Þjóðviljinn - 25.07.1945, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 25. júlí 1945
þJÓÐVlLJIN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður GuSmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfíts Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 13, sími 3370.
Afgreiðsla og auglýsingar: SkólavörSustíg 19, sími 31 S-'i.
Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánnði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans.
s_____________________________________________________A
Umferðaslysin og skipulagning
bæjarins
Nefnd sú, er skipuð var af ríkisstjórninni, til þess að at-
huga orsakir umferðaslysanna hefur látið í ljós nokkuð af
athugunum sínum og tjáð hugleiðingar sínar um hversu
reyna megi að koma í veg fyrir þau.
En það er þess vert að gera sér ljóst að orsakirnar til um-
ferðaslysanna liggja alldjúpt og það þarf róttækar ráðstaf-
anir til þess að koma í veg fyrir það böl.
Höfuðorsökin er: alltof þröngar götur, alltof þétt byggð
hús, alltof lítið rúm cetlað börnum að leíka sér. Og þessu
verður aðeins breytt með róttœkri umskipulagningu bæjanna
og víðsýni við byggingu nýrra bœja. Og slíkri róttækri um-
skipulagningu er erfitt eða illkleift að koma við, meðan lóð-
arverð er ofsalegt. Bæjarfélagið þarf helzt að eiga alla jörð-
ina, sem bœrinn á að standa á, ef þessi skipulagning á að
verða möguleg.
Sannleikurinn er, að strax og húsnæðismálin leyfðu það,
þyrfti að rífa mikið af gömlum húsum í Reykjavík og láta
vaxa aftur gras á svæðunum þar, sem þau standa, eða búa
til nýjar umferðabrautir. Barnaleikvöllum og skemmtigörð-
um þarf að f jölga verulega mikið — og það má alls ekki láta
það komast að í hugmyndunum um endurskipulagningu
Reykjavíkur að það eigi að hagnýta dýrar lóðir með því að
byggja endilega á þeim. ísland er nógu stórt. Reykjavík á
líka nóg land. Það þarf ekki að þjappa fólkinu svo þétt sam-
an þar, að börn og fullorðnir séu drepin sakir þrengslanna.
En þá verður líka að skipuleggja hann, umferðina, barna-
dvalarstaðina aðeins með verðmæti lífsins fyrir augum en
ekki verðmæti lóðanna.
Þeim Yarð svarafátt
Á stjórnmálafundum þeim, sem haldnir hafa verið víðsveg-
ar um landið hafa leiðtogar Framsóknarmanna einna helzt
reynt að afsaka andstöðu sína við stefnu núverandi stjórnar,
með því að tala um að nauðsyn hafi borið og beri til að lækka
bæði kaupgjald og verð landbúnaðarafurða, og að stjórnar-
samvinna við flokka, sem ekki vilji fallast á þetta sé frá
þeirra hendi útilokuð.
En þegar þeim var bent á þær staðreyndir, að erlendi
markaðurinn hefur til þessa skilað því fjármagni, sem með
hefur þurft til að greiða það kaupgjald, sem goldið hefur
verið og það verð fyrir íslenzkar vörur seldar á íslenzkum
markaði, sem á þær hefur verið sett, og að lægra kaupgjald
og lægra verð á innlendum vörum hefði því aðeins þýtt, að
meira af því fé, sem þjóðin hefur aflað, hefði staðnæmzt hjá
hinum stærri framleiðendum, en minna lent hjá launþegum
og smáframleiðendum, — já, þá varð leiðtogunum svarafátt.
Þegar þeim var til viðbótar á það bent, að íslendingar hafa
í bókstaflegri merkingu, flutt út mjög mikið af vinnuafli, þ.
e. a. s. þeir hafa selt erlendum þjóðum vinnu sína, og að
lágt kaupgjald hefði því að þessu leyti þýtt sama og lágt
verð á útflutningsvöru, varð ekki greiðara um svörin. Ekki
gátu þeir heldur fært rök að því að þær þjóðir, sem við
skiptum mest við mundi festa verðlag sitt þannig að ósam-
ræmi hlyti að skapast milli þess annars vegar og þess sem
við þurfum að fá fyrir vöru okkar hinsvegar, til þess að
geta veitt launþegum og smáframleiðendum þau kjör, sem
Jaei.r nú þúa við. En fæst varð um svör, er þeim var þent á,
Flokkurimi
BORGARFJARÐARFERÐ
Und-anfarin sumur hefur Sósíal-
istafélagið og Æskulýðsfylkingin
efnt til skemmtiferðalaga á
nokkr-a fegurstu staði Suðurlands.
Þátttaka.hefur oft-ast naer verið
mjög góð.
Ég hef tekið þátt í öllum þess-
um ferðalögum og hefur mér
fundizt sem öðrum að þau hafi
verið með afbrigðum skemmtileg.
Eitt hefur mér þó fundizt skorta:
Allt of fáir iaf starfandi félögum
flokksins hafa tekið þátt í ferða-
lögunum. Á þessu þyrfti að verða
breyting og mundi félagslíf okk-
ar sízt tapa við það.
Ein-s og auglýst -hefur verið hér
i bl-aðinu verður farið nún-a um
verzlunarmannahelgina upp í
Borgarfjörð og skoðaðir þar
nokkrir frægustu staðir þessa
fagra héraðs.
Þið, félagar góðir, sem aldrei
hafið komið með áður, athugið
hvort tækifærið er ekki einmitt
nú. Látið ekki dragast að k-aupa
farmiða, því að það veldur þeim,
sem skipuleggja ferðalagið, ótrú-
legum erfiðleikum.
Svon-a ferð-alag kostar að vísu
nokkra peninga, en minningin um
ánægjulegt ferðalag er eign, sem
ekki verður frá okkur tekin.
G. Ö.
FLOKKSFÉLAGAR!
TAKIÐ EFTIR
Allmargir flokksfélagar hafa
ekki ennþá skilað söfnunargögn-
um frá 8 SÍÐU SÖFNUN Þjóð-
viljans (gulir listar, með rauðri
fyrirsögn), og ennfremur eiga
margir eftir að skila af sér vegna
PRENTSMIÐJUSÖFNUNAR Þjóð
viljans (blokkunum).
í þriðja lagi eru félagar minnt-
ir á að skila strax könnunarlist-
um sínum. Það er nú liðið hátt á
annan mánuð síðan þeir fyrstu
fengu þessa listá, en þeim skyldi
skilað eftir hálfan mánuð frá
móítöku.
Öllum þessum listum eru menn
beðnir að skila þegar í stað í
skrifstofu xniðstjórnar.
Viðskiptajöfnuðurinn
í jan.--júní mán. hag-
stæður um 12 millj. kr.
Samkvæmt skýrslum Hag-
stofunnar yfir útfluttar ís-
lenzkar afurðir í júní þ. á.,
hafa í mánuðunum jan.—júní
verið fluttar út íslenzkar vör-
ur fyrir rúmlega 142 millj.
og 300 þús. króna, en innflutt-
ar vörur fyrir tæpar 130 millj.
í júnímánuði einum var
vörujöfnuðurinn þessi: Út-
fluttar ísl. vörur fyrir 18.595.-
840 kr., en innfluttar útl. vör-
ur fyrir 23.898.030 kr. Lang-
mest var vitanlega flutt út af
KENNSLA í VÉLFLUGI
Kennsla í vélflugi er um það
bil að hefjast hér í Reykjavík og
væntanlega á Akureyri líka. Það
er eðlilegt og sjálfsagt að flug-
kennsla fari fram hér á landi svo
sem ástæður leyfa, svo flu-gmanna
efni okkar þurfi ekki að leita til
annarra landa til að nem-a þá list.
Sú kennsl-a í flugi, sem verður
hér í sumar og prófið, sem á eftir
fer, er þó ekki mið-að við far-
þegaflug, heldur veitir aðeins rétt
tíl að fljúga •einsamall, með einn
farþega, endurgjaldslaust.
VIÐ ÞURFUM FLUGSKÓLA
End-a þótt annað og meira sé
ekki á ferðinni í þetta sinn, en hið
svokallaða A-próf, ættu þau flug
námskeið sem haldin verðia hér í
sumar að geta orðið undanfari að
reglulegum flugskóla, er útskrif-
aði flugmenn með rétti til f-ar-
þegaflugs. Notkun flugvéla hér
innanlands er í örum vexti og
við höíum einni-g fullan hug á að
stunda millilandaflug, svo við höf
j um mikla þörf fyrir að fleiri læri
að fljúga, en þegar er orðið. Á-
hugi ungra manna fyrir þessum
málum er líka mikill, það sýna
umsóknirnar um þátttöku í hin-
u-m fyrirhuguðu flugnámskeiðum.
Ætti því engu að þurfa að kvíða,
u-m skort á mönnum sem vilja
gefa sig að flugnámi.
HVERRNIG MENN LÆRA AÐ
FLJÚGA
Tiltölulega fáum íslendingum
er kunnugt, hv-ernig flugkennslu
er háttað og hve langan tíma það
tekur að læra undir próf í far-
þegaflugi'. Um það geta þeir frætt
okkur, sem stundað h-afa flug-
nám erlendis, t. d. í Ameríku, og
það er enginn vafi á því að marg-
ir hefðu -gaman af að fræðast um
það.
Fyrir skömmu birti timaritið
,,Samtíðin“, fróðlegt viðtal við
ung-an flugmann, Georg Thorberg
Oskarsson, sem þá var nýkominn
frá flugnámi í Ameríku. . — Eg
leyfi mér að birta hér orðréttan
kafla úr þessu viðtali, er gefur
góða hugmynd um, hvernig flug-
námi er hátbað:
„Að lokinni læknisskoðun og
ýmsum undirbúningi hófst námið
ísfiski, eða 11.174.30 kg., að
verðgildi 10.174.750 kr. Þá
voru í sama mánuði flutt út
rúmlega 2 millj. kg. af síldar-
mjöli, og rúmlega IV2 millj.
kg. af fiskimjöli.
Viðskiptajöfnuðurinn er
því samkvæmt framansögðu,
hagstæður um rúmar 12 millj.
króna, en á sama tíma í fyrra
var viðskiptajöfnuðurinn að-
eins hagstæður um tæplega 1
millj. króna.
á því, -að flugkennari fór með mig
upp í litla flu-gvél, svonefnda
Piper Cab J—C 3, sem hefur 65
hestafia vél. Jafnskjótt og flugvél
in h-afði hafið sig til flugs tók ég
við stjórn hennar, og fannst mér
það satt -að segja heldur glanna-
leg ráð-stöfun, þar sem ég hafði
aldrei snert á stjómtækjum flug-
vélar áður og aðeins einu sinni
á ævinni komið upp í flugvél sem
farþegi. Þó var mér ljóst að ef ég
ætlaði að fara að gena eitthvert
lífshættulegt axarskaft, mundi
kennarinn, sem sat fyrir framan
mig (það var kvenmaður), óðara
taka í taumana."
EINN SÍNS LIÐS EFTIR ÁTTA
KLUKKUSTUNDIIR
„Eftir samtals 8 klukkustunda
æfingaflug undir stjóm þessa
kennara og eftir að hafia lokið
fyrsta bóklega pi-ófinu, sem stóð
í s-ambandi við fyrsta einkaflug
mitt, war ég sendur upp í loftið
einn míns liðs. Saknaði ég nú
heldur en ekki vin-ar í stað, þar
sem kennari minn, var hvergi
nærri. Nú var mér ætl-að að hefja
vélina til flugs og fljúg-a henni
einn hring yfir æfingavellinum,
sem er frek-ar lítill grasvöllur, og
lenda henni síðan. Þett-a gerði ég
þrisvar, án þess að n-okkuð bæri
út af og tók það samtals 45 mín-
útur. Eftir þessa skorpu, gekk
mér ekki eins vel að lenda vél-
inni', og ákvað kennarinn þá að
láta mig hætta að þessu sinni.
Þannig gengur þetta til hjá flest-
um, og stafar það af því, að menn
þreytast og handhreyfin-gar
þeirra verða stirðari. í hvert
skipti, sem ég lenti, gerði kenn-
arinn athugasemdir við flug mitt
og reyndi ég síðan eftir beztu
getu að lagfæra það samkvæmt
þeim.‘“
PRÓF í FARÞEGAFLUGI
EFTIR RÚML. 8 MÁNAÐA NÁM
„Nú líða dagar og vikur, og
alltaf f-ljúgum við nemendurnir í
þess-ari sömu flugvélategund. Eft-
ir að hiafa verið í æfingaflugi í
samtals 85 klst., eru okkur fengn-
ar í hendúr stærri og fullkomnari
flugvélar, sem við svo fljúgum í
samtals 100 klst. undir h-and-
leiðsln nýrra kenna-ra. Er þá æft
næturflug og f-arið í langflug -að-
degi til, lengst um 600 mílna
hring ^með I endingum í vissum
borgum til þess að jaka benzín.
En næturflugin eru d því fólgin
að æf-a nemendurnia í að hefja sig
til flugs og lenda í myrkri á
velli, sem er að mjög litlu leyti
upplýstur.
Samhliða þessu flugnámi er
mikið bóklegt nám, þar • sem
kennd er siglingafræði, veður-
fræði, og enn eru kenndar ýms-
ar reglur um loftferðalög og notk-
un talstöðvar í flugvélum. Að
þessu loknu — eftir rúmle-ga 8
mánaða nám tók ég próf í far-
þegaflugi, og gekk það að ósk-
um“.
Þ-annig er frás-ögn Georgs af
náminu á flugs-kólanum, sem
h-ann v-ar nem-andi við, en skóli
þessi nefnist Spartan School of
Aeron-auties, — og er við bæinn
Tulsa í Oklohama-ríki. Þar hafa
fleiri íslendingar stundað flug-
nám.
En nú fer Georg og fleiri af
okkar ágætu ílugmönnum að
kenna löndum sínurn þes-sar list-
ir og skulum við vona að þeim
g-angi það v-el og slysalaust. Mætti
svo fara áður en langir timar
líða, að allt nám okkar í flugi
fari fram innanlands.
að sjálfsagt væri að búa þjóðina undir að mæta þeim örðug-
leikum, sem skapast mundu ef verðlag lækkaði verulega á
erlendum markaði, með því að auka afköst hvers manns, það
er að fá þjóðinni fullkomin framleiðslutæki í hendur. Allra
fæst varð þó um svör Framsóknarleiðtoganna, þegar þeim
var á það bent, að ef lækka þyrfti verðlag og vísitölu, vegna
verðlækkunar á erlendum markaði, yrði það ekki gert með
góðu móti, nema með samstarfi þeirra aðila, sem að ríkis-
stjórninni standa.
Já, þeim varð fátt um svör Framsóknarleiðtogunum, hinir
óbreyttu liðsmenn fundu að flokkurinn er úr leik, — hans
tími er liðinn.