Þjóðviljinn - 31.03.1944, Side 2

Þjóðviljinn - 31.03.1944, Side 2
Þ J ÓÐVILJINN Föstudagur 31. marz 1944. arwttHnHki & napwttk Íþróttahátíð K. R. K. R.-iugar héldu myndarlega í- þróttahátíð, í íþróttahöll ameríska setuliðsins, s. 1. sunnudag. Um slíkt er að vísu gott eitt að segja, en ýmsir munu nú minnast þess, að eitt sinn gátu reykvískir íþrótta- menn vegna þjóðarmetnaðar síns, ekki tekið þátt í hlaupa-keppni á millivegalengduni, sem þcim var boðin þátttaka í af Bretum, skömmu eftir hernámið. Annaðhvort er, að nú hefur þjóð armetnaður íþróttamanna vorra orðið að þoka, eða að farið hefur hér, sem svo oft fyrr, að „neyðin kenni naktri kónu að spinna“. Að skortur á viðunandi húsakynnum til slíkrar sýningar, sem þessarar, hefur knúið íþróttamennina til að leita í þeim sökum á náðir hers- ins. Þetta er holl áminning, um að bæta, sem fyrst, úr því vandamáli, að við eigum ekkert íþróttahús, þar sem hægt er að halda íþrótta- sýningar, svo að viðunandi sé. Stærsta íþróttahús bæjarins rúmar ekki nema takmarkaðan hluta þeirra mörgu, sem vilja vera áhorfendur að slíkum sýningum. Umrædd íþróttahátíð K. R. tókst mjög vel og er bæði félaginu og reykvískum íþróttamönnum til sóma. Áhorfendur að sýningunni voru um 1000. Ó. Þ. Hljóðlaus umferð Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur nýlega aðvarað bifreiða- stjóra sem keyra bifreiðar sínar hér innan bæjar um að þeyta ekki horn sín nema sérstaklcga standi á. Eins óg vera ber er það jafn- framt tilkynnt að rikt verði geng- ið eftir að breytt verði eftir þessu boðorði. Það er sízt vanþörf að brýna þetta fyrir bifreiðarstjórunum, því þó maður gæti hugsað sér, að sem afsökun fyrir sínum leiða horna- blæstri, bæru þeir fram ásökun á hendur Iögreglunni og bæjaryfir- völdunum, að umferðinni væri illa stjórnað og það væri látið líðast að þröngar götur væru gerðar að bílastæði, ennfremur að skipulagi gatna væri ábótavant; þá er það alrangt af bifreiðarstjórum að láta gremju sína, yfir þessu í ljós með óþarfa hornablæstri, sem eingöngu bitnar á saklausum vegfarendtim. Hávaði að næturlagi Þá er í þessari sömu aðvörun lögreglustjórans skorað á fólk sem ekki hefur svefnfrið um, nætur vegna hávaða í bifreiðum, að gera iógregiunm aðvart og láta hcnni í té númer bifreiðar þeirrar er há- vaðanum olli, og aðrar upplýsing- ar er þurfa þykir. Slæm prentvilla Prentvillupúkinn hljóp heldur ó- tugtarlega í Bæjarpóstinn í gær. Undir bréfi um heimsóknartíma í sjúkrahúsum átti að standa „ferðamaður“ en elcki „gúttógest- ur“ eins og prentvillupúkinn kom inn á síðuna með einhverjum ó- skiljanlegum klækjabrögðum. Þar sem órannsakað er hvort þessi „ferðamaður“ sem ritaði greinina, hefur nokkurntíman kom ið í Gúttó leiðréttir Bæjarpóstur- inn þetta hér með, og heitir því að láta púka skrattann ekki leika svona á sig næst, þegar Bas,jar- pósturinn birtir bréf frá „ferða- manni“. Málverkasýning Þ>að hefur komið fyrir að lista- menn hér heima hafa verið óá- nægðir. með verk frístundamálar- anna er þeir hafa komið fram með þau opinberlega og stundum hafa fýrrnefndir látið skoðanir sínar hér að lútandi í ljósi með fullri ein- urð og hispursleysi. Þetta er auð- vitað ágætt bæði vegna þess að nauðsynlegt er að gerður sé grein- armunur á góðu og lélegu, en engu síður vegna þess að meta ber að verðleikum það starf og þá elju er þarf til þess að ná árangri í list- inni. Þrátt fyrir þetta verður að gæta þess að ekki er útilokað að menn, sem ekki stunda listina sem aðalstarf geti sýnt alvarlega og ein læga viðleitni á listasviðinu. Málverkasýning Benedikts Guð- mundssonar er ekki einungis sú langbezta er ólærður málari hefur haldið hér á landi, heldur og ein sú athyglisverðasta er haldin hefur verið hér upp á síðkastið. Þrátt fyrir ýmsa galla, ber hún vitni um ótvíræða hæfileika málarans og að hann hefur orðið snortinn af mörg um þeim lífshræringum sem nú eiga sér stað í myndlistinni. Það er líf í þessum myndum og glímt við margt, sízt af öllu er sýning- in leiðinleg. Byggingu og niður- röðun lína og forma er í mörgu ábótavant, myndbyggingin er stundum vanhugsuð, verkar stund- um óþægilega, en litameðferð er oft sérkennileg og falleg, dökkar línur, — afmarkaðir litafletir, í senn þægilegt og sterkt. Áferð myndanna er oft skemmtileg, mál- arinn hefur tilfinningu fyrir mögu leikum litarins sem efnis, engu síð- ur en litar. Upphengingu myndanna er ábóta vant, og er það skaði, því margar þeirra myndu njóta sín betur í meira innbyrðis samræmi. En það er sérstök list að hengja myndir á vegg svo vel fari — og það er ekki eins auðvelt og margir halda. Þessi sýning er sem heild eftir- tektarverð ekki sízt vegna þess að hún er í mörgu mjög í samræmi við þá viðleitni sem nú er uppi meðal myndlistamanna víða í öðrum löndum. # Akránessferðimar Það hefur verið furðu hljótt í blöðum hér um ferðirnar á milli Akraness og Reykjavíkur þrátt fyrir sleifarlag j>að sem þar hefur á verið í seinni tíð eða að^ mestu frá áramótum 1942—’4I3. Á þeim tíma sem m.s. Fagranes hafði ferðirnar eða til hausts 1942 hafði skapazi það öryggi um þessar ferð- ir, að því mátti treysta að fylgt væri áætlun að-öllu leyti ef veð- ur leyfði. Eftir að Fagranes hætti tók Skipaútgerð ríkisins að sár þessar ferðir og hefur haft þær síðan og haft í• þær ferðir leigu- skip. Fyrst í stað eða til ársloka 1942 var m.b. Sjöfn á Akranesi í þeim ferðum og var þá fylgt sömu reglu og verið hafði. En eftir að m.b. Sjöfn hætti ferðum lim áramót 1942—’43 þá var úti um 'öryggi ferðanna. Það mátti víst heita undantekning, ef hægt var að treysta á ferðirnar í fyrravetur og jafnvel allt þar til m.s. Hólmsberg tók við þeim í júní s.l.; eftir það munu ferðir hafa verið viðúnandi þar til eftir Laxfossstrandið í vet- ur; en síðan hefur verið það ólag þar á, að ekki er viðunandi. Það var í vctur snemma tekin upp sú regla að skijiið fór úr Reykjavík kl. 11 f. h. á mánu- dögum, miðvikud., föstud. og laug- ard., cn burtferð af Akranesi kl. 3 e. h. sömu daga; í sambandi við þessar fcrðir voru ferðir mjólk- urbíla í svcitir utan Skarðsheiðár af Akranesi kl. 10 f. h. á tveim Ieiðum, að Belgholtsvegi í Mela- FaslelgnelgsndalMð illl líla Inn- halnila heimOaglaið felí hierlum Það vildi láta leigjendur greFa heimæða- gjaldskostnaðinn á 5 árum Stjórn Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur hefur sent blöðunum langa greinargerð fyrir þeim vilja hús- eigenda, að heimæðagjald hitaveitunnar sé ekki inn- heimt hjá húseigendum, heldur hjá sérhverjum not- anda heita vatnsins. „Fór stjóm félagsins fram á það við húsaleigunefnd, að hún heimilaði húseigendum, að jafna öllu heimæðagjaldinu hlutfallslega niður á alla leigu t|ka húsanna, á lengsta lög- leyfða greiðslutímabili heim- æðagjaldsins, 5 árum.“ Húsaleigunefnd varð ekki við vilja húseigenda hvað þetta snertír, en „féllst þó á að heim sveit og Ferstiklu á Hvalfjarðar- strönd og til baka frá þeim stöð- um að lokinni afgreiðslu. Nú fór svo fram um hrí^ eða þar til í byrjun febrúar, þa var áætlunar- ferð mjólkurbíla á laugardögum- felld niður. Um svipað leyti fór m.s. Hólmsberg að hafa Borgar- nessferðir að nokkru á þeim dög- um, sem áður voru ákveðnir í sambandi við mjólkurflutninga úr sveitinni, eða föstudaga, mcð við- komu á Akranesi á leið til Borgar- ness, en mjög óvíst um viðkomu i bakaleið, og nokkru síðar var ákveðið að það skyldi ekki hafa viðkomu á Akranes á leið til Reykjavíkur á þeim dögum, og þar af leiðandi mjólk sú, er á Akranes kom á föstudögum, færi ekki til Reykjavíkur fyrr en á laugardag, í stað þess að áður var mjólkin send suður samdægurs. Þegar svo var komið þá hófust aftur bílferðir á laugardögum. Nú munhig lýsa hvern veg gekk með ferðir á föstudag síðast til mánudags. Á föstudag fór Hólms- berg til Borgarness að morgni. í slæmu veðri og versnandi, me.ð þeim afleiðingum, að skipið fór ekki úr Borgarnesi fyrr en að morgni á laugardag, kom það þá við á Akranesi fyrir hádegi, en þar sem áætlun skipsins var að fara af Akranesi kl. 3 e. m. á laug- ardaginn þá voru margir farþegar staddir á Akranesi, sem ætluðu suður, sem ekki vissu af fcrSinn; og ennfremur voru mjólkurbílarn- ir í ferð að sækja rnjólk, sem vit- anlega várð einnig eftir til mánu- dags, -sem var næsta ferð sem fá- anlcg var. Á mánudag kom svo Hólmsberg á Akranes kl. næst'um því 1 e.. h., fullhlaðið af vörum, sem átti að afferma, og svo að taka aftur farm á Akranesi sem var að mestu leyti mjólk, á 2 klst., sem vitanlega ekki var hægt, énda fór svo, að kl. var 5% jægar skipið fór af Akranesi í stað kl. 3. Þegar ákveð- inn burtfarartími skipsins var kominn kl. 3 var kominn rnikill fjöldi fólks niður að skipi, ca. 5—6 tugir, sem svo urðu að bíða á bryggjunni í 2]/2 klst. og var þá margur orðinn óþolinmóður, sem von var. Að sjðustu vil ég taka það fram, að skipstjórinn á m.s. Hólmsberg mun ekki eiga að neinu leyti sök á því sem ég hef gert hér að um- talsefni. P.t. Reykjavík, 28. marz 1944. Þ. S. ilt væri að hækka húsaleiguna mn ákveðinn hundraðshluta — 9% — af heimæðagjaldinu, er jafna mætti framvegis árlega hlutfallslega niður á alla greidda húsaleigu í húsinu.“ t greinargerð Fasteignaeigenda- félagsins segir m. a. svo : „Félagsstjórnin h cfur frá upp- hafi beitt áhrifavaldi sínu fyrir því, að fá því til leiðar komið að afnotagjaldið væri innheimt hjá sérhverjum notenda þess, en ekki aðeins hjá húseigendum. Stjórnin taldi og telur enn óviðunandi fyr- ir lniseigendur að hlýta sltku inn- heimtufyrirkomulagi og algerlega óverjandi af bæjaryfirvöldunum, að leggja slíka vinnukvöð sem ó- hjákvæmilega hlýtur að fylgja tals verð fjárhagsleg ábyrgð á herðar húseigenda. Hér er og um hættu- legt fordæmi að ræða, að velta all tímafreku og víðtæku innheimtu- starfi ákveðinnar bæjarstofn- unar, — og í því sambandi sltila- og greiðsluábyrgð á jjárhœðum, sem fljótlega munu nema milljón- um króna, — yfir á herðar aðeins lítils hluta (sennilega um 30%) heitavatnsnotenda, þ. e. húseig- endur. Næsta skrefið yrði senni- lega að krefjast þess, að húseig- endur innheimtu t. d. útsvör leigu- taka þeirra og bæru auk þess á- byrgð á greiðslu þeirra. Félagsstjórnin telur sjálfsagt, cnda ekki aðeins eðlilegt heldur beinlínis nauðsynlegt, að afnota- gjald heitavatnsins verði innheimt hjá sérhverjum notenda þess, en ekki beint hjá húseigendum“. Leiðrétting Ég get ekki látið l>að ógjört að leiðrétta þá leiðu villu í Þjóðvilj- anum frá 29. marz, þar sem ég er talinn vera endurkosinn í stjórn — gjaldkeri — Árnesingafélagsins. Maður sá, er þetta sæti skipar, tel ég alveg vafalaust vcra nafna minn Þórð Jónsson frá Stbkkseyri. Þenna heiður, að skipa þetta sæti í stjórn Árnesingafélagsins, vil ég með engu inóti ræna af nafna mínum og góðvini. Ég hef um margra ára skeið kennt mig við Eyrarbakka, til þcss að forðast þrálát misgrip á okkur nöfnunum og þvo þar mcð þenna nafna minn hreinan, þar sem hann er hið mesta prúðmenni, en ég mjög stórlyndur og því átt í ýmsum erjum af þeim sökum. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Þórður Jónsson frá Eyrarbaklca. Jekobsson I Dauðinn er eins og óboðinn gestur, sem enginn dekkar fyrirr en setzt þó til borðs án þess við fáum við ráðið. Við vitum að sönnu að þessari heimsókn verður ekki afstýrt, samt er hún alltaf ný, alltaf jafn sár. Þó orð hafi enga þýðingu í þessu sambandi, þá langar menn til að segja þau um vini, sem í valinn faila. Sigurður er fæddur 30. sept. 1910 dáinn 23. mai-z 1944. Foreldrar hans voru Þuríður Björnsdóttir frá Snotrunesi í Borgarfirði eystra og Jakob Sigurðsson frá Unaósi í Hjaltastaðaþinghá. Ungur fluttist Sigurður hingað til Reykjavíkur, með foreldrum sínum, en þó 'dvald ist hann um skeið á Snotrunesi, hjá móðurbróður sínum. Sigurður ólst ekki upp við neinar alsnægtir,, en móðir hans, eins og allar góðar mæður, mun hafa lagt honum drjúgan farareyri, þó ekki væri hún rík af fé. Sigurður var greindur vel eins og hann átti kyn til og hugur hans mun snemma hafa byrjað að marka sér braut. Það sýndi sig líka fljótt, að hann snéri sér ó- trauður að því, að skapa sér lífs- starf. Lár í lofti, með tvær hend- ur tómar, kom hann sér til tré- smíðanáms og laúk því. Eg man eftir hinni óþrjótandi elju hans við að útvega sér aukavinnu til að hafa fyrir brýnustu þörfum, með- an námið stóð yfir. Sigurður var kvæntur Kristínu Borghildi Thorarensen, ágætri konu, sem lifir mann sinn ásamt tveim börnum í æsku. Þau hjónin voru bæði samhent með það, að- skapa sér þann reit, sem heimili þeirra bar vott um. Árum saman átti Sigurður í iioggi við sjUiýuoiii þann, er <tð lok- um dró hann til bana og síðustu: árin var hann oft á sjúkrahúsi, eða óvinnufær. Þegar af honum bráði, stundaðí hann iðu sína langt fram yfir það, sem heilsan leyfði. Síðan hvert starfið af öðru, eft- ir því sem kraftarnir heníuðu til. Staðreyndir þjóðfélagsins tala kannski berast til lieilsulausra manna, sem hafa fyrir hcimili að sjá, þær staðreyndir að tilviljun ein ræður, hvað lífið réttir börn- unum, þegar heimilisfaðirinn fell- ur frá. * Engin orð græða þau sár sem dauðinn veitir, þess er lífið eitt megnugt, annars væri það fyrir löngu orðið sámherji dauðarys. Fyrir eitthvað 12 árum vorum við Sigurður staddir í kunningja- hópi. Þar vár meðal annars rætt Framh. á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.