Þjóðviljinn - 15.09.1945, Side 4
ÞJÓÐVILJINN
-.'raagu
Laugardagur 15. sept. 1945.
ÞJÓÐVILJINN
Utgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Rftstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir ki.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
„Hálfur úti og hálfur inni44
Sú furðulega framkoma Alþýðuflokksins. að ráðast, án
alls tilefnis á ríkisstofnun og þann ráðherra, sem hún þjón-
ar undir, hefur vakið marga til umhugsunar um flokk
þennan, eðli hans og framkomu.
Það er engin ástæða til að rekja árásarferil Alþýðu-
blaðsins gegn Fiskimálanefnd, en minna má þó á þessa
megindrætti. Finnur Jónsson dómsmálaráðherra stendur
á bak við árásir blaðsins. Árásirnar beinast að því að telja
þjóðinni og öðrum þeim er heyra mættu, trú um, að opin-
ber íslenzk stofnun sé óreiðustofnun, sem ekki megi treysta
í viðskiptum.
Svo langt er gengið að Kristján nokkur Friðriksson
er látinn smala vottorðum frá útlendingum, sem reynzt hafa
fleipur eitt, til þess að reyna að sanna að varasamt sé að
skipta við íslenzka ríkið og stofnanir þess sökum óreiðu.
Þetta er vissulega ein allra tilefnislausasta og sví-
virðilegasta rógsherferð sem farin hefur verið á landi hér.
Hvernig getur nú staðið á því að stuðningsflokkur rík-
isstjórnarinnar og ráðherra þessa flokks standa að þessari
árás?
Til þess að skilja þetta, verða menn að gera sér tvennt
ljóst, fyrst það, að Alþýðuflokkurinn hefur ætíð síðan
1927 tvístigið í hverju máli, hann hefur verið hálfur úti
og hálfur inni, 1 hvert sinn sem til verulegra átaka hefur
komið í íslenzkum þjóðmálum. Annað það sem muna þarf
er viðskipta siðfræði Stefáns Jóhanns og stuðningsmanna
hans í flokknum.
Stefán Jóhann er nú staðinn ‘að því að hafa notað að-
stöðu sína sem fulltrúi þjóðarinnar sér til persónulegs
hagnaðar, á svo freklegan hátt að slíks eru engin dæmi,
og stuðningsmenn hans við Alþýðublaðið hafa varið hann
með því að segja: „Kommúnistar, Sjálfstæðismenn, Fram-
sóknarmenn hafa gert nákvæmlega hið sama, ekki einu
sinni heldur marg oft. Hvað er þá saknæmt við þetta, mælt
á okkar „heilbrigða" viðskipamælikvarða“. Auðvitað hafa
þeir aðspurðir ékki getað bent á þessa kommúnista. Sjálf-
stæðismenn og Framsóknarmenn sem hafa gert nákvæm-
lega hið sama og Stefán, en með þessu hafa þeir hinsvegar
viðurkennt að þeir lifa eftir reglunni: Ef einhver hefur
framið glæp, þá er sjálfsagt að leiðtogar Alþýðuflokksins
fremji hann líka.
Það þarf viðskiptasiðfræði Stefáns og hugsunarhátt
stuðningsmanna hans við Alþýðublaðið, til þess að fram-
leiða róg og uppspuna um ríkisstofnun og þrautreyna að
koma óreiðuorði á hana hjá erlendum viðskiptaaðilum, í
þeim eina tilgangi að rægja samstarfsmenn í ríkisstjórn-
inni.
En við sleppum nú þessu og víkjum að tvídrægninni
í öllu starfi Alþýðuflokksins.
Árið 1927 gerðist hann stuðningsflokkur ríkisstjórnar-
innar. Fyrir kosningar 1931 snerist hann til andstöðu við
stjórnina. 1934 tók hann þátt í stjórnarmyndun. Fyrir kosn-
ingar 1937 fe.r hann í stjórnarandstöðu. Árið 1939 gerðist
Alþýðuflokkurinn enn stjórnarflokkur, fyrir kosningar
1942 snerist hann til stjórnarandstöðu. Árið 1944 gerist
flokkurinn enn stjórnarflokkur. Mikil átök voru um þá
ákvörðun innan flokksins, hann var þar sem oftar „hálf-
ur úti og hálfur inni“. Þessi átök eru enn háð innan Al-
|)ýðuflokksins. Stjórnarandstæðingarnir innan flokksins
Elzti útileguskáli
landsins 25 ára
Þann 5. september síðast-
liðinn voru liðin 25 ár frá
því að útileguskáli Skátafé-
lagsins Væringjar var vígður
í Lækjarbotnum. Það var
mikið afrek fátæks drengja-
félags að koma upp svo stór-
um og myndarlegum skála
á þeirra tíma mælikvarða.
Það var fyrir ötula forgöngu
Axels V. Tuliníusar, fyrsta
skátahöfðingja íslands og Ár-
sæls heitins Gunnarssonar,
þáverandi sveitarforingja
Væringjafélagsins, að ráðizt
var í verkið. Staður fyrir
skálann var valinn að Lækj-
arbotnum. Þar hafði áður vey
ið áningarstaður ferðamanna
er fóru austur yfir fjöll, en
þegar bílvegurinn kom, var
bærinn fluttur og um leið
skírður upp. Var þarna autt
svæði á fallegum stað 1 hæfi
legri fjarlægð frá Reykjavík.
Svo vel hefur staðurinn ver-
ið valinn, að ennþá sækir hin
uppvaxandi skátaæska í
Lækjarbotna sem fyrr.
Byrjað var á byggingu
skálans snemma á sumrinu
1920. Efninu var ekið á bíl-
um og hestvögnum upp að
Lögbergi, en þaðan var það
flutt á handvögnum; hest-
vögnum, reiðhjólum eða bor-
ið þangað, sem skálinn stend
ur nú. Skátarnir unnu sjálfir
við efnisflutninginn og
hleðslu torfveggjanna, en tré-
smiðir önnuðust trésmíði.
Fyrstu árin var skálinn ein
göngu nota,ður að sumri til,
en með tímanum hefur þetta
breytzt og er hann nú mest
notaður á veturna, til skíða-
ferða. Og þótt skátarnir hér
í Reykjavík hafi síðan byggt slnu
sér þrjá aðra skála, er alltaf
um hverja helgi farið upp
í Lækjarbotna. Það er mest
yngstu skátarnir sem sækja
skálann sem fyrr. Þar fá þeir
fyrsta undirbúninginn undir
ferðalög og útilegustörf. Þeir
eru æði fáir reykvísku skát-
arnir, sem ekki hafa farið
sína fyfstu útilegu í Lækj-
arbotnaskálann.
Næstkomandi sunnudag
ætla skátar, ungir og gamlir,
að sækja upp í Lækjarbotna
og minnast gamla og góða
skálans og hinna ötulu for-
ingja, sem börðust fyrir því
að koma skálanum upp.
*
SÝNING Á MYNDUM FRÁ
SOVÉTRÍKJUNUM
Un-danfama daga hefur staðið
yfir sýniiig á myndum frá Sov-
étríkjunum, í Útvegsbankanum.
Sýning þessi er haldin að til-
hlutun sendiráðs Sovétríkjanna
á íslandi. Eru myndimar af ýms-
um frægustu byggingum Sovét-
ríkjanna, sem eyðilagzt hafa í
styrjöldinni, og allmikið ljós-
myndasafn frá styrjaldarárunum.
Sýning þessi er einkum athygli
verð fyrir þá, sem áhuga hafa
fyrir fagurri og sérkennilegri
byggingarlist.
Skrá yfir myndirnar og skýr-
ingar á þeim, hafa verið prent-
aðar, og fá sýningargestir eintak
af þeim við innganginn. Eftirfar-
andi formálsorð fylgja mynda-
skýringunum:
„Eyðilegging sú, er þýzku naz-
istarnir hafa leitt yfir gjörvalla
Evrópu, í þessari styrjöld, hefur
líkiega hvergi verið öllu geig-
vænlegri en í vesturhluta Ráð-
stjórnarríkjanna.
Allt milli Eystrasalts og Svarta
hafs er nú aska og auðn, þar sem
áður stóðu blómgandi iðnver og
friðsæl þorp.
Um raðir alda hefur rússneska
þjóðin verið að byggja upp borg-
ir sínar og bæi af alúð og list-
fengi. Fyrir henni eru þessar
fornu byggingar sömu verðmæti
og sögurnar eru íslendingum,
ljósasti vottur' um menningu lið-
inna tíma.
Slík eyðilegging verður aldrei
bætt, — og nú eru það Ijós-
myndimar einar, sem segja verða
sögu þeirra.
*
En víst er um það, að upp
úr rústum þessara fögru bygg-
inga munu aftur rísa listaverk,
tígulegri og stærri en hin fyrri,
og munu þau standa um næstu
þúsund ár sem glæsilegur vottur
þeirrar nýju menningar, sem
sósíalisminn hefur skapað í ríki
SLATTUMENN
Maður nokkur hringdi til Bæj-
arpóstsins og hafði þessa sögu
að segja:
Eg er einn af þéim sem á allt
mitt undir heyfeng sumarsins,
og sótti ég um traktor til S. í. S.
á síðastliðnum vetri. Fékk ég
hvorki svarað af eða á, en þeg-
ar til úthlutunar kom var mér
neitað.
Á sama tíma var Finnboga
Rúti, fyrrum Alþýðublaðsrit-
stjóra og Jóni B. Jónssyni skrif-
stofumanni hjá bænum, úthlutað
traktorum, og voru þeir að slá
fyrir Pétur og Pál hér í ná-
grenni Reykjavíkur í allt sum-
ar, og tóku 50 kr. á dagsláttuna.
Þetta er vægast sagt einkenni-
legt réttlæti í úthlutuninni, og
ekki virðast bæjarstarfsmenn all
ir mjög aðþrengdir með starf
ef þeir geta verið að slá fyrir
sjálfan sig og náungann tímum
saman.
ATHUGASEMD
Prófessor Guðbrandur Jónsson
hefur beðið Þjóðviljann að birta
eftirfarandi atbugasemd:
„Til ritstjórnar Þjóðviljans.
Út af ummælum í Þjóðviljan-
um um mig í dag í sambandi
við ádeilur Kristjáns Friðriks-
sonar á Fiskimálanefnd vildi ég
taka eftirfarandi fram:
Eg hef engan beinan eða ó-
beinan þátt átt í þessu deilumáli,
hvorki fyrr né síðar, og tel mér
deilu þessa að öllu leyti alger-
lega. óviðkoinandi.
Hins vegar kom Kristján Frið-
riksson til mín fyrir nokkrum
dögum með frumrit af símskeyti
sem hann hafði fengið frá Sjó-
mannafélagi Færeyinga, ásamt
þýðingu, sem hann hafði gert af
þvi, og krafðist þess, að ég, sem
er löggiltur dómtúlkur og skja!-
þýðandi meðal annars i dönsku,
staðfesti hana, eins og mér ber
lagaskylda til. Gerði ég nokkrar
breytingar á þýðingunni til rétts
vegar og staðfesti hana síðan
gegn greiðslu lögmælts gjalds.
Þessa athugasemd óska ég að
Þjóðviljinn birti.
Reykjavík 14. september 1945.
Guðbrandur Jónsson.
%
Löggiltur dómtúlkur og skjala-
þýðandi".
Foringjaskóli B. í. S.
Eins og kunnugt er, hélt | Akranesi, Borgarnesi, Pat
Bandalag ísl. skáta annan reksfiröi, Þingeyri, Hólma-
foringjaskóla sinn aö Ulf-
ljótsvatni í Grafningi dag-
ana 1. til 9. sept. síöastl.
Nemendur voru um 60 skát
ar frá 18 félögum á eftir-
töldum stöðum: Vestmanna
eyjum, Stokkseyri, Eyrar-
bakka, Selfossi, Grindavík,
Keflavík, Hafnarfirði, Rvík,
ráða blöðum hans og sum þeirra, eins og t. d. Skutull á
ísafirði, ráðast á allar framkvæmdir stjórnarinnar að hætti
Tímans, jafnvel stjórnarathafnir Finns Jónssonar eru þar
dæmdar sem villa ein. Alþýðublaðið aftur á móti lætur
sér nægja að ráðast á ráðherra sósíalista og búa til sakir
á hendur þeim. En öll stefnir stjórnarandstaðan innan Al-
þýðuflokksins að sama marki, því, að leika hinn gamla leik
Alþýðuflokksins að komast í stjórnarandstöðu fyrir kosn-
ingar. Tvídrægnin er söm við sig.
En þjóðin er orðin leið á þessu tvísigi Alþýðuflokks-
ins og hún mun dæma flokkinn allan til að „vera úti“.
Hún mun svipta hann allri aðstöðu til áhrifa á þjóðmálin.
vík og Akureyri. Auk þess
mun fjöldi kennara og ann-
arra starfsmanna hafa num
iö allt aö tveim tugum, svo
aö dvalargestir hafa veriö
um 80 talsins þessa dag-
ana aö Úlfljótsvatni.
Skólanum var skipt í
tvær deildir, en Páll Gísla
son haföi yfirumsjónina á
hendi, Önnur deildin var
engöngu helguö verkefnum
þeirra og framkvæmdum
yfirleitt. Var þar til dæmis
kennt hvernig haga má
stofnun skátafélaga, skipu-
lagningu og starfi sveitar-
funda, sveitaútileikjum,
sveitargönguæfinga og sveit*
arútiæfingum. Ennfremur
hvernig heppilegast þykir
að skipuleggja heildarstarf
skátanna. Fengu skátarnir
verklegar æfingar þessum
Frh. á 7. síðu.