Þjóðviljinn - 11.01.1945, Page 1
10. árgangnr.
Fimmtudagur 11. janúar 1945.
8. tölublað.
0
Rákíssffórnín gerír tráðsíafanir fsl ad bæfa
feföir smááívegsmanna og hlnfasfómanna;
151. Rrikttn 5 Hn ri tti er tt veril. - Sklv lekln í
lelgi, haoneðir at tlelolagui kelrra rennar fll flsílinnna
Scobie afhendir
EAM
nýju vopna-
Aö tilhlutun ríkisstjórnarinnar hafa þessar ráð-
stafanir verið gerðar í fisksölumálinu:
Öll skip sem kaupa fisk föstu verði til ísfisksútflutn-
ings, verða að borga 15% hærra vferð fyrir allar teg-
undir fisks.
Með aðstoð ríkisstjórnarinnar verður útvegað sem
mest af skipum á leigu, sem flytja eiga fiskinn á er-
lendan markað. Öllum hagnaði af flutningum þeirra
verður skipt milli fiskframleiðenda sjálfra.
Tilkynning um þessar ráðstafanir og fyrirkomu-
lagsatriði var birt af Samninganefnd utanríkisviðskipta
í gær, og birtizt tilkynning nefndarinnar í heild hér í
blaðinu í dag.
3>egar sýnt var að fisksölusamn-
ingurinn við Breta yrði ekki fram-
lengdur frá nýári, varð ljóst að
nokkur færeysk skip og nokkur
skip sem síðastliðið ár önnuðust
fiskflutninga á vegum enska mat-
gera þyrfti sérstakar ráðstafanir ! vælaráðuneytisins. Yfir standa
til þess að tryggja kjör smáútvegs-
manna og hlutasjómanna, og hef-
ur ríkisstjórnin og Fiskimálanefnd
unnið mikið starf til að koma fisk-
sölumálunum í það horf, sem nú
skapazt með þessum ráðstöfunum.
Skal hér í stuttu máli gerð grein
fyrir því, hvernig fyrirkomulag ís^
fisksútflutningsins er fyrirhugað.
SKIP FISKIMÁLANEFNDAR
(LEIGUSKIPIN)
Það er- Fiskimálanefnd, sem
annast rekstur þeirra skipa, sem
tekst með aðstoð ríkisstjórnarinn-
ar að fá leigð til ísfisksflutninga.
Fiskimálanefnd hefur þegar feng
ið varðskipið Þór til þessara flutn-
inga, á vegum nefndarinnar verða
samningar um «ð fá Selfoss og Lag-
arfoss til ísfiskflutninga, og auk
þess er búizt við að fleiri erlend
skip og eins íslenzk fiskiskip kunni
að verða leigð. Þessi skip verða
rekin með það fyrir augum að
fiskeigendur fái sjálfir fullnaðar-
verð fyrir fiskinn, þar sem allur
hagnaður af rekstri skipanna, verð-
ur látinn renna' til fiskframleið-
enda.
FISKIKAUPASKIPIN
Gert er ráð fyrir því, að þau
íslenzk skip sem áður hafa annazt
fiskflutninga til Englands, haldi
áfram að kaupa fiskinn á föstu
verði samkv. auglýsingu samninga-
Framhald á 4. síðu.
? .
Italfa viðurkennir íslenzka
iýðveldið
Italska stjómin hefur viðurkennt lýðveldið ísland og
sent forseta þess og þjóðinni allri hlýjar árnaðaróskir með
von um góða samvinnu og samkomulag beggja landanna.
Hefur utanríkisráðuneytinu borizt orðsending frá utan-
ríkisráðherra Ítalíu, sem er svar við orðsendingu íslenzka
utanríkisráðuneytisins frá 17- júní um stofnun lýðveldis á
íslandi og kjör forseta íslands.
Fjðlmennur Dagsbrúnarfundur lýsir
fylgi við lisla uppstillingarnefndar
Verkamannafélagið Dagsbrún hélt fjölmennan fund í
Listamannaskálanum í gærkvöld.
Uppstillingamefnd lagði fram lista við væntanlega stjóm-
arkosningu og samþykkti fundurinn með öllum greiddum
atkvæðum gegn 7, að lýsa fylgi sínu við þá menn er þar
er stillt til stjómarstarfa í Dagsbrún næsta ár, þrátt fyrir
það þótt Haraldur Guðmundsson fceitti öllum sínum áhrifiun
gegn þvi að fundurinn lýsti fylgi sínu við listann.
í aðalstjóm félagsins er stillt sömu mönnum og nú skipa
stjómina að undanskildum tveimur mönnum er hafa dregið
sig í hlé og em nýir menn valdir í þeirra stað.
Þjóðviljinn mun skýra nánar frá fundinum á morgun og
samþykktum þeim er hann gerði.
hlésskilmálana
Fjárir fuUtrúar frd E. A. M.
komu aftur til fundar við Scobie í
gœr, og afhenti hann þeim vopna-
hlésskilmála sína. — Ókunnugt
er enn um efni' þeirra.
Tveir af fulltrúunum eru úr
miðstjórn E. A. M. Hafa þeir um-
boð til að semja, án samþykkis
hinna tveggja, ef með þarf.
Stjórn Plastiras hefur gefið út
yfirlýsingu í 4 liðum um stefnu-
skrá sína. — Eru aðalatriðin þessi:
1. Endurskiijulagning hers og
lögreglu.
2. Refsa þeim, sem hafa unnið
með Þjóðverjum.
3. Viðreisn atvinnulífsins.
4. Nýjar kosningar svo fljóft
sem unnt sé, .=— og er því ekki
mótfallin að eftirlitsmenn frá
Bandamönnum verði við-
staddir.
Bretar eru komnir 100 km norð-
ur fyrir Aþenu.
Churdhill mun innan skamms
halda aðra ræðu í brezka þinginu
um Grikklandsmálin.
Schalbutgmenn eyðilögða
Tuborg
Það er nú komið í ljós, að það
voru Schalburgmenn, en ekki föð-
urlandsvinir, sem gerðu árásina á
vélahús Tuborg-ölgerðarinnar í
Kaupmannahöfn.
Mikiil fjöldi Schalburgmanna
kom til ölgerðarinnar og ógnuðu
verkamönnum með skammbyssum
á meðan þeir komu sprengjum fyr-
ir í hinu nýtískulega vélahúsi vei-k
smiðjunnar.
Sprengingin heyrðist um næst-
um alla Kaupmannahöfn.
Vélaihúsið eyðilagðist alveg óg er
talið ónýtt.
lAilleygi!
Bandaöbjcimenn komnír ínn i Laroche og Vielsalra
Þjóðverjar eru byrjaðir að hörfa út úr vesturenda
Ardennafleygsins. — Þeir segjast hafa yfirgefið St.
Hubert.
Bandaríkjamenn berjast nú í bæjunum Laroche og
Vielsalm.
(Samkv. tilkynningix frá ríkisstjóminni).
Þjóðverjr hörfa á 8—10 km.
víglínu úr vesturoddi fleygsins.
— Bretar hafa sótt þarna fram
allt að 6 km. og orðið varir við
litla eða enga mótspyrnu- —
Sækja þeir fram fyrir sunnan
og suðaustan Rochefort. — Að-
alhindranirnar eru jarðsprengju
svæði og ógreiðfært landslag.
Bandaríkjamenn brutust inn
í Laroche að vestan, en aðrir
eru komnir að bænum sunnan
megin.
Langur kafli af undanhaldsleið
Þjóðverja úr fleygnum liggur und-
ir stórskotahríð Bandaríkjamanna
— Þjóðverjar beita tveimur S. S.-
skriðdrekalherfylkjum til varnar
undanhaldinu.
Tveimur gagnáhlaupum Þjóð-
verja var hrundið í gær.
Bandaríkjamenn sottu noklcuð
fram á veginum frá Baslogne til
Houffalize.
Norðar og austar eru Bandaríkja-
menn komnir yfir ána Salm og berj
ast í bænum Vielsalm. sem er við
aðaljárnbrautina frá Liege til Lux-
ernburg.
Suður á vígstöðvum 7. banda-
ríska hersins var heldur lítið um
að vera í /gær. — Þjóðverjar unnu
lítið eitt á fyrir sunnan Strasburg.
— En norðan borgarinnar unnu
Bandamenn á.
Siðan Þjóðverjar hófu gagnsókn
sína, 16. des. til 9. jan., hafa Banda
menn tekið meir en 25000 þýzka
fanga. — Þar af hefur 1. banda-
riki herinn tekið næstum 16000.
FRÖNSK YFIRLÝSING UM
ALS ACE-LORRAIN E
Franska bráðabirgðastjórnin hef
ur gefið út yfirlýsingu um Alsace-
Lorraine. — Segir þar, að þessir
landshlutar hafi aldrei gengið úr
eign Frakklands. — Beri Þjóðverj-
um því að koma fram við íbúana,
þar sem þeir hafa enn yfirráð, sam-
kvæmt fyrirmælum Haag-sáttmál-
ans um meðferð borgara í her-
numdu landi.
Segir franska stjórnin, að þeir
Þjóðverjar, sem út af þessu bregði,
verði látnir sæta ábyrgð sem stríðs
glæpamenn.
Rauði herinn er 2
km. frá Komarno
Rauði herinn er nú tœpa 2 km
frá téklcoslo vakisku borginni Kom-
aro, að austan. — Tók hann jám-
brautarbœ þama í gœr.
Taki Rússar Komáro, geta þeir
sótt aftan að þýzka hernum, sem
berst fyrir norðvestan Búdapest.
— Þjóðverjar virðast nú hafa ver-
ið stöðvaðir 30 km frá Búdapest.
í gær vann rauði herinn meir á
í Búdapest cn nokkru sinni áður.
— Tóku þeir 3000 þýzka og ung-
verska fanga þar.