Þjóðviljinn - 11.01.1945, Síða 8
WWUWWUVWUWUWAW
Flugvél þessi nejnist A-2G Invader og er af nýjustu og hraðfleygustu gcrð bandarískra herflugvela.
Flugvél þessa má nota sem lágjieyga orustuflugvél, syrengjuflugvél eða steypiflugvel.
'.WVWWVAWW VWJVWW.WWVWWW
30 ára afmæli
Verkalýðsfélags
Stykkishólms
4 vélbátar gerðir út frá
Stykkishólmi í vetur
Verhalýðsfélag Styhkishólms
minntist, 30 ára starfsafmœlis síns
laugardaginn 6. jan. s. L, með fjöl-
mennri skemmtisamkomu í sam-
komuhúsinu í Stykkishólmi.
Ræður fluttu formaður og rit-
ari félagsins, þeir Ragnar Einars-
son og Sigurður Skúlason. Kvik-
myndir voru sýndar. Ennfremur
var einsöngur, tvísöngur og kvart-
ett stúlkna með gítarundirleik.
Skemmtunin fór á allan hátt prýði-
lega fram og var ein sú fjölmenn-
asta, sem iram hefur farið í Stykk-
ishólmi.
Frá Stykkishólmi verða í vetur
gerðir út 4 dekkbátar og 1 trillu-
bátur. Eru 3 dekkbátarnir og
trillubáturinn gerðir út af Sigurði
Agústssyni, kaupmanni en fjórði
dekkbáturinn er gerður út á veg-
um Kaupfélags Stykkishólms.
Luzon-innrásin
gengur vel
Sólarhring eftir að innrásin á
Luzon, aðaleyju Filippseyja, hófst,
voru Bandaríkjamenn víðast bún-
ir að sœ/cja fram um 6V2 km frái
ströndinni.
Bandaríkjamenn hafa tekið
Lingajenflugvöllinn.
Þeir eru búnir að ná öflugri fót-
festu á suðurströnd Lingajenflóa
og hafa tengt saman alla 4 land-
göngustaðina, svo að nú er barizt
á samfelldri 25 km langri víglinu.
Innrásarflotinn var í fyrstu lát-
inn stefna til Formósu til að
blekkja Japana. — En skyndilega
var hann látinn breyta um stefnu
og sigla inn á Lingajenflóa og
hefja skothríð á japönsku strand-
virkin.
Talsmaður japönsku herstjórn-
arinnar hefur sagt, að innrásin í
Fillippseyjar ógni yfirráðum Jap-
an á öllu Suðvestur-Kyrrahafi.
Kveðja frá Sjostakovits
til NorDmanoa
Frá London er símað, að um
áramótin hafi borizt skeyti frá
hinu kunna rússneska tónskáldi,
Sjostakovits, til norskra vina.
Skvytið er á þessa leið: „Eg sendi
hlýjustu nýjárskveðjur hinna
norsku vina okkar.
Menningartengslin milli landa
okkar hafa alltaf verið mjög
traust. — Hvert- skólabarn í Sovét-
ríkjunum kannast við Ibsen og
Grieg og marga aðra mikla Norð-
menn. — Og í hinni miklu sam-
eiginlegu baráttu okkar fyrir hinu
góða í heiminðm á móti því illa
til blessunar fyrir mannkynið í
framtíðinni, eru þessir miklu and-
ar með okkur.
Norska fólkið heldur áfram
hinni óbuganlegu baráttu sinni
gegn fasismanum. — Við þekkj-
um ekki ennþá nöfn á þeim ótelj-
anlegu hetjum, sem hafa fórnað
lífinu /fyrir frelsun föðurlandsins,
en sá tírni mun koma bráðlega,
þegar við fáum að vita þau og
minnast þeirra með þakklæti.
Eg óska öllum vinum okkar í
Noregi, að árið 1945 verði ár al-
gjöjrar frelsunar og þannig endur-
fæðingarár fyrir hinn glæsilega
menningararf Noregs".
Sjostakovits er álitinn vera eitt
af merkustu tónskáldum Sovétríkj
anna. — Ilann er ekki nema 38
ára gamall, en hefur þegar samið
7 stórar symfóníur.
Hann tók þátt í vörn Leningrads
og eitt af kunnustu verkum hans
er Leningradsymfónían, sem er
samin í tilefni af hinni hetjulegu
vörn Leningrads.
Frá norska blaðafulltrúanum.»
HvalveiSafélag stofnað
í Færeyjum
/ Þórshöfn hefur verið stofnað
nýtt, hvalveiðafélag með 1 miUjón
króna höfuðstól.
Félagið hefur keypt. hvalveiða-
stöðina við Air og tetlar að koma
henni í nýtizku horf á næstunni.
Þetta er gleðileg frétt, og er al-
mennur áhugi á fyrirtækinu.
Stofnendur þess eru togarafélag-
ið p. f. «j,Úv'ak“, Thorstein Peter-
sen bankastjóri og Gunnar Holm
Jacobsen forstjóri. Sámal.
Höfundur Leifs-
styttunuar látinn
Bandaríski myndhöggvarinn
sem er höfundur að Leifsstyttunni
á Skólavörðuhœð, er nýlega látinn,
eftir langvarandi veikindi.
Ilann hét Alexander Stirling
Calder, og eru eftir hann margar
frægar myndastyttur víðsvegar
um Bandaríkin, þar á meðal stytta
Georgs Washingtons á Fifth Aven-
ue í New York.
y. .■■■■■ .111 .1111 1111 ..
Viðtali við Ólaf
Thors forsætisráð-
herra útvarpað í
Bandaríkjunum
Fimmtudaginn 14. desember út-
varpaði Mutual Broadcasting Sy-
stem (MBS) um öll Bandaríkin
samtali milli Dave Driscöll frétta-
stjóra síns og Ólafs Thors forsæt-
isráðherra. Var samtalið tekið á
plötur í Reykjavík, en Driscoll
var einn hinna 12 amerísku blaða-
manna, sem lleimsóttu ísland í
nóvember. Með samtalinu var
stutt greinargerð um íslandsför
blaðamanna, sem Mr. Driscoll
flutti.
Fréttatikynning frá ríkis-
stjórninni.
Minnisvarði reistur
að Ashildarmýri á
næsta ári
Á nœsta ári eru liðin JöO ár
frá þvi Ashildarmýrarsamþykktin
frœga var gerð og liefwr Árnesinga-
félagið ákveðið að reisa á nœsta
ári minnismerki að Áshildarmýri
til minningar um ])e?nuin merka
atburð.
Einnig hefur verið ákveðið að
girða staðinn og gróðursetja þar
tré.
Annað bindi af Arnesingasögu
kemur væntanlega út á næsta vori,
skrifar Einar Arnórsson prófessor
þetla bindi og fjallar það um Mos-
felíinga og Haukcfæli.
Vörn gegn friðrofi
C^TJÓRNMÁLAMENN Bandamanna halda nú orðið enga
meiriháttar ræðu án þess að minnzt sé á vandamál frið-
artímanna, og þó einkum hvernig hægt verði að vemda
friðinn-
TOSIF STALÍN, forsætisþjóðfulltrúi Sovétríkjanna, minnt-
ist á þessi vandamál í ræðu sinni 7. nóv. s.l., taldi
hugsanlegt, að friðsamar þjóðir gætu einnig í framtíðinni
ájt á hættu árásir, nema sérstakar ráðstafanir væru gerðar
til'að hindra slíkt, og spyr: Hver ráð eru til þess að afstýra
friðrofum af Þýzkalands hálfu framvegis, — og hvemig
væri hægt að kæfa árásarstríð í fæðingunni, ef það bryt-
ist út þrátt fyrir varúðarráðstafanir?
•
^PURNINGUNUM svarar Stalín þannig:
„Það er aðeins ein leið til, auk algerðrar afvopnunar
friðrofaþjóðanna, að mynda samtök fulltrúa hinna friðsömu
þjóða til verndar friði og öryggi; að fá stjórn þeirra sam-
taka til ráðstöfúnar nægilega sterkan her til að hindra frið-
rof, og skylda þessi samtök til að beita hernum tafarlaust
ef nauðsyn krefur til að afstýra friðrofi eða stöðva árás,
og refsa friðrofunum.“
þAÐ dugar ekki að endurvekja hryggðarmynd Þjóða-
bandalagsins, sem hvorki hafði rétt til að afstýra
friðrofi eða vald til þess, segir Stalín ennfremur. Ný al-
þjóðasamtök þarf að mynda, með sterku framkvæmdar-
valdi og hafi þau nægilegt vald til að vernda friðinn og af-
stýra friðrofi. „Er hægt að gera ráð fyrir, að aðgerðir slíkra
heimssamtaka nái tilætluðum árangri? Það verður, ef stór-
veldin, sem borið hafa hita og þunga baráttunnar gegn
Hitlers-Þýzkalandi halda áfram að starfa í einingaranda
og með samheldni. En þær ná ekki tilætluðum árangri,
nema því aðeins að slík samheldni takist.“
gTALÍN telur góða möguleika á því að samvinna stór-
veldanna þiiggja haldist. „Talað er um skoðanamun
ríkjanna þriggja um ýmis öryggismál.... Það þarf engan
að undra þó skoðanamunur sé, heldur væri hitt undrun-
arefni að hann skuli ekki vera um fleiri atriði, og að tek-
izt hefur nærri um hvert einasta mál að jafna hann í anda
einingar og samvinnu hinna þriggja stórvelda- Það varðar
ekki mestu að skoðanamunur sé, heldur hitt að hann skuli
ekki vera meiri en svo, að samvinnu-hagsmunir stórveld-
anna þriggja verða sterkari, og að skoðanamunurinn er,
fyrr eða síðar, jafnaður þannig að samvinnan geti haldizt.“
^VIPUÐ ummæli hafði Roosevelt Bandaríkjaforseti í
ræðu siimi til Bandaríkjaþings nú fyrir skömmu- Hann
viðurkenndi að skoðanamunur væri milli Bandamannastór-
veldanna þriggja um einstök mál, og þau mál gætu fjölg-
að þegar liði að stríðslokum. En Roosevelt taldi einnig lík-
legt, að takast muni að jafna ágreininginn. Annar fundur
þeirra Stalíns, Roosevelts og Churchills verður væntanlega
innan skamms, og verða þá ræddar framkvæmdir Teher-
ansamþykktanna, vandamálin sem risið hafa síðastliðið ár
og ákvarðanir gerðar um framtíðina, sem geta varðað allar
þjóðir. Skipulag alþjóðasamtaka friðartímanna verður þar
eitt merkasta og flóknasta málið..
(
\
Þjóðnýtpng raforkuvera
í Belgíu
Fulltrúadeild belgiska þings-
ins hefur samþykkt að gera öll
raforkuver landsins að þjóðar-
eign.
Ekki er kunnugt um, hvernig
skaðabótagreiðslum til ■ eigend-
anna verður háttað.
50 þús. kr. gjöf til barna-
spítala Hringsins
Kr. 50.000,00 hafa Barnaspítala-
sjóð Hringsins borizt frá hlutafé-
laginu Kvtldúlfi, ásamt hlýjum
óskum til lianda söfnuninni, og
hefur stjórn félagsins þakkað þessa
stórgjöf.