Þjóðviljinn - 15.06.1944, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 15. júní 1944.
ÞJÓÐVILJINN
Carl Ewald:
KÓRALEYJAN.
Gamli kórallinn var ánægður. „Nú erum við tveir —
nú erum við þrír — “ sagði hann við sjálfan sig.
Hann sagði fyrsta kóralnum strax frá eynni og nýi
kórallinn var sammála. Þeim kom saman um að byggja
ey og þeir skutu nýjum og nýjum greinum. Seinast stóð
fagurt kóraltré á klöppinni. Greinarnar voru örmjóar.
Þær skutu út fíngerðum þráðum, sem iðuðu í vatninu
og drógu til sín næringu.
Einu sinni kom krossfiskur skríðandi. Hann nam
staðar og var öldungis forviða.
„Á þetta að heita þangtré, eða hvað?“ spurði hann.
„Eg er ekki þangtré. Eg er stjörnukórall“, sagði kór-
allinn.
„Nei, ert það þú. En hvað þú hefur breytzt. Eg
þekkti þig ekki“.
„Eg segi sama. Við höfum heldur ekki sézt sðan við
vorum börn. Nú er ég byrjaður á eynni“, sagði kórallinn.
Krossfiskurinn skellihló: „Nei, ertu alltaf sama barn-
ið. Þú hefur ekki orðið greindari með aldrinum. En
hvernig er þetta annars? Ekki er þetta allt saman ein
skepna“.
„Nei, við erum margir. Og okkur er alltaf að fjölga.
Við ætlum að byggja okkur ey“.
„Já, einmitt það“, sagði krossfiskurinn. „Það er svo
sem skiljanlegt, að þú hefðir ekki getað orðið að ey
aleinn. Kemur ykkur vel saman?“
„Prýðilega“, svaraði kórallinn. „Það er'ekki hægt
að hugsa sér samrýmdari fjölskyldu. Við stöndum sam-
an í blíðu og stríðu. Og þegar einn etur sig mettan,
þykir hinum vænt um það“,
„Það finnst mér ganga of langt“, sagði krossfiskur-
inn. „Þegar ég fse góðan bita sjálfur, er mér sama, hvort
aðrir fá nokkuð eðá ekki neitt“.
„Þú skilur mig ekki“, sagði kórallinn.
„Vertu sæll“, sagði krossfiskurinn. „Gangi þér vel
með eyna“.
Ameríkumaðurinn Barnum,
sem kallaður hefur verið aug-
lýsingakóngurinn og átti tíu
milljónir dollara þegar hann dó,
kvaðst eiga gróða sinn auglýs-
ingum að þakka. Hann sagði:
„Þeir, sem ‘segja að þeir hafi
ekki efni á að auglýsa, hafa
ekki efni á að vanrækia það.
Það er með auglýsingar eir>s
og menntun, of iíUð af hvort-
tveggja er hættulegt“. v
Franskur kaupsýslumaður seg
ir enn fremur: „Lesondi dag-
blaðsins tekur ekk> auglýsing-
unni í fyrsta sinn. Næst sér
hann hana en les ekki. í þriðja
sinn les hann hana. í fjorða
skiptið hugsar hann um verðið.
í fimmta skiptið segir haníl
konunni sinni- frá vörunni sfern
auglýst er. í sjötta skiptið fer
hann og kaupir hana“.‘
★
í New York var eillU sinr.i
ÞETEA
fyrir löngu síðan haldið upp-
boð á aðgöngumiðum að hljóm-
leikum frægrar söngkonu. Hatta
gerðarmaður nokkur bauð 225
dollara í fyrsta miðann og hlaut
hann. Þetta þótti flestum óðs
manns æði, en maðurinn gerði
þetta ekki út í bláinn. Morgun-
inn eftir fluttu blöðin þessa
fregn og næsta ár seldi hann
10.000 fleiri hatta en árið áður-
og endaði ævi sína sem miilj-
ónaeigandi.
★
•Surftathótelin í Aiftexíku hafa
oft ke.ppt um að vera sem ó-
líkftst hvert ÖÖru og finna
Stundum upp á ólíklegustu hlut
um til þess að vekja á sérí eft-
irtekt, og æsa forvitni ferða-
manna. í New Jersey er stórt
hótel, sem er í laginu eins og
fíll og herbergin því fáránleg
í lögun. Þar kvað vera mjög
I gestkvæmt.
María færði stólinn sinn, svo
að hún gat séð framan í son
sinn, meðan hann var að borða.
Hún brosti öðru hvoru en yrti
ekki á hann, því að Will vildi
ekki láta trufla sig, þegak hann
var að lesa blöðin. Gasloginn
suðaði veikt. Ofan af loftinu
heyrðist skipandi rödd Sophiu
og góðlátlegur hlátur Briggs.
Jonathan varð þyngra og
þyngra í skapi. Jafnvel Sophia
litla systir hans, sem honum
þótti svo vænt um, tók Brigg
fram yfir hann.
Það var eitthvað í blaðinu,
sem kom Will í versta skap.
Hann laut yfir það, fylgdi lín-
unum eftir með fingrunum og
varð rauðari og rauðari í fram-
an, því lengur, sem hann las.
Seinast fleygði hann blaðinu
frá sér og hvæsti: „Þetta er
bandvitlaus maður“.
Hávaðinn uppi á loftinu fór
vaxandi. Will opnaði dyrnar og
kallaði öskuvondur: „Brigg,
geturðu ekki fengið krakkann
til að vera rólegan? Hún á að
sofna á augabragði“.
„Hún segist ekki bera syfj-
uð“, svaraði Brigg ofan af loft-
inu.
„Sophia“, kallaði Will byrst-
ur. En í sama bili kom Sophia
hlaupandi niður stigann og
fleygði sér í fangið á pabba
sínum.
„Þú ert ljóta stelpan“. sagði
Will og rödd hans var mild af
ástúð og aðdáun. „Þú ert ó-
þægðarangi, heyrirðu það. „Sop-
hia hló og grúfði andlitið að
hálsi hans. HanA kyssti bjart-
an koll hnenar, setti hana nið-
ur á gólfið og sagði henni að
fara að sofa.
„Gólfið er svo kalt“, sagði
Sophia og tók upp bera fæt-
urna á víxl. „Viltu bera mig
ípp, pabbi?“
Hann greip hana í fang sér
aftur og hún vafði handleggj-
unum um háls hans, eins og
hún ætlaði að kyrkja hann.
„Jæja, bjóddu þá mömmu góða
nótt“, sagði hann.
María stóð hjá þeim og
horfði ástúðlega á þau bæði.
Sophia laut niður ftð henni og
■ kyssti hana.
Þegar Jonathan heyrði þetta,
stóð hann 4 fætur, haltraði til
dyranna Og ætlaði líka að bjóða
Sophiu góða nótt með kossi. En
hann kom of seint. Fjölskyld-
an var öll á leiðinni með Sop-
hiu upp sigann.
„Góða nótt, Sophia“, kallaði
Jonathan.
„Góða nótt, Joht“, anzaði
Sophia kæruleysislega án þess
að líta við.
Jonathan sneri aftur og lit-
aðist um í stofunni aleinn.
Blaðið, sem faðir hans hafði
verið að lesa lá á gólfinu. Hann
tók það ósjálfrátt upp, en
mundi þá, hvað blaðið hafði
komið pabba hans í illt skap,
og varð forvitinn. Hann kom
strax auga á feitletraða fyrir-
sögn: „Þrælkunarvinnan í Yorks
hire“.
„Hvað er þetta?“ sagði Jon-
athan upphátt við sjálfan sig
og hélt áfram að lesa. Þetta
var opið bréf:
• „Til ritstjóra „Leeds Merk-
ury“. — Það er heiður og metn-
aður Breta að hafa þrælahald
hvergi við líði í löndum sínum,
og þekki ég rétt hinn brezka
anda, væri slíkt gagnstætt
hugsunarhætti þjóðarinnar“.
Þannig talaði R. W. Hamilton
á andmælafundi gegn þræla-
haldi 22. september 1830.
Kæru landar! Enginn áheyr-
andi var hrifnari en ég, þegar
þessi frelsis-trúarjátning var
flutt. Aðeins eitt skyggði á
gleði mína. Hinir göfuglyndu
vinir negranna í nýlendunum
leituðu langt yfir skammt eftir
eymd og áþján. Þeir hefðu ekki
þurft að leita útfyrir átthaga
sína. Innan héraðs síns hefðu
þeir, við nánari athugun, fund-
ið þá kúgun og vinnuþrælkun,
sem þá langar til að afnema í
Vestur-Indíum.
Þúsundir samborgara okkar í
Yorkshire búa við kjör, sem
ganga þrældómi næst og eru
saklaus fórnarlömb gráðugra
fjáraflamanna. Þeir eru hvern
morgun reknir til vinnu — að
vísu ekki með svipu* negra-
svipu, heldur keyri verksmiðju-
harðstjórans. Hálfklæddir en
tæpast hálfmettir flykkjast
þeir í vefnaðarverksmiðjurnar
Yorkshire — sem er miðstöð
barnaþrælkunar Bretlands.
Þúsundir barna, frá sjö til
fjórtán ára aldurs, vinna þar
frá klukkan sex að morgni til
klukkan sjö að kvöldi og fá á
þeim tíma aðeins hálfrar stund
ar vinnuhlé til máltíðar og
hvíldar. Roðnar þú ekki af
blygðun, brezka þjóð! Ef guð
veitti mér mælsku og orðsnilld,
skyldi ég vekja hverja sál þjóð-
arinnar, svo að allir strengdu
þess heit að leysa saklaus börn-
in úr ánauð tafarlaust. — “
Jonathan stundi hátt. Blaðið.
féll á gólfið. Hann byrgði and-
litið í höndum sér og grét.
Hann hafði þá haft á réttu
að standa, þegar hann hafði
þjáðst af meðaumkun með verlc
smiðjubörnunum.. Maðurinn,
sem ritaði þetta hafði sömu
skoðanir og hann. Þetta var
hvatning til að hefja baráttu.
Hann tók blaðið upp aftur og
hélt lestrinum áfram.
„ — Erum við ekki reiðubún-
ir til að berjast gegn því að
barnaþrælkunin í Yorkshire
haldi áfram — “
„Jú, það veit guð almáttug-
ur, að ég er reiðubúinn. Það
sver ég við drengskap minn“,
hugsaði Jonathan
Nú fyrst skildi hann, hvað
það hafði verið, sem alltaf
skyggði á gleði hans og eitraði
lífið: Hann var sjálfur sloppinn
úr verksmiðjunni, lítilsháttar
fatlaður, en önnur börn héldu
áfram stritinu ár eftir ár og
biðu óbætanlegt tjón á sál og
líkama. „En hvað get ég gert?“
hugsaði hann úrræðalaus. Hann
hélt áfram að lesa:
„Löggjöf er það eina sem
bjargað getur börnunum í verk
smiðjunum“.
Greinin var undirrituð Ric-
hard Oasler.
„Þarna kemur það“, hugsaði
Jonathan. „Lög frá þinginu —
auðvitað“.
Hann var hrifinn, vongóður
og bránn af ákefð. Það var eins
og heitur straumur færi um
líkama hans og gæfi honum
nýtt þrek.
Fjölskyldan var komin niður
af loftinu og Will horfði með
undrun á náfölt og afmyndað
andlit sonar síns.
Litla krossgátan
Lárétt:
1. barna — 7. stirð — 8. ríf — 10.
keyr — 11. beita — 12. skautabraut
— 14. gefur upp sakir — 16. lofar
— 18. ókenndur *— 19. sterk — 20.
esp. — 22. á nótum — 23. jarðeignir
— 25. niðurdregin.
Lóðrétt:
2. á bolta — 3. forföður — 4.
bogna — 5. lengdarein. — 6. ó-
gengna 8. heyverkfæri — 9. tilbiður
— 11. staðnæmst — 13. tónn — 15.
þora — 17. eyða — 21. nokkur —
23. sendiboði — tveir eins.
RÁÐNING KROSSGÁT-
UNNAR í SÍÐASTA BLAÐI.
Lárétt:
1. bryddi — 7 álar — 8. af — 10.
m.i. — 11- ern —* 12. ör — 14.
innti — 16. firra — 18. in — 19.
trú — 20. um — 22. út — 23. smár
— 25. slagæð.
Lóðrétt:
2. rá — 3. ilm — 4. dalir — 5.
dr. — 6. ofninn — 8. orti — 9- höft-
um — 11. en — 13. ryrt — 15.
nauma — 17. rú — 21. mág 23.
sl. 24. ræ