Þjóðviljinn - 22.06.1944, Síða 8
Örborginní
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur: Aðalstöðin, sími
1383.
40 ára ’varð 21. þ. m. Jóel Sig-
urðsson, verkstjóri hjá Sláturfélagi
Suðurlands.
Skemmtiför Ferðafélags íslands
um Norðurland. Ferðafélag íslands
efnir til 8 daga ferðalags um Norð-
urland. Komið við á öllum merk-
ustu stöðum. Lagt af stað 1. júlí,
að morgni og ekið þjóðleiðina norð-
ur og gist á Blönduósi. Þá haldið
um Skagafjörð og Eyjafjörð með»
viðkomu á Akureyri að Laugum og
gist þar.' Naesta dag dvalið í Mý-
vatnssveitinni, ferð til Slútness,
skoðaðar Dimmuborgir, komið í
Reykjahlíð og ef til vill í Brenni-
steinsnámurnar og víðar. Þá verður
haldið til Húsavíkur og sfðan áfram
norður Reykjaheiði að Dettifossi og
Ásbyrgi og gist að Lindarbrekku.
Næsta dag haldið til baka til Ak-
ureyrar og dvalið sem svarar ein-
um degi í höfuðstað Norðurlands.
Þá verður farið í Skagafjörðinn og
að Hólum í Hjaltadal og gist þar
en seinustu nóttina gist að Blöndu-
ósi. I annarri hvorri leiðinni verð-
ur komið að Hnúki í Vatnsdal,
í Hreðavatnsskóg, Grábrókarhraun,
að Laxfossi, Glanna og víðar. Þá
verður ekið um Húsafell suður
Kaldadal um Þingvöll til Reykjavík-
ur. Upplýsingar í skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs, Túngötu 5, og farmiðar
seldir 27. júní.
Bálför
Bálför frú Hólmfríðar Péturs-
dóttur frá Borgarnesi fór fram í
Edinborg þann 7. júní s.l.
(Tilkynning frá Bálfarafélagi ís-
lands).
\-AÚ—,
rTTTTt
Skaftfellingur
Verður hlaðinn til Vest-
mannaeyja í dag.
Esja
austur um land fyrri hluta
næstu viku. Tekið á móti
flutningi til hafna frá
Húsavík til Reyðarfjarðar
á morgun (föstudag) og til
hafna frá Reyðarfirði tþl
Hornarfjarðar árdegis a
mánudag. Pantaðir farseðl-
ar óskast sóttir í dag.
Áki Jakobsson
héraðsdómsiögmaður
og
Jakob J Jakobsson
Skrifstofa Lækjargötu 10 B.
Sími 1453.
Málfærsla — Innheimta
Reikningshald, Endurskoðun
þJÓÐVILIINN
Heillaóskir fjögurra
Suður-Amerikuríkja
Eftirfarandi kveðjur hafa ís-
lenzka lýðveldinu borizt frá
lýðveldum Suður-Ameríku:
Frá stjórn Brasilíu:
„Þjóð og stjórn Brasilíu fagna
því, að ísland hefur valið lýð-
veldisleiðina. Endurfæðing þess
er sveipuð samúð, virðingu og
aðdáun allra þjóða, sem frelsi
unna, og þær færa þakkir fyr-
ir hugprúða hjálp, sem ísland
hefur rétt sameiuðu þjóðunum
í baráttu gegn óvinum menning
arinnar. Stjórn Brasilíu sendir
hinu nýja ríki beztu vinar- og
árnaðarkveðjur á þessum stór-
merku tímamótum í sögu þess
með óskum um vöxt og viðgang
lýðveldinu og hamingju fyrir
hina göfugu og hugprúðu þjóð
þess.
Utanríkisráðherra Brasilíu“.
Frá lýðveldinu Nicaragua:
„Beztu árnaðaróskir til ís-
lenzka lýðveldisins, sem vér
bjóðum velkomið í hóp fr.jálsra
þjóða. í nafni þjóðar og stjórn-
ar Nicaragua og mínu eigin
nafni sendi ég samfagnaðar-
kveðjur til þjóðar yðar og stjórn
ar, ásamt óskum um vöxt og
viðgang lýðveldisins.
Með sérstakri virðingu.
Marino Arguello.
utanríkisráðherra Nicaragua.
Tfmarit Þjóðrsknisfélag-
sins 25 ára
Þjóðviljanum hefur borizt Tíma-
rit Þjóðrœknisfélags íslendinga
19ý3, og er þetta 25. árgangur rits-
ins. Ritstjóri tímaritsins er Gísli
Jónsson.
Efni þessa árgangs er sem hér
segir:
Aldarf j órðungsafmæli Þj óðrækn-
isfélagsins (próf. Richard Beck),
Andlegt atgjörvi íslenzkrar alþýðu
(séra Sigurður Ólafsson), Á Fróns-
móti febrúar 1943 (Þorst. Þ. Þor-
steinsson), Bækur og rit (Gísli
Jónsson), Ég oft þar dvel (kvæði,
Jakobína Johnson), Fulltrúi ríkis-
stjórnar íslands, Guðmundur
Finnbogason sjötugur (dr. Stefán
Einarsson), Heimsskoðun forfeðra
vorra (séra Valdimar J. Eylands),
Jón Sigurðsson (kvæði, Steingrím-
ur Arason), Lokaróðurinn (kvæði,
Páll S. Pálsson), Rithöfundar
tímaritsins og verk þeirra (G. J.),
Sálin (kvæði, Guttormur J. Gutt-
ormsson), Séra Guðmundur Árna-
son (G. J.), Sighvatur (saga, Jóh.
Magnús Bjarnason), Skrifað fyrir
leiksviðið (leikur, Guttormur J.
Guttormsson), Tuttugasta og
fjórða ársþing (dr. Sig. J. Jóhann-
esson), Vetrarsýn (kvæði, dr. Ric-
hard Beck), Við Rauðá (kvæði,
Kristján Pálsson), Þegar ég var
auðkýfingur (dr. J. P. Pálsson),
Þjóðræknisfélagið 25 ára (kvæði,
Einar P. Jónsson), Þrjár stakar
vísur (G. J.), Þjóðsöngur íslands
(G. J.), Þróunin (kvæði, dr. S. E.
Björnsson).
Frá forseta lýðveldisins Gua-
temala:
„Hæstvirtur herra forseti lýð-
veldisins íslands, Reykjavík.
Mér er heiður að færa yður,
herra forseti, heillaóskir mínar,
þjóðar og stjórnar í Guate-
mala á þessum stofnunardegi
íslenzka lýðveldisins og bjóða
það hjartanlega velkomið í
flokk hinna frjálsu þjóða.
Beztu óskir um heill og ham-
ingju hins nýja lýðveldis og um
góða líðan fyrir yður sjálfan,
herra forseti, og virðingarfyllstu
kveðjur.
'Jorge Unico,
forseti lýðveldisins Guatemala“.
Frá lýðveldinu Paraguay:
„Hæstvirtur forseti lýðveldis-
ins íslands, Reykjavík.
í nafni stjórnar Paraguay
sendi ég yður óskir um heill
og farsæld hinu nýja íslenzka
lýðveldi.
Heracio Chiriani,
utanríkisráðherra Paraguay.
Kveðjur Alþingis til
Kristjáns konungs X
Forsetar Alþingis hafa sent
Hans Ilátign Kristjání X. Dana-
konungi svohljóðandi símskeyti:
Nú þegar stofnað er lýðveldi á
íslkndi, liefur Alþingi ákvarðað að
fela forsetum sínum að flytja Hans
Ilátign Kristjáni X. konungi al-
úðarkveðjur með þökkum fyrir á-
gætt starf í þágu þjóðarinnar, með-
an hann var konungur hennar.
Jafnframt þakkar Alþingi hina
lilýju kveðju konungs 17. júní, sem
ber vott um skilning hans á fram-
komnum vilja íslenzku þjóðarinn-
ar og eykur enn hlýhug hennar
til Hans Hátignar og dönsku þjóð-
arinnar . Vilja forsetar í nafni Al-
þingis árna lconungi, drottningu
hans og fjölskyldu allri, giftu og
farsældar á ókomnum árum, og
dönsku bræðraþjóðinni friðar og
frelsis, í fullvissu um, að frænd-
semisbönd þau og vinátta, er
tengja saman öll Norðurlönd,
megi haldast og styrkjast á ný
fyrir alla framtíð.
í. S. f. gefur Alþingi
hamar
Stjóm í. S. í. hefur álcveðið að
gefa Alþingi sérstakan fundarham-
ar. Er hamarsliausinn úr fílabeini,
en skaftið úr svartvið (IbenholÞ
við).
Á hamarshausnum verður merki
þjóðhátíðarinnar öðrumegin, en
merki í. S. í. hinumegin. Á ham-
arsskaftið verður letrað með rúna-
letri:
íþróttasamband Islands sendir
Alþingi Islendinga kveðjur og árn-
aðaróskir með endurreisn liins ís-
lenzlca lýðveldis.
Rcykjavík 17. júní 1944
Stjórn í. S. í.
DIXIE
Amerísk músikmynd í
eðlilegum litum
BING CROSBY
DOROTHY LAMOUR.
MARJORIE REYNOLDS
BILLY de WOLFE
Sýning á sunnudag kl. 5-7-9
Engin sýning 16. og 17. júní
KAUPIÐ
ÞJÓÐVILJANN
17. júní barst sendiráði íslands
í Stokkhólmi ógrynni blóma og
heillaskeyta, og í samkomu sendi-
fulltiúa og frú Finsen kom mikill
mannfjöldi, auk 72 íslendinga og
venzlafólks þeirra.
Öll blöðin í Stokkhólmi minnt-
ust dagsins rækilega sama dag.
Dagens Nyheter birtir langt
samtal við Vilhjálm Finsen, sendi-
fulltrúa íslands í Stokkhólmi.
Stockholms Tidningen:
„í dag hefur lýðveldið ísland
göngu sína sjálfstætt og laust við
þau bönd, er í nær 700 ár hafa
tengt hina miklu eyju Norðurat-
lanzhafs, fyrst við norsku, síðan
við dönsku krúnuna. Síðasta sam-
bandið, sem eftir var meðal
tveggja norrænna þjóða, er þar
með rofið, og einasta norræna rík-
ið, sem hóf göngu sína sem lýð-
vcldi, er aftur horfið að lýðveldis-
formi eftir margar aldir“.........
„Þessi atburður opnar yfirsýn
yfir norræna sögu, réttar- og frels-
iserfðir. Hann bendir einnig fram
á við. íslenzka þjóðin, sem er af
Norðmönnum komin og hefur lengi
verði tengd Dönum, hefur jafnan
notið virðingar og vináttu með
Svíum. Vér vitum að Islendingar
finna til þess ,að þeir eru mcnn
norrænir og annað ekki, og að þeir
muni vilja varðveita hið forna
samband. Þegar þeir neyta réttar
síns samlcvæmt samningum til að
rjúfa sambandið við Danmörku,
þá þýðir það enganveginn það, að
þeir ætli að rjúfa nein tengsl við
Norðurlönd.
Form sambandsslitanna mun að
vísu hafa vakið ilokkra óánægju í
Danmörku og raunar kannski víð-
ar. En göfuglyndi Dana og réttar-
vitund verður á sama veg, enda
bendir allt til þess að slík óánægja
verði stundarfyrirbrigði eitt. Eng-
inn lítur á sjálfstæðisyfirlýsingu
íslands sem fjandskap eða þótta
gegn Norðurlöndum. Með nokkru
stolti geta Norðurlönd bent á
IBB» Mtu BÉé
Ættjðrðin umfram allt
(„This above All“)
Stórmynd með
TYRONE POWER
og JOAN FONTANE
Sýnd sunnudag 18. júní
kl. 6,30 ög 9
Syngið nýjan sðng
(Sing another Chorus)
Dans og söngvamynd með
JANE FRAZEE,
MISCHA AUER.
Sýnd kl. 5, 7 og 9,
tvenn ríkjasambönd, sem rofin
hafa verið, en hafa orðið samvinnu
Norðurlanda til sóma og gagns.
Þessir atburðir áttu sér stað 1905
og 1944.
Vér Svíar óskum hinu endur-
borna íslenzka lýðveldi hjartanlega
allra lieilla. Það gerum við í ör-
uggu trausti á styrk og varanleik
þeirra tengsla, er knýta saman
fjórar náskyldar þjóðir, og gera
það að verkum, að þessar þjóðir
munu aldrei lenda á öndverðum
hliðum þeirra landamæra, er skilja
rétt og mátt, skilja frelsi þjóða og
einstaklinga og grimmilega kúgun.
Íslandsglíman:
Guðm. Agústsson
varð glímukóngur
Guðmundur Ágústsson varð
glímukóngur, fékk auk þess feg-
urðarglímuverðlaunin og bilcar
þann er rikisstjóri gaf í tilefni af
þessari liátíðaglímu.
Afhenti formaður þjóðhátíðar-
nefndar, dr. Alexander Jóhannes-
son prófessor, gripinn.
Forseti í. S. í. afhenti Guðmundi
Grettisbeltið og fegurðarglímu-
verðlaunin og sleit mótinu með
stuttri ræðu.
Glíman fór fram í liúsi Jóns
Þorsteinssonar, þar sem varð að
fresta henni vegna veðurs á Þing-
völlum.
Vinningar féllu þannig:
Guðmundur Ágústsson (Á.) 8
vinnina, Finnbogi Sigurðsson (K.
R.) 7, Eiuar Ingimundarson( U. M.
F. Vöku) 5, Davíð Hálfdánarson
4, Andrés Guðnason (Á.) 3, Hall-
grímur Þorkelsson (U. M. F. T.) 3,
Haraldur Guðmundsson (Iv. R.) 3,
Gunnlaugur J. Briem (Á.) 2, Sigfús
Ingimundarson (Á.) 1 vinning.
Grein um glímuna birtist síðar
í blaðinu.
Hér með tilkynnist ættingjum og vinum, að son-
ur minn og bróðir okkar
MAGNÚS SVEINSSON
varð bráðkvaddur að heimili sínu, Ásvallagötu
69, aðfaranótt hins 21. júní.
Sigríður Magnúsdóttir.
Axel Sveinsson.
Kjartan Sveinsson.
Sænsk blöð um fýðveldisstofnunina