Þjóðviljinn - 06.06.1945, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 6. júní 1946
8 ÞJÓÐVILJINN
*• ........-------- ---~ ------------------- ----' --------
Hlið að Barónsstíg (séð jrá gatnamótum Barónsstígs og Eiríksg.)
Vcrður míllí Barónsstigs og Sfeóiavórdutorgs — sfærstí
íramhaidsskófií scm byggdur hefur veríd hér á.landi
Bygging' hins nýja gagnfræðaskóla við Skólavörðutorg er nú
£ þann veginn að hefjast.
Er honum ætlað að rúma 400—500 nemendur, einsett í
kennslustofumar, og verður hann stærsti framhaldsskóli sem
reistur hefur verið hér á landi til þessa,
Þörf þessa nýja skólahúss er mjög brýn, sem bezt sést á því
að á þessu vori luku 250 nemendur prófi úr I. og n. bekk gagn-
fræðaskóla Keykjavíkur og þegar hafa borizt rúml. 300 um-
sóknir um inntöku í I. bekk, en undanfarið hefur hátt á fjórða
hundrað nemendum verið troðið í 5 kennslustofur.
Byggingu þessa skóla þarf að hraða sem unnt er og strax á
eftir eða jafnhliða þarf að byggja annan gagnfræðaskóla í Vest-
urbænum.
Ranghermi um b.v.
Þórólf
Sá orðrómur barst um bæinn
í gær að togarinn Þórólfur hefði
fengið tundurdufl í vö.rpuna og
skemmzt töluvert.
Fregn þessi er með öllu til-
hæfulaus. Þórólfur kom í gær
til Íteykjavíkur og hafði ekkert
slys hent hann. — Mun hafa ver-
ið ruglað saman togaranum Þor-
finni — sem frá var sagt í gær
— og togaranum Þórólfi.
Sðsíalistaflokkurinn lang-
stærsti flnkkurinn á Siglufirði
Ifarðvítugí bandalag tiinna flokkanna þriggja
fékk aðcins nokkurra atkvæða meirihluta í
kaupf éiagskosn i ngun um
Fulltrúakosningar hafa nndanfarið farið fram í Kaupfélagi
Siglfirðinga,
Framsóknarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa sameinazt í þessum kosningum gegn Sósíalista-
flokknum og hefur kosningabarátta þeirra verið eins og í höró-
ustu alþingiskosningum. Hefur þeim með harðsvíruðustu áróðurs-
aðferðum tekizt að ná sameiginlega meiri hluta í félaginu.
Úrslit þessara kosninga sýna, að Sósíalistaflokkinn á Siglu-
firði vantar nú aðeins herzlumuninn til þess að vera jafnsterkur
öllum hinum flokkunum þar sameinuðum.
í fyrstu deildinni, sem kosið
var í voru kosnir 17 fulltrúar.
Sambræðsla afturhaldsins fékk
44 atkvæði og 16 fulltrúa, en
sósíalistar 37 atkvæði og 1 full-
trúa, hæsti maður sósíalista var
hærri en lægsti maður aftur-
haldsins.
í annarri deild voru kosnir 19
fulltrúar og vann sambræðslan
með 12 atkvæða mun, 69:57.
í þriðju deildinni voru kosnir
17 fulltrúar og unnu sósíalistar
með 4 atkvæða mun, 58:54. — í
gærkvöld fór fram kosning í
síðustu deildinni og átti að kjósa
11 fulltrúa.
Engum kemur á óvart sam-
bræðsla Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins í þessum kosn-
ingum, því á Siglufirði eru
flokkar þessir taldir raunveru-
lega einn flokkur. Aftur í móti
vekur framkoma Sigurðar Krist j
ánssonar, frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins á Siglufirði í
síðustu kosningum, allmikla
furðu norður þar, en hann hef-
ur barizt með hnúum og hnefum
með Framsókn í þessum kosning
um. Auk þess er hann nokkurs-
konar gervimeðlimur í kaupfé-
laginu, þar sem hann verzlar
sáralítið við það.
Þessi „sigur“ sem Tíminn
hældist svo mjög um í gær er
unninn með óvinum kaupfélags-
ins.
Ingimar Jónsson skólastjóri skýrði hlaðamönnum í gær frá
því sem hér fer á eftir, en Guðjón Samúelsson húsameistari
ríkisins útskýrði teikningar af skólanum, sem nú hafa verið
staðfestar.
Gagnfræðaskólinn í Reykja-
vík, sem nú er í þann veginn
verið að hefja byggingu á, mun
verða stærsti framhaldsskóli,
sem enn hefur verið byggður hér
á landi.
í skólanum eiga að vera 11
almennar kennslustofur og auk
þess 6 stofur til sérstakra starfa,
svo sem kennslu í náttúrufræði,
eðlisfræði, efnafræði, teiknun,
handavinnu pilta og stúlkna og
bóka- og lesstofa. Þá eru og í
skólabyggingunni tveir leikfimi-
salir, annar allstór en hinn
nokkru minni.
Húsinu er ætlaður staður í
brekkunni við austurhlið Skóla-
vörðutorgs. Fær skólinn lóðina
frá torginu niður að Barónsstíg
sunnan við Egilsgötu og að
göngustíg, sem kemur sem fram
hald af Leifsgötu frá Barónsstíg
upp að torginu.
Grunnflötur hússins er 1356
fermetrar. Lengd þeirrar hliðar
sem snýr að Skólavörðutorgi er
52,5 m., en hliðin út að Egils-
götu 36,5 m. að lengd.
Sjálft aðalhúsið er byggt í fer
hyrning. Það er 36,5 m á lengd
en 24 m á breidd. Langhlið þess
móti norðaustri veit út að Egils-
götu en stafnar að Barónsstíg
og Skólavörðutorgi. Leikfimi-
salir eru byggðir hornrétt út frá
suðurhlið. En til þess, að eigi
spillist rúm fyrir kennslustofur
á fyrstu hæð er þak þess salar, j
sem nær er, lægra en gluggar á
fyrstu hæð aðalhússins. Annar
salurinn fær aðallega ljós frá
suðaustri en hinn frá suðvestri.
Aðalinngangur er í kjallara
hússins frá suðurenda. í kjallara
eru fatageymslur nemenda og
snyrtiherb., smíðastofa, geymsl-
ur, íbúð umsjónarmanns, svo og
búningsherbergi og böð fyrir
stærri leikfimisalinn og er inn-
angengt í hann. Úr kjallara er
gengið upp í stóran skála í miðju
húsinu, hann er 10,5x29,0 m að
stærð og nær upp í gegnum báð-
ar hæðir hússins. Út frá skálan-
um eru kennslustofurnar á þrjár
hliðar, en fyrir öðrum gafli eru
samfeldir gluggar frá lofti að
gólfi. Auk þess fær skálinn ofan-
ljós frá gluggum í þaki hússins.
Skálinn notast í stað ganga á
neðri hæð, en á efri hæð eru
svalir á þrjá vegu og opnast
skólastofurnar út á þær. Auk
þess kemur skálinn að notum
sem samkomu- og hátíðasalur og
er hægt að tala þar við nem-
endur alla í einu.
Uppdrætti alla að húsinu hef-
ur húsameistari ríkisins, - pró-
fessor Guðjón Samúelsson, gert.
Hann mun og hafa yfirumsjón
með byggingu þess.
Byrjað verður á byggingu
hússins innan skamms. Bygg-
ingarkostnað greiðir ríkissjóður
að % hlutum en bæjarsjóður
Reykjavíkur að % hlutum. Er
það vilji allra, sem hlut eiga að
máli, að verkið geti gengið sem
allra fljótast.
Mosaeldur í Heiðmörk
í gærmorgun um kl. 10 tilkynnti lögreglan slökkviliðinu að
eldur væri kviknaður í Heiðmörk.
Slökkviliðsstjóri og skógTæktarstjóri fóru þangað kl. 1 með
40 manns til að slökkva eldinn og höfðu lokið því um 6 leytið
í gær.
Brann þarna á annan hektara af mosagróðri í jaðri Heið-
merkur. ----------------------------
Það verður heldur ekki svo
ýkjamikið úr þessum stóra
„sigri“ þegar það er athugað, að
þessi kosningaúrslit sýna að nú
vantar aðeins herzlumuninn til
þess að Sósíalistaflokkurinn sé
þar jafnsterkur hinum flokkun-
um öllum til samans.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Jóni Sigurðssyni slökkviliðs-
stjóra. Kvað hann eldinn hafa
verið í jaðri Heiðmerkur, um 3
—4 km í austur frá Jaðri og
álíka langt í suður frá Silunga-
polli. Var eldurinn í mosagróðri
um 200 metra fyrir ofan skóginn.
Þarna er ekki hægt að koma
við vatnsslökkvitækjum og vann
þessi 40 manna hópur að því að
grafa kringum eldinn og hafði
lokið því verki um sexleytið í
gærkvöld.
Brenndu þeir jaðra brunasvæð
isins innan beltisins, sem þeir
grófu til þess að eldurinn skyldi
stöðvast þar.
Fjórir menn vo.ru skildir eft-
ir til þess að líta eftir eldinum,
var von á þeim um kl. 12 í nótt.
— Tvenn nýleg för, misstór,
sennilega eftir karlmann og
kvenmann, lágu út af brunasvæð
inu.
ELDUR í SVÍNAHRAUNI
Seint í gær fékk slökkviliðið
þær fregnir með bílstjóra, sem
kom að austan að eldar væru í
mosa í Svínahrauni. — Mun þar
hafa verið um smávægilegar í-
kviknanir að ræða.
Breytingar fyrirhug
aðar á stjórn At-
vinnud. Háskólans
Meuntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til að atliuga og
gera tillögur um breytingar á
Atvinnudeild Háskólans, þann-
ig, að hún verði sett undir
stjóm Háskólans, í stað þess
að hún heyrir nú beint undir
atvinnumálaráðherra.
f nefndinni eiga sæti Alex-
ander Jóhannesson prófessor
(formaður), Ásgeir Þorsteins-
son efnafræðingur, Björn Sig-
urðsson læknir, dr. Þórður Þor-
bjarnarson, Ámi Friðriksson
mag. og Níels Dungal prófessor.
íkviknun í Hafnar-
firði
í gær kviknaði eldur í bala
með þurrum þvotti á efri hæð
hússins Hellubraut 7 í Hafnar-
firði. Enginn var heima þegar
eldurinn kviknaði, en þegar
komið var að logaði 1 þvottabal-
anum og húsið var fullt af reyk.
Slökkviliðið slökkti eldinn fljót-
lega. Þil munu hafa skemmzt
eitthvað. Óvíst er um upptök
Umræður hafnar um
heildarsamninga um
síldveiðikjörin
Umræður um heildarsamn-
inga um kaup og kjör sjó-
manna á síldveiðiskipum hefj-
ast í dag milli Alþýðusambands
íslands og Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna.
Þjóðviijmn hafði í gær tal af
Jóni ' Rafnssyni framkvæmda-
stjóra Alþýðusambands íslands
og spurði hann um þessi mai.
Skýrði hann svo frá að fyrír
noklcru hefði Sverrir Júlíusson,
forseti Landssambands ísl. út-
vegsmanna vakið máls á því
hvort Alþýðusambandið myndi
reiðubúið til umræðna um
heildarsamninga um síldveiði-
kjörin og hefði stjóm Alþýðu-
sambandsins tjáð sig fúsa til að
athuga möguleika á því.
í gær bárust Alþýðusamband
inu skrifleg tilmæli frá Lands-
sambandi ísl. útvegsmanna um
að hefja þessar umræður og
munu undirbúningsviðræður
milli þessara aðila hefjast í dag.
Samningar um síldveiðikjör-
in eru nú hvergi í gildi nemi
á Vestfjörðum cg Ólafsfirði.