Þjóðviljinn - 23.11.1943, Side 1

Þjóðviljinn - 23.11.1943, Side 1
8. árgangnr. Þriðjudagur 23. nóv. 1943. JÓHANNES ÚR KÖTLUM skrifar grein um sjálfstæðismál- ið á 4. og 5 síðuna. 264. tölublað. Verklýðshreyfing Astralíu eflist Ástralski Kommúnistaflokkur inn og Verklýðsflokkurinn í New-Soth-Wales í Astralíu eru nú um það hil að sameinast. Mun sameiningin mjög efla hin íýðrœðislegu verklýðsöfl. Þegar Kommúnistaflokkurinn var lýstur ólöglegur árið 1940, hafði hann um 4500 skráða með- limi. Síðan hann varð löglegur aftur á þessu ári hefur tala með lima komizt upp í nærri því 20.000. Við nýafstaðnar kosning ar fékk hann 80.000 atkvæði undir kjörorðinu: „Allt fyrir sigurinn í hinu andfasistiska stríði alþýðunnar“. — Verklýðs- flokkurinn, sem árið 1940 klofn- aði út úr Sameinaða Verklýðs- flokknum um afstöðuna til Sovétríkjanna, hefur 10.000 með limi. Nálgast síðusfu íárnbraufína frá Gomel Aframhald er á sókn Rússa á Dnéprbugðinni. Hafa þeir brotizt í gegn fyrir sunnan Kremensjúg á 50 km. breiðri víglínu. Hafa þeir sótt fram um 40 km. og tekið 9 mikilvæga vel víggirta staði. Eru Rússar komnir þarna mjög nærri bænum Snamenka. Er þessi sókn mjög hættuleg undanhalds- og aðflutningaleiðum Þjóð- verja í Dnépr-bugðunni. Rauði herinn hefur enn unnið á báðum megin við Gomel. Norðan við hana eru þeir komnir all nærri síð- ustu járnbrautinni, sem Þjóðverjar hafa á valdi sínu frá og til borgarinnar. Frá Alþingi. Engln Ining í hfaieimiiipiiin Fulltrúa sóslalista enn haidið otan vlð nefndlna Bxrinn ber einn allan kostnað af bráðabirgðahúsnæðinu Snemma á þessu þingi bar Sigfús Sigurhjartarson fram fnun- varp til breytinga á húsaleigulögunum, til leiðréttingar á því fjarstæða ákvæði laganna, að ráðherra getur úrskurðað 2 af 5 nefndarmönnum út úr hinni raxmverulegu húsaleigunefnd og falið þeim það verk eitt að meta húsaléigu eftir föstum reglum. Félagsmálanefnd neðri deildar fjallaði um málið og vildi meiri hluti hennar fallast á meginatriði frumvarpsins, að því viðbættu að ríkið skyldi greiða helming þess kostnaðar sem leið- ir af umbótum og breytingum á bráðabirgðahúsnæði en bærinn ber nú þennan kostnað allan. Framsóknarmenn, Alþýðuflokks- menn og nokkrir Sjálfstæðismenn sameinuðust um að fella þess- ar sjálfsögðu breytingar á húsaleigulögunum. C I 0 sendir Roose- velt áskorun Ameríska verkamannasamband- ið C I O (Congress of Indrustr- ial Organisations) hefur skorað á Roosevelt forseta að hlutast til um, að pólitískir fangar á Indlandi verði látnir lausir og að teknir verði á ný upp samn- ingar við indverska stjórnmála- leiðtoga um myndun þjóðlegrar stjórnar. Nefnd sambandsins, sem sér um fjársöfnun í þágu hjálpar- sjóða Bandaríkjamanna, hefur veitt 100.00 dollara til söfnunar vegna indversku hungursneyðar innar. Húsaleigunefnd er sem kunnugt er, skipuð fimm mönnum. Tveir eru skipaðir af ráðherra, tveir kosn- ir af bæjarstjórn, en formann skip- ar Hæstiréttur. Ráðherra tilnefnir svo einhverja tvo úr þessum hópi til að meta húsaleigu, eftir föstum reglum, og hafa þeir engin önnur störf með höndum í nefndinni, eru með öðrum orðum ekki í hinni raun verulegu nefnd. Þetta ákvæði er mjög óeðlilegt, eins og bezt sést á því, að með því getur ráðherra útilokað báða fulltrúa Reykjavík- ur úr húsaleigunefnd, en auðvitað á bærinu mest undir ])ví, að nefnd- in vinni starf sitt vel. Frumvarpið fór fram á það, að allir fimm ncfndarmenn tæki þátt í megin - störfum nefndarinnar. Nú er svo háttað málum, að Framhald á 8. síðu Gagnáhlaup Þjóðverja á Kíeff-svæðinu eru nú hörðust um 20 km. fyrir norðan Síto- mír. Hafa Rússar hrundið þeim öllum og valdið stórtjóni í liði Þjóðverja. Nyrzt á Kíeff-vígstöðvunum heldur sókn Rússa áfram. Hafa þeir tekið mörg þorp þar. Fyrir norðan Pripet-fenin, fyrir vestan Rikitsa og við neðri hluta Pripet-fljóts, hefur rauði herinn tekið marga staði. Enn er barizt í úthverfum Tsérkassi-borgar, en nokkrar hersveitir rauða hersins hafa ekki staðnæmst þar, heldur haldið áfram framhjá borginni. Þjóðverjar tilkynntu enn harða bardaga nálægt Nevel. Segja þeir að Rússar hafi brot- izt í gegn um víglínu þeirra þar. En hersveitir þær sem það gerðu verið umkringdar. Rússar eyðilögðu í gær fyrir Þjóðverjum 189 skriðdreka og 18 flugvélar. Shinwell í ónáð Mesta athygli vekur í sam- bandi við kosningu stjórnar- nefndar þingmanna brezka Verkamannaflokksins, að Eman úel Shinwell var ekki endur- kosinn. Þessi breyting endur- speglar alls ekki aðstöðu Stim- wells innan flokksins sjálfs. Á síðasta þingi Verkamannaflokks ins var hann annar í röðinni, er kosið var í framkvæmda- stjórn, og hann er einn af vin- sælustu áróðursmönnum flokks- ins. — Auðséð er, að samþing- mönnum hans úr Verkamanna- flokknum hefur ekki líkað hin herskáa framkoma Shinwells í þinginu og hin sjálfstæða af- staða hans í ýmsum málum. Verkamenn í Chile vinna sigur Samkvæmt nýjum lögum, sem þingið í, .Chile (Suður- Ameríku) hefur samþykkt, eiga verkamenn þar í landi hér eftir að fá hluta af ágóða at- vinnurekenda. Atvinnurekendur eiga að af- henda verkamönnum 12% af hreinum ágóða. Af þessum á- góða eiga 3% að renna til verk- lýðsfélaga, en afganginn á að nota til launabóta verkamanna. i Frakkar reyna að sefa ólguna í Libanon Franska þjóðfrelsisnefndin í Alsír hefur nú stigið fyrsta skrefið til lausnar Libanon-deil- unnar með því að leysa úr haldi forsetann og ráðherrana. Var þeim fagnað af geysimikl- um mannf jölda, er þeir komu til Beirút í gær. Seinna í gær brauzt múgur manns undir forustu þarlendra iögreglumanna inn í þinghús- ið og fylgdi síðan þingmönnun- um þangað. Libanonskir fánar voru dregnir upp á opinberum byggingum. Frönsk yfirvöid létu þetta allt afskiptaiaust. Verkföll eru enn háð í Beirút og fleiri borgum og er langt frá því að landsmenn séu á- nægðir með þessar tiislakanir. Sú skoðun er iátin 1 ljós í Kairo að ástandið geti enn breyzt til hins verra. Franska þjóðfrelsisnendin í Alsír hefur kallað á sinn fund landstjóra sinn í Libanon og fleiri franska embættismenn til að gefa skýrslu. Kjöthneykslin rædd ð Alþingi „Alþingi á ekki afl sletta sér fram í það, sem því kemur ekki við“—segir formaður kjötverðlagsnefndar Þingsályktunartillaga þeirra Áka Jakobssonar og Sigfúsar Sigurhjartarsonar um rannsókn vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum var til fyrstu umræðu í neðri deild í gær. Áki fylgdi tillögunni úr hlaði með ýtarlegri ræðu, en vamarlið kjöthneykslisins kvaddi sér þegar hljóðs og var formaðxu- kjöt- verðlagsnefndar, Ingólfur á Hellu, í fremstu víglínu. Fundartima var lokið er Ingólfur hafði lokið máli sínu og var umræðum því frestað. Áki Jakobsson færði fram öll þau mcginrök, scm að því hníga, að gera rannsókn nauðsynlega út af þessari eyðileggingu matvæla, sem átt hefur sér stað, og almenn- ingi er þegar kunnugt af blaða- skrifum. Megináherzluna lagði hann á það, að rannsaka þyrfti, hvort löggjöf sú, sem nú cr í gildi, um kjötsölu, gæti ekki beinlínis stuðlað að því, að kjöt yrði evði- lagt i stærri eða smærri stíl. Ingólfur frá Ilellu talaði næstur á eftir Áka. Ilann kvað það firn mikil, ef Alþingi ætlaði að fara að sletta sér fram í þetta mál, sem því kæmi ekkert við, og kvaðst illa trúa, að þingmenn viidu taka sæti í rannsóknarnefnd slíkri sem tillag- an fjallaði um. Ekki kvaðst hann sem formaður kjötverðlagsnefndar ætla að upp- lýsa hvort vcrðjöfnunargjald hefði verið greitt af kjöti því, sem S. í. S. hefði flutt í hraunið cða ekki. Hann vildi ekki standa hér á þingi eins og fyrir rétti. Kommúnistar mættu gjarna bíða þess mcð nokk- urri óþreyju að fá að vita hið sanna í málinu, ef rannsóknar- nefndin yrði samþykkt, gætu þeir komið á skrifstofu kjötverðlags- nefndar og gætu þeir þar séð „skjölin í réttu ljósi“. Sveinbjörn og aðrar höfuðkcmpur Framsókn- ar höfðu kvatt sér hljóðs er fundi var slitið. Verkamenn vinna kosn- ingar í Kleveland í nýafstöðnum kosningum í hinni miklu iðnaðarborg Kleve- land í Bandaríkjunum hafa sam tök verkamanna tryggt kosn- ingu frjálslynds borgarstjóra og' borgarstjórnar. í Kleveland hófu verkiýðsféiög og verk- lýðsflokkar fyrr sameiginlega stjórnmálabaráttu en annars- staðar í Bandaríkjunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.