Þjóðviljinn - 07.09.1945, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 07.09.1945, Qupperneq 7
Föstudagur 7. sept. 1945. OÐVILJÍNN íþrótiámót U. I. Á. Framh. af 3. síðu. Kringlukast: Keppendur 8. 1. Steinþór Magnússon S. E. 34.75 m. 2. Björn Magnússon Hr. 33.82 m. 3. Jón Bjarnason Er. 32.45 m. 4. Björn Hólm Hr. 31.68 m. Snorri Jónsson var svo ó- heppinn að ógilda öll köst sín,. svo að hann komst ekki í úrslit. Spjótkast: Keppendur 5. 1. Jón Bjarnason Er. 53 m. 2. Snorri Jónsson Þr. 52.75 m. Aðrir keppendur fengu ekki gild köst. Jón Bjarna- son er mjög efnilegur spjót- kastari, svo að segja nýr af nálinni, og er það vel af stað farið að kasta 53 m. Allir, sem fylgzt hafa með þessum mótum undanfarin ár, hljóta að sakna tveggja manna úr köstunum alveg sérstaklega, en það eru þeir bræður Þorvarður og Tómas Árnasynir frá Seyðisfirði. Þorvarður hefur í mörg ár verið ósigrandi í kúlu og kringlu, en Tómas í spjóti. Af sérstökum ástæðum kepptu þeir ekki að þessu sinni, en þeir eru ennþá upp á sitt hið bezta, og áreiðan- lega koma þeir með næst, og er þá að vænta að meiri „breidd“ verði í köstunum, t. d. gæti þá vel farið svo að fjórir menn yrðu með um og yfir 50 m í spjóti. Þá söknuðu menn einnig hins alhliða í- þróttamanns, Björns Jónsson ar frá Seyðisfirði, en hann hefur í fjölmörg ár „haldið uppi“ afrekum í mörgum í- þróttagreinum. Þótt hann sé nú farinn að reskjast, og hafi keppt lengur en flestir aðrir okkar íþróttamanna, þá má vænta þess, að hann sé ekki alveg hættur, því að enn á hann mikið eftir, það sýndu afrek hans í fyrra. Að útiíþróttunum loknum fór fram sundkeppni í sund- laug skólans. Athyglivert er það að allir keppendurnir nema einn, Voru frá Norð- firði. Ef þessi sundkeppni á að fara fram eftírleiðis í sam bandi við íþróttamót U. í. A., verður þátttakan að vera frá fleiri félögum, því að þess er varla að vænta, að Norðfirð- ingar fari oft upp að Eiðum, til þess að keppa við sjálfa sig. Úrslit í sundinu: 50 m. frj. aðferð. Keppend- ur 4. 1. Haraldur Hjálmarsson Þr. 33 sek. 2. Válur Sigurðss. Þr. 38.2 sek. , 3. Guðmundur Björgúlfss. Þr. 40.0 sek. 4. Ingimar Jónsson V. 44.00 sek. 100 m bringusund: Keppendur 4. 1. Haraldur Hjálmarsson Þr. 1.35.7 mín. 2. Ingimar Jónsson V. 1.37.9 mín. 3. Eyþór Einarsson Þr. 1.45 mín. Einn keppandi var dæmdur úr leik. Skammstafanir: Hr. Umf. Hróar, Hróars- tungu. Þr. íþróttafélagið Þróttur Neskaupstað. H. í- þróttafélagið Huginn, Seyðis- firði. Bf. Umf. Borgarfjarðar, Borgarfirði. L. F. Umf. Leikn ir, Fáskrúðsfirði. Fl. Umf. Fljótsdæla, Fljótsdal. St. Umf. Stöðfirðinga^ Stöðvar- firði. V. Umf. Vísir, Hlíðar- hreppi. Er. Umf. Egill rauði, Norðfirði. S. E. Samvirkja- félag Eiðaþinghá. Fáskrúðsfirði 8. ágúst 1945. Gunnar Ólafsson. Lilja Benjamíns- dóttir fimmtug Franska verkalýðssam bandið og de Gaulle Framhald af 1. síðu þeirri ákvörðun de Gaulles, að ekkert kjördæmi fái að hafa meirien 9 fulltrúa við næstu kosningar. Þessi til- högun mun valda því, að réttur kjósandanna 1 stærri kjördæmunum, svo sem París og öörum stórborgum mun verða skertur mjög. Hver fulltrúi í París mun t. d. hafa 95 þús. atkvæði á bak við sig, en í smábæj- um og sveitakjördæmum mun einn fulltrúi koma á hver 25 þús. kjósenda. De Gaulle hefur látið mót mæli vinstri flokkanna sem vind um eyrun þjóta og neitaö að verða við tilmæl- um þeirra um breytingu á þessari tilhögun. Stjórnarnefnd verkalýðs- sambandsins samþykkti á fundi sínum í gær áskorun til frönsku þjóðarinnar að gefa ekki stjórn de Gaulles þau völd, sem hún fer fram á að fá á tímabilinu milli kosninganna þangað til ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt, þegar hún geng- ur að kjörborðinu 24. okt. n. k. Berjaferðir verka- lýðsfélaganna Fulltrúaráð verkalýðsfé- laganna í Reykjavík gengst fyrir berjaferðum í ná- grenni bæjarins. Hefur Full- trúaráðið samið við bifreiða stjóra á Vörubílastöðinni Þróttur um að annast ferðir þessar, en þeir hafa sem kunnugt er annast berja- ferðir fyrir almenning und- anfarin sumur og hafa þeir til þessara ferða langferða- bíla. Er þess vænzt að með- limir verkalýösfélaganna og annað alþýðufólk notfæri sér þessar ferðir. Farið verð- ur frá Vörubílastöðinni Þróttur kl. 1 e. h. . hvern dag, þegar veður leyfir og næg þátttaka fæst. í dag á afmæli ein af okkar sjálfstæðu og duglegu konum, frk. Lilja Benjamíns dóttir matsölukona Hverfis- götu 32. Hún er Eyfirðingur fædd að Fjósakoti, Saurbæj- arhreppi, 7. sept. 1895. Við framfiröingar minnumst hennar gestrisna og hjálp- sama heimilis, Hrísa, þar sem hög hönd föðursins smíöaði og gerði við flest, sem aflaga fór hjá nágrönn- unum og móður hennar sem öllum vildi hjálpa og gera gott ,þó ekki væri alltaf mikið til á Hrísum fór eng- inn þar um, börn eða gam- almenni, sem ekki var glatt á einhvern hátt. Þar var alltaf ríkidæmi af góðum hugsunum og gestrisni. Lilja fékk þennan heiman- mund og með hann lagði hún út í lífið nýfermd að vinna fyrir sér og reyndi víst flestar atvinnugreinar sem buðust, en 1925 fór hún til danska sendiherrans hér sem hún ætíð minnist, sem góðs húsbónda og frænku hans, frk. Hólm sem eggjaði hana á að læra meira. Lilja sigldi til Kaup- mannahafnar og lærði mat- argerð á Hótel Fönix 1928— 29. Síöan hefur hún haft stóra matsölu hér í Reykja- vík og allir, sem hjá henni hafa boröað, vita að þar er aðeins á borö borinn nreinn og góður matur. Mörgu fá- tæku fólki hefur hún selt ódýrt og gefið meöan það hefur verið í skóla. Hún hef- ur alltaf fylgt róttækari öfl- unum að málum og verið ein af þeim, sem ekki hef- ur þurft aö segja hvar hún ætti að vera. Lilja hefur ekki ævinlega verið blíðmál, en hennar drenglynda hjarta hefur aldrei brugöizt okkur vinum hennar. Það hefur aldrei verið hennar atvinnutakmark að gifta sig og stendur hún því ein og óstudd að því leyti; en með hóp af vinum og kunn- ingjum, sem senda henni hlýjustu og beztu óskir á fimmtugsafmælinu. Rvík. 7. sept. 1945. Helga M. Níelsdóttir. Up borgijoni Næturlæknir er í læknavarð- siofunni Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs apó- teki. Næturaksxur: Aðalstöðin, sími Í383. Ljósamími ökutækja er frá kl. 20.10 til 4.40. Útvarpið í dag: 19.25 Hljómplötur: Harmóniku- lög. 20.30 Útvarpssagan: Gullæðið eftir Jaok London (Ragnar Jóhannesson). 21.00 Strokvartett útvarpsins: 21.15 Erindi: Finnur á Kjörseyri og minnisblöð háns (Stein- dór Steindórsson mennta- skólakennari frá Hlöðum). 22.05 Symfóníutónleikar (plötur) Happdrætti Háskóla ísiands. Athygli skal vakin á auglýs- ingu happdrættisins í blaðinu í dag. Dregið verður í 7. flokki á mánudag, og eru allra síðustu forvöð að endumýja á morgun, því að á mánudagsmorgun verða engir miðar afgreiddir. Aldraður verka maður bíður bana í bílslysi í fyrradag um kl. 2 e. h vildi þaö' slys til að bifreið ók á Kristján Helgason verkamann, Hringbraut 158, og andaðist hann skömmu síðar. Varð slysið á gatnamót- um Hofsvallagötu og Sól- vallagötu. Kom Kristján vest.ur Sólvallagötu á reið- hjóli, en bifreiðinni var ek- iö norður Hofsvallagötu með 30—40 km. hraða Rakst reiðhjólið á hægri hlið bifreiðarinnar og kast aðist Kristján þá af reið- hjólinu og féll á götuna. Var hann fluttur meðvitundar- laus 1 Landsspítalann og andaðist þar að 10—15 mín- útum liðnum. Hafði hann fengiö skuröi á hna,kka og enni, er hann féll af hjól- inu. Bifreiðin, sem var jeep bíll, R—2482, var ekki stöðv- uð fyrr en um 50 m. frá slysstaðnum. Kristján Hélgásþii, Vár ,67 ára gamall, fæddiif^^dé'á- ember 1878. Hann var faðir Einars óperusöngvara og þeirra systkina. Hefur þú skilað) Flokksmenn eru alvar lega minntir á að skila strax eftirtöldum gögn- um í skrifst. miðstjórnar eöa félagsins: Söfnunarlistum frá 8 síðu söfnun Þjóðviljans (gulir listar með rauðri fyrirsögn, Söfnunar- blokkum frá prentsm.ðju söfnun Þjóðviljans og könnunarlistum þeim, sem öllum flokksmönn- voru sendir 1 pósti fyrir skömmu Þaö er mjög áríðandi að flokksfélagarnir geri þá sjálfsögðu skyldu sína að draga ekki lengur að skiia þessum gögnum og gera ekki skrifstofum flokksins erfiðara fyrir í starfi en þörf er á. Bæjarstjórn sam- þykkir mjókur- skömmtun A bæjarstjórnarfundi í gær var samþykkt sam- hljóða svohijóðandi tillaga um mjólkurskömmtun: „Bæjarstjórn samþykkir að skora á borg—stjóra og’ bæjarráð aö beita sér fyrir því við ríkisstjórnina, að upp verði tekin skömmtun á nýmjólk nægilega snemma í haust svo að barnafjölskyldum og öðrum sem sérstaklega þurfa henn- aí, veröi tryggður hæfile^- ur skammtur.'* Flutningsm. var Jón Áx- el Pétursson. Frá Bæjarstjórnarfundi Frh. af 4. síðu. undanfömum Árum — en betra er seint en aldrei. Þurfa mun nýja lagasetn- ingu til þess aö raunhæfar aögerðir í þessum málum verði framkvæmdar. Kaupið Þjóðviljann Kaupfélagsmálið á Siglufirði Framhald af 1. síðu. og klofningsliðið til dómara starfa í málinu, en þaö var uppgjafa nazisti, Gunnar Pálsson, sem mun vera full- trúi borgarfógeta. Dómur inn ber þess glöggt vitni, að Finni hefur ekki fatazt : valinu. Dóminum verður aö sjálf sögðu áfrýjað til hæstarétt- ar. Blaðið mun skýra nánar frá máli þessu síðar. '1 Munið Kaffisöluna Hafnarstræti 16 ú Trésmiður, roskinn, sem getur tek- ið að sér viðgerðir á búðarinnréttingum og aðrar smíðar, óskast Skrifstofan Skólvörðustíg 12 L_

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.