eru sem hér segir:
ÍBV-Grindavík
FH - Fram
Keflavík-Leiftur
Breiðablik KR
Valur-Akranes
Hvada lið
falla í 3. deild?
( 2. deild karla I knattspyrnu fer
iokaumferðin fram á morgun,
laugardag, og hefjast allir leikirn-
ir klukkan 16. Þar snýst allt um
fallbaráttuna sem er á milli Vlk-
ings, Víðis og HK, en tvö af þess-
um liðum falla I 3. deild á morg-
un. Víkingar þurfa eitt stig til að
sleppa en ef þeir tapa fyrir Þrótti
verður það sigurvegarinn i leik
Víðis og HK sem heldursætisínu
í 2. deild.
Leikirnir eru sem hér segir:
Fylkir - Þór
KA-ÍR
Víðir-HK
Stjarnan - Skallagrlmur
Víkingur - Þróttur R.
Handbolti:
Fyrsta
umferðin
Fyrsta umferð 1. deildar keppni
karla í handknattleik verður leikin
á sunnudagskvöldið og hefjast
allir leikirnir klukkan 20. Þeir eru
eftirtaldír:
KR-KA
FH-ÍBV
Selfoss-Stjarnan
ÍR-Grótta
Valur - Haukar
Vlkingur - Afturelding
Helgarferðir
Ferðafélagsins
Ferðafélag íslands býður upp á
tvær helgarferðir um þessa helgi.
Þeir era Vesturdalir-Hrafntinnu-
sker-Laugar og Þórsmörk, hausthtir.
Brottför í báðar þessar ferðir er í
fyrramálið kl. 8.
Á morgun kl. 9 er farin gönguferð
á Þríhyming og á sunndaginn kl.
10.30 er það Selvogsgata sem er göm-
ul þjóðleið. Eftir hádegið kl. 13 er það
svo Víðisandur-Herdísarvík. Brott-
farir era frá BSÍ, austanmegin, og
Mörkinni 6.
Lakagígaferðinni hefur veriö frest-
að.
Dagsferð með Utivist
Á sunnudaginn er gönguferð á veg-
um Útivistar þar sem gengin verður
gömul leiö úr Brynjudal um Leggja-
brjót til Svartagils. Fyrst í stað er
farin sama leið og á Vestursúlu og
þegar komið er í tæplega 500 metra
hæð er haldið áfram suður með
Sandvatnshlíöum og síðan með
Sandvatni að austan. Vestan Leggja-
bijóts er Myrkravatn sem Öxará
rennur úr. Leiðin er mjög skemmti-
leg og alls 15 kOómetrar. Hún er
seinfarin og því er göngutími um 5-6
klst.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu, kl.
9.00.