Þjóðviljinn - 12.06.1945, Síða 3

Þjóðviljinn - 12.06.1945, Síða 3
Þrið.judagur 12. júní 1945. ÞJÓÐ VILJINN 3 ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR || ■ ' v FJAL Fjöllin hafa löngum verið ] ævintýraland íslenzku sveita- ! æskunnar. Hin rómantíska feg- urð þeirra og kyrrð hefur lað- að hugi draumlyndra æsku- manna, en hættur þær og haið- ræði, sem þau eiga í skauti sínu, hafa hróþað á þrek og hugrekki hraustra drengia. Fram undir vora tíma haía leitirnar á haustin verið því nær eina tækifæri allra þessara manna til að komast upp tii fjallanna, a. m. k. síðan grasa- ferðir féllu úr tízku, enda hafa ungir menn löngum keppt um að fá að fara í fjallgöngur. Þær gátu orðið próf á karlmennsku og þrek, og alla unga menn langar til að reyna harðfengi sitt til þrautar. Svo gátu harð- ræði þau\ og þrautir, sem þeh' urðu fyrir upp í fjöllum á unga aldri, orðið góð til frásagnar, þegar ellin hafði gert þeim ókleift að drýgja dáðir. Fjallgöngurnar geta orðið hin bezta skemmtiferð, þegar veður er hagstætt og sýni gott, því að fátt er jafn tilkomu- mikið og víðfeðmi íslenzku ör- æfanna í hagstæðu veðri. En íslenzku fjöllin eiga líka annan svip og harðleitari, er þau klæð ast veðraham sínum, og fátt er jafn hjálparvana sem átla- viltur maður, sem reikar um auðnir fjallanna og froststorm- urinn hrekur til og frá eins og visið laufblað á haustdegi. Og ömurleg er vistin í gangnakof- anum á slíkum stundum þeim, sem þangað komast, ef þeir vita af einhverjum félaga sínum í baráttu við þessar ham- farir náttúrunnar. Hver bylroka sem dynur á kofaþakinu, styrk ir dauðadóm hins einmana manns, hver skuggi, sem hir. flöktandi ljóstýra myndar á vegginn, verður að fölum draugslegum svjp hins dauða- dæmda. En það er einmitt þessi áhætta, sem gerir fjallaleit- irnar svo lokkandi í augum ungra manna, sem þrá ævin- týri og þrautir til að reyna kraftana. Vilt þú nú, lesari góður, fylgj ast með 1 eina af þessum fjall göngum. Það verður að visu engin hetjusaga, sem þér verð- ur sögð, en það verður heldur engin venjuleg skemmtiferða- saga. Þetta verður frásögn af einnf af þessum fjölmörgu haustleitum, sem smávægilegir erfiðleikar og raunabætur vjö þeim gera 'helzt til hversdags- legar. Við hleypum hestunum svo sem kostur er upp Fljótsd?is- eyrar, en þeir eru nú teknir að lýjast af langri ferð og kjósa helzt seinaganginn. í hnakktösk nm okkar eru vistir til þriggia daga. Er það aðallega kjöt at gangnadilknum, sem slátrað hefur verið á hverjum bæ, en auk þess margskonar aðrar vist- ir. Þar eru og teppi og annað til skjóls, sem við munum þurfa á að halda í kofa, ef við liggjurr. þar aðra nótt. Ferðinni er heitið að efsta bæ í Fljótsdal. En ætlunin var að dvelja þar um nóttina, en leggja af stað í fyrramálið eða seinni partinn 1 nótt að smala Gilsárdal allt innan frá Sauða hnúk og út að sæluhúsinu í dain um og dvelja næstu nótt í sælu húsinu eða byggð, eftir því sem á stendur. Veðurútlitið ei ekki upp á það bezta, krapahríð í byggð og útlit fyrir, að bylur sé uppi á fjöllum. Við hugsum til morgundagsins með eftir- væntingu og jafnvel kvíða. skyldum við fá stórhríð á morg- un? Við höfum verið á ferðalagi síðan_pm hádegi og nú er kom- ið fast að háttamálum, enda erum við að ríða heim túnið. Bóndi tekur á móti okkur og býður okkur inn, en annasí hesta okkar sjálfur. Enginn bið ur um næturgreiða, en bóndi álítur það svo sjálfsagt mál. að við v^rðum hér í nótt, að um það þurfi ekki að tala. enda ið fari að versna. Treð ég öli- um hlífðarfötum niður í tösku og hyggst að vera léttklæddur í kapphlaupinu við þessar ó- þjálu fjallagálur, sem eiga það til að reyna í manni þolrifm svo að um munar. Þó læt ég tilleiðast af fordæmi og for • tölum mér reyndari manna og tek með mér olíutreyju. Leggja nú allir af stað nema einn, sem fer með hestana t,il baka. Er meiningin, að hann komi til móts við okkur ir.n að sæluhúsi, ef við verðum að hafast þar við í nótt. Við hiu.ir þrömmum upp hlíðina og geng - ur ferðin sæmilega. En ekki batnar útlitið Bakkinn, sem bóndi hafði varað okkur við tekur nú að færast upp á him- ininn. Tekur brátt að þykkna í lofti og ekkj líður á löngu. áð- ur en einstöku krapaflyksur fara að slettast í andlit okktr. Þykir okkur nú sennilegt, að bóndi muni reynast sannspár, en höldum þó áfram ausiur á heiðina. Fer ég nú í kápuna og reynist hún góð hlíf gegn ♦ EFTIR Guðmund Helga Pórðarson frá Ilvammi hefir hann þúizt við okkur og hefur látið konuna hita kaffi til að hressa okkur á, er við kæmum utan úr hríðinni. Eru nú teknir upp malpokarnir og snætt, spjallað um veðurútlitið o.s.frv. Drekkum við síðan kaffi hjá húsfreyju og búumst að bví búnu til svefns, því að ekki mun sofið lengi frameftir, eí veður verður fært. Legst nú áU- ur hópurinn í flatsæng á gólf- inu, og sofna allir fljótt í von um að veðrinu sloti yfir nóttir.a. Er við höfum dvalið í drauma landinu í góðu yfiriæti um stund, erum við hrifnir þaðan af gangnastjóranum, sem seg'.r, að mál sé að bregða blundi og búast til ferðar. Klukkan er að- eins fjögur og myrkur yfir allt. Veðrið er sæmilggt og útlit fyr- ir skyggni, því að himininn er léttskýjaður að því er séð verð- ur. Þó segir bóndi að bakki sé í loftinu, og vel geti farið svo. að við fáum að kenna á hon- um áður en lýkur. Við erum hinir gleiðustu, og höldum að við hræðumst ekki mikið þó að skýhnoðri sjáist á loftinu, bað sé engin nýbóla. Þó má sjá á svip hinna reyndari manna i okkar hóp, að þeir búast við öllu, þótt þeir láti ekki mörg æðruorð falla. Tökum við okkur nú bita úr malpokum okkar og drekkum kaffi, sem bónd: hefur hitað, meðan við sváf- um. Að því loknu búumst við til göngu. Eg er óreyndur i slíkum fjallferðum og held, að ekki sé mikil hætta á, að veðr- bleytunni, sem alltaf fer sívax andi. Eftir því sem austar dreg- ur, eykst árkoman. Loks eiu þessar hvítgráu krapaflyks- ur orðnar svo þéttar, að v'ð sjáum aðeins nokkra metra frá okkur, og vindurinn feykir bleytunni og kuldanum inn á okkur um hverja smugu. Tek ég nú að blotna allmjög þar sem treyjan nær ekki til og ekki bætir úr skák, að allt vatn ið, sem á henni lendir, hrynur af henni og eykur um allan helming þá bleytu, sem fyri: er. Sjáum við nú, að ekki tjóar að fara lengra til öræfa í slíku veðri. Hins vegar erum við komnir svo langt austur á bóg inn, að ekki mun ráðlegt '-að snúa ofan í Fljótsdal, en leita heldur gangnakofans fyrst í stað. Við erum hjá Gilsárdrög unum og höldum nú út með ánni í áttina til kofans. Krapa- hríðin er beint í fangið og fe>- harðnandi. Við erum gegnblaui ir allstaðar, þar sem ekki eru verjur fyrir. I andliti erum við 'sárir orðnir af lamningnum. j Krapablautir þúfnakollai1 og ís- glerungar á steinunum reynasi ' okkur allerfið fótakefli, og .r ekki óalgengt að sjá einhvern af ferðafélögunum liggja kylli- flatan af völdum þeirra. Aðeins ein hugsun kemst að í hugum okkar,. og það er að komaH sem fyrst í húsaskjql. En það er eins og þessi sæluhúskofi sé úti á heimsenda. að minnsta kosti finnst okkur heil eilífð síðan við lögðum af stað, og Um fátt var meira rætt undan- farna daga en leik reykvískra knattspyrnumanna við lið úr brezka setuliðinu hér. Bæði um- tal og auglýsingar voru komnar á það stig, að mönnum virtist hér um landskeppni að ræða. Þegar á völlinn kom var líka engu líkara en svo væri því þjóð söngvar beggja þessara eyríkja í Atlanzhafi voru leiknir, að við- stöddum nær sjötta hluta bæjar búa. Leikurinn hófst með sókn af hálfu Bretanna og munaði minnstu að mark yrði, en brátt snerist sóknin að marki Breta, Hafliði komst í færi, en misnot- enn er langt eftir að því er gangnastjórinn segir. Hægt, hægt mjökumst við áfram. Hvert skref móti veðrinu verður gegnblautum fótleggj- um okkar þrekraun. Vatn- ið bullar upp úr skónum og fötin límast við líkamann af bleytunni. — Vinduiánn leitar inn á okkur, hvar sem færi gefst. Eg er farinn að ganga ósjálfrátt, horfi aðeins á hið breiða bak gangnastjórans og veðurgnýrinn verður nokkurs- konar hergöngulag, þar sem vjð •þræðum áfram hver á eftir öðr um. Loksins rennur upp hin langþráða stund. Gangnakofin.i «-ís eins og óljós þústa í hríðinn'. Nú er eins og öll þreyta hverfi og við hlaupum við fót heim að kofanum og knýjum þar á hurðina. Við fleygjum okkur allir í hnapp á gólfið, og er það nærri fullsetið, þegar við erum allir komnir inn. En heldur er hér lítið um þægindi. Einu innanstokks munimir, sem hér eru sjáanlegir eru olíulaus átta línu lampagrýta með hálfu glasi og olíulaus prímusgarmur, sem stendur á höfði í einu hornini\. En engu að síður erum við ham- ingjusamir að vera komnir unc ir þak og tökum nú fram mal- poka okkar og reynum að gera okkur gott af því, sem þar er. þó að krapaslattur hafi lent í suma og drýgt vistarnar á mið ur listugan hátt. En brátt tekur kuldiím að á- sækja okkur, og óskum við nú einskis heitar en að hafa annað hvort brennheitt kaffi eða brenni- vín til að hita upp hálfdofna limi okkar. En ekki tjóar að tala um það. Til byggða urðum við að komast, ella munum við eiga á hættu að verða. fárveikir hér uppi á fjöllum sökum ofkælingar og er einn ferðafélagi okkar þegar far- i inn að kvarta um’sting undir síð- unni, en huggar okkur með því, að það muni aðeins vera þreyta eða gigtarstingur. Við látum því Jiða úr okkur mestu þreytuna. en bú- umst því næst til byggða. Veðr- inu hefur aðeins slotað, en vindur- inn verður beint í fangið enn sem áður alla leið til byggða. Gangna- stjórinn tekur nú forvstuna og gengur á uridan, en við komum allir á eftir í halarófu. Síðastur fer sá, sem talinn er harðfengastur, og á. hann að sjá um að enainn \ Framhald á 5. siðu. aði það. Næstu 10 mínútur eru Bretar nokkuð ákveðnir, en eins og Islendingarnir séu dálítið „fótfúnir“, en þetta fer brátt af. Verða þeir nú stöðugt nærgöng- ulli við markið. Ellert er í færi, en heppnast ekki. Albert sömu- leiðis, en fer yfir. Bretar gera líka áhlaup, en þau eru ekki éins hættuleg, þó ver Anton í tvö skipti með prýði og í þriðja skipti lendir mjög fastur skalla- bolti óvart á höfði Birgis, sem annars hefði farið 1 mark. Yfirleitt er hættan meiri við mark setuliðsmanna. Sæmund- ur spyrnir langa spyrnu að marki, en markmaður missir knöttinn inn í markið. Endar sá hálfleikur 1:0. Síðari hálfleikur var betur leikinn af íslendingum en sá fyrri, en að sama skapi dró af Bretum. Gerðu íslendingar þá þrjú mörk og setti Albert þau öll. 1. markið setti hann eftir mjög laglegan samleik, sem setti vörnina út úr jafnvægi. Annað markið var mjög góður skalli úr nákvæmri miðjun frá Hafliða. Þriðja markið var einnig gott. Leikurinn var nókkuð lifandi, þó ójafn, en þó ekki eins ójafn og mörkin benda til. Lið Bretanna var langt fyrir neðan það, sem ég hafði gert mér í hugarlund. Vörnin yfir- leitt var veik, og auk þess þær staðsetningarveilur, sem varla koma fyrir hjá félögum hér og eru þær þó vaxandi hjá öllum liðum. Hliðarframverðir byggðu illa upp og bakverðirnir skildu oft eftir þær opnur að furðulegt var. Framlínan var betri hlið liðs- ins, sérstaklega útherjarnir og miðframherjinn, sem gerðu margt mjög vel, en fengu ekki þann stuðning, sem þeir þurftu og áttu skilið. 'í einu voru þeir þó yfirleitt Íslendingunum snjallari, en það var í skallaleikni. Að undanskildum fyrstu 10 mínútunum féll íslenzka liðið furðu vel saman, og er gott sam- ræmi milli sóknar og varnar. Sveinn Helga og Sæmundur réðu fyllilega yfir miðju vallar- ins með góðri aðstoð frá Jóni og Óla B., sem síðan voru fundvís- ir á sérstaklega Ellert og Albert, sem lék mjög vel sem miðfram- herji. Aftasta vörnin voru sterk- ir einstaklingar. Bjargaði Anton oft vel, sérstaklega í þau skipti, sem getið hefur verið, þó hins- vegar hafi oft komið fyrir slæm- ar staðsetningarskyssur. Þessi leikur gefur engan mæli- kvarða á getu liðsins, til bess var mótstaðan of veik. Mótherjarnir höfðu ekki þá knattmeðferð eða skipulagðan leik, sem verulega reyndi á að standast. Við þurf- um mun sterkara lið en þetta. til að mæla getuna við, og ég tala nú ekki um, ef af þeim á að læra. » Leikurinn var prúðmannlega leikinn. Dómari var Englending- urinn Victor Rae, og dæmdi mjög vel. F. H.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.