Þjóðviljinn - 11.01.1945, Síða 2
2
ÞJ ÓÐVILJINN
Fimmtudagur 11. janúar 1945.
T|ILL06UR MILLIÞINGANEFNDAR f PÖSTM&LUM:
Pósti verði komið vikulega ár-
ið um kring í öll héruð landsins
Gerbreytingar á póstflutningi í sveitum landsins
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær hefur Alþing
nú samþykkt að fela ríkisstjórninni að framkvæma
breytingar þær á póstsamgöngum, sem milliþinganefnd
í póstmálum lagði til að gerðar yrðu.
í milliþinganefnd þessari, sem var kosin á s. 1. vetri,
áttu sæti þeir Gunnar Benediktsson, Daníel Agústínus-
son og Gísli Jónsson. Nefndin leitaði álits sveitastjórna
úti um landið og annarra aðila í þessu máli og bárust
henni svar frá 162 hreppsnefndum, 5 bæjarstjórnum,
19 pósthúsum og 6 sýslumönnum, auk þess hafði hún
samvinnu við póststjórnina.
Nefndin leggur til að póstgöngur verði auknar veru-
lega, verði greiðari og beinni en nú er. Hér á eftir verða
birtar tillögur þær um breytingar sem nefndin gerir
í áliti:
„Tillögur nefndarinnar um póstsamgöngur í landinu er í höf-
uðdráttum þessar: Pósti verði komið vikulega árið um kring um
öll héruð landsins og á flest heimili, að undanskildum nokkrum
erfiðum og strjálbýlum stöðum, sem fá ekki póst nema hálfs-
mánaðarlega yfir vetrarmánuðina. Með ströndum gangi strand-
ferðaskip milli kaupstaða og stærstu þorpa að minnsta kosti
hálfsmánaðarlega. Milli aðalviðkomustaða strandferðaskipanna
fari flóabátar eða landpóstar minnst vikulega, svo framt póstur
berist svo oft til viðkomandi landshluta. Meðan sérleyfisbílar
ganga, skulu þeir fara með póst milli landshluta í hverri ferð
sinni og dreifa pósti um víðar en verið hefur. Allar þær bifreiðar,
sem annast vöruflutninga með reglulegum ferðum daglega eða
sjaldnar innan héraðanna, skulu dreifa pósti á bæi með leiðum
sínum. Og á milli viðkomustaða bifreiða og báta og út frá þeim
sé póstur borinn með viðkomu á flestum bæjum í hverju héraði.
Skulu atriði þessi nú nánar sundurliðuð og skýrð hvert í sínu
lagi.
POSTFLUTNINGAK MEÐ
MJÓLKURBÍLUM
Svo sem fram er tekið í áð-
urnefndri ályktun Alþingis, var
það höfuðverkefni nefndarinn-
ar að gera „tillögur um breyt-
ingar, er miði að því, að póst-
sendingar berist um landið
hraðar og tíðar en nú er“. Það
fyrsta, sem nefndin sá, að til
greina hlaut að koma, til að ná
sem bezt þessu marki með sem
minnstum kostnaðarauka, var
að nota til póstflutninga skipu-
legar og í ríkari mæli en verið
hefur sérhver þau farartæki,
sem annast reglulega vöru- og
fólksflutninga milli héraða og
innan þeirra. Komu þan fyrst
til greina mjólkurflutningarn-
ir úr sveitinni til mjólkurbú-
anna og sölustaða í bæjunum.
Er það tillaga nefndarinnar, að
allur póstur til viðkomandi
héraða sé sendur til miðstöðva
mjólkursvæðanna, þar sé hann
lesinn í sundur og knippaður
eftir því, sem bæirnir eiga sam-
eiginlega viðkomustaði við veg-
ina með mjólk sína Við þá
staði sé komið upp varnsheld-
um og traustum kössum, tví-
hólfuðum, þar sem mjólkurbíl-
stjórinn lætur póstinn í, og er
hann þar tekinn af viðkomandi
t. d. um leið og mjólkurbrús-
arnir og jafnframt látinn í
kassann sá póstur, er hann vil
koma frá sér, og tekur bUstjór
inn hann um leið og flytur
hann á aðalpóststöðina. Á þenn
an hátt verði hagað flutningi
almenns pósts og tilkynninga
um ábyrgðarsendingar, en á-
byrgðarpóstur sé sendur tvisv-
ar í viku til bréfhirðinganna á
svæðunum. Á þennan hátt
mætti dreifa pósti tvisvar t’l
sex sinnum í viku um mest-
allt Suðurlandsimdirlendið að
Vík í Mýrdal, Gullbringu- og
Kjósarsýslu, Borgarfjarðar- og
Mýrasýslu, Eyjafjarðarsýslu og
að verulegu leyti um Hnappa-
dalssýslu, Skagafjarðarsýslu og
lítilsháttar í Suður- Þingeyjar-
sýslu. Hefur þessum tillögum
nefndarinnar undantekningar-
lítið verið mjög vel tekið af
sveitarstjórnum hlutaðeigandi j
héraða, og ættu ekki neinir erf- j
iðleikar að vera á framkvæmd
þeirra. Þess má geta, að í Eyja- |
firði hefur pósti verið dreift
með mjólkurbílum um nokk-
urra ára skeið og gefizt vel.
Mjólkurflutningamir eru víð-
ast í höndum félagssamtaka
þeirra aðila, sem með þessu
móti fá póstinn á miklu greið-v
ari hátt og mun því verða auð-
velt með að ná við þau hag-
kvæmum samningum um póst-
flutningana, og við mjólkur-
pallana eða samsvarandi við-
komustaði þurfa bílarnir að
nema staðar hvort eð er og þvi
ekki nema sáralítil töf að því
að koma póstinum af sér. Að
áðurnefndum póstkössum verð-
ur nánar vikið síðar í þessu á-
liti.
PÓSTFLUTNINGAR MEÐ
SÉRLEYFISBIFREIÐUM
Þá er það einnig tillaga
nefndarinnar, að sérleyfisferð-
ir bifreiða verða teknar enn
meir í þágu póstflutninga en
verið h'efur. Nú er það svo, að
póststjórnin, sem hefur með
höndum úthlutun sérleyfanna,
hefur bundið þau leyfi beim
skilyrðum, að póstur sé fluttur
á ákveðna staði á leiðinni 1 á-
kveðnum ferðum. Nú leggur
nefndin það til, að viðkomu-
stöðum með póstinn verði
fjölgað frá því sem nú er, og
þá einkum á þann hátt, að
póstkössum, sams konar og
þeim, sem áður er getið í sam-
bandi við mjólkurflutningana,
verði komið upp við vegina
svo að töf við að losna við
póstinn verði sem allra minnst-
Á þennan nátt væri hægt að
iullnægja að mestu eða öllu
póstflutningum í einstökum hér
uðum þann tíma ársins, sem
bifreiðar halda uppi áætlunar-
ferðum. Vinnst með þessu þaö
tvennt í senn, að ekki þarf að
gera sérstaka ferð með póstinn
á þessa staði og héraosbúarn-
ir fá póst s.b.m með greiðari
hætti en áður. Komu margar
raddir í þessa átt úr héruðum,
þar sem sérleyfisbílar fara í
gegn og renna rétt fram hjá
bæjunum. Þykir íbúun im það
að vonum illt að sjá a eftir
bílunum, sem eru með póstinn
á heimilin og eiga svo ekki
von á að fá póstinn fyrr en
eftir marga daga. Með þessu
sparast víða alllangar póstleið-
ir, því að ýmsir afskekktir dala-
og heiðabæir liggja mjög nærri
þjóðbrautum og komast þá þess
ir bæir úr mestu einangran
sinni lengri eða skemmri tíma
ársins.
Nefndin hefur gert sér ljóst,
að á framkvæmd þessa atriðis
eru þó nokkrir erfiðleikar á
sumum leiðum áætlunarbíl-
anna, einkum hinum lengri.
Þar sem dagleiðir eru ákveðn-
ar svo langar, að engu má
muna að þeim verði haldið, má
búast við nokkrum erfiðleikum
á því að fá sérleyfishafana til
að stöðva bílana víða, þótt ekki
sé nema rétt á meðan pósti er
stungið í kassa við veginn, og
farþegar mundu kunna miður
slíkum töfum. En alla slíka erf-
iðleika verður að yfirstíga.
Koma ýmsar leiðir til greina
um framkvæmdir í þessu efni,
svo sem að skipta héruðunum
á milli sérleyfishafanna, þar
sem fleiri en einn eru á sömu
leið, en hinum stærri leiðum,
þar sem margar bifreiðar fara
Gunnar Benediktsson,
fulltrúi sósíalista í nefndinni.
daglega, verði ein þeirra látin
hafa aðra hraðaáætlun, og gætu
ýmsir farþeganna kunnað því
eins vel eða betur, auk þess
sem sú bifreiðin gæti þá eink-
um tekið að sér flutning þeirra
farþega, sem fara ekki alla
leið milli endastöðva.
Það er með öllu ófært ástand,
að póstur komi ekki nema viku
lega eða verið sé að senda sér-
stök farartæki með póst lang-
ar leiðir, þar sem önnur farar-
tæki fara um nokkrum sinnum
í viku eða máske daglega, svo
mikilvægur þáttur sem góðar
póstsamgöngur eru í menning-
arlegu tilliti.
í sambandi við þetta vill
nefndin benda á, að lögin um
sérleyfi gefa póstmálastjórninni
svo að segja ótakmarkað vald
til að krefjast póstflutnings
með sérleyfisbílum. auk þess
sem hún hefur sérleyfisúthlut-
unina í sínum höndum og hef-
ur nú þegar tekið undir sína
umsjá rekstur flutninga á ein-
stökum leiðum og þar á meðal
nú í sumar á einni lengstu og
þýðingarmestu leiðinni, á milli
Reykjavíkur og Akureyrar, og
verði áframhald á því, að hún
taki að sér slíka starfsemi, ætti
að verða enn auðveldara að
komast yfir þessa erfiðleika.
PÓSTFLUTNINGAR MEÐ
FLÓABÁTUM
Nefndin komst að raun um
það, að um undanfarin ár hafa
ekki allir flóabátar, sem ríkið
styrkir til að halda uppi á-
kveðnum ferðum innan fjarða
og með ströndum fram, verið
settir í samband við áætlunar-
kerfi póstflutninganna. Hefur
þetta m. a. stafað af truflun-
um af völdum hernaðarástands-
ins- En gera verður ráð fyrir
því, að um það bil sem tillög-
ur nefndarinnar. koma til fram-
kvæmda, þá verði aftur komið
eðlilegt ástand, og verður þá að
gera ráð fyrir, að náið sam-
starf takjst milli póstmála-
stjómarinnar og bátaútgerð-
anna, á þann hátt, að bátarnir
geti í sambandi við ferðir sín-
ar tekið að'sér reglulega póst-
flutninga, hver á sínu svæði.
PÓSTFLUTNINGAR MEÐ
STRANDFERÐASKIPUM
Til þess að reglulegar póst-
ferðir verði framkvæmanlegar
um land allt, eru reglubundn-
ar strandferðir óhjákvæmileg-
ar. Byggir nefndin tillögur sín-
ar á því, að teknar verði upp
reglubundnar strandfeiðir milli
kaupstaðanna og stærstu kaup-
túna á landinu að minnsta kosti
hálfsmánaðarlega. Til þess að
hægt sé að framkvæma grund-
vallartillögur nefndarinnar um
minnst vikulegár póstferðir um
öll meginhéruð landsins og nán
ar verður vjkið að í næsta
kafla, þyrftu strandferðir þess-
ar að vera vikulega yfir þann
tíma ársins, sem aðalleiðir milli
landshluta eru ekki færar bif-
reiðum. Gildir þetta sérstak-
lega um Austur- og Norð-Aust-
urland. En með hliðsjón af því
ástandi, sem ríkt hefur undan-
farin ár í strandferðamálunum,
sá nefndin sér ekki fært að
gera ráð fyrir meira en hálfs-
mánaðarlegum strandferðum,
Framhald á 5 síðu.
borglnnl
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkurapó-
teki, sími 1760.
Næturakstur: B. . S. R., sími 1720.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.2Q
e. h. til kl. 9.50 f. h.
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur..
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.35 Lesin dagskrá næstu viku..
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) „Die Felsenmiihle eftir
eftir Reissiger.
b) Krolls Ballklánge eftir
y Lumbye.
c) „Extase“ eftir L. Ganne.
d) „Kampavínsgaloppaði" eft
ir Lumbye.
20.50 Lestur íslendingasagna (dr.
Einar Ól. Sveinsson háskóla-
bókavörður).
21.20 Hljómplötur: Leikið fjórhent
á píanó.
21.30 Frá útlöndum .(Björn Franz-
son).
21.50 Hljómplötur: Ria Ginster syng
ur.
Frá Nessókn í Reykjavík.
Mjög er ánægjulegt að finna,
hve mikill áhugi ríkir nú hjá söfn-
uðinum á byggingu hinnar nýju Nes
kirkju, sem vissulega er orðin þörf
á að hefjast handa um.
Kemur þetta glöggt í ljós þegar
íkirkjunni berast hver stórgjöfin
eftir aðra.
Virðast íbúarnir á Melunum ætla
að verða sérstaklega örlátir, þar
sem nýlega hefur verið getið um
eitt þúsund króna gjöf frá fjöl-
skyldu þar, sem ekki vill láta nafns
síns getið, auk annarra stórgjafa
þaðan í vetur.
Auk eitt hundrað krónu gjafar
frá konu á Seltjarnarnesinu hefur
kirkjunni nú borizt eitt þúsund
króna minningargjöf frá öldruðum
bónda við Skerjafjörðinn, svo ekki
virðist sá hluti sóknarinnar ætlá
að láta sitt eftir liggja með gjafir
til kirkjunnar sinnar.
F. h. Neskirkju hjartans þakkir.
Guðm. Ág.
Mætti um leið benda þeim sókn-
armönnum á, sem ekki hafa enn
tryggt sér eitt eintak af hinni
merþilegu bók dr. Jóns biskups
Helgasonar: „Kristur vort líf“, að
nú eru aðeins fá eintök eftir af
henni í vönduðu alshirtings-bandi.
Þessi eintök fást hjá sóknarnefnd-
armönnunum og kosta aðeins kr.
35.00, sem rennur óskert til Nes-
kirkju.
/