Þjóðviljinn - 25.10.1945, Blaðsíða 4
ÞJ'ÓÐVIlrjmN
Fixnmfcudagur 25. okt.- 1945
ÞióðviuinH
tJ-tgefandi: Sameiningarflofckur alþýðu — S&sialistaflokkurinn
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjómmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofá: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir ki.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, simi 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskríftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 ó mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
...■ .-i-i ■ -..- ■ .... ........ ..........
Morgunn atómorkualdarinnar
Steinþór Sigurðsson magister minntl á það í útvarpserindi
sem hann flutti nýlega, að þróunarsögu mannkynsins væri
skipt í steinöld, bronsöld og járnöld. Hann leit svo á að
til þessa hefðum við lifað á jámöld, en að nú mætti''
ætla að morgunn nýrrar aldar, — aldar atómorkunnar, —
væri runninn, ef til vill yrði sú öld talin hefjast þann
drottins dag 6. ágúst 1945, daginn sem heilli borg var sóp-
að burtu af yfirborði jarðar á ómælisskömmum tíma.
"1 EY JAPÓSTUR
Þingmálafundur Jóhanns
- í Vestmannaeyjum -
Þessar hugleiðingar eru á fyllstu rökum reistar. Svo
stórmerkir atburðir hafa gerzt á sviði vísindanna að jafna
má til þess er mennirnir lærðu að nota járnið. Sá draum-
ur hefur ræzt að breyta efnum í orku, vísindamennirnir,
sem gerðu hann að veruleika, hafa unnið mesta afrekið,
sem vísindaleg hugsun hefur unnið til þessa, þeir hafa
opnað mannkyninu meiri möguleika til stórra athafna,
góðra og illra, en nokkru sinni fyrr.
•
En það er ekki aðeins í heimi efnís og orku, sem
mannkynið stendur nú í anddyri nýrrar aldar. Öll saga
mannkynsins er óslitin sönnun þess að félagshættir mann-j
anna eru bein og rökrétt afleiðing þess valds sem þeiri
hafa yfir efni og orku náttúrunnar. Sérhver ný þekking
á þessu sviði hefur fyrr eða seinna leitt til breyttra
þjóðfélagshátta.
Á síðustu öldum járnaldar nnar, á vélaöldinni, hefur
þróunin stefnt til síaukinnar félagshyggju, þjóðfélagsform
sósíalismans er hin rökrétta afleiðing vélaaldarinnar, það
svarar til kvölds járnaldarinnar og morguns atómorkualdar-
innar.
•
Og nú þegar öld atómorkunnar hefst, standa sakir
þannig, að geysi fjölmennar og voldugar þjóðir hafa kom-
ið á hjá sér því þjóðfélagsformi sem tæknin krefst, aðrar
þjóðír ekki síður fjölmennar og voldugar, halda sér enn
við þjóðfélagsform, sem tilheyra fyrri stigum járnaldar-
táskni. Valdastéttir þessara þjóðfélaga, gera allt sem þeim
er auðið til að hindra þróunina. Völd sín hafa þessar stétt-
ir af því hve takmarkað hið borgaralega Iýðræði er, af því
að það er ekki efnahagslýðræði. Þar er efnahagseinræði
yfirstéttanna, sem gefur þeim mátt til að tefja sigur sósíal-
ismans.
•
Á síðustu dögum hafa verið bomar fram kvíðafullar
spurningar um það, hvort hin tvennskonar ríki, riki
sósíalismans og kapítalismans geti lifað í friði sín á milli
eða hvort til styrjaldar muni draga.
Styrjöld milli þessara aðila væri það stærsta ólán sem
mannkynið gæti hent, og þegar sú staðreynd er athuguð
að við lifum á öld atómorkunnar, verður að telja senni-
legt að slík styrjöld gæti þýtt gjöreyðingu mannkynsins.
Þessi staðreynd ætti að leiða til þess að nú væri unnið
að því af meira kappi en nokkru sinni að efla vinsam-
lega sambúð milli ríkja sósíálismans og ríkja kapítalism-
ans. En því miður virðist nú unnið að því gagnstæða af
miklu kappi. Auðvaldspressur allra landa þylja nú róg um
sósíalisma álíka hatramlega og þegar verst var fyrir stríð.
Hinir voldugustu meðal auðvaldsríkjanna virðast kepp-
ast við að afla séf hernaðafbækistöðva í löndum smáþjóða,
aflt' bendfr þetta fremur til ófriðar en friðar.
Það eru sannarlega rosaský sem hylja morgunhimin
Mánudaginn 15. þ. m. hélt
Jóhann Þ. Jósefsson þing-
málafund í Vestmannaeyjum.
Lýsti Jóhann því yfir í fund-
arbyrjun, að fullar lýðræðis-
reglur yrðu við'hafðar í stjórn
fundarins, þannig að jafnt
andstæðingar sem samherjar
hefðu rétt til að leggja fram
tillögur og taka þátt í umræð
um. í framkvæmdinni varð
þetta þannig, að fyrst flutti
Jóhann framsöguræðu, sem
stóð eina klst. og 25 mín.,
og lagð fram nokkrar tillög-
ur. Síðan voru leyfðar um-
ræður — eingöngu um þess-
ar tillögur Jóhanns, hvefja
eina í senn. Vitaskuld gátu
ræðumenn ekki fastbundið
sig við þetta (vestræna?) lýð-
ræði, heldur fóru meira eða
minna út fyrir þessar þröngu
skorður. .
Framsöguræða Jóhanns
fjallaði einkum um stjórnar-
samvinnu og störf nýbygging
arráðs — en hafði auðvitað
að ívafi hæfileg drýgindi yfir
elgin afrekum fyrir byggðar-
lagið. Fræðsla um jafn merki
legt mál og starfsemi nýbygg
ingarráðs er hverjum mar^xi
góð og gagnleg lexía — og
gætum við Vestmannaeying-
ar tekið slíku máli vel, jafn-
vel þó ofurlítið fljóti með af
sjálfshóli hjá okkar gamla og
reynda alþingismanni. Okkur
er trúandi til að vinza slík-t
úr. En lítið er okkur gefið um
að fá jafnframt fræðslu um
stórhug bæjarstjórnarmeiri-
hlutans hér í atvinnu- og
menningarmálum, við þykj-
umst sem sé vita fullvel sjálf-
ir, hversu þeim „stórhug“ er
farið.
Það veður að telja það illa
farið, að Jóhann skyldi verða
til þess að koma í veg fyrir,
að fundur sá er auglýst var
að halda ætti hér fyrr á árinu
á vegum stjórnarflokkanna
yrði haldinn
Auk Jóhanns, talaði af
hálf sjálfstæðismanna Ársæll
Sveinsson, sem einkum bar
hönd fyrir höfuð bæjarstjórn
armeirihlutans og reyndi að
sannfæra menn um, að hagur
bæjarins væri hinn bezti.
Af framsóknarmönnum töl-
uðu þeir nafnarnir Helgi
Benediktsson og Helgi Benó-
nýsson. Vo.ru þeir hógværir
í ræðum sínum og gerðu enga
tilraun til árása á stjórnar-
samvinnuna eða nýsköpun-
ina — hafa sjálfsagt ekki
búizt við, að slíkar árásir
fengju mikinn hljómgrunn í
Eyjum.
Öðru máli gengdi um ræðu
snilling Alþýðuflokksins, Pál
Þorbjamarson, fyrrv. þing-
mann. Hann helti úr skálum
reiði sinnar yfir allt og alla,
fiskimálanefnd, nýbyggingar-
ráð, atvinnumálaráðherra o.
s. frv. og klykkti út með því
að leggja fram tillögur um
það m. a. að fiskimálanefnd
yrði lögð niður, og að ríkis-
sjóður greiddi ísfisksamlag-
inu hér tjón, er það varð fyr-
ir, vegna leígunnar á skip-
inu „Korab“. Samþykkti
stjórn ísfisksamlagsins á sín-
um tíma að láta eitt yfir
samlagið og Helga Benedikts-
son ganga í máli þessu, sem
alræmt er orðið. Af máli Páls
og tillögum þessum má það
öllum ljóst vera, hverju meg-
in hann stendur í röðum al-
þýðuflokksmanna — og get-
ur Alþýðublaðsklíkan talið
sér þar vissan fylgisveín.
Ekki þarf að taka það fram,
að þessar tillögur Páls voru
báðar felldar.
Af hálfu sósíalista töluðu
þeir Karl Guðjónsson um
stefnu flokksins og afstöðu
til stjórnarsamvinnunnar og
nýsköpunarinnar,. Sigurður
Stefánsson um Korabmálið,
ísfisksamlagið og sjómanna-
málin yfir leitt. og Árni
Guðmundsson um bæjarmál-
in og sýndi hann fram á,
hversu meiri hluti bæjar-
stjórnar hefði leitt bæjarfé-
lagið í fjárhagsleg vandræði,
svo að það væri nú lítils
megnugt, að loknum veltiár-
um stríðsins.
Margar tillögur komu fram
á fundinum, og voru yfir-
leitt allar samþykktar, þær
er til framfara horfðu, svo
sem um ný hafnarlög fyrir
Vestmannaeyjar, um bygg-
ingu gagnfræðaskóla, hús-
mæðraskóla, sjúkrahúss, sjó-
vinnuskóla og íþróttahúss.
Ennfremur tillögur um það
að Vestmannaeyjar yrðu ekki
afskiptar um nýsköpun at-
vinnuveganna, og því er
snerti staðsetningu skipa,
véla o. s. frv., að Vestmanna-
eyingar fengju styrk til að
koma upp samvinnukúabúi,
að síminn yrði opinn allan
sólarhringinn, um gæzlu tal-
stöðva og viðgerðarmann, að
póstskipin hefðu fasta við-
komu í eyjum á ferðum sín-
um til og frá útlöndum o. m.
m. fl.
Hins vegar voru felldar
þær tillögur Páls, er fyrr eru
nefndar, ennfr. till. frá H.
Danska stjórnin
aðvöruð
Frh. af 1. síðu.
ar aðvaranir áréttaðar, og
frá 1. til 8. apríl komu
fjöldi aðvarana frá sendiráð
inu í Berlín. Sænska herfor
ingjaráðið sendi aðvörun 5-
apríl gegnum sænska sendi-
ráðið í Khöfn. í henni
sagði, að sænska herfor-
ingjaráðið væri þess fullvísu
að Þýzkaland myndi bráð-
lega ráðast á Danmörku.
Samskonar aðvarann
komu frá sendisveitum Hol-
lands og Bretlands. En ekki
fyrr en 8 apríl var. ákveðið
að kalla 14.550 menn til
vopna og láta herinn vera
viö öllu búinn.
Viðvörunum var haldið
haldið leyndum.
Það kemur fram, að Þjóð
verjar hófu árás sína kl. 4
morguninn 9. ágúst 20 mín
útum áður en þýzki sendi-
herrann afhenti utanríkis-
ráðherranum skilyrði Þýzka
lands. Landvarnaráðherr-
ann, Alsing Andersen, segir
að á stjórnarfundi hjá kon-
ungi hafi verið ákveðið ar5
hætta mótspyrnu gegn ó
vinunum, svo að landinu
yrði þyrmt.
Það kemur fram í skýrsl-
unni, aö misbrestur hefur
verið á því, að hinar ýmsu
her- og stjómarskrifstofur
skýröu hver annarri frá þró
un málanna þessa örlaga-
ríku daga. Þannig fengu
yfirmenn hers og flota ekk-
ert að vita um ýmsar aö-
varanir frá sendiráðinu í
Berlín.
atómorkualdarinnar, en vonandi verður máttur mannlegrar
Skynsemi svo mikill að nægi til að eyða þeim skýjum.
Mannkynið þarf og þráir frið, hver sá sem vinnur að
rógburði á milli þjóða vinnur.illt verk.
Benediktssyni um verðjöfn-
un rafmagns o. fl.
Um afdrif sumra smávægi-
legra tillagna varð aldrei al-
mennilega ljóst, með því að
fundarstjórn var með þeim
vandræðum, að stundum
varð ekki á milli dæmt, hvort
maður .var á alvarlegum
fundi eða revýju. T. d. var
svo látið heita, að tillaga frá
Helga Benediktssyni, þess
efnis að þingmenn væru
skyldaðir til að hafa búsetu
hver í sínu kjördæmi — væri
samþykkt með 5 atkv. gegn
2. Sannleikurinn var sá, að
aðeins var talið í salnum
niðri í húsinu, en á svölunum
var ekki talið og voru þar
þó allmargir, sem réttu upp
hendina gegn tillögunni. Svip
aða afgreiðslu fengu fleiri til-
lögur, t. d. rafmagnstillaga
H. B., sem var talin samþ.
með 23:19, en var raunveru-
lega felld.
Enda þótt fundur þessi
væri á margan hátt spaugi-
legur, svo að ekki sé meira
sagt, varð þess þó fyllilega
vart, að Vestmannaeyingar
eru allflestir einlægir stuðn-
ingsmenn stjórnarsamvinn-
unnar og hinnar merkilegu
nýsköpunar í atvinnumálum
þjóðarinnar, sem sú sam-
vinna stendur um og byggist
á.
Á. G.