Þjóðviljinn - 20.06.1945, Síða 8
8
ÞJÓÐ VILJINN
Miðvikudagur 20. júní 1945.
/------------------------:----------------------------------------------------------------------
Stærsíi lýsisgeymir á íslandi — Vinna tiafin
við nýju verksmiðju Síldarverksmiðja ríkisins
Smíði síldarverksmiðjunnar Rauðku á Siglufirði er nú
að verða lokið.
Hafa unnið við byggingu hennar um 200 verkamenn
og er gert ráð fyrir að hún muni verða tilbúin til að hefja
starfrækslu í næsta mánuði.
Mikill liluti af starfsmönnum vélsmiðjunnar Héðins
er nú á Siglufirði að vinna að því að setja upp vélar í
Rauðku og lýsisgeymi fyrir verksmiðjuna; verður það
stærsti geymir sinnar tegundar hér á landi, byggður eftir
nýjustu amerískum aðferðum, þ. e. rafsoðinn í stað þess
að áður voru slíkir geymar hnoðaðir.
Vinna er nú hafin við hina nýju 10 þús. mála verk-
smiðju Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði.
^ ______________________________________________J
Kýtt flutningaskip, Haukur
JEfgesidur hX Haukur o$ HX BaSdur
Að kvöldi 17. júní kom hingað nýtt flutningaskip, „Haukur“.
keypt í Kanada. Er það fyrsta flutningaskip, keypt hihgað til
lands síðan stríð hófst. —■ Blaðamenn, nýbyggingarráð o. fl. skoð-
uðu skip þetta í gær.
Póllandsmálin skýrast
Með viðræðum þeim, sem nú fara fram í Moskva um
endurskipulagningu pólsku bráðabirgðastjórnarinnar, er
verið að framkvæma eina af ákvörðunum Krímráðstefn-
unnar. Nokkur dráttur hefur orðið á þessum framkvæmd-
um, ekki sízt vegna þess að stjómir Bretlands og Banda-
ríkjanna hafa fram til þessa sýnt pólsku stjómarklíkunhi
í London furðulegt umburðarlyndi, og látið áróður hennar
gegn Sovétríkjunum hafa á'hrif á afstöðuna til Póllands-
málanna. Klíka þessi hefur fyrir löngu orðið uppvís að
því, að reyna að koma af stað óvináttu milli Bretlands og
Bandaríkjanna annarsvegar og Sovétríkjanna hinsvegar.
Tilraunir þessar hafa mistekizt, enda þótt þær hafi hlotið
öflugan stuðning mestu afturhaldsafla auðvaldsheimsins.
og áróðurinn verið óspart jórtraður í málgögnum sósíal-
demókrata af gamla skólanum, sem ebkert hafa lært af
atburðum síðustu ára.
Jafnframt yiðræðum þeim sem fulltrúar allra lýð-
ræðisafla pólsku þjóðarinnar eiga nú í um endurskipulagn-
ingu ríkisstjómarinnar. hefjast málaferlin gegn Pólverjun-
um sextán, sem handteknir voru fyrir brot á lögum um
öryggi baklands rauða hersins. Sú staðreynd bendir til
þess að stjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hafi fallizt á
þann skilning sovétstjórnarinnar, að mál þessara manna
væri með öllu óviðkomandi endurskipulagningu pólsku
stjómarinnar. Áður hafði pólska stjórnarklíkan í London
og meira að segja fulltrúar Breta og Bandaríkjamanna
tengt þessi mál saman á hinn furðulegasta hátt, og er
mun vænlegra fyrir láusn Póllandsmálanna að þessi hug-
takaruglingur virðist nú úr sögunni.
Fimmtán af þessum sextán skjólstæðingum Alþýðu-
blaðsins hafa nú við opinber réttarhöld játað á sig þær
sakir, sem á þá voru bomar, og eru stoltir af. Verður
fróðlegt að sjá þær trúðlistir sem Stefán Pétursson þarf
að leggja á sig til að halda við áróðrinum um þá sem
píslarvotta.
©
Sovéttímaritið „Stríðið og verkalýðsstéttm“ leggur á-
herzlu á að ákvörðun Krímráðstefnunnar sé byggð á
þeirri staðreynd, að rauði herinn hafði leyst landið allt
undan oki Hitlerssinna.
„Hinar nýju aðstæður í Póllandi, sem mynduðust við það, að
rauði herinn hafði leyst allt landið, mótast af þeirri staðreynd, að
endurfæðing pólska ríkisins í nýju lýðræðisformi er nú að gerast
á pólskri grundu. Meira að segja meðan nazisbar ríktu þar,_ sam-
einuðust lýðræðisöfl pólsku þjóðarinnar leynilega í þeim tilgangi
að endurreisa pólska ríkið þannig, að það væri laust við þá alvar-
legu veikleika sem voru á utanríkis- og innanlandspólitík þeirri,
er leiddi til hrunsins 1939. Þessi lýðræðisöfl pólsku þjóðarinnar
fordæmdu hina fíflslegu ,og glæpsamlegu pólitík yfirráðaklíkna
Póllands fyrir stríð, pólitík sem byggð var á Hitlerssinnaðri af-
stöðu í utanríkismálum og fasistískum stjórnaraðferðum heima
fyrir. Lýðræðisöfl Póllands, fordæmdu einróma hina fasistísku
stjórnarskrá frá 1935 og blekkingar pólsku stjórnmálamannanna
erlendis, sem reyna að halda sér við með tilstyrk þeirrar stjóm-
arskrár. Pólsku ættjarðarvinimir drógu einu réttu ályktunina af
hinum sorglegu örlögum, sem dundu yfir land þeirra í stríðinu.
Sú ályktun var, að Pólland geti ekki risið að nýju öðruvísi en
sem lýðræðisríki, sem lifir í vináttu við hinn stóra, austlæga
granna, sem ríki, er sé fjöldanum af þegnum sínum — verka-
mönnum, bændum, menntamönnum — góð móðir en ekki slæm
stjúpmóðir, — sem ríki þar sem bændur hafa jarðnæði og þegri-
arnir allir eru frjálsir, — sem sterkt lýðræðisríki, fært um að
standast hverja þá tilraun er Þýzkaland kynni að gera til árása
í austur, og hefur til þess öll skilyrði vegna stefnunnar í innan-
lands og utanríkismálum".
•Eigendúr skipsins eru h.f. Ilauk-
ur og h.f. Baldtir á Reykjarfirði.
Ólafur H. Jónsson framkvæmda-
stjóri skýrði frá kaupunum og lýsti
skip'.nu. í marz s.l. fóru ti'l Kanada
])eir Pétur Bóasson, Haraldur Ól-
afsson 1*. stýrimaður á Fjallfossi
og Skúli Sivertsén vélstjóri, tih
þess að kaupa skip þetta ef til-
tækilegt þætti. en Pétur hafði fregn
að að það væri til sölu. Kaupin
voru gerð og skipinu lofað tilbúnu
í febrúar, en af ýiúsum ástæðum
var sm'íði þess ekki lokið fyrr en
í marz.
Skipið fór frá Halifax 5. júní
og kom hingað að kvöldi þess 17.
Skipið er byggt úr tré, furubyrð-
ingur 3i/o þuml., bönd úr eik 10X
12 þuyil. Það er 520 rúmlestir
bmittó og 442 rúml. nettó. Það
hefuv 2 Fairbanks dieselvélar, 240
hö. hvora, 2 dekkspil, 10 hö. h.vort,
10 ha„ akkerisspil. og ljósávél. Það
er enn'fremur búið dýptarmæli,
miðunarstöð og talstöð.
Haúkur er fyrsta skipið sem ný-
byggingarráð liefur aðstoðað við
kaup á og þakkaði Pétur Bóasson
nýbyggingari'áði oó Útvegsbank-
anum aðstoð jjeirra við kaupin.
Haraldur Ólafsson, sem var
skipstjóri á Hauk hingað til lands,
sýndi gestunum skipið. Ganghraða
skipsins kvað hann myndi vera 9
mílur, en á heimleiðinni gekk það 8
miílur að meðaltali, en fékk þó
vont veður í 2 daga, 10—11 vind-
stig .annan daginn. Á leiðinni
brenndi ])að olíu fyrir ca. 1800 kr.
— Hingað flutti skipið 80 tonn
járns og 120 standarda af timbri.
Skipið ei', sem fyrr segir, alveg
nýtt, vistlegt og talið traustbyggt.
Á því er 10 manna áhöfn. Ibúðir
skipverja eru frékar litlar, en tal-
ið að hægt verði að stækka þær.
Enn mun ebki fyllilega afráðið
hvert það siglir eða til liverra flutn-
inga skipið verður notað.
Fréttakvikmynd frá
þjóðhátíðinni sýnd
bráðlega
Oskar Gíslason Ijósmyndari tók
kvikmynd af þjóðhátíðinni í
Reykjaví/c 17. júní og verður hún
sýnd í Gamla Bíó eitthvert nœstu
kvölda.
Ennfremur fréttakvikmyndir af
ýmsum öðrum viðburðum á þessu
vori.
I þessari fréttakvikmynd Ósk-
ars verður einnig þáttur frá há-
bíðahöldunuin í Hafnarfirði.
Þá eru einnig í þessari frétta-
kvikmynd frá aldarártíð Jónasar
Hallgrímssonar í Hljómskálagarð-
inum, frá hátíðahöidum Sjó-
mannadagsins og úrslitaleikirnir í
firmakeppni Golfklúbbs Islands.
Eins og Reykví'kingar muna
tók Óskar kvikmynd af lýðveldis-
hátíðahöldunum í fyrra og sýndi
hana nokkrum dögum síðar.
40 norsk skip til
síldveiða við
ísland
Áður fyrr stunduðu
Norðmenn allmjög síld ■
veiðar við Island og voru
flestir síldveiðileiðangram-
ir gerðir út frá Haúga-
sundj og Karmpy.
í frétt frá Norsk Tele-
gramibyrá segir að Norð-
menn geri sér góðar vonir
um síldveiðar við ísland á
þessu ári og muni um 40
norsk skip stunda síldveið
ar við ísland á þessu
sumri.
-------------------------------}
Flokkurinn
Sósíalistar í Reyk.iavík,
karlar og konur, sem getið að-
stoðað við lokaundirbúning Jóns
messumótsins eða á sjálfu mót-
inu, eru beðnir að setja sig í
samband við skrifstofu flokks-
ins, Skólavörðustíg 19, símar
4824 og 4757, í dag eða síðasta
lagi á morgun.
Forstjóraskipti hjá
Kaupfélagi Sigí-
firðinga
Stjórn Kaupfélags Siglfirðinga
samþykkti s.l. laugardag, eftir að
hafa vikið 29 fulltrúum og vara-
fulltrúum úr félagiinr vegna laga-
brota og 'klofniiigsstarfsemi, að
boða nýjan deildarfund í þrem
deildum á mánudag og þriðjudag.
Vori þar kosnir nýir ful'ltrúar í
stað þeirra brottreknu og sam-
þykkt traustsyfirlýsing til stjórn-
arinnar.
Á mánudagskvöld samþykkti
stjórnin að segja Sigurði Tómas-
syni kaupfélagsstjóra upp og fela
Guðbrandi Magnússyni að gegna
störíum framkvæmdastjóra.
Breiðfylkingarmenn hyggjast
geta rekið stjórnina frá með sam-
þykktum utan funda.
Félagsmenn taka vel ráðstöfun-
um stjórnarinnar.
Fréttaritari.
Esja fór í gær
Esjan fór í gær á hádegi á-
leiðis til Norðurlanda.
Með henni fóru 90—100 far-
þegar.
Með skipinu var sent allmik-
ið af vörum er Landssöfnunin
keypti, ennfremur á þriðju
þúsund bögglar á vegum
Rauða krossins, er sendir eru
til emstaklinga í Danmörku og
Noregi.
Stórstúkuþingið sett
annað kvöld
Stárstúkuþingið verður að þessu
sinni i Reykjavík og hefst á morg-
un (fimmtudaginn 81. júní) kl. 2
e. hád. Ganga templarar skrúð-
góngu tíl kirkju og hlýða messu.
Séra Árelíus Níelsson prédikar,
en séra Árni Sigurðsson þjónar fyr-
ir a'.tari. Messunni verður útvarp-
að.
í kvöld (miðvikudag) kl. 9 verð-
ur aimenn útisamkoma í skóla-
jKirti Miðbæjarskólans. Lúðrasveit
Reykjavíkui' leikur, en ræður
flytja þar séra Friðrik A. Frið-
riksson prófastur á Húsavik, Jakob
Möller afþingismaður og Friðrik
Hjartar skólastjóri á Akranesi.
Drengur bíður bana
í bifreiðarslysi
Á mánudag. nokkru eftír hddegi,
ók bifreið yfir tveggja ára gamlan
dreng móts við Barónsstíg 59. Var
hann fluttur í Landspítalann, og
þar lézt hann um- kvöldið.
Þessi litli drengur hét Gunnar
og var sonur Margrétar Stefáps-
dóttur og Sigurðar Oddssonar í
Bargga 61 A á Skólavörðuhoiti.
Valur vann Fram 1:0
Þriðji leikur Reykjavíkurmótsins
í meistarafiokki fór fram á ílþrótta-
ve'lliuum í gær. Fram og Valur
kepptu. Valur vann með 1:0.
Áheit á Slysavarnarfélag íslands.
Frá N. N. 50,00 kr., N. N. 160,00
kr., Ónefndum 50,00 kr., N. N. 20,00
kr„ N. N. 200,00 kr„ Sirru 100,00
kr„ H. Ó. 5,00 kr„ I. K. 5,00 kr,
I. V. 50,00 kr.
Samtals kr. 640,00.
Beztu þakkir, H. H.