Þjóðviljinn - 17.02.1945, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.02.1945, Blaðsíða 8
Færeisíi samnlniaPBlp i r SlllilF SÍÍfff IFá flllGI om: oitlsiu logara, sillaFoerisilðlo og jaribor Hðnn er nýkoninn heim eftir tveggja mán. dvðl í Bandaríkiunum Gísli Halldórsson verkfræðingur er nýkominn heim eftir tveggja mánaða dvöl í Bandaríkjunum. Á þcssum tíma ferðað- ist hann allvíða um Bandaríkin og ræddi við verkfræðinga og iðjuhölda og fékk m. a. tilboð í nýtízku togara frá skipasmíða- stöðvum í New York, ennfremur tilboð í nýtízku síldarverk- smiðju pg mikilvirkan jarðbor. Fréttamaður Þjóðviljans hafði í gær tal af Gísla Halldórs- syni og fer frásögn hans hér á eftir: — Eg fór héðan í flugvél til Washington, sagði Gísli, og kom þangað eftir 17 stunda ferð, að meðtalinni viðdvöl á ónafn- greindum stað. Þaðan fór ég til Baltimore og síðan til New York. Eg dvaldi þetta 2—4 daga á hverjum stað, lengzt í 'New York. Þaðan fór ég til Chicago og um jólin vestur til San Fransisco, Los Angeles og San Pedro. Til baka fór ég um Detroit, New York og Boston. JARÐBOR SEM GETUR BOR- AÐ 500 FETA DJÚPA HOLU Á TVEIM DÖGUM — í ferðalagi mínu, hélt Gísli áfram, kynnti ég mér boranir með jarðborum af sömu gerð og bæjarráð hefur nú til at- hugunar. Eftir að ég hafði rætt við fúlltrúa amerísku verksmiðj unnar National Supply Comp., en sú verksmiðja hefur fram- leitt fullan helming þeirra jarðbpra sem notaðir eru við olíuboranir, fékk ég tilboð í einn slíkan bor. Borar þessir eru þannig gerð- ir að þótt þeir mæti miklum þrýstingi á það ekki að koma að sök, t. d. hefur oft verið bor að með þeim niður á gas með afskaplegum þrýstingi. Með þessum bor á að vera hægt í allflestum jarðvegi að bora allt upp í 20 tommu (ca. 50 cm.) víða holu niður í 500 feta dýpt á tveim dögum, en annars getur hann borað 1600 metra djúpar holur. Flutningur á bomum með tilheyrandi borturni, dælum, spili og öðrum útbúnaði tekur í Bandaríkjunum 4—5 daga, þegar fjarlægð milli borhola er nokkur hundruð metrar. En þess ber að geta að þeir sem vinna að borunum vestra eru 1 þaulæfðir og má því gera ráð fyrir að boranir taki töluvert lengri tíma hér, a. m. k. til að byrja með. Verð á boráhöldum þessum, ásamt dælustöðvum mun vera nálægt 112 þús. dollarar. — Þyngd borsins er 150 tonn. Það virðist nauðsynlegt, mælti Gísli ennfremur, að bær og ríki eignist slik boráhöjd, með tilliti til þeirra miklu möguleika sem felast í jarðhit- anum hér á landi, svo unnt verði að hagnýta afnot hans í stórum stíl hið allra fyrsta. Tilboðin eru nú til athugun- ar hjá rafmagnsstjóra og hita- veitustjóra. NÝTÍZKU DIESEF TOGAF ^vR RÚMA 3C3 TONN AF ÍSFloKI — GANGA 12 MÍLUR — VERÐ ZVz—3 MJ* LJ. KR. — Þá kyxmti ég mér ennfrem ur fyrirkomulag í nýtízku skipasmíðastöðvum hjá New York, þar sem byrjað mun hafa verið á að byggja skip í ýms- um pörtum, sem síðan eru sett-' ir saman. Voru vinnubrögð þar að ýmsu leyti ólík því sem ég | hef áður séð. Fékk ég tilboð frá þrem 1 Skipasmíðastöðvum ^Wheeler Shipbuilding Corp.; John H. Mathis Comp. og Northeast Shipbuilding Company, í ný- tízku dieseltogara er miðaðir eru við þarfir íslands. Skip þessi eru öll rafsoðin eins og nú tíðkast í Bandaríkj- unum og byggð samkvæmt ströngustu kröfum American Bureau of Shipping, Klassa A I., fyrir Norður-Atlanzhafið með bandastyrkingu fyrir ís og eiga auk þess að fullnægja ströngustu kröfum United States Coast Guards, sem eru mjög strangar. — Ef þess er ( frekar óskað fást skipin byggð samkvæmt reglum British Lloyd, og helzt verðið óbreytt. Eg átti kost á að skoða nokk- ur svipaðra skipa á ýmsum stig- um smíðanna og virtist frá- gangur vera mjög vandaður nið ur í minnstu smáatriði. Skipin eru mjög vel loftræst, íbúðir skipverja hinar vistleg- ustu, vélarúm séstaklega rúm- gott, lestir einangraðar með 6 tommu þykku korki. Sérstök frystivél með frystipípum í lest um sér fyrir kulda. — Skipin bera rúmlega 300 tonn af ísuð- um fiski. Skipin eru með Maier-formi og yfirbyggingu með straum- línulögun. Þau eru útbúin með 1000—1200 hestafla dieselvél og ganghraði a. m. k. 12 mílur, en togvinda sérstaklega gerð fyr- ir veiðar við ísland og því mjög kraftmikil og er hægt að velja um rafdrifið spil eða dieseldrifið 'spil með vökva- kúplingu. Skip þessi kosta, eftir því frá hvaða skipasmíðastöð þau eru tekin, og hversu mörg, milli 21/2—3 millj, kr. en afgreiðsla þeirra getur farið fram 5—5 Vz mánuði eftir að forgangs- og efnisleyfi eru fengin, þannig að þar á eftir fæst afgreitt 1 skip á viku eða 2 skip á mánuði, eftir því hvaða tilboð er tekið. Verð þetta er að vísu hátt, sagði Gísli ennfremur, miðað við verð á togurum frá Bret- landi, en fullkomin óvissa rík- ir um það, hvenær hægt myndi að fá skip annars staðar frá en Ameríku. Eftir að hafa talað við fjölda 1 marga iðnrekendur og verzlun- 1 arfyrirtæki í Bandaríkjunum , er það álit mitt að búast megi Framhald af 5. síðu. skilar ekki jafnmiklu og hann hefur fengið, skal leigutaki greiða mismuninn út í hönd samkvæmt fullu verðlagi á staðnum. Leigutaki endurgreiðir vistir og ís samkvæmt reikningi. 26. gr. Strax og búið er að undirrita þennan samning, skulu eigenaur hlutast tii um, að öll þau skip, sem leigð eru út samkvæmt samningnum, verði tilbúin til fiskflutninganna svo fljótt sem tök eru á. 27. gr. Leigutaki hefur umboðsmann í Færeyjúm til þess að gæta hagsmuna leigutaka á leigutím- anum. Ef upp rís ágreiningur í Fær- eyjum, meðan á leigutímanum stendur, eða tikgreina koma efa- semdaratriði um minni háttar mál, eins og t. d. um birgðir skips eða ástand, 'viðdvöl skips í Færeyjum eða viðgerðir og við- hald í Færeyjum, skal fyrst reynt að jafna þau atriði í við- ræðum á milli umboðsmanns fyrir Færöernes Rederiforening f. h. leigusala og umboðsmanns leigutaka. Ef slíkar viðræður bera ekki árangur og eðlimáls- ins er þannig. að það krefst fljót lega úrskurðar í Færeyjum, skal út um það gert og sá úrskurður vera bindandi fyrir báða aðila af gerðardómi, sem í séu báðir þessir umboðsmenn ásamt odda- manni, sem tilnefndur sé af hér- aðsdómaranum í Færeyjum. 28. gr. Verði að öðru leyti ágrein- ingur um skilning á ákvæðum samnings þessa eða um bætur fyrir tjón, sem annar hvor að- ila telur sig hafa orðið fyrir vegna vanefnda á samningnum skal úr ágreiningnum skorið af gerðardómi, sem hefur aðsetur í Reykjavík. Gerðardómurinn skal þannig skipaður: L'eigutaki tilnefnir einn gerðarmann og Færöernes Rederiforening annan, en hæsti- réttur íslands tilnefnir þann þriðja á meðal dómenda réttar- ins, og er hann formaður dóms- Þegar um er að ræða mál, sem sérstaklega sncrta hagsmuni skipstjóra eða stýrimanns skips, tilnefnir Föroyja Skipara- og Navigátörfelag einn gerðarmann í stað Færöernes Rederiforen- ing, og þegar um er að ræða mál sem sérstaklega snerta hagsmuni áhafnarinnar að öðru leyti, til- nefnir Föroya Fiskimannafelag einn gerðarmann í stað Færö- ernes Rederiforening. Þegar um er að ræða mál, sem eink- um snerta hagsmuni skipshafn- ' arinnar, jafnt skipstjórnarmanna sem áhafnar að öðru leyti, til- nefna Föroya Skipara- og Nav- igatörfelag og Föroya Fiski- mannafelag í sameiningu einn gerðarmanna. Ef ekki liggur ljóst fyrir, hvort af hinum tilgreindu félög um skuli útnefna hinn færeyska gerðarmann, sker héraðsdómar- inn í Færeyjum úr því. Tilnefni annar hvor aðili ekki gerðarmann innan tveggja vikna frá því að honum barst beiðni um tilnefningu, skal gerðar- maðurinn tilnefndur af hæsta- rétti“. við verðhækkunum í Banda- ríkjunum þá og þegar, og bú- ast menn yfirleitt við því að þar verði mjög mikið um að vera á næstu árum, en verð- lag þegar hækkandi, þrátt fyr- ir mikla viðleitni til að halda dýrtíðinni niðri. Skoðun mín er því sú, að nú sé«hér um tvo kosti að ræða, sem sé: Annað hvort að festa nú þegar kaup á skipum í j Bandaríkjunum fyrir ákveðið 1 verð, eða — kaupa ekki skip fyrr en þau kunna að fást frá Evrópu, en það kann að drag- ast í nokkur ár. 10—11 ÞÚS. MÁLA SÍLDAR- VERKSMIÐJA — GÆTI E.T.V. ORÐIÐ TILBÚIN FYRIR SÍLDVEIÐAR 1946 — VERÐ TÆPAR 3 MILLJ. KR. — Loks kynnti ég mér. hélt Gisli áfram, möguleika á útveg un síldarverksmiðjuvéla og hef meðférðis tilboð sem innifelur allan vélaútbúriað í 10—11 þús. mála síldarverksmiðju. Er verksmiðju þessári séð fyrir orku með háþrýstum gufukatli og tveim 750 ha. gufutúrbínum er hagnýta yfirþrýsting gufunn ar áður en hún er notuð til suðu og upphitunar. Afgreiðsla á vélum þessum er boðin á 4—10 mánuðum að fengnu forgangsleyfi, en verk- smiðjan er framleiðir þessar vélar sem er Enterprise Engine and Foundry Comp., í San Fransisco, taldi öruggt að for- gangsleyfi fengist. Þess má geta að síðustu vél- ar til Hjalteyrarverksmiðjunn- ar voru frá þessari verksmiðju, en hún hefur séð um byggingu 10 síðustu síldarverksmiðja er byggðar hafa verið í Bandaríkj- unum. Meiri hlutinn af vélum þeim, sem boðnar eru, fást afgreidd- ar á 4—5 mánuðum og er því möguleiki á því að verksmiðja þessi gæti komizt upp fyrir síldarvertíð 1916. Verð á verksmiðju þessari er tæ^ar 3 millj. kr. Útvegun framangreindra til- boða tók töluverðan tíma, mælti Gísli, en auk þeirra hef ég útvegað tilboð og upplýsing- ar um ýmsar nýjungar í véla- og byggingatækni. Þannig á ég bráðlega von á sjálfvirkum hitastillum sem nota má við hitaveituna til að halda jöfn- um herbergishita. Geri ég mér vonir um að þeir komi almenn- ingi fljótt að gagni. í ferðalaginu átti ég tal við ýmsa verkfræðinga og iðnrek- endur, auk margra annarra manna og voru viðtökurnar alls staðar á eina leið: hinar al- úðlegustu, en fólkið er sérstak- lega glaðvært og viðmótsgott og mega íslendingar vara sig í samkeppninni við ameríska gestrisni. — Það ér ekkert vafamál, sagði Gísli Halldórsson að síð- ustu. að það má margt læra af viðkynningu við Bandaríkin og tel cg mig hafa mikið gagn af þessu ferðalagi og vona að til- boð þau sem ég hef útvegað komi að notum. J. B. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.