Þjóðviljinn - 06.06.1945, Page 1
Churchill mótmælir
ásökunum de Gaulle
Chruchill gaf yfMýsingu um
Sýrlandsdeiluna í neðri mál-
stofu brezka þingsins í gær, og
mótmælti ásökunum de Gaulle
í garð Breta, að þeir hefðu átt
sök á óeirðunum.
KI. 6 e. h. í gær undirritaði hernámsstjóm
Bandamanna í Þýzkalandi, þeir Eisenhower, Sú-
koff, Montgomery og Tassigny í Berlín, sameigin-
lega yfirlýsingu í 15 liðum um hernámið.
Með undirritun yfirlýsingarinnar taka Banda-
menn formlega í sínar hendur yfirstjórn Þýzka-
lands.
Yfirlýsingin var gerð kunn samtímis í
Moskvu, Washington, London og París.
Auk þess var skýrt frá því, hvernig Banda-
menn hyggðust að framkvæma ákvæði yfirlýs-
ingarinnar.
Landamæri Þýzkalands verða
fyrst um sinn þau sömu og þau
voru áður en Þjóðverjar réðust
á Austurríki og Tékkoslovakíu.
Þýzkalandi verður skipt nið-
ur í 4 hernámssvæði: Bretar her
nema Norðv.-Þýzkaland, Frakk-
ar Vestur-Þýzkaland, Banda-
ríkjamenn Suðvestur-Þýzkaland
og Rússar Austur-Þýzkaland.
Auk þess er hverjum þeirra
fyrir sig heimilt að láta her-
sveitir frá ríkjum, er börðust
gegn Þýzkalandi taka þátt í her-
náminu.
Berlín og útborgir hennar
verða undir sameiginlegri stjórn
Breta, Rússa, Frakka og Banda-
ríkjmanna og skipar hver þeirra
herstjóra og hafa herstjórarnir
stjórn borgarinnar sameiginlega
á hendi.
Hver hernámsstjóri um sig
hefur ráðunauta í ýmsum sér-
málum, en þeir hafa svo aftur
nána samvinnu sín á milli.
Þessi tilhögun á stjórnarfyr-
irkomulagi Þýzkalands mun
standa á meðan Þýzkaland er að
uppfylla grundvallarskilyrði
uppgjafarsamningsins um af-
vopnun þýzka hersins. Þegar á-
standið hefur breytzt munu
Bandamenn gera með sér annan
samning.
Einnig mun síðar verða á-
kveðið um framtíðarlandamæri
Þýzkalands og réttarstöðu.
FYRIRSKIPANIR TIL ÞÝZKU
ÞJÓÐARINNAR
í yfirlýsingunni segir á þessa
leið: Þar sem, á annan bóginn,
hið þýzka herveldi er algerlega
brotið á bak aftur og þýzka
þjóðin getur á engan hátt leng-
ur veftt hinum sigursælu ríkj-
um mótspyrnu og á hinn bóg-
inn engin stjórn er lengur til í
landinu, sem getur haldið röð
og reglu, fela stjórnir Sovétríkj
anna, Bretlands, Bandaríkjanna
og Frakklands fulltrúum sín-
um æðstu stjórn Þýzkalands
þar til öðruvísi verður ákveðið.
Meginmál yfirlýsingarinnar
eru fyrirskipanir til þýzku þjó-5
arinnar um það hvernig henm
beri að haga sér. Aðalinnihald
þeirra er sem hér segir:
Allar hemaðaraðgerðir gegn
Bandamönnum innan og utan
landamæra Þýzkalands hætti
þegar í stað.
Þýzki landherinn, flugherinn
og sjóliðið, svo og stormsveit-
irnar, gestapólögreglan og allar
aðrar vopnaðar þýzkar sveitir
verði afvopnaðar.
Hin borgaralega þýzka lög-
regla og aðrar vopnaðar sveit-
ir til að halda uppi röð og reglu
hverfi undir stjóm Banda-
manna.
Eisenhower og Mont-
gomery fá Sigurorðuna
Skömmu eftir að hemáms-
stjóm Bandamanna gaf út hina
sameiginlegu yfMýsingu sína
um hemám Þýzkalands, var til
kynnt í Moskvu, að Eisenhower
og Montgomery hefðu verið
sæmdir æðsta hemaðarheiðurs-
merki Sovétríkjanna, Sigurorð-
unnL
Tássigny hershöfðingi, her™
námsstjóri Frakka, var sæmdur
öðru hæsta hemaðarheiðurs-
merki Sovétríkjanna, Súvoroff-
orðunni, 1. flokks.
IsMaMsliM
Á föstudaginn fer fram keppni
milli úrvalsliðs íslenzkra knatt-
spymumanna og úrválsliðs úr
brezka flug- og sjóliðinu hér.
Valið var í úrvalslið íslending-
anna í gœr og voru pessir valdir:
Markmaður: Anton Sigurðs-
son (Víking), hægri bakvörður:
Björn Ólafsson (Val), vinstri
bakvörður: Guðbjörn Jónsson
(K. R.), miðframvörður: Birgir
Guðjónsson (K. R.), hægri hlið-
arframvörður: Sæmundur Gísla-
son (Fram), vinstri hliðarfram-
vörður: Sveinn Helgason (Val),
miðframherji: Albert Guð-
mundsson (Val), hægri fram-
herji: Óli B. Jónsson (K. R.),
vinstri framherji: Jón Jónasson
(K. R.), hægri útframherji: Ell-
ert Sölvason (Val) og vinstri út-
framherji Hafliði Guðmundsson
(K. R.).
Allar flugvélar í Þýzkalandi
eða utan þess verði fengnar í
hendur Bandamönnum í því á-
standi sem þær eru nú í, svo og
öll skip og kafbátar, hvort sern
þau eru á sjó eða í viðgerð. Á-
hafnir skipanna séu um kyrrt
Framhald á 5. síðu.
Loítárás á Kóbe
500 bandarísk risaflugvirki
gerðu i gær loftárás á japönsku
borgina Kóbe.
Vörpuðu þær niður 3000 smál.
af eldsprengjum á haínarmann-
virki, iðnaðarhverfi og sam-
göngumiðstöðvar í borginni. 8
flugvirki týndust í árásarferð-
inni.
Skipið mun flytja farþega tii
Danmerkur og ennfremur vör-
ur frá Landssöfnuninni.
Til baka mun það flytja far-
þega heim til íslands og enn-
fremur vörur, einkum þó véla-
hluta og símatæki, og er því ráð
gert að það komi til Gauta-
borgar í Svíþjóð á heimleið-
inni.
Gert er ráð fyrir að viðgerð-
ir verði framkvæmdar á skip-
inu í Kaupmannahöfn, en að
þær muni þó ekki taka mjög
langan tíma.
Hann sagði að Bretar hefðu
tekið fullt tillit til sérstöðu
Frakka í Sýrlandi og Libanon.
Afstaða Breta til Sýrlandsdeil-
unnar hefði mótazt eingöngu
af því, hve Bandamönnum væri
nauðsynlegt vegna styrjaldar-
innar við Japani, að fullkomið
öryggi ríkti yið botn Miðjarðar-
hafsins. Þeir hefðu því gert allt,
sem í þeirra valdi stóð, til að
koma í veg fyrir óeirðir, en eft-
ir að þær hófust, hefðu þeir
notað aðstöðu sína til að fá
‘báða aðila til að útkljá deiluna
við samningaborð, en ekki með
vopnum.
Franska srjórnin ákvað í gan
að bjóða til ráðstefnu með stór-
veldunum fimm, Bretlandi,
Bandaríkjunum, Sovétríkjun-
um, Kína og Frakklandi, til að
ræða mál Arabaþjóðanna. Tal-
ið er að Arabaþjóðimar eigi
einnig að fá sæti á ráðstefn-
unni, ef til hennar kemur.
Fulltrúar Arabasambandsins
héldu lokaðan fund í gær í
Kaíró og hefur ekkert verið
látið uppi um hvað þar gerðist.
Norski Kommúnistaflokkur-
inn hefur gefið út ýfirlýsingu
þess efnis, að hann sé reiðubúinn
að taka þátt í hinni nýju ríkis-
stjórn. í yfirlýsingunni segir:
„Til þess að tryggja það, að
stefna hinnar nýju ríkisstjórn-
ar svari til efnahagslegra og
menningarlegra krafna yfirgnæf
andi meirihluta þjóðarinnar
munum við Jeítast við að ná
sambandi við verklýðsstéttina,
verklýðsfélögin og þá stjórnmála
flokka, sem áhuga hafa á þessu“.
Sovétríkin fengu
herskip hjá Bretum
Churchill skýrði frá því í gœr
að Bretar og Bandaríkjamenn
hefðu látið Sovétríkjunum í té
alImikinn flota á stríðsárunum.
Þegar Ítalía gafst upp fyrir
Bandamönnum, fóru Sovétríkin
fram á að fá nokkurn hluta af
ítalska flotanum, en Bretum
þótti hentugra að láta hann
vinna allan sem heild, en buðust
í, þess stað til að láta Sovétríkj-
unum í té skip úr sínum eigin
flota. Var gengið að því.
Flugpóstur milli íslands og Svíþjóðar
Fastar flugferðir milli íslands og Svíþjóðar eru nú
um það bil að hefjast og verða þá teknir upp flugpóst-
flutningar milli íslands og Norðurlanda.
Póstafgreiðslumar munu næstu daga taka á móti
bréfapósti til Norðurlanda, sem fluttur verður flugleiðis
til Svíþjóðar.
Burðargjald verður 80 aurar fyrir hver 20 grömm um-
fram venjulegt burðargjald.
Fyrst um sinn mun hér aðeins verða um bréfapóst að
ræða.
ÞJQÐVILJASÖFNUNIN
[ ,
Næsti skiladagur á föstudaginn
Þjóðviljasöfnuninni verður lokið í þessum mánuði.
Mun söfnuninni lokið á Jónsmessumótinu á Þingvöllum.
Allir þeir sósíalistar og vinir Þjóðviljans sem hafa
I söfnunargögn með höndum, eru hér með minntir á það að
á föstudaginn kemur er næsti skiladagur, og eru þeir beðn-
ir að koma í skrifstofu Sósíalistaflokksins þann dag.
Sósíalistar og vinir Þjóðviljans! Nú er aðeins lokaátakið
eftir! Notið vel þessa daga. Allir eitt, til starfa!
Norska Stórþingið kemur saman um 14. júní
Norsku blöðin „Morgenposten“ og „Friheten“ skýra svo frá,
að gamla Stórþingið muni verða kvatt saman um 14. júní.
Viðræður fóru fram í gær milli stjómariniíar, forseta Stórþings-
ins og leiðtoga norsku heiniavígstöðvanna um þetta í Osló.
„Esja66 fer til Banmerkur
Ákveðið hefur verið að Esjan fari til Kaupmannahafnar, og
mun hún sennilega fara um miðjan ]»enna mánuð, ef nauðsyn-
leg leyfi hjá viðkomandi herstjómum verða þá fengin.