Þjóðviljinn - 25.07.1945, Blaðsíða 1
Kjarasamningum
sjóinanna á kaup-
skipaflotanum
sagt upp
Sjómannafélag Reykja
víkur hefur sagt upp
samningum félagsins
við eigendur kaup-
skipaflotans. — Eru
samningar þessir út-
runnir 1. október næst-
komandi.
Skipaeigendur höfðu
áður sagt upp samn-
ingum um stríðstrygg-
ingu og áhættuþóknun
sjónjanna.
Frægur fiðluleikari
væntanlegur til
landsins
Adolf Busch, einhver frœg-
asti fiðlusnillingur Evrópu, er
væntanlegur hingað í byrjun
ágústmánaðar, og mun halda
hér hljómleika á vegum Tón-
listarfélagsins.
Adolf Busch er meðal
fremstu fiðlusnillinga Ev-
rópu, en auk þess tónskáld.
Hann er Þjóðverji, rúmlega
fimmtugur að aldri. Um það
leyti sem nazistar brutust til
valda í Þýzkalandi, flúði Ad-
olf Busch úr landi, og hefur
dvalið í Sviss lengst af síðan,
en nú síðast í Ameríku og
kemur þaðan hingað, ásamt
konu sinni.
Skákkeppni milli
Færeyja og Islands
Fyrir tilmæli Færeyinga
verður háð símskák mil'i
Skáksambands ísland; og
Færeyinga næslkonia’'ii
föstudagskvöld og h u'A
Listamannaskálanum >.! i :j
e. h.
Keppt verður á tveim
borðum og eru þrír kepp-
endur við hvort borð.
Milli kl. 8 og 10 um kvöld
ið, áður en keppnin hefst,
tefla þeir Ásmundur Ásgeirs
son, Baldur Möller, Guð-
mundur S. Guðmundsson
og Arni Snævarr fjöltefli
við allt að 10 menn hver og
hafa áhorfendur rétt til
þátttöku eftir því sem til
vinnst.
10. árgangur.
Miðvikudagur 25. júlí 1945
162. tölublað.
Kosningar væntan-
legar í Færeyjum
Færeyski sjálfstœðisleið-
toginn Thorstein Petersen
Lögþingsforseti, leiðtogi
Fólkaflokksins, er kominn
heim til Færeyja frá Dan-
mörku eftir viðrœður við
dönsk stjórnarvöld um réttar-
stöðu Fœreyja.
Samuelsen, leiðtogi Sam-
bandsflokksins, Dam foringi
Sósíaldemókrata og Zacharia-
sen, sem telst fyrir flokks-
broti úr gamla Sjálfstæðis-
flokknum eru enn í Dan-
mörku í sömu erindagerðum.
Lögþingið kemur saman á
Ólafsvöku (um næstu helgi),
en búizt er við að þingið verði
rofið og nýjar kosningar látn-
ar fara fram.
Flett ofan af svikum frönsku fasistanna
Réttarhöldin yfir Petain héldu áfram í gær. Renaud og Dala-
dier báru vitni
Þýzka flóttafólk-
ið í Danmörku ekki
flutt heim strax
Þýzka flóttafólkið í Dan-
mörku, sem skiptir tugum
þúsunda, mun ékki verða
flutt heim til Þýzkalands,
fyrr en eftir a. m. k. eitt ár.
Stafar þetta af samgöngu-
vandræðum, og hefur her-
stjórn Bandamanna farið
fram á það við Dani að þeir
hýsi og fæði þetta fólk, þang-
að til auðveldast með flutn-
inga og matarbirgðir í Þýzka-
landi sjálfu.
Reynaud hóf mál sitt á
því að endurtaka helztu at-
riðin úr ræðu sinni f.rá því
í fyrradag, þar sem hann
bar Petain á brýn, að hann
hefði jafnan óskað Þjóðverj-
um sigurs, og því svikið
land sitt í tryggðum á ör-
lagastundu þess.
Hann sagði, að hann
(Reynaud) hefði verið reiðu
búinn til að halda barátt-
unni gegn Þjóðverjum á-
fram eftir aö Frakkland
hefði verið fallið, og hefði
Darlan flotaforingi (sem
síðar gekk í lið meö Vichy-
sinnum) verið búinn aö
árásunum. Var varpað sprengjum á Osaka og Nagoja, tvær af; Sela láðstafanil til ^að
I koma franska flotanum
stærstu borgum Japans, svo og á Kure, mikilvæga fccrg á suður- undan m nýiendnanna í
strönd Honsjú.
Hefur aldrei verið varpað*
jafnmiklu sprengjumagni
Mestu loftárásir
gerðar
ms
a
Kyrrahafsstríðs-
Japan í gær
Mestu loftárásir Kyrrahafsstyrjaldarinnar voru gerðar á Japan
í g'ær. Tóku 1700 flugvélar, bæði brezkar og bandarískar, þátt í
Réttarhöldin yfir Petain héldu áfram í gær. Rey-
naud hélt áfram vitnisburði sínum, sem hann gat
ekki lokið við í fyrradag. Réttarhöldin fóru nú öll
skipulegar fram en í fyrradag, enda voru nú 1000
lögregluþjónar í og við Palais de Justice, þar sem
réttarhöldin fara fram.
einum degi í styrjöldinni
á Kyrrahafi.
Engar orustuflugvélar voru
í fylgd með sprengjuflugvél-
unum, enda gerðu Japanar
engar tilraunir til að senda
orustuflugvélar á móti þeim.
Einu flugvélar Japana sem
sáust, voru könnunarflugvél-
ar, sem gerðu vart við sig ná-
lægt 3. bandaríska flotanum,
en þær voru brátt hraktar á
brott eða skotnar niður.
Fallinna hetja
ifiimist
Um sl. helgi var haldin
minningarathöfn í París itm
60 föðurlandsvini, sem nazist-
ar myrtu um þetta leyti fyr-
ir fjórum árum.
Flestir þeirra, sem myrtir
voru, voru kommúnistar, þ.
á. m. þrír ritstjórar komm-
únistablaðsins L’Humanite.
Einn þeirra var hinn þekkti
kommúnistaleiðtogi Gabriel
Peri.
Þegar reynt var að
sökkva Tirpitz.
Brezka útvarpið skýrði í
gœr frá tilraun, sem gerð var
fyrir þrem árum til þess að
sökkva þýzka orustuskip-
inu Tirpitz, sem lá þá við
akkeri í norskum firði. Til-
raunin mistókst, en eins og
kunnugt er, tókst Bretum
seinna að sökkva skipinu.
Norskur fiskibátur flutti
nokkra sjóliða úr brezka flot-
anum inn í fjörðinn, þar sem
Tirpitz var, ásamt sprengjun-
um. Var báturinn stöðvaður
tvisvar sinnum af þýzkum
varðbátum, en komst heilu og
höldnu nálægt Tirpitz. En
þegar árásin skyldi hefjast,
tókst svo illa til, að ólag
kom á bátinn, og féllu
sprengjurnar í sjóinn. Öll á-
höfnin komst þó undan til
Svíþjóðar, nema einn, sem var
skotinn
Ekki víst hvor
sigrar
í dag verða tilkynnt úrslit-
in í kosningunum til brezka
þingsins. Er fullkomin óvissa
ríkjandi um það, hvor hinna
tveggja flokka, Verkamanna-
flokksins og íhaldsflokksins,
muni fá fleiri þingmenn.
Eitt eru menn þó fyllilega
sammála um, að ekki geti ver-
ið um mikinn rneirihluta að
ræða hjá hvorugum flokkn-
um. Ekki er talið ósennilegt,
að svo fari, að nauðsynlegt
verði, að láta samsteypustjórn
sitja áfram við völd, en eitt
er talið fullvíst: að Verka-
mannaflokkurinn og íhalds-
flokkurinn muni ekki sitja í
stjórn saman framar.
Afríku eða Bretlands, þó
að allt Frakkland félli í
hendur Þjóðverjum. Hann
hefði borið fram tillögu um
að baráttunni skyldi haldiö
áfram á ráöherrafundi í
Tours, en hún hefði verið
felld með 13 atkvæöum
gegn C. Helztu undanhalds-
sinnarnir heföu verið þeir
Chautemps, varaforsætis-
ráðherra, og Petain. Hann
hefði því ekki átt annars
úrkosta en að segja af sér
og þá hefði svikastjóm Pe-
tains tekið við völdum.
Reynaud lýsti tilboði
Churchills um sameiningu
Bretlands og Frakklands í
baráttunni gegn Þjóðverj-
um á þann veg, að það
hefði verið. bæði höfðing-
legt og göfugmannlegt.
Aö loknum vitnisburði
Reynauds, spurðu verjend-
ur Petains hann í þaula og
Rússneskur stríðsfangi bendir bandrískum hermönnum á þýzkan
fangavörð, sem misþyrmt hafði föngum.
báru það m. a. á hann, að
hann hefði skrifað Musso-
lini bréf, og lofaö honum
nýlendum Frakka í Afríku,
ef ítalir færu ekki í stríðið.
Reynaud mótmælti þessu,
og kvaðst geta afsannað
það.
Annað vitnið í réttar-
höldunum í gær var Dala-
dier, sem var forsætisráð-
herra Frakklands fyrsta
styrjaldarveturinn. Hann
var nýbyrjaöur á vitnis-
burði sínum, þegar réttin-
um var slitiö. Hann mun
halda áfram með hann í
dag.
Eftir því, sem fréttaritar-
ar segja, var réttarhöldun-
um slitið svo snemma í gær
vegna þess að Petain hafði
kvartáð yfir hitanum í rétt-
arsalnum.
Ætla að hlýða á kosn-
ingaúrslit
Þeir Churchill, Attlee og
Eden munu fara heim til Bret
lands á morgun til að vera
viðstaddir, er kosningaúrslit-
in verða kunngerð. Búizt er
við, að þeir muni fara aftur til
Potsdam á föstudag. Starf
ráðstefnunnar mun því lítið
truflast við fjarveru þeirra.
Allir herforingjarnir munu
verða eftir á ráðstefnunni, svo
og flestir ráðunautarnir og sér
fræðingarnir, ,svo að undir-
búningurinn undir næsta
fund þeirra Stalíns, Trumans
og Churchills, getur haldið
áfram.
Búizt er við, að ráðstefnan
muni a. m. k. standa fram í
miðja næstu viku og þó talið
sennilegra, að hún muni drag-
ast eitthvað lengur.
------------------------ ■*
Moskva-Bsrlín
Reglulegar flugferðir eru
nú hafnar milli Moskvu og
Berlínar.
Eru flugferðir milli b.
anna á hverjum degi og taka
þær 5—7 tíma. Kcnrð er við
í Smolensk, Minsk, Varsjá og
Posnan, en þaðan er flogið í
einum áfanga til Berlinar.