Þjóðviljinn - 24.02.1944, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 24.02.1944, Qupperneq 2
1 Fimmtudagur 24. febrúar 1944. ÞJÓÐVILJINN Sigfás Sigurhgaffarson: Hneykslanleg ræða eða hneykslanlegur forseti Flokkur allra stétta talar Það gat auðvitað ekki hjá því farið að .,flokkur allra stétta“ — Sjálfstæðisflokkurinn — léti til sín heyra í tilefni af sigri Dags- brúnarverkamanna. Það er dag- blaðið Vísir" sem er flokksins munnur að þessu sinni. Leiðari blaðsins í fyrradag sýnir á dá- samlegan hátt afstððu „flokks allra stétta“ til verkamanna. Flokknum, til „gagns og sóma“, skal nú þessi leiðari birtur í heild. þó leyfum vér oss að skipta honum í smá búta og velja hverjum bút fyrirsögn, svo efnið njóti sín betur, Sömuleiðis leyf- um vér oss að skjóta inn í ein- stöku athugasemd frá eigin brjosti, allt í hinum sama til- gangi, að rödd Sjálfstæðisflokks- ins — „flokks allra stétta“ — verði sem skýrust. Leiðarinn heit ir: ,.Samningar kommúnista", og er bannig: V erklýðssamtökin „hafa alla samninga að engu.“ „Kommúnistar hafa hafizt til valda innan verklýðsfélaga vjða um land og mega heita einráðir í Dagsbrun. Frá því er áhrifá þeirra fyrst fór að gæta hefur margt sígið á ógæfuhlið fyrir verkamenn, sem þeir þykjast vera fulltrúar fyrir, enda má segja að í rauninni sé gersamlega tilgang- laust að vera að semja um kaup og kjör við núverandi stjórnend- ur verkalýðssamtakanná, með því að allir samningar eru að engu hafðir“. Gerðardómslögin voru „samningar“ „Þessu til sönnunar nægir að skírskota til smáskæruhernaðar- ins hér við höfnina eftir að samn ingar höfðu verið gerðir, sem báðir aðilar töldu sig geta við unað. Kommúnigtar beittu sér ' fyrir því' að einstakir vinnuflokk- ar, sem unnu að afgreiðslu skipa, lögðu niður vinnu, settu hendur í vasa og neituðu að afgreiða skip þau, sem afgreiðslu þurftu, þótt þeir vissu. — og raunar af því að þeir vissu, — að íslenzka þjóðin mátti undir engum kring- umstæðum við því að skipin stöðvuðust, enda va.r þá sultur og neyð fyrir dyrum, Hafnar- verkamenn skelltu skolleyrum við öllu slíku. Fulltrúar kommún- ista stjórnuðu þeim, en flokkur- inn sem slíkur þóttist þar hvergi nærri koma. Ríkisstjómin var veik og treystist ekki til að reisa rönd við ófögnuðinum, en hvarf að því ráði að miðla málum og sernja um verulegar kjarabætur frá því, sem ákveðið hafði verið milli vinnuveitenda og verka- manna“. Þegar ,.flokkur allra stétta“ talar hér um að smáskæruhenað- urinn við höfnina" hafi hafjzt eftir að aðilar höfðu gert samn- inga, hlýtur hann að eiga við að ,,gerðardómslögin“ frægu hafi verið slíkir samningar, því verka- [ menn og vinnuveitendur höfðu I um nokkurra njánaða skeið ekki átt kost á að semja, gerðardóms- lögin bönnuðu þeim það. og það voru þessi lög sem féllu fyrir vopnum skæruliðanna við höfn- ina, en engir samningar milli verkamanna og vinnuveitenda, En þetta var nú bara skýring, og gott er að vita hvað Vísir kallar samninga, og fær nú blað Sjálfstæðisflokksins orðið aftur: „Gríman féll af smetti kommúnista“ „Þegar hér var komið málum féll gríman af smetti kommún- ista og stærði Þjóðviljinn sig af því að fyrir forgöngu flokksins hefðu kjarabæturnar hafzt fram, þótt blaðið hefði meðan á deil- unni stóð afneitað því oft og mörgum sinnum að það styrkti málstað verkfallsmanna á nokk- urn hátt. Hér í blaðinu var bent á að með þessu væri verkamönn- um ger bjamargreiði með því að óvandaður kynni eftirleikurinn að reynast. og ef gerðir samning- ar væru ekki haldnir af öðrum aðilanum, væri heldur ekki við því að búast, að hinn teldi sig bundinn. við þá og gæti þá gold- ið í sömu mynt ef með þyrfti“. Verkamenn „gera sér leik að því að svíkja samninga“ „Þeim mun óafsakanlegra var allt þetta framferði, sem vinnu- löggjöfin mátti heita nýgengin í gildi, en hún byggist fyrst og fremst á því að ábyrgir aðilar eigi hlut að málum. sem .standi við gerða samninga, en geri sér á ehgan hátt leik að því að 'svíkja þá við fyrsta tækifæri sem býðst, einkum ef svikin geta bitnað harkalega á öllum almenn- ingi, og líkurnar fyrir happasæl- um málalokum því meiri en ella fyrir þann er samninga rýfur“. „Varla í mál takandi að gera samninga við verka- menn“ „Svo lágt lögðust kommúnist- ar þó og var þeim það samboðið, en hinsvegar var blettur settur á verkamannastéttina í landinu, og hannsvo dökkur að vart var tak- andi í mál, ef miðað var við slíka reynslu, að gera við hana nokk- ura samninga, nema því aðeins að tryggt væri jafnframt að sið- leysi kommúnista gætti þar ekki á eftir, þannig að rift yrði á ó- löglegan og óverjandi hátt gerð- um samningum“, / „Verkamenn töldn skoeru- hernaðinn smánarblett“ „Fullyrða má að verkamenn litu almennt svo á að hér væri um smánarlegt athæfi að ræða. en með því að umræður voru látnar njður falla um málið, komu viðhorf" þeirra ekki svo ljóst fram sem skyldi. Hinsvegar er það kunnugt að verkamenn telja það ekki til vegsauka að gengið sé á gerða samninga og I brotið í bága við allan drengskap, | svo sem kommúnistar létu sér I sæma að þessu .sinni. Slík samn- ingsrof af hálfu kommúnista ættu í rauninni að útiloka með öllu nokkura samningsgerð milli vinnuveitenda og verkamanna, ef kommúnistar hafa forystu af hálfu hinna síðarnefndu. Má þó segja að ekki sé rétt að láta svik- semi kommúnista bitna á verka- mönnum, en linkindin getur verið of mikil og undansiátturinn of á- byrgðarlaus", Engin frambærileg rök fyrir kauphækkun „Afurðasölusamningar hafa ný lega verið gerðir milli íslenzkra stjórnarvalda annarsvegar. en Breta og Bandaríkjanna hinsveg- ar, og verður verðlag allt óbreytt frá því, sem áður var. Nú heimta kommúnistar kauphækk- un verkamönnum til handa, án þess að færa nokkur frambæri- ieg rök fyrir málstað sínum önn- ur en þau, að verkalýðsfélag hér í nágrenninu sé betri kjara að- njótandi, en félagsmenn í Dags- brún“. Samanburður á kjörum verkamanna og kjörum annarra stétta — ef nauð- syn krefur — en fyrr ekki „Jafnframt berja þeir lóminn og láta heita svo, sem verkamenn beri ekki jafnt úr bítum og aðr- ar stéttir, en þar er ekki nema hálfsögð saga og auðvelt að gera samanburð á hvaða tíma sem er og er þá óvíst um hvað uppi verður á teningnum. Þetta skal verða gert ef nauðsyn krefur, en fyrr ekki, Hitt er víst að hafi verið kreppt að greiðslugetu at- vinpuveganna á síðasta ári, verð- ur það enn frekar nú. Atvinna verður minni og stopulli og verð- gildi eða kaupmáttur krónunnar fellur að sama skapi og verðbólg an eykst. Kjarabæturnar — aur- arnir — sem verkamenn fá verða þeim lítils virði, og allt það fé sem þjóðin hefur aflað rýrnar að sama skapi og verðþennslan eykst. Bitnar það ekki sízt á verkamönnum. Hitt er víst að kommúnistarnir kunna að græða. — en þeir græða þá aðeins á hruni og öngþveiti,“ Hví ekki að bera saman kjör verkamanna og Claessens? Oss finnst rétt að gera það, getið þér, kæru stéttarbræður við Vísi ekki fallizt á það? Eru samningarnir þáttur í svikavef og siðlausri brigðmælgi? „Samningar hafa tekizt, en verða þeir enn einn þáttur i svikavef og siðlausri brigðmælgi kommúnista, — höfuðfjand- manna íslenzks verkalýðs og al- þjóðar? Það sannast á sínum tíma“. Svo mælti „flokkur allra sétta“ Vér höfum hér rneð birt leiðara Vísis um Dagsbrúnarsamningana | í heild. Vér væntum að „flokkur j SíðastliÖinn mánudag í'lutti ég í neðri deild Alþing- is ræðu, í tilefni af tillögu hæstvirtrar ríkisstjórnar um aö vísa svohljóðandi þingsá- lyktunartillögu til ríkisstjórri- arinnar: „Aiþingi ályktar að kjósa 5 manna nefnd til þess aö annast undirbúning hátíðar á Þingvöllum og víðar 1T. júni 1944 vegna gildistöku lýðveld isskrár íslands þann dag. Kostnaður við störf nefndar- innar greiðist úr ríkissjóði“. Ræð'a mín var einkum flutt sem andsvar við ræðu hátt- virts 6. þingmanns Reykvík- inga Bjarna Benediktssonar, er talaði næstur á undan mér. Forseti sameinaðs Alþingis, herra Gísli Sveinsson, fann á- stæöu til að víta mig af for- setastóli fyrir ræöu þessa, og neitaði naér um orðið, sem ég þó átti fullan rétt á aö þing- sköpum, er ég vildi bera af mér sakir. Ræða mín birtist hér orð- rétt og stafrétt eins og hún er skráð af þingskrifurum, ég hef ekki notaö mér þann rétt að færa til betra máls, þar sem miður er orðað en skyldi. þar sem ræðan var flutt sem svar án undirbúnings og blaðalaust. Einnig eru hér birtir ávítur forseta eftir sömu heimildum. Eg læt svo lesendur um aö dæma hvort ég hef flutt hneykslanlega ræöu, eðahvort sameinað Alþingi hefur hneykslanlegan forseta. S. A. S. Herra forseti! Háttvirtur 6. þingmaö'ur Reykvíkinga hóf sitt mál á því að lýsa yfir, að sig undraöi sá þytur, sem fram hefði komiö út af til- lögu hæstvirts forsætisráö- herra, umaðvísaþessariþings- ályktunartillögu til ríkisstjórn arinnar. Eg get ekki tekið þátt í þessari undrun þessa háttvirts þingmanns, því að mér finnst mikiö tilefni til þess, að nokkur þytur skapist út af svo furðulegri tiliögu. Og vitanlega er þaö með þeim tíðindum, sem margur maður mundi láta segja sér oftar en einu sinni, að þingsályktunar- tillagan, sem flutt er af 13 þingmönnum, fái þá meöferö á hæstvirtu Alþingi, að hún sé afgreidd með þeim einfalda hætti aö vísa henni frá til ríkisstjórnarinnar. En við skulum nú athuga efnishlið þessa máls nánar. Hv. 6. þm. Reykv. hélt því allra stétta“ sé oss þakklátur og geri sér ljóst að fyrirsagnir vor- ar og skýringar eru til stórra bóta. fram, að meö þessari meðferö, að vísa þáltill. til ríkisstjórnar innar, væri bókstaflega öllu náð, sem fram á væri farið í þáltill., því að till. fjallaði eiginlega um það eitt að skora á hæstv. ríkisstjórn að verja fé til hátíöahalda á Þingvöllum ogvíðarísamibandi við stofnun lýðveldis á ís- landi. — Eg verð að segja það, aö ég er dálítið hissa á þess- um málflutningi, einmitt frá þessum hv. þm., sem ég hef annars reynt, að væri enginn undirhyggjumaður, heldur ær legur í málsmeöferö og svo skýr, að yfirleitt vefðist þaö ekki fyrir honum að skýra einföldustu hluti. Hver, sem les þessa þálthi., gerir sér Ijóst, að aöalatriði hennar felst í þessum orðum, sem ég vil lesa, með leyfi hæstv. for seta, að nefndin, sem þáltill. leggur til, að skipuð verði. á að „annast undirbúning há- tíðahalda á Þingvöllum ogvíð- ar 17. júní 1944 vegna gildis- töku lýðveldisstjórnarskrár ís- lands þann dag“, Þetta er mergur málsins, aö í þáltiil. lýsir Alþ. því yfir, aö lýöveld- isstjórnarskráin taki gildi 17. júní 1944. Og það þarf eng- um blööum um þaö að fletta, aö sú till., semhæstv.forsætisr. kom fram meö, er komin fram vegna samninga, sem geröir hafa verið bak við tjöldin, um það, aö Alþ. skuli ekkert samþ., sem bendi til þess, að lýðveldisstjórnarskrá- in taki gildi 17. júní 1944. Það er þetta, sem hér er um að ræöa fyrst og fremst, en ekki heimild til þess að verja fé til hátíðahalda. Það er þetta, sem nokkur þytur er út af, hvort þaö eigi einnig aö hverfa úr þessari þáltill., aö Alþ. ætlist til þess, að lýðveld- isstjórnarskráin taki gildi á- kveöinn dag. Eg get ekki komizt hjá því að fara nokkuö aftur í tím- ann til þess að gera grein fyrir því, hvers vegna. ég álít eölilegt, að nokkur þytur fari um þingsalinn, þegar þetta kemur fram. Og þá er þess fyrst að minnast, að 8. apríl s. 1; ár var undirskrifaö hér í Alþingishúsinu samkomulag fulltrúa frá öllum stjórnmála- flokkum um frv. aö lýðveidis- stjórnarskrá og um gildistöku hennar. Allir þessir fulltrúar allra þingflokkanna voru þá sammála um aö leggja til, aö lýðveldisstjórnarskráin skyldi taka gildi eigi síðar en 17. júní 1944. Og oröalagið „eigi síðar en 17. júní“ var notað af vfir- lögðu ráði, því aö þaö var Framh. á 8 síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.