Þjóðviljinn - 20.07.1944, Blaðsíða 8
'‘XíTrt
,Úb» borglnDÍ
Nœturvörður í Laugavegs apóteki.
Nœturakstur í uótt annast Bifreiðastöðin
Bifröst, síini 1508.
ÚTVARPIK í DAG.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 Erindi: Þjóðræknisstarfsemi Vestur-
Islendinga (Richard Beck prófessor).
20.50 Hljómplötur: fslenzk lög.
21.00 Frá útlöndum (Axel Thorsteinsson).
21.20 Illjómplötur: Endurtekin lög.
Félag Véstur-íslendinga lieldur fund í
Oddfellowhúsinu föstudaginn 21. júlí kl.
8.30 e. h. Prófessor Richard Back mun
verða heiðursgestur, en Vestur-íslendingar,
sem hér eru staddir, eru sérstaklega boðn-
H‘- — Aðgöngumiða má vitja í verzlunina
Kjöt og Fiskur.
FLOKIÍURINN
Þeir Sósíalistar í Reykjavík,
sem hafa ekki enn tekið sumar-
leyfi og ætla sér úr bænum, eru
vinsamlega beðnir að koma til
viðtals í skrifstofu Sósíalistafé-
lag-s Reykjavíkur áður en þeir
fara.
UR LÍFI ALÞÝÐUNNAR
Andrés Bjðrnsson
hlaut verðlaun vikunnar
Verðlaun vikunnar í greinasam-
keppninni „Úr lifi alþýðunnar“
hlaut Andrés Björnsson fyrir grein-
ina „ístaka á ísafirði“ sem birtist
í blaðinu í gær, en þá láðist að
geta þess að hún væri verðlauna-
grein.
Andrés er beðinn að senda rit-
stjórn Þjóðviljans heimilisfang sitt.
Tímarit Verkfræðinga-
lélags íslands stækkar
Tímarit Verkfræðingafélags
fslands, 1. hefti 29. árgangs, er
nýkomið út.
Flytur heftið langa grein eft-
ir Gísla Halldórsson: Virkjun
jarðgufu til rafmagns og hita-
notkunar, og ýmsar smærri.
Með þeim árgangi sem nú er
að hefjast, verður sú breyting á
Tímariti Verkfræðingafélags ís-
lands, að það verður stækkað,
hvert hefti verður tvær arkir,
og árgangurinn því 12 arkir alls.
Jafnframt verður það gert fjöl-
breyttara að efni. Er í ráði að
birta sérstaklega frásagnir og
skýrslur um öll helztu mann
virki, sem reist verða hér á
landi, svo að tímaritið geti í
framtíðinni orðið tæmandi heim
ild í því efni. Auk þess mun
það flytja ýmsan annan fróð-
leik um verkfræðileg efni.
Norski sendiiserrann
Framhald af 1. sfðu.
sem verið hafa milli Noregs og
íslands, byggist ekki eingöngu á
þeim aldagömlu tengslum, sem
tengt hafa Noreg og ísland, held-
ur lýsir hún einnig þakklæti þjóð-
ar vorrar fyrir hina miklu samúð,
sem komið hefur fram frá allri
íslenzku þjóðinni í garð vor Norð-
manna á þeim undanförnu árum,
er vér höfum barizt fyrir frelsi
voru og sjálfstæði.
Samúðin hefur meðal annars
komið fram í hinni hughlýju við-
leitni til að veita oss efnalega að-
stoð að svo miklu leyti sem unnt
hefur verið.
Persónulega er ég þeirrar skoð-
unar, að ef ég í áframhaldandi
starfi mínu hér, mæti sama velvilja
og hjálpfýsi, sem mér hefur verið
sýnt hingað til, muni það starf, að
hnýta æ fastar vináttuböndin milli
þjóða vorra og ríkja, veitast mér
mjög auðvelt".
Svarræða forseta var á þessa
leið:
„Sendiherra! Mér er ánægja að
því að taka við bréfi Hans Há-
tignar Noregskonungs, sem stað-
festir, að þér séuð sérstakur sendi-
maður og ráðherra með stjórnar-
umboði hér á landi.
Það gladdi mig og marga landa
mína að verða var þeirrar sam-
úðar með hinni norsku bræðra-
þjóð vorri, sem látin var í ljós í
tilefni af framkomu yðar að Lög-
bergi 17. júní. Ég hygg að vart
muni hugsast betri tjáning á til-
finningum vorum en þá var í ljós
látin af þeim fimmta hluta íslenzku
þjóðarinnar, sem þar var saman
kominn. Þar var í ljós látið þakk-
læti til konungs Noregs og ríkis-
stjórnar fyrir afstöðu þeirra til
endurstofnunar hins íslenzka lýð-
veldis og jafnframt þær lilýju til-
finningar í garð norsku þjóðarinn-
ar, sem vér höfum ávalt í brjósti
borið, ekki hvað sízt á hinum langa
þjáningatíma hennar meðan hún
hefur sýnt slíka hreysti og frelsis-
ást.
Þess vei'ður vonandi ekki langt
að bíða að norska þjóðin öðlist
aftur frjáls umráð yfir landi sínu,
gamla Noregi, og vonum við þá og
treystum, að nánari samvinna en
nokkru sinni áður megi takast til
gagns fyrir báðar þjóðirnar.
Persónulega er ég á sama máli
og þér, að framtíðarstarf yðar hér
muni verða heillaríkt. Meir en 20
ára persónuleg kynni af yður
styrkja þá sannfæringu mína.
Ég bið yður að flytja Hans Há-
tign Hákoni konungi, Hans Kon-
unglegu tign Ólafi ríkiserfingja og
stjórn yðar alúðar kveðjur mínar
og íslenzku þjóðarinnar með beztu
óskum um framtíð norsku þjóðar-
innar sem frjálsra manna“.
Að athöfninni lokinni höfðu for-
setahjónin hádegisboð fyrir norska
sendiherrann og frú Esmarch, ut-
anríkisráðherra og frú Þór, Otto
jKildal, settan aðalræðismann
Norðmanna, frú Jenny Bay, for-
setaritara og yfirmenn hers og
flota Norðmanna hér á landi.
KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN
Frásögn bæjar-
verkfræðings
Frh. af 1. síðu
Byrjað er á lagfæringu torgs-
ins, þar sem Hringbraut og
Eiríksgata mætast, svo koma
önnur á eftir.
SORPHREINSUNIN
Sorphreinsunin er eitt mesta
vandamál bæjarins. Þegar hita-
veitan komst á, hlaut sorpið að
vaxa mjög, þar sem mörgu var
nú hent, sem áður hafði verið
brennt. Var því úr vöndu að
ráða. Ákveðið var því að láta
vinna að sorphreinsuninni dag
og nótt. Tóku nokkrir ungir
stúdentar að sér næturvinnuna
og hafa þeir reynzt prýðilega.
Við Viðeyjarsund er verið að
byggja tilraunastöð tilrannsókn
ar á sorpi, flokkunar þess,
brennslu, gerjunar o. fl. — Bæj-
arverkfræðingur sýndi okkur
nú myndir frá sorpvinnslustöð
í Danmörku og voru þær af
ýmsum vélum, sem vinna áburð
úr sorpinu og einnig af jarð-
ávöxtum, sem ræktaðir höfðu
verið við áburð úr sorpi og hélt
síðan áfram: Það er ekki rétt
hermt hjá „Vísi“, að bærinn
ætli að fara að vinna áburð úr
sorpi. Enn sem stendur er þetta
einungis á tilraunastigi. Ætlun-
in er að komast að raun um,
hve mikið af verðmætum efnum
svo sem málmum, pappír og líf-
rænum efnum, sé í sorpinu og
hvort borgi sig að vinna þau.
SORPHAUGUNUM LOKAÐ
Nýskeð er búið að loka sorp-
haugunum fyrir óviðkomandi.
Tekur þá vonandi fyrir þann
ljóta sið hjá fólki að ganga á
haugana, tína þar einskis nýtt
rusl úr, sem hvergi er geymsla
fyrir nema á almannafæri. Sóða
skapurinn vestast í bænum er
mikið þessari tínslu að kenna.
Annars er sorphreinsunin
vandamál, sem tíma tekur að
leysa svo vel fari, en það er
ekki mitt verksvið, þótt hreins-
unin snerti að ýmsu leyti störf
skrifstofu okkar.
TJÖRNIN
Bæjarverkfræðingur ræddi
því næst um Tjörnina: Því mið
ur verður ekki hægt að lagfæra
tjarnarbakkana og Tjörnina í
sumar. Göturnar heimta það
vinnuafl, sem við höfum til um
ráða. Þær tillögur, sem komið
hafa fram, svo sem um að
steypa tjarnarbotninn næst
bökkunum eða lagfæra, verða
teknar til athugunar á teikni-
stofum okkar, ,áður en fullráðið
verður, hvað gera skal. Við höf-
um stundum fengið skammir
fyrir það að við höfum látið
Tjörnina vera hálftóma. En
þannig stendur á því, að við
höfum verið að leggja ræsi með
fram vestari tjarnarbakkanum
og höfum við því orðið að hafa
þurrt þar á meðan. En verkio
hefur gengið illa m. a. sökum
TJARNARBÍÓ Æ&tM
Sahara
Spennandi sjónleikur frá
lernaðinum í sandauðninni
sumarið 1942.
IIIUMPHREY BOGART
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Aki Jakobsson
héraðsdómslögmaður
og
Jakob J Jakobsson
Skrifstofa Lækjargötu 10 B.
Sími 1453.
Málfærsla — Innheimta
fteikningshald, Endurskoðun
þess, hve hallinn er lítill á rör-
unum, 1:600. Annars held ég,
að illmögulegt yrði að steypa
botn í Tjörnina, nema þá að-
eins meðfram bökkunum, því
botnleðjan er svo mikil. Það má
annars segja, að Tjörnin sé
mesti forarpollur, þar sem vatn
ið í henni er blandað klóakvatn
inu úr læknum, sem rennur
undir Lækjargötu, og þyrfti að
finna einhverja leið til að bæta
úr því.
GÖTURNAR
Eins og menn vita hefur um-
ferðin um vegi og götur bæjarins
margfaldazt síðastliðin ár. Bæði
hefur farartækjum bæjarbúa fjölg-
að, svo bætist við hin mikla um-
ferð hernaðarfarartækja setulið-
anna. Eftir hernámið koma fyrst
til skjalanna hin svokölluðu þungu
farartæki, þungir herbílar, allskon-
ar farartæki á beltum, skriðdrekar,
þungar vinnuvélar og önnur, sem
bókstaflega liafa étið sig niður í
göturnar.
Síðast en ekki sízt hefur hita-
veitan sett merki sín á göturnar.
Menn sjá því hvað mætt hefur á
' vegum og götum síðustu árin. Auk
þess hefur vetrarakstur þungra
farartækja farið illa með þær, keðj-
urnar átt sinn hluta í J>ví.
VIÐGERÐIR OG VIÐHALD
Tökum fyrst akbrautirnar; hægt
er að segja að þær séu þrennskon-
ar. Malarbornar, púkkaðar og mal-
arbornar og svo malbikaðar. Við-
hald tveggja fyrstu tegundanna er:
ofaníburður með Jijöppun og svo
eru göturnar heflaðar með veg-
heflum. Þeir eru tveir. Bærinu hef-
ur undanfarandi ár eytt miklu fé
í ofaníburð og er nú nær eingöngu
notaður rauðamelur, liefur hann
reynzt bezt, en tekur tíma að
þjappast. Mikið hefur verið kvart-
að undan honum, sérstaklega fyrst
eftir að hann er kominn í götuna
og er það skiljanlegt. Venja er þó
að þjappa hann og raka götuna
þegar hann er farinn að troðast.
Heflun hefur verið framkvæmd
eftir því, sem unnt hefur verið, og
þjöppun einnig. Malbikuðu ak-
brautunum þarf að halda við með
svokallaðri yfirbikun, en Jmð er
slitlag, sem helzt þarf að nota í
, asfalt og sand, en fáist það ekki,
NÝJA BÍÓ
I gtaumi lífsins
(Footlight Serenade)
Skemmtileg dans og söngva-
mynd.
Aðalhlutverk:
BETTY GRABLE,
VICTOR MATURE,
JOHN PAYNE.
Sýnd kl. 9.
Sherlock Holmes og
ógnarröddin
Spennandi
mynd með
leynilögreglu-
BASIL RATHBONE og
NIGEL BRUCE.
Bönnuð bömum yngri en
12 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
þá með tjöru í stað þess. Þegar
slitlagið er uppslitið, fer undirstað-
an að skeinmast og þá er allt í
voða. Reýkvíkingar kannast við
slíkar götur. En Jiar sem asfalt hef-
ur verið ófáanlegt undanfarin ár,
höfum við notað tjöru í þess stað.
Við notuðum tjöru, sem við feng-
um frá Bretlandi, og reyndist hún
allvel, en nú er ekki um aðra tjöru
að ræða en þá, sem Gasstöðin get-
ur látið okkur í té og er hún miklu
verri.
Þær viðgerðir á götunum, sem
byrjað var á í fyrra og standa nú
yfir, eru fólgnar í Jiví að fylla heita-
veiturennur, brjóta upp verstu
göturnar og snúa malbikuninni og
setja á yfirlag, slitlag er sett á
sumar götur, en ekki nálægt J>ví
á eins mörgum stöðum og með
þyrfti; undirbyggingin verður að
ganga fyrir. Við höfum fylgt Jieirri
reglu að gera fyrst við mestu um-
ferðargöturnar, svo sem Lauga-
veg, Hverfisgötu, Austurstræti og
Pósthússtræti. Annars eigum við
í erfiðleikum með efni í yfirlagið
á göturnar. í yfirlagið notum við
smágerðan mulning, sem kallaður
er perlumulningur. En við eigum
lítið af honum, sökum þess að vél-
in, sem framleiðir hann, fullnægir
ekki þörfum okkar.
GANGSTÉTTIRNAR
Um gangstéttirnar sagði bæjar-
verkfræðingurinn: Hitaveiturenn-
urnar skekktu og aflöguðu gang-
stéttarkantana mjög, eins og kunn-
ugt er. Við höfum því lagt mikla
vinnu í að lagfæra Jiá og var það
aðallega gert í fyrrasumar. Mikið
hefur verið unnið að liellulagningu
bæði í fyrra og nú í sumar, en
Jiannig eru gangstéttir bæjarins
hugsaðar í framtíðinni. En við
höfum J)ó ekki getað unnið eins
mikið að hellulagningu og þurft
hefði og því orðið að bera sand
ofan í í stað þess. Margir hafa
kvartað yfir sandinum í Jjeim og
er Jiað mjög skiljanlegt. En við
höfum ekki haft annan ofaníburð.
Nú munum við geta fengið salla,
þar sem nýja grjótnámið er tekið
til starfa, en sallinn er góður í
gangstéttir, þegar hann er farinn
að troðast.
(Framliald af frásögn bæjarverk-
fræðings verður að bíða næsta
blaðs sökum rúmleysis).