Þjóðviljinn - 11.01.1945, Qupperneq 4
ÞÓJÐVILJINN —Fimmtudagur 11. janúar 1945.
þlÓÐWlUIKN
Utgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalisíaflokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaííur: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 12, simi 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: SkólavörSustíg 19, sími 2181,.
Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Uti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœti 17.
1
Flugfélag Islendinga
Það er brátt að því komið að ákveða verður hverskonar skipulag
skuli hafa á flugmálum íslendinga, hvað snertir rekstur flugfélaga eða
flugfélags. Og það er ekki nema eðlilegt að farið sé að ræða um þau
mál nú þegar.
3?að liggur í augum uppi að það nær engri átt að hafa hér mörg
smá flugfélög, sem keppa hvort við annað. Með því móti yrðu íslending-
aralveg ósamkeppnisfærir um flugleiðirnar til útlanda og þar af leiðandi
ófærir um að halda þeim uppi.
Það verður því að vera eitt flugfélag, sem hefur flugferðirnar með
ihöndum, — og hvernig á þá að komast hjá þeirri einokun í höndum
einstakra manna, sem yrði eðlileg afleiðing slíks skipulags? Það er ekki
hægt að komast hjá slíku nema með verulegri þátttöku íslenzka lýð-
veldisins sjálfs, ríkisins, í slíku flugfélagi, jafnvel þannig að það ætti
helming hlutafjár.
Það hefur orðið vart tilhneiginga af hálfu einstaklinga að vilja helzt
sölsa undir sig einokun á flugferðunum og það mun tilgangur sumra
þeirra, sem standa að þeim tveim flugfélögum, sem hér starfa nú og
Eimskipafélagi Islands, að þessi félög sitji ein að myndun flugfélags.
Slíkt nær vitanlega ekki nokkurri átt.
Þegar stofnað verður eitt, almennt flugfélag íslendinga, til
þess að annast allar flugferðir þjóðarinnar, verður vitanlega að
gefa öllum landsmönnum tækifæri til þátttöku, líkt og gert
var við stofnun Eimskipafélagsins á sínum tíma. Og þar að auki
kemur svo hlutdeild ríkisins.
Það væri alveg óhugsandi að ætla að láta lítinn hóp manna njóta
forréttinda um hlutafjárframlag til þess eina flugfélags, sem rekið yrði
á íslandi.
Það er vitað að Eimskipafélag íslands hefur ákveðið að leggja
nokkuð af því fé, sem það hefur eignast með aðstoð ríkisins og á kostnað
annarra skattgreiðenda, í flugfélag. Það er að vissu leyti rétt, þar sem
búast má við að allur aðalfarþeglflutningur frá íslandi fari fram með
flugvélum framvegis og því’ eðlilegt að Eimskipafélagið vilji halda
áfram þeirri starfsemi sinni í nýju formi.
En það mun og mál margra að ekki veiti af að Eimskipafélagið
hugsi betur um vöruflutningamöguleika landsmanna en það hefur gert
síðasta áratuginn og megi því sízt vanrækja kaup á flutningaskipum,
svo sem það alltof lengi hefur gert.
Sá ótti hefur og gert vart við sig að stjórnendur Eimskipafélags-
ins hugsuðu til þess að gerast sem mest alráðir í flugfélagi, ef þeir mættu.
Ekki er reynslan svo góð af framsýni og umhyggju' Eimskipafélags-
stjórnendanna fyrir almenningshag, að það myndi spá góðu, ef þeim
tækist slíkt.
•
íslenzka ríkið verður að tryggja þegna sína gegn misnotkun hvers-
konar einokunarafstöðu, sem það af tæknilegum og skipulagsleguin
ástæðum verður að koma á.
En þar að auki verður íslenzka lýðveldið að tryggja sjálft sig
gegn því að erlend auðfélög geti náð tökum á svo mikilvægum þætti
þjóðlífsins sem flugmálunum. Og sú hætta er altaf til meðan hægt er
að kaupa upp hlutafélög eða koma á einhverskonar leppmennsku. Og
það er vitanlegt að einmitt flugfélögunum er hætt við að reynt vei’ði
að koma við erlendum áhrifum. Og eina örugga tryggingin fyrir því, að
íslendingar ráði siíku flugíéiagi algerlega er að ríkið eigi helming hluta-
fiár.
Isfishsierlifl lekkir
Dátinn, sem varð
• Hér birtist stutt ævisaga yfirforingjans yfir
hersveitum 3. Úkrainuhersins sem unnið
hafa fræga sigra í Ungverjalandi að und-
anförnu.
Fjodor Ivanovits Tolbúkin mar-
skálkur hélt upp á tvö afmæli á
síðast liðnu ári, — fimmtugsaf-
mæli sitt og 30 ára herþjónustu
afmæli.
Hann er sonur rússnesks alþýðu
fólks. — I bók þorpskirkjunnar
í Davidovo er þessj klausa, dag-
sett 16. júní 1894: „Ivan Tolbúk-
in, fyrrum hermanni, nú bónda í
Jaroslav Gúbernia, fæddur sonur,
Fjodor“.
Drengurinn ólst upp í þorpinu
sínu. — A veturna lærði hann í
barnaskóla. Á sumrin vann
hann á ökrunum. — Einfalt og
erfitt sveitalífið stælti hann and-
lega og líkamlega.
Á unglingsárum sínum rak þekk
ingarþráin hann til Petrograd, þar
sem hann vonaðist til að geta afl-
að sér menntunar. — Honum var
þá ekki farið að det.ta í hug að
verða hermaður. — Hann byrjaði
á að búa sig undir borgaraleg
störf.
Þegar stríðið skall á 1914, gaf
hann sig fram til þjónustu í bif-
vélahersveit Petrograds og fór til
vígstöðvanna sem óbreyttur her-
maður, ríðandi á vél'hjóli. — —
Hann særðist í Grodno-orustunni,
og er hann hafði náð sér, var hann
sendur í liðsforingjaskóla.
SKJÓTUR FRAMI
Hann útskrifaðist með heiðri í
júlí 1915 og sneri aftur til víg-
stöðvanna sem fyrirliði fótgöngu-
liðsherdeildar (company).
Hann sýndi brátt mikla foringja
hæfileika, hugkvæmni og dirfsku,
og var sæmdur tveimur heiðurs-
merkjum eftir fjögurra mánaða
þjónustu og hækkaður í tign (sec-
ond lieutenant).
Herdeild hans var ein af þeim
beztu í hersveitinni (regiment).
Fyrir hugrekki sjálfs sín í bar-
dögum fékk hann þriðja heiðurs-
merkið. — Hann varð lieutenant
og svo herflokksforingi (battalion
commander). — Sex mánuðum
seinna varð hann höfuðsmaður
(staff captain) og fékk fjórða heið-
ursmerkið. — Herflokkur sá, sem
hann stjórnaði, barðist á aðal-
vígsvæðunum í hinni frægu sókn
Brússiloffs.
Frá fyrsta degi ráðstjórnarinnar
í Rússlandi helgaði Tolbúkin alla
hermennskuhæfileika sína hags-
munum alþýðunnar og ættjarðar-
innar.
Árið 1919 var hann á Petrograd-
vígstöðvunum sem að’stoðaryfir-
foringi yfir herforingjaráði herfylk-’
is og tók þátt í vörn Leningrads
— Árið 1920 var hann yfirforingi
yfir herforingjaráði herfylkis á
vesturvígstöðvunum (þ. e. austur-
vígstöðvunum á okkar máli. —
Þýð.).
Þegar bardögum lauk á hinum
mörgu vígstöðvum borgarastyrj-'
aldarinnar og unga verklýðsríkið
sneri sér að friðsamlegum viðreisn-
arstörfum varð Tolbúkin kyr
rauða hernum, jók hernaðarþekk-
ingu sína og kenndi undirmönnum
sínum. — Ilann stundaði nám við
hernaðarframkvæmdadeild Frunze
'hermennskuskólans og varð yfirfor
ingi yfir herforingjaráði hersvæðis.
— I þeirri stöðu var hann, þegar
Ilitler réðst á Sovétríkin. — Seinna
varð hann yfirforingi herforingja-
ráðsins á Krímvígstöðvunum.
Tolbúkin stjórnaði heilum her
við vörn Stalingrads. — Þeir, sem
börðust við hlið hans á þeim dög-
urn, tala um hina óbifanlegu, ró-
legu sigurvissu hans.
Ilann er ímynd hins rússneska
hermanns, — bláeygur, ljóshærð-
ur, stór og sterkur, — óttast aldrei,
— þreytist seint, — er í einu hóg-
vær, látlaus og valdsmannslegur.
Herinn, sem hann stjórnaði,
hélt vígsvæðinu, þar sem herafla
þeim, sem ætlað Ýar að ráða niður-
lögum þýzka hersins við Stalin-
grad, var safnað saman í nóvem-
ber 1942.
— — Þann 19. nóvember hóf
her Tolbúkins sókn ásamt öðrum
sovétlherjum. — Her hans ruddi
braut skriðdrekum og vélbúnum
hersveitum á aðalsóknarsvæðinu
með því að brjótast í gegnum víg-
línur óvinanna.
Á þrem dögum sóttu menn hans
fram um 75 km, náðu sambandi
við hersveitirnar á Don-vígstöðv-
unum og króuðu á þann hátt 6.
herinn þýzka inni.
ELDIN GARHRAÐI
Tolbúkin stjórnaði þessum hern-
aðaraðgerðum með leifturhraða og
snilli. — Þýzka herstjórnin reyndi
að bjarga hinu innikróaða úrvals-
liði sínu með því að láta Manstein
hefja árásir frá Kotelnikovo-hér-
aði. — Paulus reyndi að brjótast
út úr kvínni og komst í samband
við Manstein. — Her Tolbúkins
varð að verjast á báðar hliðar.
Hersveitir Mansteins biðu lierfi-
legan ósigur á iniðri leið frá Ko-
telnikovo til Stalingrads. — Hann
missti megin hluta skriðdreka
sinna og hörfaði suður á bóginn
undan sovétsókninni, sem óð yíir
allar torfærur eins og snjóflóð. —
Menn Tolbúkins réðust á hersveit-
ir Paulusar og áttu ek'ki lítinn
þátt í tortímingu hans. — Tol-
búkin varð nú hershöfðingi (lieut-
enant-general) og fékk Súvoroff-
orðuna (1. flokks).
Eftir Stalingrad-sigurinn stjóm-
aði hann her í orustunum um
Spass Demensk. — Vorið 1943
(þá orðinn colonel-genéral) var
hann skiþaður yfirforingi suðurvig
stöðvanna. — í ágústmánuði
brauzt her hans með miklum hraða
gegnum varnarlinu óvinanna við
Mius.
Aðaleinkennin á hernaðáraðferð
Tolbúkins eru glögg. — Þau eru
í fyrsta lagi að rannsaka vígstöðu
óvinanna mjög vandlega, undir-
búa hverja herna aðgerðv ná-
marskálkur
Tolbúkin marskálkur
kvæmlega og með mestu leynd,
safna meginhernum saman á aðal-
árásarstaðnum, skjót og einbeitt
áhlaup og mikill hreifanleiki.
í Mius-orustunni var aðaláhlaup
ið gert fyrir norðan Matvejeff
Kúrgan. — Afar stórt skarð var
rofið í varnarlínur óvinanna, og
gegnum það streymdu riddaráliðs
og skriðdrekahersveitirnar, sem
króuðu þýzka herinn inni við Tag-
anrog.
Þá er menn Tolbúkins höfðu
tvístrað megin hluta óvinaherfylkj
anna og farið framhjá Miusvarnar-
virkjunum, stefndu þeir til Don-
bas og sóttu fram um 320 km á
sex dögum.
Tolbúkin var nú gerður að yf-
irh ershöf ðing j a.
Þjóðverjar höfðu jafnvel ennþá
öflugri víggirðingar við ána Mol-
otsnaja, þar sem þeir vonuðust
til að geta lokað leiðinni til Krims.
Eftir stutt hlé brutust hersveit-
ir Tolbúkins í október gegnum
víggirðingarnar, lokuðu undan-
haldsleiðinni frá Krím og lögðu
undir sig allan suðurbakka Dnéprs.
— Um þetta leyti fóru fótgöngu-
liðsherfylkin 30 til 40 km á dag
í stöðugum bardögum.
Allar hernaðaraðgerðir, sem Tol-
búkin stjórnar, eru athyglisverðar
fyrir liraða sinn og sveigjanleik
og fyrir það, hvað hann er skarp-
skyggn á veikustu blettina í víg-
girðingum óvinanna. — Það var
hraðinn og snöggleikinn í áhlaup-
unum, sem réðu úrslitunum, þegar
hann komst yfir Sivasj og brauzt
í gegnum víggirðingarnar á Pere-
kopeiði.
Sigrar þeir, sem menn hans
unnu á Krím, eru enn í fersku
minni. — Þjóðverjar voru um níu
niánuði -að hertaka Sevastopol, —
menn Tolbúkins tóku virkið aft-
ur á fimm dögum. — Ófarir ó-
vinanna á Krím voru einn sigur-
inn enn fyrir Tolbúkin marskálk,
— sjálfboðaliðann frá 1914.
Seinna hröktu hersveitir hans
óvinina út úr víðlendi Suður-
Rússlands, sigruðu þá í mörgum
orustum við neðri hluta Dnéster-
fljóts. — Skömmu seinna héldu
þær inn í Rúmeníu og Búlgaríu.
Tolbúkin várð marskálkur þann
12. september 1944.
> 3. Úkrainíuherinn berst nú í
Ungvcrjalandi. — Þar vann hann
frægan sigur, þá er hann brauzt í
gegnum víggirðingar Þjóðverja og
Framhald af 1. síðu.
nefndarinnar, og svo verði einnig
um allmörg færeysk skip, en skip
þessi verða að taka fiskinn í hvert
sinn á þeirri höfn sem Lands-
samband útvegsmanna segir þeim
fyrir um.
VERÐHÆKKUNARSJÓÐUR
Borgað verður við móttöku
fisksins sama verð og hingað til,
en hækkunin, 15%, rennur í verð-
hækkunarsjóð, sem Fiskimála-
nefnd úthlutar í hver vertíðarlok.
í sjóð þennan rennur einnig allur
sá liagnaður, sem verður af rekstri
leiguskipanna.
Landinu verður skipt í útflutn-
ingssvæði, og er yfirleitt gengið
út frá því, að hver útgerðarstaður,
sem aðstöðu hefur til afskipunar
á aflanum sé útflutningssvæði, þó
er tilætlunin að Reykjanessvæð-
ið, sunnan Hafnarfjarðar, verði eitt
útflutningssvæði.
í tilkynningu Samninganefndar
ufhnríkisviðskipta er ákveðið, að
„afgreiðslumaður fiskkaupaskipa
skal senda Fiskimálanefnd í síð-
asta lagi sex dögum eftir að fisk-
kaupaskip hefur verið afgreitt til
útlanda, sundurliðaða skrá um
fiskkaupin, og skal þar tilgreina:
1. Nöfn fiskseljanda, 2. Nöfn fiski-
skipa, sem selt hafa fiskinn, 3.
Magn fisks og tegund fisks sund-
urliðað eftir verði, 4. heildarverð.
„Verð á fiski til hraðfrystihúsa
Póstferðir vikulega
Framhald af 2. síðu.
og leiðir af því, að á Austur-
og Norð-Austurlandinu verður
ekki hægt að halda sig við
vikulegar póstferðir um héruð-
in. þann tíma, sem bifreiðar
ganga ekki, nema hægt verði
að auka strandferðir upp í viku
legar ferðir eða halda uppi
reglubundnum flugferðum til
þessara héraða, og verður nán-
að að því vikið síðar, og legg-
ur nefndin áherzlu á það, að
grundvallarreglan um vikuleg-
ar póstferðir um meginhéruð
landsins, vetur jafnt og sumar,
þurfi ekki nema um litla stund
að brotna á því, að ekki verði
hægt að koma pósti svo oft til
sumra héraða á landinu“.
Jarðfræði og
framtíðaráætlanir
Framhald af 3. síðu.
enga möguleika hefði til þess
að þróa mikinn iðnað.
Þangað til menn taka jarð-
fræðileg atriði jafnalvarlega og
þau atriði sem koma við yfir-
borði landanna, eru ríkisstjórn-
ir okkar mjög líklegar til að
gera aftur sömu mistökin, sem
þær hafa gert áður, bæði með
því að meta styrkleika þjóða
ranglega og með því að berjast
á móti þeim, að óþörfu-
Ungverja á Dónárbökkuin og
komst að Balatonvatni. — Nú
eru hersveitir úr her Tolbúkins
að hertaka Búdapest ásamt her-
sveitum úr 2. Úkraníu-hernum
undir stjórn Malinovskis mar-
skálks.
verður það sama og verið hefur eða
jafnhátt og útborgunarverð á
fiski í flutningaskip. Eigendur
hraðfrystihúsa skulu senda Fiski-
málanefnd vikúlega skýrslu um
fiskkaupendur sem segir hér að
framan“.
Samkvœmt þessum skýrslum
verðivr í hver vertíðarlok verð-
hœkkunarsjóðnum skipt niðwr á
jiskeigendur þannig, að ágóðahlut
hvers útflutningssvœðis verður
skipt miUi bátanna á svœðinu í
hlutfalli við heildarafla þeirra.
Ætlast er til að afhending fisks-
ins sé á hverju útflutningssvæði í
höndum eins aðila, sem ráðstafi
því hvað mikið af aflanum gengur
til hraðfrystihúsa, kaupaskipa eða
leiguskipa.
•
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að smáútvegsmenn og hluta-
sjóinenn hafa margir borið skarð-
an hlut frá borði síðustu árin, og
var það eitt af samningsatriðun-
um við myndun núverandi ríkis-
stjórnar, að gerðar yrðu ráðstaf-
anir til að úr því yrði bætt.
Þær ráðstafanir, sem nú hafa
verið gerðar, eru gerðar í samræiai
við óskir smáútvegsmanna og
hlutasjómanna sjálfra. Það er vit-
anlegt, að mikill gróði hefur orðið
á ísfisksútflutningnum en hann hef
ur aðeins að litlu leyti komið smá-
útvegsmönnunum og hlutasjó-
mönnum til góða.
Raddir höfðu komið fram um að
lækka þyrfti fiskverðið, og er öll-
um ljóst hver vandræði hefði
af því leitt fyrir útveginn. í stað
! þess er fiskverðið hækkað veru-
, lega, og jafnframt, með leiguskip-
! unum, gerðar ráðstafanir til að
: fiskimennirnir sjálfir geti notið
sem allra mest af afrakstri erfiðis
síns.
ílfsreiðsleslðrl.
Stúlka, vön afgreiðslu í
matvöruverzlun, getur fengið
atvinnu nú þegar. Gott kaup.
♦
★
KRDH
Skrifstofan, Skólavörðust. 12.
Stakar
K<t i nanRn.bnxr
fyrirliggjandi.
Einnig saumaðar eftir
máli með stuttum
f yrirvara
HSííma
Skólavörðustíg 19.
Simi 3321.
i
Fimmtudagur 11. janúar 1945 — ÞJÓÐVILJINN
AUGLÝSING
frá Samninganefnd utanrikisviðskipta um iágmarksverð á nýjum fiski o.fi.
SamkVæmt fyrirmælum ríkisstjórnarinnar til-
kynnist eftirfarandi:
1. Frá kl. 1 e. h., miðvikudaginn 10. janúar, 1945,
er lágmarksverð á fiski, sem seldur er nýr í skip
til útflutnings, svo sem hér segir:
Steinbítur (í nothæfu ástandi)
óhausaður .............. kr.
Hrogn (í góðu ástandi og ó-
sprungin, í um 14 enskra
0,26 per kg.
punda pokum)
Háfur ..........
Þorskur, ýsa, upsi, langa, sandkoli:
— 0,77 -
— 0,13 -
óhausaður ................
hausaður ................
Karfi:
óhausaður ...............
hausaður ................
Keila:
óhausuð ...........,.....
hausuð ..................
Skötubörð ....................
$>tórkja£ta og langlúra ......
Flatfiskur annar en sandkoli,
stórkjafta og langlúra ..
Steinbítur (í nothæfu ástandi)
óhausaður ................
Hrogn (í góðu ástandi og ó-
sprungin, í um 14 enskra
punda pokum) .............
Háfur ........................
kr. 0,52 per kg.
0,67 - -
— 0,15 - -
— 0,20 - -
— 0,30 - -
— 0,38 - -
— 0,37 - -
— 0,89 - -
— 1,77 - ’-
— 0,30 - -
0,89
0,15
Af verði þessu skulu fiskkaupendur greiða selj-
endum við móttöku fiskjarins eftirfarandi verð:
Þorskur, ýsa, upsi, langa, sandkoli:
óhausaður .............. kr. 0,45 per kg.
hausaður ................... — 0,58 -
Karfi:
óhausaður ................. — 0,13
hausaður ................... — 0,17 -
Keila:
óhausuð .................... — 0,26 -
hausuð ..................... — 0,33 -
Skötubörð ...................... — 0,32 -
Stórkjafta og langlúra.......... — 0,77 -
Flatfiskur annar en sandkoli,
stórkjafta og langlúra ..... — 1,54 -
3. Eftirstöðvarnar greiðir fiskkaupandi til þess lög-
reglustjóra, sem afgreiðir skipið til útlanda á-
samt öðrum löglegum gjöldum. Fyrir fé þessu
gerir lögreglustjóri skil til ríkissjóðs á venju-
legan hátt.
Mismuninum milli fiskverðs og útborgunar-
verðs verður úthlutað meðal útvegsmanna og
fiskimanna til þess að tryggja jafnaðarverð á
hverju sviði.
4. Afgreiðslumaður fiskkaupaskips skal senda
Fiskimálanefnd í síðasta lagi sex dögum eftir
að fiskkaupaskip hefui verið afgreitt til útlanda
sundurliðaða skrá um fiskkaupin og skal þar til-
greina:
1. Nöfn fiskseljanda.
2. Nöfn fiskiskipa, er selt hafa fiskinn.
3. Magn fisks og tegund fisks sundurliðað effir
verði.
5.
6.
7.
4. Heildarverð.
Verð á fiski til hraðfrystihúsa verður það sama
og verið hefur eða jafn hátt og útborgunarverð
á fiski í flutningaskip, eins og að framan segir.
Eigendur hraðfrystihúsa skulu senda Fiski-
málanefnd vikulega skýrslu um fiskkaup frysti-
hússins sundurliðaða á sama hátt og fiskkaup-
endur sem segir hér að framan.
Landsamband ísl. útvegsmanna ákveður hvar
fiskkaupaskip skuli taka fisk hverju sinni.
Útflutningsleyfi á nýjum frystum fiski eru
bundin því skilyrði að framangreindum ákvæð-
um sé fullnægt.
Reykjavík, 10. janúar, 1945.
Samninganefnd utanríkísvidskípfa
^ — -*•-- ~^T n--i,-i ffr.—,nn- ri r*»>—inO( jOu
iTilkynningfrá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu „6róttl“
Að gefnu tilefni vill Skipstjóra- og stýrimanna-
félagið „Grótta“ birta tillögu um fiskimálanefnd
eins og hún kom fram á aðalfundi félagsins 7. þ.m.
„Skipstjóra- og stýrimannafélagið „Grótta“
samþykkir að skora á Alþingi að leggja niður
Fiskimálanefnd, eins og hún hefur starfað síðast-
liðin ár, og Jeggur til að fá Fiskifélagi íslands starf
;! hennar til úrlausnar.“
VWVVWWWV%%^%VVVVWWAVUWV%WVVW.VW\rtVVVVVWW
Samkeppni
Æ. F. R.
MALFUNDAHÓPURINN heldui
fund í kvöld kl. 9 að Skólavörðu-
stíg 19. .STJÓKNIN.
DANSSKÓLINN tekur til starfa í
kvöld kl. 8 stundvíslega að Skóla-
vörðustíg 19. Kennari verður ung-
frú Sif Þórz.
Allir félagar, sem hafa skrifað
sig á listann eru beðnir að mæta
og enn er hægt að bæta nokkrum
við. STJÓRNIN.
SAMKEPPNI.
Æskulýðsfylkingin efnir til sam-
keppni um merki fyrir sambandið.
Við væntum þess að margir taki
þátt í samkcppninni, þótt verðlaun-
in séu ekki liá — 100 kr. — enda
vitum við að þeir, sem senda merki
munu frekar gera það af áliuga fyr-
ir góðu málefni en í von um há
verðlaun.
Frestur til að skila uppdráttum er
til 1. febrúar n.k.
Þeir, sem óska frekari upplýs-
inga snúi sér til skrifstofunnar,
Æskulýðsfylkingin efnir til samkeppni um merki
fyrir sambandið.
Við væntum þess að margir taki þátt í sam-,
keppninni, þótt verðlaunin séu ekki há — 100
kr. —, enda vitum við að þeir, sem senda merki
munu gera það af áhuga fyrir góðu málefni en
í von um há verðlaun.
Frestur til að skila uppdráttum er til 1. febr-
úar n.k.
Þeir, sem óska frekari upplýsinga snúi sér til
skrifstofunnar, Skólavörðustíg 19, sem er opin
daglega frá kl. 4—7.
SAMBANDSSTJÓRNIN.
c.
Hjúskapur. Ungfrú Helga Tryggva
dóttir og Pétur H. Pétursson, Lang-
holtsveg 55 voru gefin saman hjá
borgarfógeta 6. þ. m.
Vrt.-U'Wlrt
Skólavörðustíg 19, sem er opin dag-
lega frá kl. 4—7.
SAMBANÐSSTJÓRNIN.
Félag Suðurnesjamanna í Reykja-
vík heldur nýársfagnað að Hótel
Borg 13. janúar n.k. kl. 7,30 e. h.
Aðgöngumiðar eru seldir í Verzl-
uninni Aðalstræti 4 og Skóverzlun
Stefáns Gunnarssonar, Austurstræti
12.