Þjóðviljinn - 11.01.1945, Síða 3
Fimmtudagur 11. janúar 1945.
S
Þ JOÐVIL JINN
1---------------------------------------------
VÍSINDI í ÞÁGU
FRAMLEIÐSLUNNAR
larolræDiD oo fpaiotlOapaiBllanlp
í þessari grein ræðir prófessor Haldane, sem er lesendum
Þjóðviljans að góðu kunnur fyrir hinar skýru og alþýðlégu rit-
gerðir sínar um hinar ýmsu greinir vísindanna, inn mikilvægi
jarðfræðinnar í sambandi við alla áætlanir, sem menn eru nú
famir að gera fyrir framtíðina.
Ástæða er til að benda þeim
mörgu blaðalesendum, sem
hafa áhuga á að fylgjast með
sjávarútvegsmálum, á tíma-
rit Fiskifélags íslands, Ægi,
er flytur að staðaldri merk-
ar greinar um íslenzka sjáv-
arútveginn og erlendar nýj-
ungar á sviði fiskveiða og
fiskiðnar. Eftirfarandi grein
eftir ritstjóra Ægis, Lúðvik
Kristjánsson, birtist nýlega
sem forystugrein tímaritsins.
Einangrunin hefur tvímæla-
laust orðið íslendingum fjötur
um fót að ýmsu leyti, þótt þeir
hins vegar eigi henni nokkuð
gott upp að unna. Augljósust
hafa för einangrunarinnar orð-
ið á framleiðsluháttum lands-
manna, þótt hún að vísu sé
ekki ein um sökina. Hin frum-
stæðu atvinnutæki gengu ó-
breytt frá kynslóð til kynslóð
ar; framleiðslugetan hélzt í
hendur við þessi , tæki og af-
raksturinn hrökk stundum
naumlega til að halda lífinu í
landsmönnum.
Þannig varð þjóð, sem átti
yfir að ráða þtæmandi auð-
lindum á landi og í sæ, að sjtja
við stall allsleysis öld eftir öld.
Það er ekkert nýjabrum á
þessari sögu, síður en svo, en
hún hlýtur þó alltaf að verða
hrópandi eggjun til þjóðarinn-
ar um að fejóða aldrei heim
kyrrstöðu í atvinnulífi lands-
manna.
Nú má segja, að einangrunin
sé úr sögunni, hin aukna sam-
göngutækni hefur fært einbú-
ann í Atlarizhafi heim undir
bæjarvegg meginlandanna, ef
svo mætti orða það. Þessa
breyttu aðstöðu á þjóðin að not
færa sér á öllum þeim sviðum,
sem kostur er og henni er hag-
kvæmt. Hún má ekki, af myrk-
fælni við getuleysi, vera feim-
in við að skyggnast um í völ-
undarsmiðjum framleiðslutækn
innar í hinum ýmsu löndum og
láta undir höfuð leggjast aðv
tileinka sér það, er hún fær
við ráðið og getur komið henni
að haldi.
Sannleikurinn er sá, að fram
til síðustu ára hefur þjóðm
'verið haldin. eins konar kuð-
ungseðli í þessum efnum, hún
hefur kosið að fara í sjálfa sig
í stað þess að brjóta skelina og
beina vökulum augum athug-
andans að þeim nýjungum í
framleiðslutækni, er henni
hefði mátt henta.
Þótt skjóta hafi mátt fyrir
sig til varnar að þessu leyti
skildi einangrunar og geiuleys-
is, er þó enginn vafi á því, að
sinnuleysi hefur eigi litlu um
valdið. Á það má reyndar
benda, að miklar og margvís-
legar framfarir hafa átt sér
stað í framleiðsluháttum lands-
manna síðustu árin, en hins
vegar er ekki loku fyrir skot-
ið, að þær hefðu getað orðið
mun meiri og fjöibreyttari, ef
hugsað hefði verið um það af
alúð og árvegni, að fylgjast ná-
ið með þeirri nýbreytni, er
þær þjóðir hafa tekið upp, sem
hafa svipuð hráefni til vinnslu
og íslendingar.
Óþarfi er að fjölyrða um það,
hvílík nauðsyn íslendingum er
að fylgjast með öllum nýjung-
um í fiskiðnaði og tileinka sér
þær skjótt og samhæfa þær ís-
lenzkum aðstæðum svo sem
hagkvæmt þykir. Verði það
ekki gerí, verður erfitt fyrir
landsmenn að hafa í fullu tré
við þær fiskiðnaðarþjóðir, er
sækja á sömu markaði og vér.
Þess er ekki að vænta, að vér
getum að verulegu leyti orðið
frumkvöðlar um nýtækni í fisk
iðnaði, og veldur því smæð vor
og fæð, og því verðum vér að
fylgjast af gaumgæfni með
þeim rannsóknarefnum, . sem
stórþjóðimar hafa með höndum
í þessum efnum, og notfæra
oss þann árangur, sem þar
fæst, ef hann er oss haldkvæm
ur. Ekki nægir að taka upp
nýmæli í fiskiðnaði t. d., ef ekki
er jafnframt um það hirt, að
vöndun vörunnar og fram-
leiðslukostnaðurinn geti hald-
izt í hendur við það, sem bezt
gerist annars staðar. Ríður eigi
lítið á í þessu sambandi að
kynnast náið verktækni og
verkmenningu þeirra þjóða,
sem fremst standa á hverju
sviði fyrir sig og skyldastar
eru oss um framleiðsluhætti.
Allir virðast vera. sammála
um, að lífsnauðsyn sé fyrir
þjóðina að auka og endurnýja
skipastólinn, og þá ekki sízt
fiskiflotann. En á það er sjald-
an minnzt, að í k.iölfar þessar-
ar nauðsynjar verður óhjá-
kvæmilega að þefja baráttu fyr
ir því, að atvinnutækin standi
undir sér og þeir, sem við þau
vinna, geti lifað við þau kjör,
sem samboðin eru menningar-
þjóð. Eg er sannfærður um, að
þessi barátta verður fyrst og
fremst að beinast að því að
gjömýta allt það hráefni, sem
aflast, og vinna úr því þær
vörur, sem seljanlegastir eru á
hverjum tíma. Og við vinnsl-
una verður að beita þeirri
tæknilegu kunnáttu, sem bezi
er völ á. Én til þess að vér
verðum eigi eftirbátar um
þessa hluti, verðum vér jafnan
að fylgjast vel með þeim nýj-
ungum, sem upp eru á teningn-
um hjá öðrum fiskveiðaþjóðum,
og færa oss þær til nytja svo
sem hérlendar aðstæður leyfa.
Til þess að þetta megi verða,
er þjóðinni nauðsynlegt að eign
ast sérmenntaða menn á öllum
svðum fiskveiða, fiskiðnfræði
og fiskifræði-, og skapa þeim
jafnframt aðstöðu til kvnning-
arferða með erlendra fiskveiða,
þjóða og tilraunastarfsemi hér
heima- Það væri gáleysi, ef
spara ætti um of fé til slíkra
hluta, en hins ber og að gæta
að fela ekki slíkt öðrum en
þeim, er hafa hina bezt.u sér-
menntun og reynslu. Tilraunir
í þágu atvinnuveganna hafa
allt til þessa haft um of á sér
blæ fimbulfambs, og því hefur
Nú þegar dregur að stríðslok-
um, förum við að hafa áhuga
á framtíðaráætlunum. Ekki leik
ur yafi á því að flestum Eng-
lendingum (og sama má segja
um íslendinga, — þýð.) muni
finnast mikilvægustu vandamál
in vera þau, hvort þeir muni
fá atvinnu að stríðinu loknu.
En aðrir þeir, sem áætlanir
gera um framtíðina brjóta heil-
an um bandalag Evrópuríkj-
anna, uppskiptingu Indlands
og svo framvegis.
Allar áætlanir verða að taka
með í reikninginn hin hag-
fræðilegu og atvinnulegu at-
riði. Til dæmis verður ekki
hægt að gera áætlanir um rekst
ur brezku 'kolanámanna, nema
þær verði þjóðnýttar. Það verð
ur einnig að taka tillit til póli-
tískra staðreynda. Hvaða Ev-
rópuríki sem kunna að gera
bandalag sín á milli, þá mun
áreiðanlega ekkert ríki gera
bandalag við Þýzkaland.
★
En mestu grundvallaratriði,
sem allar áætlanir verða að
byggjast á, eru þau sem við-
koma jarðfræðivísindunum-
Jarðvegur lands er mikilvægt
atriði. Hægt er að gera góðan
jarðveg úr vondum á nokkrum
kynslóðum, en það er hægt að
, eyðileggja hann á nokkrum
klukkustundum.
Ef sjór verður látinn flæða
yfir stóra hluta Hollands á
I næstu mánuðum mun það reyn
ast nauðsynlegt að láta hinum
hollenzku bændum, sem þannig
missa afkomuskilyrði sín, jarð-
næði í Þýzkalandi í té. En
það mun þó vera hægt að gera
þessi hollenzku landssvæði frjó
söm aftur á 10—20 árum.
En á hinn bóginn mun eng-
inn mannlegur máttur reynast
hæfur til að framleiða kol, járn-
árangurinn oft orðið í öfugu
hlutfalli við tilkostnaðinn
Skilji þjóðin ekki nauðsyn
þess að vera vel á veiði um
hagnýtar nýjungar meðal er-
lendra fiskveiðiþjóða og gildi
þess að eiga sérmenntaða menn
á þessum sviðum, er gætu skjót
lega tileinkað sér þær og sam-
hæft íslenzkum staðháttum, má
vel svo fara, að um hana megi
nú enn á ný segja það sama,
sem framsýnn íslend'ngur
mælti fyrir 54 árurn. — Þegar
þjóðin er orðin að strandarg'lóp
í framfaraleiðangri' mannkyns-
ins, á að letra á leiði hennar
þessi orð: „Hér 1 ílir þjóð, scm
alltaf var að bíoa eftir því, að
eitthvað yrði úr ser“.
L K.
grýti eða nokkum annan málm.
Málmauðæfi lands eru þátt-
ur í hinni óhagganlegu bygg-
ingu sögunnar. Á síðustu öld
hafa þau orðið geysilega mik-
ilvæg. Á 18. öld var landbúnað-
urinn aðalatvinnugrein í öllum
löndum og trjáviður var mikil-
vægara hráefni en járn. Skip,
vagnar og kerrur voru smíðuð
úr honum og engan málm, að
undanteknum nokkrum nöglum
og hjörum, þurfti til að byggja
hús.
★
Þjóðir Vestur-Evrópu og
Norður-Ameríku hafa tilhneig-
ingu til að álíta sig meiri en
aðra kynþætti. En jarðfræðing-
urinn Read prófessor segir
þetta um þær: „Löndin við
norðanvert Atlanzhaf eru í
rauninni ekki byggð þjóðum,
sem eru sérstaklega dyggðum
prýddar eða sérstaklega göfug-
ar, iðnar og gáfaðar, eða jafn-
vel sérstaklega námfúsar. —
Þær eru aðeins svo vel staddar
að byggja lönd, er eiga sér
jarðsögu, sem er hentug til
myndunar málmauðæfa og á
þessum heppilega grundvelli
hafa þær byggt hina atvinnu-
legu byggingu sína“. Með
þessu er málið ef til vill gert
of auðvelt og einfalt, en þetta
hefur samt að geyma mikinn
sannleika-
Hollenzka borgarastéttin náði
völdum á undan hinni brezku
og meðan velmegunin hvíldi á
landbúnaði og verzlun var Hol-
land auðugra en Bretland. En
lítið er um kol í Hollandi, enda
þótt nýlega hafi fundizt kol í
suðausturhluta landsins og
þess vegna hlutu Englendingar
að fara fram úr Hollendingum
á 19. öld.
Fyrir tvö hundruð árum var
Svíþjóð mikið hernaðarveldi,
um 1800 var Danmörk mikið
flotaveldi. Þar semf þau höfðu
I ekki yfir kolanámum að ráða
gátu þau ekki haldið þessari
aðstöðu.
En á hinn bóginn er mestur
hluti þeirra kolabirgða, sem í
Evrópu finnast vestan Donets-
héraðanna rússnesku í
þýzkri jörð. Þetta gerði að verk
um að hröð iðnaðarleg upp-
bygging var möguleg í Þýzka-
landi á seinni hluta nítjándu
aldar, og þetta er grundvallar-
orsök fyrir hinum mikla hern-
aðarmætti Þýzkalands, sem á
sennilega að engu leyti rót
sína að rekja til arfgengra eig-
inleika, góðra eða vondra, sem
búa með þýzku þjóðinni.
Til loka síðustu aldar var
ríki sem átti nægar birgðir af
kolum og jámgrýti, allsjálf-
stætt hvað snerti járn- og stál-
framleiðslu. Kopar varð ekki
svo mjög mikilvægur fyrr
en rafmagnsiðnaðurinn fór að
koma verulega til sögunnar.
Aðrir málmar voru allt að því
lúxusvörur.
★
Nú hefur þetta ástand ger-
breytzt. Nú er stálið sambland
af járni og minna magni af
sjaldgæfum málmum eins og
mangani, nikkel, kóbalti, krómi
og tungsten. Stál er ennþá
framleitt, þar sem kol og jám-
grýti finnast nálægt hvort öðru,
en þessir sjaldgæfu málmar
þurfa að flytjast um miklar
vegalengdir.
Ekbert ríki veraldarinnar er
algerlega sjálfu sér nóg. Til
dæmis má nefna, að Sovétríkin
framleiddu meira en helming
af öllu mangani heimsins 1938,
en skorti allmikið nikkel, og
mjög mikið tungsten og moly-
bdenum. Bandaríkin skorti
mjög mangan. Brezka heims-
veldið sem heild kemst allvel
af, en skortir samt t. d. tung-
sten og það jafnvel á friðar-
tímum og mjög \ alvarlega nú,
þegar Burma er í höndum Jap-
ana.
Fjórða grein Atlanzhafssátt-
málans er mjög mikilvæg, en
hún fjallar um að öll ríki eigi
að hafa aðgang að hráefnaauð-
lindum heimsins, og leggur sér-
staklega áherzlu á þessa höfuð
málma, og á aðra málm eins
og tin, en dreifing þess um
jarðskorpuna er mjög misjöfn
og óregluleg.
Takmarkanir Breta á tin- og
gúmmíframleiðslu orsökuðu
allalvarlegan ágreining við
Bandaríkin fyrir stríðið.
Við þurfum að gera einhvers
konar alþjóðlegar áætlanir um
þessi mál í framtíðinni. Áður
hafa alþjóðlegar atvinnulegar
áætlunargerðir verið látnar í
höndum alþjóðlegra auðhringa,
sem takmörkuðu framleiðsluna
í gróða skyni.
★
Til allrar hamingju munu
Sovétríkin taka mikinn þátt í
slíkum áætlunargerðum. Þar
sem Sovétríkin hafa meiri á-
huga á aukningu framleiðsl-
unnar en gróðans, mun það
hjálpa Bretum, Ameríkönum
og öðrum framleiðendum, sem
vilja nota hina sjaldgæfu
málma gegn einokunarmönnun-
um, sem vilja hækka vöruverð-
ið.
Til allrar óhamingju eru til
margir stjómmálamenn sem
ekki hugsa um jarðfræði. Til
dæmis vill herra Jinnah skilja
Pakistanríki frá Indlandi, án
þess að gera sér það ljóst, að
ef svo yrði mundi það hafa
yfir litlu af málmlindum Ind-
lands að ráða. 40% af málm-
framleiðslu Indlands kemur
frá Orissa héraðinu og mikið
af því sem eftir er úr þeim
hluta Bengal, sem að mestu
leyti er byggður Hindúum.
Pakistan mundi verða ríki, sem
• Framh. á 5. síðu.
WVWV*.".* it J^f'XIIi
\. B, S. Haldane
Í» prófessor ;■
iWWtfWW^^WWWVWWWWWWWWWWWWWWIWWV