Þjóðviljinn - 14.03.1945, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 14.03.1945, Qupperneq 3
Miðvikudagur 14. marz 1945 ÞJÓÐVILJINN 3 Eldhúsumbætur — stytting vinnutímans Oft heyrast kveinstafir hús- móðurinnar úr eldhúsinu eitt- hvað á þessa leið: „Ó, þessi þrengsli í eldhúsinu ætla að gera mig vitlausa," eða: „ég er allan daginn að ganga frá í þessu eldhúsi, það er svo allt of stórt.“ Mergur- inn málsins er sá, eldhúsin eru alls ekki alltof lítil eða alltof stór, heldur mjög illa innréttuð og elztu eldhús eru ekki inn- réttuð öðruvisi en þau hafa Þið íslenzku húsmæður ættuð að taka á ykkur rögg og hugsa sjálfar upp þær breytingar sejn þið viljið til bóta, en bera þær undir byggingameistara, — því það er um að gera að nota ^ sérþekkingu þeirra sérfróðu —, i og ættu þeir ekki síður að ráðg- ast meir við húsmæður en þeir gera. í mörgum nýjum húsum má ennþá sjá að ekki er nærri nóg hnitmiðuð afstaða eldhús- muna hvers til annars. ■— Það Endurskipulagt eldhús með kæliskáp og viunuborði við hlið- ina á honum, sem ætlað er til að hræra og útbúa við kökur, brauð og ýmislegt annað. Þá kemur vaskborðið með inn- fryggðri uppþvottavél og rafknúnum rusleyðara, sem mal- ar sundur bein og annan úrgang, sem fer svo niður í skólp- rörin. Þá er enn eitt borð með áfastri eldavél út við end- ann. Við þetta borð er kjöt, fiskur og grænmeti matreitt, með vaskinn á vinstri hönd og eldavélina á hægri, svo hús- móðirin getur setið á stól meðan hún matbýr. — Fyrir of- an eldavélina og meðfram þeim borðenda er nokkurskonar bar og tilheyrandi barstólar. Ágætt fyrirkomulag við morg- unverð og skyndiborðhald og ekki ætti maturinn að kólna á leiðinni. orðið til með árunum. Það hafa smám saman bætzt við nýir skápar, sinn í hverri áttinni. Húsmóðirin fagnar hverjum nýj um skáp, en amast jafnframt við stærð eða þrengslum í eld- húsinu, án þess að gera sér ljóst hvað er að. í Ameríku, þar sem allt er gert til þess að létta störf hús- móðurinnar er nú mikið unnið að endurskipulagningu þessara gömlu eldhúsa um leið og þeim bætast öll hugsanleg rafmagns- áhöld. Eldhúsmunirnir eru fævð Ir saman allt í kringpm vask- inn, og milli hans og eldavélar- innar, og mynda þannig lítið eldhús innan í því stóra og auk þess borðstofu á svæði, sem áð- ur fór til spillis. auga með innréttingu eldhúss síns, er oftar með hugann við stofurríar og gardínurnar þegar hún er að koma sér upp heim- j ili. Flestum húsmæðrum finnst ! þær ekki hafa vit á húsabygg- ingu, sízt eld'húsi, fyrr en þær eru búnar að yinna í því eitt eða tvö ár. Auðvitað hafa konur betra vit á eldhúsum en karl- menn, að svo miklu leyt.i sem leikmaður getur lagt til mál- anna við byggingameistaranr. En þetta sýnir eins og svo margt annað, hvað konur eru almennt sofandi fyrir sínum eigin hagsmunamálum. Það er jafn tímabært að hús- mæður fái bætt kjör sín nu eins og aðrar stéttir. En ekkert skeður af sjálfu sér. Húsmæðui verða að vakna til lífsins fyrir utan eldhúsin. Takmarkið á að vera sem allra stytztur vinnu- tími í eldhúsi, en ekki 44 dag- urinn eins og hingað til. Það getur ekki orðið nema með hag sýnni eldhússkipan og vinnu spamaðarvélum. Þessar vélar eru nú orðnar almenningseign í Ameríku, að svo miklu leyti sem nokkuð getur orðið almei.n ingseign í þeirri ágætu álfu Við höfum fengið nasasjón af þessum vélum hér á landi, cg vonumst eftir þeim á hvert heimili, þegar markaðurinn opn ast eftir stríð. Það á raunar að vera ský- laus krafa okkar. Húsmæð; s- stéttin má ekki við því að drag- ast meir aftur úr lestinni en orðið er. Hrærivélin er lítið áhald sem kostaði fyrir stríð 3—400 k; Hún léttir húsmóðurinni svo geysimikið matargerðina, að er ekki svo að skilja að nútíma byggingameistarar kunni ekki að teikna eldhús, þvert á móti eru það einu herbergin ásamt baðherbergjunum sem þeir vita hvernig eiga að vera, eða rétt- ara sagt hvað á að vera í þeim. En oft virðist manni þeir hugsa meir um glæsileik eldhússins i heild en hvemig bezt verði unn ið í því. Þegar talið berst að eldhús- innréttingu kannast flestar hús mæður við að það þurfi birtu yfir uppþvottavaskinu og birtu yfir uppþvottavaskinn og birtu þær ekki að leggja til málann", að þeim finnst, því karlmenr.- irnir sjá fyrir öllu saman. Raun in er sú, að einmitt húsmóðir in sem ætti að hafa vakandi Opnar hillur við end- ann á matarborðinu í eld'húskróknum, fyrir rafmagnsbrauðrist, vöflujám o. fl., eni miklu skemmtilegTi en skápar. Falleg eldhús- áhöld em til prýði. Stálklætt eldhúsborð og stálvaskar. Takið eftir standinum í hominu, sem geymir kryddið, og hillunni við gluggann. bað er aftur í tízku að hafa hillur í stað þess að loka allt inni. í skápum. enginn vafi getur leikið á um nauðsyn hennar. Þvottavélar eru ekki lúxus hpldur jafnnauðsynleg verkfæri og sláttuvélin eða ritvélin skrif- stofustúlkunni. Þegar þvottavel ar hafa fengizt hér, hafa þ&r kostað innan við 2000 kr. Það eru 35—40 þvottadagar miðað við 50 kr. kaup yfir daginn. Vél- in væri hálft annað ár að borga sig, ef þvegið væri hálfsmánað- arlega. — Og við sjáum hilla undir fleiri vélar, yél, sem tekur við af þvottavélinn og skilar þvott- inum nærri þurrum — þar losn- um við við rúmfrek þurrkher- bergi — vél, sem ryksíar loftið í húsunum, með henni er okkar I versti óvinur að velli lagður, l rykið sem alstaðar smýgur inn og alstaðar situr hvað oft sem við burstum og dustum, og önn- ur vél, sem eyðir úrgangi, s\o við þurfum ekki að hlaða hrauk ana á sorptunnurnar. Þannig mætti lengi telja, ótal tæki munu í framtíðinni auðvelda húsmóðurinni störfin og gefa henn meiri tækifæri til að sinua lífinu utan heimilisins. Nokkrar lagkökur Amerískar kökur eru yfirleitt mjög góðar. Það er oftast nær minna í þær borið en við höfum áður vanizt og þær eru ekki ætlaðar til langrar geymslu. en nýjar eru þær, frískar og léttar. Hér á eftir fara nokkrar upp- skriftir af lagkökum. Súkkulaði karamellukaka: 44 bolli smjör. 114 bolli sykur. 44 tsk. salt. 1 tsk. vanilla. 2 egg. 1% bolli hveiti. 1 tsk. sódaduft. 44 bolli kakó. 1 bolli súr mjólk (helzt hlaupin). Blandið saman smjöri, sykri, salti, vanilla og eggjum, hrærið vel. Sigtið saman hveit- ið, sódaduftið og kakóið bætið þeirri blöndu í til skiptis við súru mjólkina. Bakið í tveim lagkökuformum. Kakan .r smurð með karamellumauki á milli laganna og einnig að of- an, skreytt með fáeinum hnet- um, ef vill. Karamellumauk: Sjóðið sam- an 1% bolla púðursykur, 2 tsk. smjör 2 tsk. sýróp og Vs bolla mjólk, þangað til deigið myndar mjúka bolta, ef látið er drjúpa í vatn. Takið af hitanum og blandið saman við 44 bolla smjör og 1% bolla flórsykri og 2 matsk. heitri mjólk, hrærið þar til mjúkt er. Súrmjólkurlagkaka. 1 bolli sykur. Vz bolli smjör. 2 egg. 1 tsk. vanilla. 1 1% bolli hveiti. 44 tsk. sódaduft. 2 tsk. lyftiduft. 44 tsk. salt. % bolla súr mjólk 44 tsk. salt. Hrærið mjög vel sykurinn cg smjörið. Hrærið eggjarauð- urnar sér og bætið þeimíásamt vanilladropunum. Sigtið saman hveitið, sóda- og lyftiduftið og 44 tsk. salt og bætið því síðan í til skiptis við súru mjólkina. Þeytið að síðustu eggjahvíturn- ar ásamt 44 tsk. af salti áður en það er sett í formið. Bakið eins og venjulega lagköku. Með þessari köku er gott að hafa fíkjumauk: Sjóðið saman Vz pund brytjaðar gráfíkjur, Vz bolla sykur, Vz bolla sjóðandi vatn, 1 matskeið sítrónusafa sjóðið þar til fíkjumar eru vel komnar í mauk og blandan fer að bykkna. Ef maukið verður ekki nógu þykkt má hræra út í það matskeið af kartöflumjöii. -—------------------------ RIT8TJÓRI: SIGRÍÐUR ARNLAUGSDÓTTIR i__________________—-------

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.