Þjóðviljinn - 24.02.1944, Blaðsíða 8
NtáA BtÓ
Os® borgfnnl
Nœtnriœknlr er I Læknavaröstöð
Reykjavíkur í Austurbæjarskólan-
om, sími 5030.
Ljósatími ökutœkja er frá ld. 5.45 að
kvöldi til kl. 7.40 að morgni.
ÚTVARPIÐ í DAG.
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórarinn Guð-
mundsson stjórnar: a) Raymond-for-
leikurinn eftir Tliomas. b) „Einn
dagul í Feneyjum“ eftir Nevin. c)
Vals eftir Mackebn. d) Mars eftir
Heinecke.
20.50 Frá útlönduiri (Jón Magnússon).
21.10 Hljómplötur: Lög leikiu á cello.
21.15 Lestur Islendingasagna (dr. Einar Ol.
Sveinsson).
21.40 Hljómplötur: Islenzk lög.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir Vopn guð-
anna kl. 8 í kvöld. -— Aðgöugumiðasalan
er opin frá kl. 2 í dag.
'
Arshátíð Bifreiðastjórafélagsins Ureyfill
verður haldin í Oddfellowhúsinu sunnudag-
inn 28. þ. m. og hefst kl. 10 e. h. — Að-
göngumiðar verða seldir eftir hádegi í dag
á Bifreiðastöðinni Hreyfill og Litlu bíla-
stöðinni. Skemmtinefndin.
Skrifstofa ðlœdrastyrksnefndur, Þing-
holtsstræti 18, er opin á mánudögum,
þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtu-
dögum kl. 3—5. A fimmtudögum er lög-
fræðingur nefndarinnar, frú Auður Auðuns,
til viðtals. A föstudögum er opið kl. 5—7
og eru þá borgaðir reikningar. Mánudags-
kvöld kl. 8—10 er Laufey Valdimarsdóttir
til viðtals, og á miðvikudagskvöldum kl.
8—10 Katrín Pálsdóttir.
\
Heilbrigt líf
Framh.af 3. síöu
í tímaritinu eru m. a. þessar
greinar:
Berklavarnir eftir Sig. Sigurðs-
son berklayfirlækni, Hættur kyn-
þroskaáranna eftir H. Guðmunds-
son húð- og kynsjúkdómalækni,
Lesið í bolla eftir Pálma Hannes-
son rektor, Ritstjóraspjall eftir dr.
Gunnlaug Claessen ritstjóra tíma-
ritsins, íþróttir og heilsuvernd eft-
ir dr. Halldór Hansen, Læknishjálp
á vígstöðvunum eftir dr. med. Karl
Kroner, íslenzkt heilsufar, Heil-
birgðisskýrslur 1940, samdar af
landlækni, Ársskýrsla R. K. í. 1942
og fleira.
Verklýðsfélfigin f Húsavlk
fylgjandi lýðveldisstofn-
un 17. júnf
Á sameiginlegum fundi
Verkamannafélags Húsavíkur
og Verkakvennafélagsins Von
í Húsavík var samþykkt eftir-
farandi ályktun í sjálfstspöis-
málinu:
„Sameiginlegur fundur
Verkamannafélags Húsavíkur
og Verkakvennafélagsins Von
í Húsavík, haldinn 21. febrúar
1944,- lýsir sig eindregið fylgj-
andi stofnun lýðveldis á ís-
landi eigi síðar en 17. júní
1944 og verði forseti lýðveldis-
ins kosinn af þjóðinni sjálfri“.
Samþykkt með dynjandi
lófataki. | f
FRÉTTÁItlTRÁI. í
l
Hneykslaniegur forseti
Framh.af 3. síðu
samkomulag, að konungssam
band yrði ekki tekið aftur
upp við Dani eöa utanríkis-
málin seld í hendur Dönum á
ný. «
En það kom i ljós furöU
fljótt, að einn þein-a, er und-
irskrifaði þetta samkomulag
hvarf fljótlega frá því. Menn
mega kalla það hvað þeir
vilja, en allir vita hvað það
heitir á íslenzku máli að
ganga frá gerðu samkomulagi.
hetta varð mönnum yfirleátt
hryggöarefni.
Næst geröist þaö svo, að 3
þingflokkar, er stóðu saman
aö lýðveldismálinu, gerðu meö
sér samkomulag 30. nóvember
s. l. um að standa fast á á-
kvörðunum frá 8. apríl, þ. e.
að hér yrði stofnað lýðveldi
eigi síðar en 17. júní 1944.
Þessir 3 flokkar kusu svo 9
manna nefnd til aö vinna að
undirbúningi þessa máls fyr- j
ir næsta þing, er samþ. var
aö kæmi saman 10. janúar til
þess aö ganga frá þessum
málum. Auk þess skipuöu
þessir flokkar 3ja manna full-
trúaráð til að vinna eins að
þessum undibúningi.
Síðan eru teknir upp samn-
ingar við þann eina mann, er
brugðizt hafði samkomulag-
inu frá 8. apríl, og þvert ofan
í samkomulag 3ja flokkanna,
sem ekki var hægt að breyta
nema með samþykki þeirra
alh-a, var ákvæðiö um 17,
júní tekið út úr stjskr. Þetta
em brigö á samningnum frá
30. nóvember, og er raunalegt
tii þess að vita, Hvers vegna
er þetta gert? Ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins, hv. þm. Gull-
br. og hv.. þm. Str. sögöu þá
að þaö skyldi eigi aö síður
tryggt, að lýðveldi yrði stofn-
aö hér eigi síðar en 17. júní,
og til þéss að sanna þetta
fylgdu þeir þeirri þál., sem
hér er til umræðu. En rétt
eins og þeir hafi brennt sig á
fingmnum kippa þeir að sér
hendinni og vilja nú forðast
þessa samþykkt Alþ.
Hvaö er hér á ferðinni?
Hvaöa spor verður stigiö
næst?
Hver er tryggingin fyrir því
að lýðveldiö verði stofnað eigi
síöar en 17. júní?
Eg heyrði hv. 6. þm. Reykv.
segja hér, aö hann væri með
því aö þetta yrði ekki dregið
lengur en til þessa umsamda
dags, og mér dettur ekki 1
hug að væna hann um fais í
málinu, ég veit að það er
hans einlægt áhugamál .
En hvers vegrta er þá verið
áð þurrka þessa dagsetningu
út úr stjskr. og þessari þál.?
Er þaö ekki til að halda dyr-
unum opnum fjrrir nýjum
brigðum. Eg tek skýrt fram,
aö ég væni hv. 6. þm. Reykv.
ekki um slíkt, en ég væni hv.
þm. Gullbr. um það, og vænti
ég þess að hann megi heyra
mál mitt. Eg trúi honum til
að beygja af stig af stigj í
öllum þessum málum og
fylgja því aö lýðveldisstofnun
yrði di’egin lengur en til 17.
júní, ef svo byði við að horfa _
Og mér þykir rétt að rök-
étyöja það, hvers vegna ég
væni hann um brigð og eins
hv. þm. Str.
P. Herm.: „Þetta er óprest-
lega mælt“.
Eg væni þá um brigð af þvi
þeir beittu sér fyrir að rjúfa
gert samkomulag 3ja flokk-
anna og af því hvernig hv.
þm. Gullbr. og hv. 2. þm. S-
Múl. hafa lýst orðheldni -og
trúleik hvors annars í stjóm-
arsamstarfinu. Eg hef líka
lesið blaðaskrif hv. þm. Gull-
br. og hv. þm. Str. um sömu
éfni, og eftir þessar ræður og
skri f þá verð ég aö segja að
ég treysti hvorugum, því mið-
ur, hvort sem það þykir ó-
prestlega mælt eða ekki. Og
þegar þeir geta beitt sér fyrir
að brigð séu gerð í alvarleg-
asta og örlagaríkasta máli
þjóöarinnar, þá óttast ég aö
þeir gangi alltaf lengra og
lengra frá geröu samkomu-
lagi, og ég treysti þeim ekki
til aö standa viö aö fylgja
lýðveldisstofnun hér eigi síðar
en 17 . júní í vor.
Gísli Sveinsson (forseti):
Hv. þm., sá er síðast talaði
hér, hefur viðhaft óviðeigandi
ummæli, og skal því lýst yfu
úr þessu sæti.
Kristján Einarsson
Framhald af 1. síðu
vikningar hans, þá leyfir fund-
urinn sér að fara þess á leit
við háttvii’ta stjóm og fram-
kvæmdarstjórn Síldarverk-
smiöja ííkisins að þessir aðil-
ar endurskoði afstöðu sína
gagnvart téðum Kristjáni Ein-
arssyni og feli honum verk-
stjórastarfið hér áfram“.
Kaupum fusfeör
allar tegundír, hæsta veröi
HÚSGAGNÁVINNUSTOFAN
Baldursgötu 30.
VERKAMENN!
Gerizt áskrifendur
að ÞjcðviljanuKn.
" TJA«NA» Btð______
Casablanca
Spennaætdi leikur um fiótta-
fólk, njósnir og ástir.
Humphrey Bogart,
Ingrid Bergman,
Paul Ilendreid,
Claude Bains,
Conrad Veidt,
Peter Lorre.
Sýnd kl. 7 og
Sýniug kl. 5.
SMÁMYNDIR
m. a,
íslendingar í Kanada,
(litmynd með íslenzku
tali)
Rafmagnið og sveitimar
(amerísk mynd með ís-
lenzku tali)
Kanadaherinn á íslandi
1940
jDansíon dunar!
:
i („Time out foc Rhytíim“),
5 RUDY VALLY
; ANN MILLER.
Í ROSEMARY LANE.
Sýnd kl. 9.
* ——|
\ HETJUR Á HESTBAKI
• („Ride, Tenderfoot, Ride“)
• „Cowboy“ söngvamynd með
Gene Autry
: Sýnd kl. 5 og 7
• Sala hefst kl. 11, f. h.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••<*•♦
WJVJVJ%V^WWVWUVJVWWUVS
KAUPIÐ
ÞJÓÐVILJANN
Eflíng skípastólsíns
Framhald af 1. síðu.
eignast, nieð peningagjöfum. Enn
þá liggja að vísu engar ábyggileg-
ar heimildir fyrir um möguleika á
skipakaupum í Svíþjóð né hvaða
verð yrði á skipuru þaðan. en ein-
mitt vegna þess, að óvíst er um
verð skipanna, teljum við með öllu
óráðlegt að fara að ákveða um
styrki til kaupanna.
Við Iítum svo á, að þeirn 5 millj.
króna, sem Alþingi veitti til skipa-
kaupa, beri að ráðstafa á þann
hátt, að sem mestu gagni komi til
eflingar fiskiskipaflotanum, en
slíkt verður ekki gert með því að
eyða ölli: fénu í gjafir.
Við leggjum því til, að fénu verði
fyrst og fremst varið til þess að
kaupa inn í landið fiskiskip, ef
hagstæð kaup eru fyrir hendi, og
verði þau skip seld þeim, sem þau
geta keypt, fullu verði, eftir á-
kveðnum reglum. í öðru lagi verði
féð lánað þeim, sem fullvíst er um,
að frekari lán þurfa en hinar al-
mennu lánsstofnanir veita, svo að
þeir geti eignazt skipin líka.
Samkv. okkar till. mundi féð
ekki eyðast strax, heldur geta ver-
ið til eflingar skipastólsins til fram
búðar.
I öðru lagi eruin við algerlega
inótfallnir því ákvæði frumv. meiri
hlutans, að einn maður, atvinnu-
málaráðherra, skuli eiga að hafa
svo til óskoraðan rétt til ráðstöf-
unar á fénu og það því fremur,
sem um beina styrki er að ræða.
Þó að lagt sé til, að Fiskifélag
íslands hafi rétt til að gera tillögur í
til ráðh. urn ráðstöfun fjárins, Jxi
leggjum við lítið upp úr því. Ilvoru
tveggja er, að Fiskifélag íslands
getur ekki enn sem koinið cr talizt
fullnægjaudi eða réttur aðili fyrir
alla þá, sem hér eiga mjög hlut að
rnáli, svo sem alla sjómannastétt-
ina, bæði yfirmenn og háseta, og
svo er hitt, að sainkv. frv. hefur
það aðeins tillögurétt, en ráðherr-
ann hefur einn allt valdið. I frv.
okkar er lagt til, að sérstök 5
manna nefnd hafi með ráðstöfun
fjárins að gera og að í þeirri nefnd
séu fulltrúar þeirra aðila, sem hér
eiga mestra hagsmuna að gæta.
Þannig leggjum við til, að einn
nefndarmanna verði tilnefndur af
Alþýðusambandinu sem fulltrúi
hinna ófaglærðu sjómanna, einn
tilnefndur af Farmanna- og fiski-
mannasambandi Islands sem full-
trúi yfirmanna á fiskiskipum og
einn frá Fiskifélagi íslánds sem
fulltrúi útgerðarmanna.
Við sjáum ekki ástæðu til, að
svo vöxnu máli, að fara fleiri orð-
uin um frv. meiri hl. nefndarinnar
og ekki heldur um það frv., er við
höfum lagt til, að nefndin sam-
þykki og hér fylgir með. Við vilj-
um þó taka fram, að við gætum
vel hugsað okkur að breyta ýms-
uin ákvæðum okkar frv. til sam-
komulags, en teljum, að í höfuð-
dráttum væri æskilegast að haga
meðferð fjárins eins og lagt er til
í frv. okkar.
Roosevelt tnæSir mót-
spyrnu frá flokki
sínom
Miklum tíðindum þótti sæta
í gær í Bandaríkjunum, er for-
maður Demokrata í öldunga-
deild þingsins sagði af sér þeirri
stöðu til að mótmæla því, að
Roosevelt hefur neitað að und-
irskrifa hin nýju skattalög
þingsins.
Forsetinn hefur algjört neit-
unarvald, og hefur oft komið
fyrir áður að í odda hafi skor-
izt milli Roosevelts og þings-
ins, en vanalega hafa málin
verið útkljáð með málamiðlun.
r
Ikvífenun
Síödegis í gær kviknaöi í
húsinu Staðarhóll viö Lang-
holtsveg.
Kviknaði í gluggatjöldum,
út frá rafofni. Skemmdir uröu
litlar og var búiö áö slökkva
eldinn þegar slökkviliðið kom
á staöinn.
Hringið í síma
2184 og gerizt á-
skrifendur
RÉTTAR
/