Þjóðviljinn - 13.06.1945, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 13.06.1945, Blaðsíða 8
4 ÞJÓÐ VILJINN Miðvikudagur 13. júuí 1945. Byggingaframkvæmdutn I Reykjð- Sundi verður hðldið ifn Lantisfundur mlðsfjóraiar S. I. B. S. Landsfundur miðstjórnar Sambands íslenzkra berklasjúkl- inga var haldinn á Vinnuheimili sambandsins að Reykjalundi íaugardag og sunnudag s.l. Mættir voru á fundinum fulltrúar frá sex sambandsfélögum auk miðstjórnar. Fimdurinn fjallaði uni vinnuheimilismál sambándsins, éu úm það er ríkjandi mikill áhugi sambandsfélaga, endá alþjóðar svo sem verkin bezt sýna, þar sejn nú þegar hafa verið býggð og tekin í notkun 10 íbúðarhús fyrir um 40 vjstmenn, ásamt til- heyrandi vinnustofum, sem að vísu enn eru, í bráðabirgðahús- næði. Fundurinn gerði meðal ann- ars eftirgreinda ályktun: Haldið verði áfram byggingu íbúðarhúsa af sömu gerð og þeg ar hafa verið byggð, og enn- fremur’ hraðað undirbúningi byggingu að.alhússins, sem mes! með tilliti til þess, að fram- kvæmdir geti hafist á þessu. ári og í því skyni verði ráðstafanir gerðar til fjáröflunar með öll- um þeim ráðum, sem tiltækileg þykja. Fulltrúar létu í ljós ánægju sína yfir því, sem nú þegar hef- ur verið framkvæmt og ,um leið eindregna ósk um að áfram verði haldið á sömu braut, unz vinnu'heimilishugsjónin., hefur að fullu rætzt og að þjóðin sýni þessu máli sama skilning og velvild eftirleiðis sem hingað til. Þá samþykkti fundurinn að lokum ávarp til forseta sam- bandsins, Andrésar Straum- lands,. sem því miður gat ekki Fastar flugferðir að heíjast milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna með viðkomu á íslandi Eftir fregnum, sem borizt hafa frá sendiráði í'slands í Stokkhólmi, eru fastar flug- ferðir milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna með viðkomu á íslandi um það bil að hefj- ast. Hafa Bandaríkjamenn þegar farið tvær reynsluferö’ ir, en reynsluferðir Svía hef)- ast innan skamms. Að þeim loknum er búizt við því að fastar flugferðir verði af hálfu hins ameríska félags frá Bandaríkjunum á hverj- um laugardegi og frá Svíþjóð á hverjum sunnudegi, en ferð ir sænska félagsins Aerotrans port munu fara fram um miðja vikuna, þannig að farn ar verði alls tvær ferðir d viku, báðar leiðir^ (Fréttatilkynning frá rík- isstjórninni). mætt á fundinum vegna veik- inda. Hljómleikar Rögn- valdar Sigur jónsson ar fá góðar viðtökur í Washington Sunnudagskvöldið 10. maí hélt Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari hljómleika í National Gallery of Art í Wash- ington. Húsfyllir var og meir en 1000 manns viðstaddir. • Hljómleikarnir voru stórsigur fyrir hinn únga listamann, þvi að hverju lagi var tekið með langvarandi lófataki, og ‘ að lokum var- hann sjö sinnum klappaður fram og varð að leika; tvö aukalög og var annað þeirra „Máninn hátt á himni skín“, ef tir Sveinbjöm Sveinbjöms - son. Að loknum hljómleikuriuni höfðu sendiherra íslands ög fni Thors móttöku til heiðurs lista- marininum að heimili síriu, og koiriu þar má'rgir íslendirigar, hljómlistarvinir og listdómend- ur blaðanna. Baldur von Schirach tekinn Ribbentrop dauður? Baldur von Schirách, fyrrv. landsstjóri nazista í Austwrríki var Imndtekinn í gœr af banda- rísloum hermönnum i borgirmi Wiesbaden. ÓstaðfeStar fréttir herma að lík Ribbentrops hafi fundizt í fangabúðuni á hernámssvæði 3. bandaríska hersins. Leikur Vals og K.R. K.R. tapaði 4:0 leikur Reykjatnkurmótsins fór fram í gœr. K.R. og Valur kepptu og fóru leikar þannig að K.R. tapaði með 4 mörkum gegn engu. Veður var óhagstætt og leikurinn heldur leiðinlegur. Dqmari var Þráinn Sigurðsson, og dæiridi vel. í tilefni af afmæli George VI Bretakonungs taka sendiherra Breta og frú Stepherd á móci heimsóknum að Höfða fimmtu- daginn 14. júní kl. 5—7. „Amakefli’" Alþýðublaðsins Margt ver&ur Alþýðublaðinu til ama. 1 gœr skrifar það leiðara um fréttaflutning rílcisútvarpsins, sem er nú aldeilis ekki á Unu þeirra Stefánanna & co! — Ríkisútvarp- inu liefur orðið það á að flytja fréttir frá Hélsingfors! Frá. sjónarmiðii allra, óbrjálaðra hlustenda er það kostur að ríkis- útvarpið flytji sem fjölbreyttast- ar fréttir og frá sem flestum. stöð- um og einkuvi þó frá Evrópu- löndunum cftir að oki nazistanna hefur verið ajléti. Það er.því enn eftirtektarverðara að þetta „lýð- rœðissinnaða‘‘ blað, Alþýðublaðið, skuli nú fara að kvarta yfir því að ekki voru fluttar fréttir frá Ilelsingfors mcðan þýzki nazism- inn réði þar lögum og lofum. Al- þýðublaðinu hefur auðsjáanlega elc/ci verið nóg að fá á stríðsárun- um fréttir frá Berlin, það hefur finnig viljað fá fréttir jrá lepp- ríkjuni þýzlca nazismanns! . Alþýðublaðið kvartaði aldrei uiulan Berlínarfréttunum, en nú kvartar það undan fréttum frá' IíelsingfóYs, eftir að þýzku nazist- arnir voru hraktir þaðan og kjökr ar: Jmers vegna máttum við ekki fá fréttir þaðan meðan fasistarnir réðu þar! — Já, A Iþýðublaðið þekkir sannarlega vini sína. Það vœri alveg eftir Alþýðw- blaðinu — blaðinu sem aldrei kvartaði yfir fréttum frá BerUn •—r að reka nú upp öskur cin- hvern da.ginn, að ríkisútvarpið skuli leyfa sér að flytja fréttir frá Moskva! Þingeyska bændaförin Búnaðarsamband Suður-Þing- eyjarsýslu hefur, efrit til bænda- farar til Suðurlands, eins og áður hefur verið frá skýrt hér í blaðinu. — Þátttakendur í föriuni eru 174, þar af 52 kon- ur. Var lagt af stað í förina á sunnudag og komið hingað til bæjarins í gærkvöld. Lagt var af stað um klukkan 10 á sunnudag frá Fnjóskárbrú og ekið heim að Hólum í Hjalta dal um kvöldið. Var höfð við- dvöl í Varmahlíð og setið boð Búnaðarsambands Skagfirðinga. Að Hólum hlýddi ferðafólkið á messu, en Kristján Karlsson skólastjóri og frú hans sýndu gestunum staðinn. Næsti áfangastaður var Hvanneyrþen þar önnuðust mót' tökur þeir Guðmundur Jónsson skólastjóri, Steingrímur Steir. þórsson búnaðarmálastjóri og Ragnar Ásgeirsson ráðunautur. í gær var svo ekið fyrir Hval f jörð og dvalið um stund á Ála- fossi í boði Búnaðarsambands Kjalarnesþings, en hingað kom- ið laust fyrir kl. 6 í gærkvöld_ Flestir þátttakendur í förinni hafa aldrei áður komið til Suð- urlands. Láta þeir hið bezta yfir förinni og róma mjög þær við- tökur er þeir hafa fengið á við- komustöðum. Póllandsmálin Afturhaldsblöð víða um heim haíá undanfarið tekið skorpu í rógsherferðinni gegn Sovétríkjunum, og láta blöð íslenzka afturhaldsins, og þá einkum blöð Framsóknar- fasistanna og dagblað þeirra Alþýðublaðið, ekki sitt eftir bggja. © Nýlega sendi fréttpritari Times í Moskva, Ralph Park- er, fyrirspurn til Stalíns varðandi Póllandsmálin, og svar- aði Stalín með eftirfarandi bréfi, dagsettu 18. maí s.l. „1. Handtaka 16 Pólyerja í Póllandi, undir forustu hins alræmda skemmdarverkamanns Okulicki hershöfðingja, stendur ekki í neinu sambandi við endurskipulagningu pólsku bráðabirgðastjórnarinnar. Þessir menn voru handteknir fyr- ir brot á lögum varðandi öryggi baklands rauða hersins fyrir skemmdarverkamönnum, en hiðstæð öryggislög eru í í gildi Bretlandi. Handtökumar voru gerðar af hemaðar- yfirvöldum Sovétríkjanna í samræmi við samkomulag milli pólsku bráðabirgðastjórnarinnar og sovétherstjómarinnar. 2. Það er ekki satt að hinum handteknu Pólverjum hafi verið boðið til samninga við sovétyfirvöldin. Sovétyfirvöld gera ekki og munu ekki gera samninga við menn sem gerast brotlegir við lögin um öi-yggi þaklands rauða hersins. 3. Hvað snertir endurskipulagningu pólsku bráðabirgða- stjómarinnar getur slík endurskipulagning einungis orðið á grundvelli ákvarðana Krímráðstefnunnar. Það verður ekki um að ræða neitt frávik frá þeim ákvörðunum. 4. Eg er þeirrar skoðunar, að hægt sé að leýsa Póllands- málin með samkomulagi milli Bandamanna, sé eftirfarandi skilyrðum fullnægt: a. Að þegar pólska bráðabirgðastjórnin er endurskipulögð, sé sú stjóm viðurkennd sem kjarni einingarstjórnar Póllands líkt og í Júgoslavíu, þar sem þjóðfrelsisnefndin var viður- kennd sem kjami hinnar sameínuðu ríkisstjómar Júgoslavíu_ b. Að árangur þeirrar endurskipulagningar verði mynd- un stjómar í Póllandi, sem hefur vinsamlega afstöðu til Sovét- ríkjanna, en rekur ekki pólitík sem miðar að því að einangra þau. c. Að endurskipulagning pólsku stjómarinnar sé afráðin með Pólverjum sem hafa nú samband við pólsku þjóðina en ekki án þeirra.“ , • Enska stórblaðið The Times sagði um svar þetta 21. maí m. a.: „Skilyrði þau semi Stalin; marskálkur nefnir, fela fátt í sér annað en það, sem einlæglega verður tekið undir í Bret- landi og Bandarikjunum.“ Það'er pólska klíkan í London, sem staðið hefur fyrir rógsherferðinni. gegn Sovétríkjunum í sambandi við þessi mál, sú hin sama sem sendi Stefáni Péturssyni „neyðarópið“ hér á dögunum. Frá Póllandi ber- ast fregnir um vaknandi þióð sem í fyrsta sinni nýtur lýð- frelsis og sjálfstæðis, eina af þeim Evrópuþjóðum, sem ekki láta sér nægja að varpa af sér oki þýzka fasismans, heldur gera einnig upp við innlenda afturhaldið. Á sama tíma verð- ur nátttröllseðli pólsku klíkunnar í London stöðugt meir áberandi, hún virðist svo gersamlega blinduð af sovéthatri að allt annað hverfi henni sjónum_ Bacchalaurorum artium próf. B.—A. prófi hafa nýíega lokið við Háskóla íslands: Andrés Asmnndsson i þýzku, frönsku og ensku. Halla Bergs í ensku, fröueku og heimspeki. Teodoras Bieliackinas í íslenzku, frönsku-og heimspeki. Æ.F.R. Félagar! Farið verður til vinmi i RauðhóLa í kvöld kl. 7,15 með sfrætisvagninum. Framkvæmdaráðið. Vísitalan 275 stig Vísitala framfœrslukastnaðar fyrir júnímánuð, • hefur verið reiknuð út. Reyndist hún vera einu stigi hœrri en siðastliðna mánuði, eða 275 stig. Stafar hœkkun þessi aðallega af verð- hœkkun á fatnaði og fargjalda- hœkkun með strœtisyögnum. Tónlistarfélagið biður nemendur Tónlistarskólans, hljóðfæraleikar’c söngfólk, leikara og aðra sem starf- að hafa á vegum félagsins, að mæta í Tónlistarskólanum í dag kl. 5—7 og sækja aðgöngumiða að hljóm- lé'ikum sem haldnir verða annaö kvöld.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.