Þjóðviljinn - 05.01.1944, Blaðsíða 1
1
9. árgangur
Miðvikudagur, 5. jan. 1944
2. tölublað
luir MI
Bjelaja Tsérkoff tekín eftír
— Nevel járnbrautín
SllðPB Dags&Fúnar 1944
Uppstillingamefnd og trúnaðarráð Dagsbrúnar
hefur nú lagt fram lista með nöfnum stjórnar og
trúnaðarmanna við væntanlegar stjórnarkosningar
í Dagsbrún.
Listinn er skipaður þessum mönnum:
Formaður: Sigurður Guðnason, Hringbr. 188.
Varaform.: Hannes Stephensen, Hringbr. 176. Rit-
ari: Jón Agnars, Hallveigarstíg 9. Gjaldkeri: Árni
Kristjánsson, Óðinsgötu 28 B. Fjármálaritari: Ed-
varð Sigurðsson, Litlu-Brekku. — Varastjóm: Er-
lendur Ólafsson, Ástþór B. Jónsson og Gunnar Daní-
elsson. —
Er þetta eini listinn, sem komið hefur fram, og er
tæplega að vænta þess, að aðrir listar verði í kjöri,
því að engin Dagsbrúnarstjórn hefur notið jafn al-
mennra vinsælda og trausts verkamanna og núver-
andi forusta Dagsbrúnar.
Upplýsíngar Eggerts Claessens:
Heiir laones á Bofi gerzl H'
leoiF olð
Fáir munu þeir vera, sem heyrt
hafa getið um rithöfundinn Eggert
Claessen. En Egger.t Claessen, mað
urinn, sem virðist lialdinn fjand-
semi gegn íslenzkum verkalýð,
hann er alþekktur.
Þessi maður geystist nú fram á
TÍtvöllinn í gær og var mikilvirkur.
Honum entist ekki siða í Morgun-
blaðinu.
— I>að var fjandsemin gagnvart
verkalýðnum, sem knúði hann til
ritstarfanna.
í grein þessari, sem er skrifuð til
varnar athæfi Jóhannesar á Borg
og gegn hljóðfæraleikurunum, Al-
þýðusambandinu og framkvæmda-
4 daga bardaga. Velíkí Luki
á valdí rauða hersins
«
Fleiri og fleiri rússneskar hersveitir streyma stöðugt
yfir fyrrverandi landamæri Póllands. Opinberlega er
ekkert tilkynnt um það í Moskva, en kunnugt er, að
rauði herinn er kominn marga kílómetra vestur fyrir
landamærin.
Það voru Kósakkahersveitir sem fóru fyrstar yfir
landamærin. Gerðist það skammt frá bænum Olevsk,
sem Rússar tóku í gær. Er hann sunnarlega í Pripet-
fenjasvæðinu, á járnbrautinni milli Kíeff og Varsjá.
Meginþungi sóknarinnar beindist þó suður á bóginn
í gær, þar sem Rússar tóku Bjelaja Tserkoff í áhlaupi.
Á norðurvígstöðvunum hafa Rússar náð járnbraut-
inni milli Veliki Luki og Nevel alveg á sitt vald.
Framkoma Jóhannesar á Borg gagnvart liljóðfœraleikurunum, og þó
■sérstaklega hið síðasta tiltœki hans, að nota erlenda liermenn sem verk-
fallsbrjóta á áramótafagnaði sínum, hefur vakið andúð og fyrirlitningu.
Þjóðviljinn sagði í gœr, að enginn mœlti framkomu hans bót. Þar
skjátlaðisi honum. Slíkur „íslendingur“ var til. — Það var Eggert Claes-
sen, formaður Vinnuveitendafélags tslands.
stjóra þess, Jóni Sigurðssyni, er eitt
atriði, sem hlýtur að vekja eftir-
tekt.
1 grein þessari segir Claessen
svo: „Vegna undangenginnar
reynslu setti Jóhannes Jósefsson
hljóðfæraleikurunum það skilyrði,
að þeir skyldu „sjá um“, að Félag
íslenzkra hljóðfæraleikara „segði
sig úr Alþýðusambandinu". Undir
héraðlútandi skuldbindingarskjal
skrifuðu þeir fimm, sem voru í
hljómsveitinni á Hótel Borg. En úr
þessu varð ekkert nema svikin ein-
tóm. Var Jóhannes Jósefsson samt
svo vægur í viðskiptum, að hann
Framhald á 8. síðu.
Stalín tilkynnti í sérstakri dag-
skipan um miðjan dag í gær töku
borgarinnar Bjelaja Tserkoff. Loka
bardaginn um liana byrjaði fyrir
fjórum dögum og var mjög ákafur.
Borgin er mikil járnbrautarmið-
stöð, og var eitt höfuðvirki Þjóð-
verja. Hún er 80 km. fyrir sunn-
an Kíeff, og liggur um hana járn-
braut úr Dnépr-bugðunni.
llússar sóttu' að borginni úr
norðri, vestri og suðri. Sendu Þjóð-
verjar liðsauka þangað og gerðu
margar gagnárásir. Var auðséð, að
þeir ætluðu ekki að sleppa lienni
fyrr en í fulla hnefana, en borgin
hefur nú verið á þeirra valdi í liálft
þriðja ár.
Rauði herinn hefur tekið mikið
landsvæði fyrir suðvestan Bjelaja
Tserkoff í sókn sinni að fljótinu
Bug og síðustu járnbrautinni, sem
Þjóðverjar hafa á valdi sínu úr
Dnépr-bugðunni. Hafa um 40 bæir
og þorp verið tekin á þessum slóð-
um. Álíta hernaðarsérfræðingar, að
þessi leið liggi svo til opin fyrir
núna, og hafi horfur Þjóðverja
aldrei verið alvarlegri en núna. —
Sunnar og vestar liafa Rússar tekið
bæinn Kliska, sem er 60 km. fyrir
norðvestan Vinnitsa. Er nú mjög
þrengt að setuliði Þjóðverja í Ber-
diséff, sem er eina stóra vígið, sem
þeir eiga eftir á Kíeff-vígstöðvun-
um. —
Á norðurvígstöðvunum tóku
Rússar yfir 100 bæi og þorp í gær.
Áttatíu og einn skriðdreki var
eyðilagður fyrir Þjóðverjum og 36
flugvélar.
Herstjórn Þjóðverja hefur" mikl-
ar áhyggjur út af því, að rússnesk-
ir skæruliðar hörfa vestur á bóginn
með þýzka hernum, í stað þess að
sameinast rússnesku hersveitunum.
Ilefur ekkert lát orðið á árásum
þeirra á samgöngur Þjóðyerja að
baki vígstöðvjmum.
Sókn Rússa hefur víðtæk
áhrif á stjómmálasviðinu
Hin hraða sókn rauða hersins
vestur á bóginn hefur vakið mikl-
ar og margvíslegar hrœringar á
stjórmnálasviðinu.
Pólska stjórnin í London Icallaði
saman fund í gœr til að rœða við-
burðina.
Talsmenn ungversku stjórnarinn
ar hafa látið í Ijós ótta um, að á-
Framhald á 8. síðu
„Vér heiðrum nafn
Georgi Dimitroffs
og minnumst
dirfsku hans'1
250 frægir Bandaríkjamenn
hylla hetjuna frá Leipzig
LONDON. — General News Service.
„Á þeirri braut sem Dimitroff
lagði einn inn á fyrir tíu árum
ganga nú allar hinar sameinuðu
þjóðir. Á þessu tíu ára afmœli Rík-
isþihghúsbrunans heiðrum vér nafn
og minnumst dirfslcu Georgi Di-
mitroffs“.
Þannig lýkur ávarpi, er 250 fræg-
ir Bandaríkjamenn undirrlta og
birt var í New York Times. Meðal
þeirra er undirrita ávarpið eru
hljómsveitarstjórarnir Toscanini og
Koussevitsky, vísindamaðurinn
heimsfrægi Albert Einstein, frönsku
blaðamennirnir Genevieve Tabouis
og Lillian Hellman, og margir
þekktir kirkjuleiðtogar.
„Loginn, sem Dimitroff kveikti
hcfur lifað þessi tíu löngu og skelfi-
legu ár“, segir í ávarpinu, „og hann
mun ekki slokkna fyrr en úrslita-
sigurinn hefur verið unninn yfir
myrkraöflunum. í nafni Dimitroffs
heitum við öllum þeim milljónum
manna, sem farizt hafa saklausir
og hetjum þeim, sem falla munu,
að linna ekki starfi fyrr en sigur
er unmnn
Lækkun á farmgjöld-
um Eimskip
Viðskiptaráðið hefur ákveðið að
lœkka farmgjöld með skipum Eim-
skipafélagsins, um 20%, frá þess-
um áramótum.
í inaí s. 1. voru farmgjöld á öil-
um öðrum vörum en kornvörum,
sykri, kaffi, áburði, fóðurbæti og
smjörlíkisolíum hækkuð um 50%.
Þessi hækkun hefur nú verið
lækkuð niður í 30%.
Einnig hefur verið ákveðið að
fella niður 20% viðbótarflutnings-
gjald á timbri.
Japonsku auðhringarnir og hernað-
arklíkan í órjúfandi bandalagi
Verkalýður Japans býr við verstu kúgun
LONDON. — General News Service.
Japanskir stríðsfangar í Kína hafa myndað með sér „Bandalag gegn
stríði”, og gefa út málgagn í Sjúnking. Hafa komið þár fram athyglis-
verðar upplýsingar um stríðið heima fyrir í Japan.
Það verður Ijóst af skýrslum, er birzt hafa ítmálgagnz þessu, að
japönsku auðhringarnir Mitsúi og Mitsúbisi hafa notað styrjaldarástand-
ið til þess að ná algjörðum yfirráðum í atvinnidífi landsins. Lög hafa
verið sett, er gefa ríkisstjórninni heimild til „samfœrslu framleiðslunn-
ar“, og þýðir framkvœmd þeirra í rauninni, að fjöldi lítilla iðnfyrirtœkja
hafa verið lógð undir stjórn hringanna,
Þelta hefur orðið til þess, að gíf-
urlegur stríðsgróði hefur safnazt til
örfárra auðhringa, er fengið liafa
ótakmarkaðan aðgang að hinum
auðugu hráefnalindum í löndum
þeim, er Japanir hafa hernumið.
Pólitísk afleiðing þessarar þróun-
, ar hefur orðið sú, að fjármálaauð-
valcl Japans og hernaðarklíkurnar
eru nú bundnir órjúfandi böndum
og áframhald styrjaldarinnar til
hins ýtrasta eina hugsanlega stjórn
arstefnan.
Oll hin skipulagða verkalýðs-
hreyfing hefur verið bæld niður, og
kúgun verkalýðsins grimmari en
nokkru sinni hefur þekkzt í Jap-
an, og er þá mikið sagt.