Þjóðviljinn - 25.07.1945, Qupperneq 7
Miðvikudagur 25. júlí 1945
ÞJÓÐVILJINN
7
Annað þýzka ríkið
Frh. af 5. síðu.
þrátt fyrir þetta voru miklar
deilur með mönnum um það,
hver skyldu vera stríðsmark-
mið Þýzkalands. Ríkisstjórn-
in var mjög þögul um þetta.
Meðal stjórnarinnar ríkti
glórulaust ráðleysi, og þegar
leið fram á styrjöldina hafði
þýzka herráðið undir forustu
þeirra Hindenburgs og Luden
dorfs sölsað undir sig öll póli-
tísk og félagsleg völd í
Þýzkalandi. Hindenburg var
raunar þá sem síðar aðeins
fíkjublað. Lúdendorf var sá,
sem með völdin fór, bæði í
herstjórn og öðru. Lúdendorf
náði undir sig umboðsstjórn
landsins og eftirliti með fram-
leiðslu ríkisins, og með að-
stoð hans fengu junkarar og
stóriðjuhöldar öll ráð ríkis-
stjórnarinnar. Að því er stríðs
markmiðin varðaði voru sum-
ir, er vildu að Þýzkaland
fengi forræði í Austur- og
suðaustur-Evrópu en leitaði
samvinnu við Bretland í öðr-
um hlutum heims. Þessari
stefnu fylgdu Bethmaner
Holweg kanslari, sósíalistar
og Framsóknarflokkurinn.
En á hinu leitinu voru íhalds-
menn, Þjóðfrelsisflokkurinn
og prússneski Miðflokkurinn
ásamt herstjórn í landher og
flota. Þeirra heróp var: Guð
refsi Englandi, og markmið
þeirra var að afla Þýzkalandi
járnnáma Frakklands, kola
Belgíu og hafskipaflota Bret-
lands. Með hverjum nýjum
sigri þýzku herjanna urðu
kröfur þessara manna hávær-
ari unz ekkert nema alger
heimsyfirráð fengu satt þá.
Þessir sömu menn fengu
því einnig ráðið, að tekinn var
upp takmarkalaus kafbáta-
hernaður, sem að lokum varð
til þess, að Bandaríkin fóru
í stríðið.
Þessar stríðsóðu þýzku yfir-
stéttir sýndu auðvitað. erlend-
um þjóðum enga linkind, en
þær voru litlu eftirlátari
þýzkum þegnum ríkisins. í
Prússlandi, sem tók yfir tvo
þriðju hluta þýzka ríkisins,
ríkti enn þriggja stétta kosn-
ingaréttur, sem veitti hátekju
mönnum miklu meiri kosn-
ingarétt en undirstéttunum.
Keisarinn lofaði þegnum
sínum að launa þeim blóðtök
urnar 1 styrjöldinni með því
að veita Prússlandi almennan
kosningarétt. En hinir prúss-
Niðursoðoglös
nesku junkarar landsþingsins
felldu frumvarp stjórnarinn-
ar og gerðu að engu orð kon-
ungs síns og lénsherra.
Nú fór að draga að leiks-
lokum. Það varð svo sem auð-
vitað að þýzka ríkið gæti
ekki hnigið svo í gröf sína án
þess að harmleikur þess yrði
hlægilegur. Eftir friðinn í
Brest-Litovsk er Rússar
urðu að láta af hendi öll þau
lönd, er þeir höfðu unnið síð-
an 1605, tóku furstar Þýzka-
lands að heimta lönd handa
sonum sínum og atvinnulaus
um frændum úr þrotabúi
Rússaveldis. Wettínaættin í
Saxlandi krafðist fyrst Pól-
lands, Síðan Lithauens. Hoh-
enzollarar hugsuðu . sér að
stofna hertogadæmi í Eystra-
saltslöndunum handa yngri
mönnum ættarinnar. Kon-
ungsættin í Wurtemberg var
í efa um hvort hún ætti held-
ur að biðja um Lithauen eða
Flandern, furstar í Hessen á-
girntust Finnland o. s. frv. En
þessum konun’glega skrípa-
leik lauk brátt, er áhættuspil-
arar herforingjaráðsins, Hind
enburg og Ludendorf játuðu
loks að nú væri leikur þeirra
á enda, og ekkert fengi bjarg
að þýzka ríkinu nema vopna-
hlé og friður þegar í stað.
Þýzki herinn, verk Bismarcks
Moltkes og Roons, fékk ekki
haldið velli lengur, og þá kom
í ljós, að á þessum her hvíldi
allt pólitískt skipulag þessa
ríkis, er Bismarck hafði
skapað, Því að nú voru leið-
togar hinna pólitísku flokka
kvaddir til að mynda stjórn.
Þingræðið þýzka spratt upp
úr ósigri hersins. í nóv. byrj-
un hófst þýzka Jbyltingin í
annað sinn, sú bylting, er átti
að skera úr um það, hvort
þýzka þjóðin hefði vaxið svo
að pólitískum þroska, að hún
gæti haldið áfram hinu ó-
lokna verki á.rsins 1848: að
skapa lýðfrjálst Þýzkaland,
sem hvorki yrði sjálfu sér né
öðrum að fjörtjóni.
---------------------------
r
Ragnar Olafsson
Hæstaréttarlögmaður
og
löggiltur endurskoðandi
Vonarstræti 12, sími 5999
Skrifst.tími 9—12 og 1—5.
2 s’tærðir
Sultuglö
os
Aðalfundur Lands-
sámbands blandaðra
kóra
Sjötti aðaljun Jur Lands-
sambands blandaðra kóra og
kvennakóra var háldinn í
Reykjavík dagana 28.—29.
júní sl.
Fundarstjó.ri var kosinn
Jónas Tómasson tónskáld á
ísafirði.
Fundarritari Ólafur Jóns-
son stud. polyt. og Jón Alex-
andersson forstjóri Reykja-
vík.
Þessir kórar eru nú í sam-
bandinu:
Kantötukór Akureyrar,
Sunnukórinn á ísafirði, Vest-
mannakórinn, Söngfélag I. O.
G. T., Reykjavik, Söngfélag-
ið „Harpa“, Reykjavík, Söng-
félagið „Húnar“, Reykjavík,
Samkór Reykjavíkur, Kirkju-
kór Borgarness.
Alls eru um 320 söngfélagar
í þessum kórum. Mættu full-
trúar frá þeim öllum, nema
kirkjukór Borgarness, og voru
mættir á fundinum 14 full-
trúar frá sjö félögum, og for-
menn þeirra allra nema
Kirkjukórs Borgarness og
Sunnukórnum. Auk þess sátu
þessir söngstjórar fundinn:
Jónas Tómasson, ísafirði,
Björgvin Guðmundsson Ak-
ureyri, Jóhann Tryggvason,
Reykjavík, Róbert Abraham
Reykjavík og Ottó Guðjóns-
son, Reykjavík.
Formaður L. B. K„ Guðm.
Benjamínsson klæðskera-
meistari gaf skýrslu um starf-
ið á liðnu ári. Þá voru og
lesnar upp skýrslur frá kór-
um og kom það greinilega
fram að starfað hefur verið af
miklu fjöri síðastliðið starfs-
ár.
Eftir tillögu frá Brynjólfi
Sigfússyni söngstjóra Vest-
mannaeyjum samþykkti fund
urinn ályktun þess efnis að
vinna beri að því að draga
sem mest úr áhrifum ,jassins‘
á ungu kynslóðina.
Þá var og samþykkt, ein-
róma svohljóðandi tillaga frá
Björgvin Guðmundssyni tón-
skáldi á Akureyri:
„Landsfundur blandaðra
kóra skorar á tilheyrandi at-
hafnavöld að gera stafróf
tónfræðinnar að prófskyldri
námsgrein í efri bekkjum
barnaskólanna, svo og í öllum
æðri skólum landsins."
Samþykkt var að vinna að
því að koma á söngmóti á
næsta vori og voru ætlaðar til
þess kr. 3000.00, en til söng-
kennslu á komanda ári voru
áætlaðar kr. 13.500.00.
Á fundinum kornu fram
raddir um að nauðsynlegt
væri að koma söngkennslu í
fastara og betra horf, helzt
með því, að komið væri upp
almennum söngskóla.
Mörg fleiri mál voru rædd.
I stjórn voru kosnir: Form.
Jón Alexandersson forstjóri,
Guðmundur Benjamínsson
klæðskerameistari mæltist
Hálft hús í smíðum
neðri hæð, 3 herbergi og eldhús, er til sölu
Upplýsingar gefur
Fasteigna & verðbréfasalan
(Lárus Jóhannesson, hrm.)
Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294
Ur borginní
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni. Sími 5030.
Næturvörður er í Réykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur: Hreyfill: sími
1633.
Utvarpið í dag.
19.25 Hljómplötur: Óperulög.
20.25 Útvarpssagan: „Jónsmessu-
hátíð“ eftir Alexander Kiell-
and (Sigurður Einarsson).
21.00 Hljómplötur: Laugairvatns-
kórinn syngur (Þórður Krist-
leifsson stjómar).
21.20 Erindi: Úr álögum (dr.
Matthías Jónasson).
21.45 Hljómplötur: Valsar.
Stefán íslandi heldur tvær
söngskemmtanir næstu daga,
miðvikudag og föstudag, i Gamla
Bíó. Við hljóðfærið verður Fritz
Weiss'happel.
Aðgöngumiðar að skemmtun-
unum eru seldir i Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, og ósk-
ast pantaðir miðar sóttir fyrir
kl. 13, dagana sem sungið er.
Aðgöngumiðar að báðum þess-
um söngskemmtunum eru nú
upppantaðir.
Vélritun
Stúlka, sem er fljót
á ritvél og meS
góöa reiknings-
kunnáttu óskast
strax
Skriístofan,
Skólavörðustíg 12
FLOKKURINN
Þeir sem eiga óskilað
könnunarlistum, eru
beðnir að skila þeim nú
þegar á f lokksskrif stof-
una, Skólavörðustíg 19.
t-ill l WiVM 4 ;Iæ3
Sverrir
Tekið á móti flutningi
í næstu áætlunarferð til
Snæfellsness- og Breiða-
fjarðarhafna á morgun.
undan endurkosningu. Ritari
Kristmundur Þorleifsson bók-
ari, gjaldkeri Jón 'G. Hall-
dórsson viðskiftafræðingur.
Varaform Guðmundur Benja-
mínsson klæðskerameistari,
vararitari Reinhard Rein-
hardsson iðnaðarmaður, vara-
gjaldkeri Bent Bjarnason bók
ari. Endurskoðendur voru
kosnir Gísli Guðmundsson
tollþjónn og Haraldur Leon-
hardsson verzlunarmaður.
Varaendurskoðandi Þórður
Þorgrímsson bílaviðgerðar-
maður.
í stjórn söngmálaráðs voru
þessir kosnir:
Formaður Björgvin Guð-
mundsson tónskáld á Akur-
eyri, 1. meðstjórnandi: Jónas
Tómasson tónskáld á ísafirði,
2. meðstjórnandi Róbert Abra
ham söngstjóri í Reykjavík.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
fer tvær skemmtiferðir um
næstu helgi. Önnur ferðin til
Gullfoss og Geysis. Lagt á stað á
sunnudagsmorgun kl. 8 og ekið
austur. Sápa verður látin í Geysi
og reynt að ná fallegu gosi. Lík-
lega farið niður Hreppa og Skeið.
Hin ferðin er hringferð um
Borgarfjörð. Lagt af stað kl. 3
síðdegis á laugardag og ekið aust-
ur Mosfellsheiði um Kaldadal að
Húsafelli og gist þar í tjöldum.
A sunnudaginn farið gangandi yf-
ir göngubrúna á Hvítá um Kal-
mannstungu að Surtshelli og Víð-
gelmi, en seinni hluta dags ekið
niður Borgarfjörð upp Norðurár-
dal að Fornahvammi og gist þar
í tjöldum, en á mánudagsmorgun
gengið á Tröllakjrkju. Síðan far-
ið í Hreðavatnsskóg, gengið að
Glanna og Laxfossi. Haldið heim-
leiðis um Hvalfjörð. Viðleguút-
búnað og mat að nokkru leyti
þarf að hafa með sér.
Farmiðar að báðum ferðunum
seldir á skrifstofu Ivr. Ó. Skag-
fjörðs, Túngötu 5 til hádegis á
föstudag.
BREIÐFIRÐINGAFÉLAGID
Skemmtiferð verður urn Dalj 4.
—6. ágúst. Farið á hestum ,,fyrir
strandir“ og inn í Saurbæ.
Kaupið farmiða, og sækið pant-
aða miða á morgun, fimmtudag,
í Hattabúð Reykjavíkur, Lauga-
veg 10, eða í skrifstofu félagsins .
kl. 6—7 síðdegis, sími 3406.
Hafið með nesti og tjöld.
Vegna þess að sjá þarf fyrir
hestum í ferðina, er ekki hægt að
selja farmiða eftir fimmtudag.
Ferða:iefndin.