Þjóðviljinn - 20.07.1944, Blaðsíða 1
5T
9. árgangur.
Fimmtudagur 20. júlí 1944.
158. tölublað.
Heíur sóif fratn 40 hm. — fekíð 700 bsi og þorp
Stalín marskálkur tilkynnti í gær í nýrri dagskip-
un, að 3. Eystrasaltsherinn hefði í tveggfja daga sókn
rofið 65 km. skarð í öflugar varnarlínur Þjóðverja fyrir
sunnan Ostroff, sótt fram allt að 40 km. og tekið yfir
'J'OO þorp og bæi.
Rússar hafa umkringt fimm þýzk herfylki fyrir
austan Lvoff-
Ostroff er um 60 km. frá suður-
«nda Peipusvatns.
Þriðji Eystrasaltsherinn er nýr
her undir stjórn Maslinikoffs hers-
höfðingja.
Þessi her stefnir nú til austur-
landamæra Lettlands, scm eru
•skammt undan. En rúmlega 100
km. sunnar er annar rússneskur
her kominn inn fvrir þessi landa-
mæri fyrir nokkru síðan og miðar
vel áfram.
í sókninni til Lvoff (á suður-
enda sóknarsvæðis rauða hersins)
eru Rússar komnir yfir fljótið Búg
Ve'kilýðsfélag Öives-
tirepps métmslir úr-
skirði Félaisdúms
Á fundi í Verkalýðsfélagi Olves-
hrepps var gerð eftirfarandi sain-
þykkt:
„Alinennur fundur í Verkalýðs-
félagi Ölveshrepps, haldinn í
Hveragerði 16. júlí 1944, mótmælir
harðlega dómi Félagsdóms í vega-
vinnudeilunni síðastliðið vor og
væntir þess fastlega að dómar Fé-
lagsdóms eigi framvegis styrkari
stoðir í lögum heldur en þessi dóm-
ur ber vott um“.
fyrir austan Lvoff og hafa um-
kringt 5 þýzk herfylki (a. m. k.
50000 manns).
Þarna tók rauði herinn yfir 100
bæi og þorp í gær, þ. á. m. bæ
nokkurn, sem er aðeins 15 km. frá
Lvoff.
Herfræðingar Bandamanna
segja, að sóknin til Lvoff veki
jafnvel enn meiri athygli en sókn-
in til Austur-Prússlands, því að
með töku þeirrar borgar geti Rúss-
ar ógnað yfirráðum Þjóðverja í
alJ.ri Suðaustur-Evrópu og jafnvel
Þýzkalandi sjálfu, þar sem hið
auðuga náma- og iðnaðarhérað
Þjóðverja, Schlesien, sé þá ekki svo
ýkja langt undan.
Þjóðverjar eru sagðir verjast af
mesta ofsa fyrir austan Lvoff, en
halda þó áfram að hörfa.
Hersveitir Rokossovskis halda
áfram sókninni til Brest-Litovsk
og Bialistok. Hafa þær rofið járn-
brautina milli þessara borga.
Á þessum vígstöðvum gafst upp
þýzkur hershöfðingi í gær, — sá
21. í sumarsókninni.
Rússar eru nú um 160 km. frá
Varsjá.
Rússar færðu enn í gær út kví-
arnar á vestri bakka Njemens.
Samtals tilkynntu Rússar, í gær
töku meir en 1000 bæja og þorpa.
Sandamenn taka Livorno og Ancona
Bandamenn á Ítalíu tilkynntu í gær töku hafnarborganna
Livomo og Ancona, sín hvom megin á skaganum.
Þjóðverjar hörfa undan til „gotnesku vamarlínunnar“ fyrir
norðan Amofljót.
Livorno er þriðja stærsta
hafnarborg Ítalíu og hefur stórt
og gott skipalægi.
Hún er mikil iðnaðarborg og
hafði 125000 íbúa fyrir stríð.
Það voru pólskar hersveitir,
sem tóku Ancona, — þær sömu
sem tóku Cassino, tóku þær yfir
2000 fanga.
Pólverjarnir hafa sótt 5 km.
lengra norður.
Ancona hafði 90000 íbúa.
Ancona er mikilvæg fyrir
hernaðinn í Júgóslavíu.
Bretar hafa sótt lengra norð-
ur fyrir Arno fyrir norðan
Avezzo.
Tóku þeir bæ í gær, — um
40 km. frá Florence.
VERÐLAUN
Hitler sæmdi Kesselring yfir-
mann þýzka hersins á Ítalíu
járnkrossi með eikarlaufi sama
dag og Bandamehn tilkynntu
töku Ancona og Livorno.
■
i
■ íMlr iiniti
Isluds inMmirl sli
Eftirfarandi fréttatilkynning frá utanrílcisráðuneytinu, dagsett í
gœr, hefur Þjóðviljanum borizt:
Forseti íslands tólc í dag kl. 12.30 á móti sendiherra Norðmanna,
herra August Esmarch, í hátíðasal Bessastaða. Afhenti sendiherrann
ný embœttisskilríki frá Hákoni VII. Noregskonungi, stiluð til forseta
íslands. Utanríkisráðherra, Vilhjálmur Þór, var viðstaddur athöfnina.
Sendiherrann hélt við þctta
tækifæri þessa ræðu:
„Herra forseti! Mér vcitist sá
heiður að afhenda yður bréf Nor-
egskonungs. í bréfi þessu biður
hann yður að veita mér móttöku
sem sérstökum sendimanni og ráð-
herra með stjórnarumboði hjá rík-
isstjórn íslands.
Ég vil gjarna taka það fram, að
sú ósk Hans Hátignar Hákonar
konungs um að efla og styrkja hin
góðu og vinsamlegu samskipti,
Framhald á 8. síðu.
Vancelles á valdi Breta
ÞJöðveggrbu) m;;;i St. Lo
og Periers rofinn
Bretar rog Kanadamenn tóku
útborgina Vancelles í gær.
Mikil orusta geisar 11 km.
fyrir austan Caen.
Þrjú þorp voru tekin fyrir
austan Caen.
Eitt þorp var tekið 3 km. fyr-
ir sunnan Caen á eystri bakka
Ornes.
í gær voru teknir 1250 fangar
á Caensvæðinu.
Fyrir suðvestan Caen var
hrundið gagnáhlaupi Þjóðverja.
Tekið var þorp skammt frá
Tilly.
Bandaríkjamenn hafa rofið
þjóðveginn milli St. Lo og
Periers.
Þjóðverjar vörðust á aðeins
einum stað í St. Lo í gær.
Þjóðverjar hafa nokkrar hæð
ir fyrir vestan bæinn á sínu
valdi og skjóta þaðan með fall-
byssum á hann.
Montgomery hershöfðingi til-
kynnti blaðamönnum í gær, að
han væri mjög ánægður með
ganginn.
Hann sagði yfir 60000 fanga
hafa verið tekna* í Normandí,
en Bandamenn hefðu grafið
meir en 8000 fallna Þjóðverja.
Montgomery sagði Banda-
menn hafa betri útbúnað en
Þjóðverja.
Fundur í Trúnaðarmannaráði Dagsbrún-
ar í kvöld kl. 8.30 á Skólavörðustíg 19
(gengið inn frá Klapparstíg).
Bolli Thoroddsen, bæjarverkfræðingur kallaði blaðamenn á
sinn fund í gær og skýrði þeim frá helztu framkvæmdum, sem
bærinn hefur með höndum og 'hefur í hyggju að gera á næst-
unni. Ræddi hann m. a, um þrifnaðinn í bænum og þær ráð-
stafanir, sem gerðar hafa verið til að bæta hann, sorphreinsun-
ina, göturnar, viðgerð þeirra, viðhald og nýlagningu, og ýmislegt
annað.
GÖTUHREINSUNIN
Bæjarverkfræðingur ræddi
fyrst um götuhreinsunina, og
sagði m. a.: Bærinn er nú hætt-
ur að nota hestvagna við götu-
hreinsunina. í stað þeirra eru
notaðir bílar. Við munum vinna
að því að halda bænum sem
hreinustum, á þeim stöðum,
sem við eigum að sjá um. Lóða-
eigendur og leigjendur koma
þá vonandi á eftir. Göturykið
er mjög mikil plága fyrir bæj-
arbúa. Meðan svo margar götur
eru ómalbikaðar sem nú er, er
eina ráðið að bleyta þær nógu
oft, þegar þurrterveður.Bærinn
hefur átt einn lítinn vatnsbíl,
sem tekur um 1% tonn og hefur
hann verið látinn ganga eins
mikið og hægt þefur verið. Leit
að var til Ameríku um það,
hvort hægt væri að fá fullkom-
in vökvunartæki þar, en það
reyndist ekki unnt. Þá var horf-
ið að því ráði að smíða slík
tæki hér heima, og hefur það
verið gert, svo að nú höfum við
tvo vatnsbíla, sem taka hvor
um sig helmingi meira vatn en
gamli bíllinn, og ætti það að
verða nokkur úrlausn í bili.
ÓSKILAMUNIR
í samráði við lögregluna er
verið að koma upp vinnuflokki,
sem á að hafa það starf með
höndum að hreinsa bæinn af
ýmsum óskilamunum, verðmæt-
um og verðlausum, sem eru í
óreiðu á götum úti. Hörmulegt
er að sjá, hvernig farið hefur
verið með ýmsa verðmæta
muni, sem skildir hafa verið
eftir á almannafæri, án þess að
eigendurnir hirði nokkuð um
þá; sem dæmi má nefna jám-
bita, stór tré, báta, vélar og ým-
islegt annað. Þessir munir
verða hirtir af götunum eftir
að lögmætum eigendum hefur
verið gefinn frestur til þess að
taka þá. Verðmætu munirnir
verða fluttir á nýtt svæði,, sem
lögreglan hefur fengið til um-
ráða inni við Elliðaárvog, hinu
verður hent.
VIÐGERÐIR VEGNA HITA-
VEITUNNAR
Nú er verið að ljúka við við-
gerðir á lóðum vegna skemmda
eftir hitaveituna. Eg auglýsti
í vor eftir kvörtunum yfir
skemmdum á lóðum af völdum
hitaveitunnar og höfum við
haft sérstakan vinnuflokk, sem
unnið hefur að því að bæta úr
þessum spjöllum. Þegar þeirri
vinnu er lokið, er ráðgert, að
þessi vinnuflokkur vinni að því
að lagfæra ýmsa miður þrifa-
lega staði (ógirt svæði og torg).
Sem dæmi um svæði, sem að
mestu er lagfært má nefna
svæðið hjá íþróttavellinum.
Framh. á 3
4^